Morgunblaðið - 17.04.2005, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Bolungarvíkurkaupstaður
Markaðs- og
kynningarfulltrúi
Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir eftir markaðs-
fulltrúa til að vinna að átaksverkefnum í atvinnu-,
ferða-, og menningarmálum fyrir kaupstaðinn.
Til að byrja með verður um tímabundna ráðn-
ingu að ræða í 4 mánuði en hugsanlega mögu-
leiki á framhaldi reynist verkefnið skila
tilætluðum árangri.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna í
Bolungarvík, Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík í
síðasta lagi mánudaginn 25. apríl 2005.
Nánari upplýsingar veitir Einar Pétursson bæjar-
stjóri í síma 450 7000.
Vélamenn,
meiraprófsbílstjórar
og verkamenn
Vegna mikilla verkefna viljum við ráða véla-
menn, meiraprófsbílstjóra og verkamenn
til starfa sem fyrst.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Jarð-
véla í síma 564 6980 eða fyllið út umsóknareyðu-
blað á vefsíðu fyrirtækisins www.jardvelar.is
Bakkabraut 14, 200 Reykjavík.
Þvottahús - efnalaug
óskar eftir starfsfólki. Þjónustulund og góð
framkoma skilyrði. Góð laun í boði.
Upplýsingar veitir Björn í síma 899 5968.
Ræstingastörf
Vantar starfskraft sem fyrst í hálft starf fyrir
hádegi við ræstingar á gistiheimili í miðbæn-
um. Mjög góð laun og góður andi á vinnu-
staðnum. Nánari upplýsingar í síma 861 1836.
Toppfiskur ehf.
Toppfiskur ehf. óskar eftir vélvirkja/vélstjóra,
með góða tölvu- og rafmagnskunnáttu, til þess
að sjá um vélar og viðhald hjá fyrirtækinu.
Umsóknareyðublöð á toppfiskur.is
Stuðningsfulltrúar
Óskað er eftir stuðningsfulltrúum í hlutastöður og fullar stöð-
ur á heimili fyrir fólk með einhverfu í Breiðholti, Reykjavík. Um
er að ræða áhugaverð, lærdómsrík og krefjandi störf í vakta-
vinnu og er um fjölbreytta vaktamöguleika að ræða. Á heimil-
inu er unnið eftir TEACCH þjónustukerfi. Táknmálskunnátta er
æskilegt en ekki nauðsynleg. Skipulögð aðlögun er fyrir nýtt
starfsfólk undir handleiðslu fagfólks.
Vegna samsetningar starfsmannahópsins eru karlmenn sér-
staklega hvattir til að sækja um.
Upplýsingar veita Margrét Steiney Guðnadóttir, forstöðumað-
ur, í síma 561 1180, netfang: margret.s.gudnadottir@ssr.is
og Guðný Anna Arnþórsdóttir, sími 895 2388, gudnya@ssr.is .
Frekari upplýsingar um SSR er að finna á heimasíðunni
www.ssr.is .
Laun eru í samræmi við samninga ríkisins og S.F.R.
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2005.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofunni, Síðu-
múla 39, og á fyrrnefndri heimasíðu SSR
Á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra er unnið í samræmi við
ný samþykkta jafnréttisáætlun.
Kennarar
Við Varmahlíðarskóla í Skagafirði eru laus-
ar eftirgreindar kennarastöður næsta skólaár;
Staða bekkjarkennara til að kenna á yngsta
stigi og/eða miðstigi.
Staða íþróttakennara til að kenna öllum nem-
endum skólans.
Upplýsingar um skólann er að finna á slóðinni
www.varmahlidarskoli.is og allar nánari upp-
lýsingar gefur skólastjóri, Páll Dagbjartsson,
í síma 453 8225 og 861 8815.
Umsóknir skulu sendar til skólastjóra fyrir
15. maí.
Skólastjóri Varmahlíðarskóla.
Löglærður fulltrúi
Lögmenn Höfðabakka leita eftir löglærðum
fulltrúa til starfa. Æskilegt er að umsækjendur
hafi hdl-réttindi og reynslu af verkefnum tengd-
um fyrirtækjalögfræði og fjármunarétti, sér-
staklega á sviði verðbréfa- og skaðabótaréttar.
Umsóknir skulu berast Lögmönnum Höfða-
bakka, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, b/t Þórðar
Bogasonar, eigi síðar en mánudaginn 2. maí
2005. Farið verður með umsóknir sem trúnað-
armál. Nánari upplýsingar veitir Þórður í síma
587 1286.
Lögmenn Höfðabakka,
Hreinn Loftsson hrl.
Þórður Bogason hdl.
„FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar
hf. efnir til forvals verktaka fyrir
lokað útboð vegna stækkunar og
breytinga í svokallaðri norðurbygg-
ingu flugstöðvarinnar (sem er hin
upprunalega flugstöð). Flugstöðvar-
byggingin verður stækkuð til suð-
urs um 5.000 fermetra og skipulagi
á 2. hæð verður jafnframt breytt
svo mikið að líkja má við umbylt-
ingu. Gert er ráð fyrir að verkið
hefjist í júní næstkomandi og því
ljúki 1. júní 2006. Áætlaður fram-
kvæmdakostnaður er 4,5 milljarðar
króna.
Upphaflega var gert ráð fyrir því
að hefja þessar framkvæmdir ekki
fyrr en í haust og að ljúka þeim vet-
urinn 2006/2007. Veruleg fjölgun
farþega á Keflavíkurflugvelli gerir
það aðkallandi að flýta framkvæmd-
um verulega, en gert er ráð fyrir að
ný og breytt flugstöð verði tekin í
gagnið áður en annatími sumarsins
2006 hefst,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar
hf.
„Allt húsrými á 2. hæð verður
lagt undir verslun og þjónustu við
farþega. Við skipulagsbreytinguna
þar, og stækkun norðurbyggingar
til suðurs, tvöfaldast verslunar- og
þjónusturýmið og verður 7.700 fer-
metrar í stað 3.600 fermetra nú.
Samhliða þessu verður rekstrarað-
ilum fjölgað,“ segir jafnframt í
fréttatilkynningunni..
Stækkun
flugstöðvar
verður flýtt