Mánudagsblaðið - 07.10.1957, Page 2
2
Þegar ekið er að sumarlagi
«m þjóðvegi Mið-Evrópu ber það
stöku sinnum við, að maður kem
ur auga á undarlegt fólk. A bak
við grindagirðingar eða urnhverf-
is tjaldbúðir getur að líta menn
og konur, sem ekki hafa neina
spjör á kroppnum ,en eru að
striplast allsnakin í sólskininu.
Hér er á íerðinni fólk úr nektar-
hreyfingunni, sem á sér marga
áhangendur í ýmsum löndum. Og
fyrsta og síðasta boðorð þeirrar
hreyfingar er það, að vera ekki
að skyggja á vérk skaparans með
kla-ðum, mannslíkaminn sé feg-
urstur allsnakinn. En nektar-
hreyfingih á okkar dögum á sér
ræiur óralangt aftur í tímann.
Fyrir þúsundum ára var líka til
fólk, sem gerði nektina að sínu
æðast boðorði. En hinar f'ornu
nektarhreyfingar voru að vísu
allt annars uppruna.
Hin fruarlep rækf
Bæði fyrr og síðar hafa ýmsar
þjóðir eða trúflokkar gert nekt-
ina að trúaratriði. Hjá frumstæð-
um þjóðum ber mest á þessu hjá
frjósemisdýrkendum. Þegar þeir
dansa trúardansa sína til að
blíðka frjósemismögnin eru þeir
oft allsnaktir, ef einhver dans-
endanna væri með eina spjör á
kroppnum, væri allt unnið fyrir
gýg. Á bak við þetta er trúin á
héígi- kynfæranna, sem er oftast
mjög rík meðal írjósemisdýrk-
enda. Þeir hafa stundum í hofum
sínum geysistórar og heldur ó-
hrjálegar myndir bæði af hinum
karlegu og -kvenlegu kynfærum.
Og í fornum norrænum sögum
má finna heimildir um það, að
forfeður okkar í heiðni hafa haft
svipaðan átrúnað. Þetta getur
gengið svo langt, að hlutir, sem
líkjast kynfærunum að lögun fá á
sig helgi, svo sem fjallstindar, tré
og fleira.
Ekki munu þó allar hinar trú-
arlegu nektarhugmyndir vera
sprottnar af helgi kynfæranna.
Stundum liggur að baki þeim sú
hugsun, að miklum mun auðveld-
ara sé að komast í samband við
guði og önnur dulmögn, ef menn
séu klæðlausir. Klæðin séu í vegi
fyrir þeim straumum, orku og
kyngi, sem mennskir menn geti
fengið frá dularheimum.
Enginn trúflokkur hefur gert
nektina að trúaratriði í svo rík-
um mæli sem dígambarar, en
þeir eru grein.af jaínistum í Ind-
landi. í kenningum þeirra segir
svo, að enginn geti orðið sálu-
hólpinn, nema hann gangi alls-
nakinn. Þessi stranga kenning
hefur leitt til margra árekstra,
þar sem dígambarar búa innan
um annarar trúar fólk. Stundum
hefur hátterni þeirra valdið
slíkri hneykslun, að þeir hafa
-orðið fyrir grimmilegum ofsókn-
um Hindúa og Múhameðstrúar-
manna og jafnvel annarra jaín-
ista. Þetta hefur leitt til þess, að
hinir veikari í trúnni meðal
dígarnbara hafa slakað til í þessu
efni. Þeir klæða.sig í einhverjar
flíkúr-J þegar þeir þurfa að veise
á almannafæri. Hins vegar er
enginn dígambari svo veikur í
trúnni, að hann neyti matar síns
öðruvísi en allsnakinn, að borða
íneð einhverja spjör á lcreppnum
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
Mánudagur 7. október 1957
er verra en hið versta guðlast.
Og heittrúarmenn meðal dígamb-
ara kæra sig kollótta um allt al-
menningsálit og spóka sig al-
strípaðir á almannafæri.
Nektin hefur trúarþýðingu
einnig í öðrum trúarbrögðum.
Förumun'kar Múhameðstrúar-
manna, dervisjarnir ,fara úr öll-
um klæðum, þegar þeir komast í
trúaræsing. Þá fara þeir að dansa
ailsnaktir, þar til þeir komast í
slíkari æsing, að það virðist
stappa nærri hreinni brjálsemi.
Þeir engjast sundur og saman,
afskræmast af krampateygjum
og bíta sig stuiidum í handlegg-
ina, svo blóðið lagar úr þeirn. Oft
halda þeir þessum æðisdansi á-
fram, þangað til þeir fallá í öng-
vit, og líklegá eru þeir ekki á
marga íiska, þegar þeir rakna
aftur úr rotinu.
