Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 13.01.1958, Blaðsíða 1

Mánudagsblaðið - 13.01.1958, Blaðsíða 1
11. árgangur Mánudagur 13. janúar 1958. 1. töluHað ájax skrifar um: Bæjarstjórnarkosningar Dr. Pichering, yfirmaður þrýstiloftsdeildar tæknistofnúnar í Kali- forniu, sýnir á myndiimi, fremsta hluta Jupiter flugskeytisins, sen» Bandarikjamenn hafa í huga til að koma gerfitungli á loft. Óánægja með lista Sjáifstæðis- f lokksms í Reykjavík Persónulegur rígur iiokksbroddanna óþolandi Hin almenna óánægja meðal Sjált'stæðismanna vegna Jreirra biðskýla-Björgsins og Þorsaidar Garðars, hefur orð- ið til þess, að f jöldi manna hefur ákveðið að strika þá út af listanum í bæjarstjómarkosnmgunum. Lisfi Sjáifsfæisflokksins Sjálfstæðisflokkurinn i Reykja- vík hélt prófkosningu, áður en Bkipað var á framboðslistann. iAndstæðingar flokksins og reyndar sumir Sjálfstæðis- menn lika fullyrða, að ekki 5aafi að öllu leyti verið farið eftir prófkosningunni við skip- tm listans. Þrálátar sögur ganga um það, að Þorbjöm Jóhannesson, Gunnar Helgason og Guðjón Sigurðsson hefðu átt að vera í öruggum sætum samkvæmt prófkosningunni. Ekki er gott að fullyrða neitt wn það, hvort eitthvað er hæft í þessu. Tveir áberandi menn Sjálf- stæðisflokksins hverfa nú úr hæjarstjórn. Þeir voru flokkn- vm þarfir menn, hvor á sína hátt. Hafsteinn er harður bar- áttumaður, vel til þess fall- inn að stappa stáli i flokks- liðið. Sigurður naut aftur á imóti vinsælda langt út fyrir raðir flokksins og að sér eitthvað af atkvæðum lítt pólitísks fólks. Enginn vafi er á þvi, að Ctimnar Thoroddsen er sjálfur Sterkasti maður listans. Þetta er ekki af því, að Gunnar sé isvo sérstaklega harður bar- dagamaður. Að vísu er hann ágætlega máli farinn og get- eir verið slyngur á orðaþingum, ©n samt er hann svo skapi ffarinn, að honum er friðurinn Ecærari en stríðið. Styrkur Gunnars er ljúfmennska hans og velvild og drengskapur, sem enginn dregur í efa. Fáir is- lenzkir stjómmálamenn eru jafn lausir við ofstæki og ibiinda flokksmennsku sem liann. Enginn af forystumönn- ium Sjálfstæðisflokksins á slík tök í ópólitísku kjósendunum sem Gunnar. Frú Auður Auðuns er full- trúi kvenna á listanum, en á honum eru aðeins tvær konur alls. Þ-að verður ekki sagt, að flokkurinn geri kvenþjóðinni neitt sérstaklega hátt undir höfði. Annars er frú Auður ágætur fulltrúi kvenna og hún hefur með prýði gegnt fox-seta- starfinu í bæjarstjóm. Geir HallgTÍmsson er maður, sem hlotið hefur uppeldi sitt í stjómmálasamtökum Sjálf- flokksins, aðallega Heimdalli. Slíku uppeldi hættir til gð skapa stiliseraðar manngerðir, ákveðið fundafas, vélræna mælsku. Annars er Geir prúð- menni og bezti drengur, eins og hann á kyn til í báðar ættir. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son hlaut allt annað pólitískt uppeldi en Geir, haiux var virk- ur í Alþýðuflokknum þar til fyrir fáum ámm, að hann venti skyndilega sinu kvæði í kross. Þorvaldur er duglegur og harður baráttumaður, hann unnið Sjálfstæðisflokk- inn upp í Vestur-ísafjarðar- sýslu með mikilli atorku, en að vísu hefur það hjálpað honum nokkuð þar, að aðal- andstæðingur hans er maður með marga snögga bletti. Þor- valdur er staðráðinn í að skapa sér framtíð á sviði stjómmál- anna, og hann hefur líka eigin- leika, sem henta vel pro- fessionellum stjómmálamanni. Guðmundur H. Guðmundsson hefur um árabil verið virkur í bæjarmálum. Þó er það svo, allur þorri Reykvíkinga þekk- ir þennan mann lítið. Og það er svipað um hann og Bjöm Ölafsson, að oft liggur and- stæðingunum betur orð til hans en flokksbræðmm, hvað sem veldur. Magnús Jóliannesson er öll- um þoxra Reykvikinga gersam- lega ókuimur, nafn og ekkert annað. Hann þarf svo sem ekki aó vera neitt verri fyrir það nema siður