Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 15.08.1955, Blaðsíða 8

Mánudagsblaðið - 15.08.1955, Blaðsíða 8
STY'RJÖLDIN milli Ford bifreiða og Chevrolet geysar víð- ar en á Islandi. Bandaríska vikublaðið Times, sem hefur aðgang að söluskýrslum þessara félaga skýrir svo frá í sl. viku, að Chevrinn sé að tapa á öllum vígstöðvum, og hrapi sala niður mjög ótt. Þá hafa borizt fréttir um það, að eitt eða tvö Norður- landanna hafi bannað innflutning á Chevrolet bifreiððum, en eitt þeirra kref jist að þær séu vandlega skoðaðar, áður en þær koma inn í landið. Er hér átt við 1955 tegundina, sem mikið hefur verið flutt inn í landið og er seld hér mjög dýru verði. Myndin að ofan sýnir Ford Farlaine gerð, sem er afar vinsæl hér á Islandi. ÚR EINU1ANNAÐ Það sem andskotinn gerir aldrei — Sfolið sfýri og mælaborði — Til lesenda — Hvalhaus í soðið — Gesfir í kvöld — Chevrolet hrakar — JÓHANNES KJARVAL, listmálari, er allra manna hisp- urlausastur í tali, og lítt hrifinn af j’firborðskurteisi og fleðulátum samkvæmislífsins. Kjarval sat eitt sinn fuiid samverkamanna sinna og voru mörg mál á dagskrá. Málararnir höfðu skiptar skoðanir á málefnum þeim, sem til umræðu voru, og þegar leið á fundinn var allt komið í uppnám og mikið rifist. Kjarval, sem setið hafði rólegur og hlýtt á mál manna, blandaði sér ekki í málin, en þegar út hófi keyrði hjá fundarmönn- um, reis hann á fætur og mælti hátt um leið og hann gekk út: „Herrar mínir, ég ætla nú að gera það, sem andskotinn gerir aldrei, en það er að yfirgefa ykkur“. ÞEKKTUR MAÐUR á Akranesi, sem eignast hefur nýjan bíl, var lítið eitt við skál er hann kom úr veizlu. Afréð hann að heimsækja kunningja sinn á heimleiðinni úr veizl- unni, og var honum þar vel tekið og vin haft um hönd. Þegar tími var kominn til að fara, gekk hann til dyra, kvaddi húsráðendur og hélt út í bifreið sína. Augnabliki síðar kom hann í hasti aftur inn í húsið, greip símann umyrðalaust og hringdi á lögregluna, og mælti óðamáli: „Ég verð að tilkynna að búið er að stela bæði mælaborðinu og stýrinu úr bifreið minni. Viljið þið senda menn hing- að........“ og til tók heimilisfang. Húsráðendum þótti tilkynningin heldur í kyndugra lagi og fóru þeir með bíleigandanum að athuga vegsummerki. Skömmu síðar var aftur hringt til lögreglunnar og var sami maður í símanum: ,,t sambandi við tilkynninguna áð- an, verð ég að segja yður að mistök áttu sér stað. Ég settist nefnilega í aftursætið". ★---------------------- SÖKUM SMÁVÆGILEGRAR bilunar hefur ekki verið hægt að lesa tvö síðustu tölublöð af blaðinu í síðum. t blaðinu 25. júlí stendur 29. tölublað en á að vera 27. tbl. 1 blaðinu 1. ágúst hefur misritast 28. ágúst í stað 28. tölublað. Þá viljum við enn taka fram, að greinar sem menn vilja fá birtar í blaðinu og eru tímabundnar verða að vera komnar fyrir hádegi á fimmtudag til ritstjómarinnar, svo þær birtist um helgina á eftir. ★------------------ KONA EIN hér í bænum kom inn í matvöruverzlun og keypti bita af hvalkjöti, en meðan verið var að taka hann til sá hún vinkonu sína og ræddust þær við í ákafa. Urðu þær svo niðursokknar í umræðuefni sitt, að þær heyrðu ekki unz afgreiðslumaður spurði í þriðja sinn hvort þetta væri nóg? Sneri frúin sér þá að honum, hálf utan við sig, og sagði: „Já, ef ég get fengið hausinn líka“. SIGURÐUR alþingismaður frá Vigur Bjarnason kastar ekki fé á glæ né eyðir í óþarfa svo orð fari af. Eitt sinn bauð hann tveimur blaðamönnum af Morgunblaðinu heim til sín, en þann dag átti Sigurður afmæli og þótti hlýða að bjóða þeim upp á góðan drykk fyrir kvöldmatinn. Þegar helt hafði verið i staupin sá annar blaðamannanna sígarettuöskju, og ætlaði að taka eina sígarettu, en fimm eða sex voru í öskjunni. Sigurður sá tilræði mannsins, brá hratt við og segir: ,'Æ. vertu nú ekki að þessu. Það verða gestir hjá mér í kvöld“. !!