Svipuð fyrirbæri hafa einnig
þekkzt hjá ýmsum kristnum ofsa-
trúarflokkui^, bæði fyrr og sið-
trylltara en hinir óðustu vitfirr-
ingar á geðveikrahælum. Þá fer
það að bera eld að húsum sínum
og brenna' þau. Og sumir dúko-
brodsjanna ná sér í hnífa og fara
að stinga sjálfa sig með þeim,
stundum til bana. Einu sinni skar
kona ein í slíku æði af sér annað
brjóstið. Kanadiska lögreglan
hefur oftar en einu sinni komizt
í hann krappan að hafa hemil á
dúkobrodsjum, þegar nektar-,
dans-, íkveikju- og sjálfsmeið-
ingaæðið gripúr þá.
Sfrípalingar
Nektaræði getur birzt í ýms-
um myndum, þó að trúarofsi sé
ekki með í spilinu. Það getur
staðið í sambandi við sálsýki á
ýmsum stigum. Flestir Reykvík-
ingar kannast við bera mann-
inn, sem lék lausum hala hér í
bænum 'fyrir nokkrum árum og
sást aðallega eftir að skyggja
ölafur Hansson, menntaskólakennari:
ar. Mesta athygli af öllum slík-
um flokkum hafa dúkóbrodsjar
vakið. Þessi undarlegi trúflokkur
er upprunninn í RAússlandi, en
margir úr honum hafa flutzt til
Kanada. Þar hafa þeir ekki svo
sjaldan gert yfirvöldum og lög-
reglu lífið brogað. Hversdagslega
eru dúkobrodsjar mesta skikk-
elsisfólk, vinnugefið, nægjusamt
og blóðheiðarlegt í öllum við-
skiptum. En svo ber það stöku-
sinnum við, að þessir sauðmein-
lausu manrieskjur gerbreytast
allt í einu og verða að trylltri og
hættulegri vitfirringahjörð. Það
verður þá gripið trúaræði, sem
hefur nokkrum sinnum farið um
byggðir dúkobrodsja eins og
bráðsmitandi farsótt. Æðið byrj-
ar oftast með þyí, að fólkið af-
klæðist hverri spjör og hleypur
út úr húsúm sínum, hvernig sem
veur er, stundum í hörkufrosti.
Síðan fer það að dansa og æpa,
svo að óhljóðin heyrast langar
leiðir. Þess eru dæmi, að það
hafi dansað þannig klukkustund-
um saman án þess að finna hið
minnsta til kuldnns. Oftast éykst
æðið enn méír við darisinn, fóik-
ið er orðið eins og óarga dýr,
tók. Og hann var svo sem ekk-
ert einstakt fyrirbæri, flestay
borgir hafa einhvern tíma átt
sinn bera mann. Stundum eru
þetta algerlega geðbilaðir menn,
en stundum virðast strípalingar
vera algerlega heilbrigðir, n ema
þegar nektaræðið grípur þá. Al-
kunnugt er það, að sumir menn
fá nektaræði, þegar þeir gerast
drukknir. Þeir eru þá vísir til að
berhátta sig, hvar sem þeir
kunna að vera staddir. Stundum,
en ekki alltaf, er þetta í sam-
bandi við ákafa löngun að henda
sér í vatn, en það gera að vísu
sumir drukknir menn, án þess að
vera að hafa fyrir því að af-
klæðast.
Dæmi eru þess, að nektaræði
og morðæði fari saman. Fyrir
allmörgum árum lék lausum
hala í bórg einni í Ameríku morð
ingi, sem var alltaf allsnakihn,
þegar hann frámdi glæpiná.
Hann náðist, þégar harin hafði
frámið fimm eða sex morð á blá-
ókunnugu fólki. Hann bar það
fyrir rétti, að hann myndi ekk-
ert af því, sem gerðist í æðis-
kösturium. Þégar köstin vasi'u að
koma færi sér að sorfna fyrir aug
um, og hann tæki að afklæða sig
á algerlega vélrænan hátt, en
síðan myridi hann ekki neitt,
fyrr en hann væri afttir kominn
heim í herbergi sitt, og væri
hann oftast að færa sig í fötin,
þegar minnið kæmi aftur. Sál-
sýkisfræðingar sem rannsökuðu
manninn gaumgæfilega, komust
að þeirri niðurstöðu, að hann
segði satt til um þetta, og væri
á engan hátt ábyrgur gerða
sinna. Hann var því látinn á
geðvéikrahæli, en ekki líflátinn.
Milli kastanna var þessi maður
algerlega heilbrigður andlega, að
því er virtist.
Ýmsir sálfræðingar halda því
franf, að margar tegundir af
nektaræði standi í einhverju
sambandi við kynlivötina, en
stundum virðist þetta vera sam-
fléttað einhverri sektarkennd.
Það er enginn vafi á því, að í
sumum tilfellum, að minnsta
kosti, er nektaræðið náskylt
exhibitionisma, sjúklegri löngun
til áð sýria kynfæri sín. Exhibiti-
onismi kemur stundum í ljós
hjá unglingum á kynþroskaaldri,
þótt þeir virðist að öðru leyti
v.era alveg heilbrigðir andlega.
