Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 10.08.1959, Page 1

Mánudagsblaðið - 10.08.1959, Page 1
fj SlaSfyrir alla 12. árgangur. Mánudagur 10. ágúst 1959 28. tölublað -.T\ ÞrHlokkarnir deila um 4 eða 8 ráðherraembætti SmnUonuilag bráðlega? Ógurleg deila er nú milli þríflokkanna um ráðherra- embættin, bæði það hverjir eiga að skipa þau og svo live mörg embættin eiga að vera. Deilt er um hvort embættin eigi að vera fjögur eða átta, en líkur benda til að hið síð- arnefnda sigri. Fjórir úfvaldir Það liggur ljóst fyrir, að ef ráðherraembættin í næstu stjórn verða aðeins f jögur þá myndu Sjálfstæðismennirnir Ólafur Thors og Bjarni Bene- diktsson skipa tvö þeirra fyr- ir hönd flokks sins og senni- lega Einar Olgeirsson fyrir kommúnista, þótt kunnugir telji að Einar taki ekki ráð- henjaembætti vegna heilsu- brests. Vandræðin eru með Alþýðuflokkinn en hann fær eitt ráðherraembætti en þrír menn vilia allir fá það, Gylfi, Guðmundur í. og Emil, og vill enginn láta sig í þeim átökum. Flokkarnir eru í mestu vand- ræðum með þetta, en nú hef- ur samsteypan eygt ágætan möguleika, sem myndi a. m. k. friðþæga % af ráðherra- efnum Alþýðuflokksins. Áfla ráðherraembætfi! Sú hugmynd hefur nefni- lega skotið upp kollinum að mynda átta ráðherraembætti. Ef svo færi er almennt hald- ið að þessir menn skipuðu embættin: Ólafur, Bjarni, Ingólfur á Hellu og Jón Pálmasin fyrir Sjálfstæðis- menn, Gylfi og Guðmundur í. fyrir krata og Einar og Lúð- vík fyrir komma. Allir ánægðir Þessi lausn er að vísu nokk- uð fullnægjandi fyrir alla að- ila, þýí kommar líta hýru auga til viðskiptamálaráð- herrastöðunnar vegna síldar- sölunnar til Rússa, en krötum er sama hvaða embætti þeir hafa — ef það bara borgar. Sjálfstæðismenn munu geta Páll Zophóníasson rofar éðan hoxara Vélstjóri stórslasar dönsk lijón — Dönsk hjón, sem sátu hóf Búnaðarfélags íslands s.l. fim'mtu dagskvöld, lentu, að liófinu loknu, í höndum á drukknum ís- lenzkum vélstjóra með þeim af- leiðingum að Daninn var fótbrot- inn, en frúin lilaut vangahögg all mikið. Atburður þessi skeði utan Framsóknarhússins og í anddyri þess, að hófinu loknu. Vélstjórinn, óður af víni, er kunnur slagsmálamaður, boxari, sem áður hefur lent í lögreglunni, barði hjón þessi alveg að ástæðu Iausu, sparkaði í manninn mfeð ofangreindum afleiðingum, en veittjst síðan að þeim, sem komu hjónunum til lijálpar. Lítið lagðist þó fyrir kappann cr sjötugur maður, Pá!l Zóphón íasson alþm., kom til og rotáði kappann og sat á honum þar til lögregt/in kom. Hlaut Páll á- verka, skurð á augabrún og meiðsli í munni, en gleiraugu lians brotnuðu. Mánudagsblaðið fékk frétt þessa strax á föstudag og vissi að sakadómari ætlaði að birta dagblöðunum hana, en gat eklti náð í fulltrúa hans. Hér er enn einu sinni um að ræða íslenzkan slagsmálahund, sem heldur, í skjóli vöðva sinna, að honum sé allt heimilt. Það er kominn tími til að þessir piltar fái réttmætar refsingar fyrir albrot sín og væri ekki úr vegi að birta nafn livers manns, sem hyggur sig geta bar- ið menn bótalaust í skjóli brenni- víns og kraftamennsku. Nú er loks svo komið, að blöð erlendis fara að birta sögur af íslenzkum „kraftamönnum“ og kjarki þeirra við vín. Blaðið helur írétt, að umrædd ur slagsmálamaöur beri fyrir sig minnisleysi, harmi atburðinn og bjóðist til að bæta hann fé. Það er bara ekki nóg — svona kumpánar geta alveg eins drepið ef þeir slá til manna sem