— HVAÐ Á AÐ GERA I KVÖLD!! KVIKMYNDAHtJS: Gamla bíó: Genevieve. John Gregson. Kl. 5, 7 og 9. Nýja bíó: Kvenstúdentamir. Kl. 5, 7 og 9. Tjamarbíó: Landráð. Patric Doonau. Kl. 5, 7 og 9. Austurbæjarbíó: Síðasta staupið. James Cagney. Kl. 5, 7 og 9. Stjömubró: Kátt er í koti. John Elfström. Kl. 5, 7 og 9. Hafnarbíó: Seminole. Rock Hudson. Kl. 5, 7 og 9. Tripolibíó: Fransmaður í fríi. Jacques Tati. Kl. 5, 7 og 9. Bæjarbíó, Hafnarfirði: Gleði- konan. Alida Valli. Kl. 5, 7 og , 9. Hafnarfjarðarbíó: Allt í lagi Nero. Kl. 5, 7 og 9. LEIKHÚS: Sjálfstæðishúsið: „Nei“. Har- aldur Björnsson. Kl. 8.30. (Birt án ábyrgðar). Aðalfundur iLoftleiða hf. Framhald af 4. siðu farandi tillaga, sem einnig var samþykkt einróma: Aðalfundur Loftleiða h.f. hald- inn 3. ágúst 1955, telur brýna nauðsyn bera til þess, að bætt sé án tafar, úr því ófremdarástandi, sem gistihúsamálin eru nú í hér á landi, og treystir fundurinn stjórn félagsins til að taka upp viðræður við stjórnarvöld lands- ins og aðra aðila um nauðsynleg- ar úrbætur í þeim efnum. (Frá Loftleiðum h.f.). MÁNUÐAGSBLABIB Gaman- mynd í Gamla bíó Mitt í rigningartimanum (í dag er fimmtudagur) sýnir Gamla bíó mynd, sem sannar- lega „kemur öllum i sólskins- skap“ sVo notuð séu orð aug- lýsingastjóra kvikmjTidahússins. Bretar hafa á siðari árum framleítt margar ágætar gam- anmyndir, og myndin, sem nú er sýnd í Gamla bíó, „Genevieve“, er vissulega ekki af lakari teg- undinni. Efnið ær um bifreið — ekki að vísu alvfeg nýjstu tegund heldur model 1904, sem tekur þátt í ferðalagi frá London til Brighton og skapast á þeirri ferð mörg og spaugileg vanda- mál, ásamt dálítilli afbrýðissemi, en ekki of mikilli, ást og rifrildi og heiftarlegri samkeppni tveggja vina, sem báðir eiga fimmtugar bifreiðar og veðja eitt hundrað pundum um hvor nái fyrr heim á leiðinni frá Brighton. John Gregson (McKim) og Kenneth More (Ambrose) skipta á milli sín aðalhlutverkunum, en þær Dinah Sheridan og Kay Kendall veita þeim ómetanlegan styrk í heldur smærri hlutverk- um, ásamt risavöxnum hundi, sem missti allt sitt í stríðinu og varð taugaveikur af loftárás- um. Fyndnin í mynd þessari er af nýstárlegu tagi, laus við slap- stik-bragðið, sem oft vill verða um of áberandi í hliðstæðum gamanmyndum úr Vesturheimi. Að vísu byggir hún nokkuð mik- ið á samtalinu, og því ekki eins ákjósanieg ölltim, sem sjá hana, én það bætir upp, að leikurinn er svo góður og atvikin spaugi- lega leikin að allir hljóta að skemmta sér við að' sjá hana. - Ferðalagið: þeirra félaga frá Brighton til London ásamt stúlk- unum er með hlægilegri atriðum, sem hér sjást í gamanmyndum og leikur allra næstum snurðu- laus, þótt um sérstaka „leik- sigra“ sé vart að ræða. Undirritaður getur kinnroða- laust ráðlagt ölum, yngri, sem eldri að gera sér ferð að sjá myndina „Genevieve". A B. Alida Vatli í ítölsku stórmyndinni Gleðikonan, sem Bæjarbíó í Hafnarfirði sýnir um þessar mundir. (AugL).

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.