Stundum er hann hips vegar
samfara alvarlegri sálsýki. Stund
um er exhibitionismi eða nekt-
aræði samfléttar masochisma,
því undarlega og fáránlega fyrir-
bæri. Mesta nautn masochistans
í lifinu er það að láta aðra berja
sig eða meiða. Sumir masochistar
eru sólgnir í það að láta kven-
fólk flengja sig til óbóta. Aðrir
vilja láta sparka í sig, helzt ann-
að hvort í kviðin eða bakhlut-
ann. Masoehismi í ýmsu formi er
talinn vera þó nokkuð algengur,
og lítill vafi er á því, að hann
stendur oftast í sambandi við
sjúkt kynferðislíf.
Heklarhreyfrngin
Nektarhreyfing nútímans er
aðallega sprottin upp' á Þýzka-
landi á árunum eftir fyrri heims
styrjöldina. Þá var mikil ólga og
umbrot í þýzku þjóðlífi, og alls-
konar „hreyfingar“ þutu upp
eins og goi'kúlur. Margar þeirra
voru hreinar dægurflugur, öðr-
um varð lengra lífs auðið, svo
sem nazismanum og nektarhreyf
ingunni. Á áratugnum milli 1920
og 1930 fór nektarhreyfingin eða
nudisminn eins og logi yfir ka-
ur í Þýzkalandi. Félög nektar-
manna þutu upp, og þau mynd-
úðu með sér landssamband, sem
gaf út víðlesin blöð og tímarit.
Að nokkru leyti voru heilbrigðar
hugmyndir bak við þessa hreyf-
ingu. Fyrir ýmsum af forvígis-
mönnum hennar vakti það eitt
venja fólk á lieilbrigt líf undir
beru lofti, ekki ósvipað og þýzka
farfuglahreyfingin, sem blómg-
aðist mjög um sömu mundir. En
sumir af foringjum nektarmanna
lxöfðú aðrar og undai-legri hug-
mýridir. Þeir þóttust leggja meg-
ináherzluna á það að uppræta
óheilbrigða og sjúklega blygð-
unarkennd, þegar menn og kon-
ur færú að spranga allsnakixr
hyert innan um annað mundi allt
slikt hverfa eins og dögg fyrir
sólu, og kynin færu að urngang-
ast livort annað blátt áfram og
eðlilega án nokkurs asnalegs
penpíuháttar. Sumir þessara
nektarforingja voru hugsjóna-'
menn af barnalegasta tagi, þeir
töldu sig vera að bci-jast fyrir
háleittistu hugsjón allra alda,
jafnvel að þeir væru að skapa
nýjan og betri heim. Það er ekki
að sökum að spyrja, þegar hug-
sjónir komast í spilið.
Siðavant fólk í Þýzkalandi var
stórhneykslað á nektarhreyfing-
unni. Það trúði því sattt og stöð-
ugt, að í tjaldbúðum nektar-
manna ætti sér stað stórkostleg-
asti saurlifnaður allra tíma,
þetta væri allt saman viðbjóðs-
legt svínarí. Þessi gagnrýni hef-
ur áreiðanlega langoftast verið
óréttinæt. Lausung í ástum hefur
að . ölíum líkindum ekki verið
hótinu meiri me’ðal núdista en
annars fóllrs. Auðúitað leitaði
einhvað af ástleitnu og lauslátu
fólki í þennan fé’lagsskap, en
meirihluti nektarmanna var oft-
ast allt öðru vísi lýður, barnaleg-
ir hugsjónamenn, nýjungagjarnir
hi-inglandar og sérvitringar af
öllum tegundum. Þegar nazistar
tóku völdin í Þýzkalandi urðu
þeir ósammála um afstöðu til
nektarmanna. Margir þeirra
töldu hreyfinguna ósiðsamlega
og úrkynjaða, og ekki bætti það
úr skák, að Sumir foringjar henn
ár voru jafnframt friðarsinnar
og alþjóðahyggjumenn. En surnt
í nektaxhreyfingunni féll í kram-
ið hjá nazistum. Þeir þóttust líka
verá að bei'jast fyrir einföldu,
frumstæðu, heilbrigðu lífi, rétt
eins og nektai-menn. Fyrst eftir
valdatöku nazista voru lagðar
Framhald á 8 síðu.
IS-DRYKKIR
IS-RÉTTTR
HAMBORGARAR
SKINKA OG EGG
HEITAR PYLSUR
MJÖLK
KAFFI
ÖL, GOSDRYKKER
SÆLGÆTT
TÓBAKSVÖRUR
O.FL.
ÍSBORG - Anstursfræfi
FJÖtSKYtDA ÞJÓÐANNA1
Alþjóðleg Ijósmynda-
sýning
Opin daglega frá 10. til 22.
Aðgangur ókeypis.
Iðnskóíinn við Vitastíg.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«