veikir eru fyrir, og fæstir þeirra gætu greitt manngjöld. í sinni góðu aðstöðu farið að vinna að því að leggja Fram- sókn alveg að velli og þá ekki sízt SÍS — þann þyrni, sem nema verður brott hið skjót- asta. Þetta er nýjast að frétta frá þríflokkunum, en búast má við að næstu daga náist algert samkomulag. ÁHsíiakin stólka haudtekin S.l. þriðjudag klukkan sjö að morgni urðu vegfarendur um Suðurgötu varir við ferðir lögreglubíls niður götuna og heyrðust óp innan úr bílnum. Lögreglubíllinn ók síðan Kirkjustræti og út í Lækjar- götu (!), Austurstræti og að aðaldyrum lögreglustöðvar- innar. Út úr geymslu lögreglubif- reiðarinnar tóku tveir lög- reglumenn síðan alls-nakinn, ljóshærðan kvenmann, að vísu í rifnum buxum, sem hrópaði um leið — „nú verð ég sett í KjaIIarann“ — og hvarf síðan inn á stöðina milli lögregluþ jóna nna. Frammi í lögreglubifreið- ijnni sat kvenmaður, sem lítið skipti sér af kynsystur sinni. Nú skal ósagt hvað stúlka þesái hefur gert til saka, en óneittþilega er það smekk- laust hjá viðkomandi lögreglu þjónum að kasta ekki flík ut- an um fanga sinn í stað þess að flytja hana alls-nakta í geymslu. Það er mjög farið að brenna við að lögreglumenn, einkum þeir yngri og óvitrari, hafa eiiihverja sadiska ánægju af því að gera hlut handtekinna og fanga Iiinn versta á opin- berum vettvangi. Ef þessum mönnum er ekki ljóst hlut- verk lögreglumanns, er betra að yfirmenn þeirra geri jieim það betur Ijóst, því svona framkoma vekur eftirtekt og kastar rýrð á hcildina, sem saklaus er. Vonandi sannast það ekki, | sem einu sinni var fullyrt, j að íslendingar þoli ekki að i klæðast einkennisfötum — þá hreinlega brjálast þeir af mikilmennsku og verði næsta i broslegir. — l?No Show Wifhouf A Bif Of Sfrip” Veitingahúsið Lido hefur nú fengið ameríska söngkonu, Mim Miller, sem mikla athygli vekur. Mim Miller er alla leið frá San. Antonio, Texas og bæði syngur og gefur Cabarett-númer, sem venjulega byrja svona — there is no show without a bit of strip —• en bezt er að áhorfendur dæmi sjálfir. Folhréar bæjarfógeta Hafnarfjarð- ar kærðir fyrir veiðiþjéfnað I Hafnarfirði hafa nú tveir fulltrúar bæjarfógetans verið kærðir fyrir veiðijijófnað i Kleifarvatni, en báðir jæss- ir menn vinna daglega að jiví að rannsaka og dæma j»á í umdæmi sínu, sem brjóta lögin. Háffseffir borgarar Þannig er mál með vexli að Stangaveiðifélag Haf narf j arðar hefur á'tt í miklum erfiðleikum að ala klak í Kleifarvatni og lagt. í það mikla vinnu. Svo bar við um síðustu helgi að tekið var eftir tveim mönnum að Veiðum í vatninu og við nánari athugun kom í ljós að þeir höfðu ekki leyfi til veiðanna. Var þá athæf- ið kært og reyndust mennirnir vera, er að var gáð, fulltrúar laga og réttar í Hafnarfirði þeir Krist- inn Olafsson og Sigurður Emils- son. áfhæfið kærf. Stangaveiðifélag Hafnárfjarð- ar kærði þetta athæfi þegar í stað og stendur nú yfir afarmikil ,,rannsókn“ enda félagsmenn æf- ir yfir þessari ósvífni þéirra fé- laga. Þetta mál myndi ekki hafa vakið slíka athygli ef aðrir en þessir fultrúar þæjarfógetans hefðu átt hlut að máli, en al- mennt reikna menn með því, að svona háttsettir menn fylgi lög- um og reglum í hvívetna. Fréttaritari. Er þad satt, að Jón Leifs hafi „spilað“ sig inn í embætti þjóð'-i garðsvarðar og nái sér þannigf i prófessorsnai'nbótina — heið- ursdoktor — meinum vér? ' -JU

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.