sé, fomt spakmæli segir, að hinn vitri maður lifi í leynum og hafi hægt um sig. Björgvin Frederiksen er við þessar kosningar hinn umdeildi maður á listanum. Um það stóð mikill styrr á bak viá tjöldin, hvort hann ætti að fá ömggt sæti. En Björgvin á sterka menn að. Margir Sjálf- stæðismenn halda því fram, að sterkara hefði verið að hafa Þorbjörn Jóhannesson í þessu sæti, um hann stendur enginn slíkur styrr. Ég kann engin deili á biðskýlamálinu, en víst er það, að andstæðingar flokks- ins koma til að hampa því mjög í kosningabaráttunni. Og Sjálfstæðisflokkurinn stendur ekki heldur óskiptur á bak við Björgvin í því máli. Annars neitar enginn Björgvin um hörku og dugnað, en líklega er það hæpin taktík að hafa hann svo ofarlega á listanum. Einar Thoroddsen er þama sem fulltrúi sjómanna og er sléttur og felldur sem slíkur, þó að hann-velti engum björg- um. Gisli Halldórsson arkitekt er litrik og skemmtileg typa og hefur komið við sögu á mörg- um stöðum. Fyrr á ámm var hann orðaður við ýmsar aðrar stefnur en Sjálfstæðisstefnuna, það er leitandi ævintýrablóð í Gísla og hamingjan má vita, hvar í flokki hann endar sína daga. Þetta er hálfgerður Don Quijote.á d'igum fúnkisstílsins. Gísli hefur um dagana barizt við margar vindmillur og oft haft sigur. En leiðinlegur verð- ur Gísli aldrei, það er alltaf eitthvað að gerast kringum liann. 1 neðri sætunum era ýmsir alkunnir menn. Þarna er Páll S. Pálsson lögfræðingur, skemmtilegur individualisti, er aldrei beygir sig undir hnrðán flokksaga. Þarna er Kristján Gunnarsson kennari, sem hefur skvnsr.mlegri skoðanir á skóla- inálum en flestir aðrir kenn- aii'ar á landi hér. Þarna er Friðieifur, sem ætti að vera boldangsbóndi a-ustur á Skeið- um, en ekki að vera að aka bíl í Reykjavík. Alveg svona vom hreppsnefndarmennirnir í sveit- inni fyrir 30—40 árum. Hver veit nema Friðleifur væri kom- inn á þing fvrir Framsókn, ef hann liefði búið á Skeiðunum. Þarna er okkar tngvar Vcl- lijálmsson, sem auður og gengi hafa í engu breytt, alltaf er hann í eðli sínu hinn elskulegi og góðviljaði íslenzki bóndi, kátur, hress og skemmtilegur. Þarna er Gnnnar Guðjónsson, Framhald á 8. síðu. AÐRIR BETRI Flestir eni á einu máli um það, að í stað þessara manna hefði ver- ið miklu betra fyrir listann ef menn eins og Höskuldur Ólafs- son og Gunnar Guðjónsson hefðu skipað efri saeti, en þeim Þor- valdi og Björgvin sparkað eða settir neðar. Nú er það með Þorváld, að hann er bara hreint út óvinsæll, en um dugnað hans og áhuga um að „verða eitthvað“ efast eng- inn. Um Björgvin skiptir öðru máli; hann er mjög óvinsæll en auk þess hefur hann orðið þrætu- epli vegna biðskýlanna, og reyndi að fela sig bak við tölur, sem vægast sagt, að dómi kunn- áttumanna, eru ákaflega ýktar, jafnvel 50% uppspuni. DEÍLUR Persónulegar deilur í'lokksfor- kólfanna hafa valdið því, að list- inn er skipaður m. k. þremúr mönni.m, sem þar hafa ekkert að gera. Er listinn birtist .mótmæltu ýmsir sterkir flokksmenn hon- um o:í kváðu betri menn og vin- sælli hafa goMið afhroð vegna deilna þessara. Sjáltstæðisflokkurinn heMur meirihluta sínum og má þar mest þakka vinsæMum borgar- stjóra. Ilitt er eins víst, að ef of- beMi ilokksstjórnarinnar og ríg- ur einstaklinga verður látinn ganga fyrir hagsæM flokksins, kann að re-nna upp sú stund, að betri öflin telji óviðunandi, að búa við svana gerræði. Er það satt, að Þjóðvarnarflokk- urims Iijóði aðems fram í Reykja- yák íil þess að bera beinin á ein- lun stað? Mynd þessi er tekin þrem miium frá þeim stað, sem Bandaríkja anenn skutu „Atlas“-sputnik sínum á loft. — „Atlas“ er langdrægt flugskevti, sein liægt er að senda í hernaðarskyni til hvers hluta lands, innan 8 þús. km. 1 dró oftast hefur

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.