Mánudagsblaðið - 10.08.1959, Blaðsíða 8
OR EINU I ANNAD
Veiflngahúsin - Undarlegf bann — Hann Lúdvig
— Leíkhúshornið — Merkilegf blað — Minning-
argreinar —
Samkeppnin hjá veitingahúsunum eykst með hverj-
um degi. Um helgina byrjaði Böðull að hafa fría
dansleiki til kl. 1 e. m. að dæmi Lidos, og búizt er við
að Hótel Borg taki upp sama sið. Veitingahúsin viða
að sér skemmtikröftum. Lido hefur, Mim Miller, ame-
ríska söngkonu, en Leikhúskjallarinn hefur nú fengið
Guy Yvette, hin:a vinisælu írönsku söngkonu, sem
vann mikla hylli þar síðastliðið sumar.
Það er undarlegt, að það skuli bannað að selja
benzín fyrr en kl. 9,30 á sunnudagsmorgna. Allar bíla-
stöðvarnar hafa benzíngeyma og gætu hjálpað mönn-
um ef ekki væri lagt bann við þessu. Þó lögregluyfir-
völdin hafi leyfi til að banna ýmislegt er svona notkun
valds alveg óþörf. Fjöldi manna vill leggja af stað
tímanlega um helgar og helvíti hart þegar svona bönn
tefja ferðina.
SKUGGAR
Framhald af 2. síðu.
hin frægasta saga af því
tagi er.líklega ævin'týrasaga
Chamissos um Peter Schlem-
ihl. Oft er litið svo á, að hinn
skuggalausi maður sé merkt-
ur Kainsmerki, útskúfaður
meðal manna og eigi sér enga
von. Fræg-ar hryllingssögur
um skuggann eru einnig til
ettir Lenau og Hofmainns-
thal. Skugginn, þessi tryggi
förunautur okkar, getur átt
sér ýmsa ískyggilega eigin-
leika, en hið voðalegasta af
öllu er þó að missa hann í
klær djöfulsins.
Ólafur Hansson.
Þetta er 18. sumarið sem Lúðvík (Polli) Hjálmtýs-
son talar við kunningja sína um veitingahúsmál. Polli
er forsprakki veitingamanna og ræðir fátt annað en
þetta mál. Kunnugir telja að nú fari að sjást í fram-
kvæmdir er hann sást nýlega ræða við Gunnlaug Páls-
son arkitekt, sem eflaust ætlar að teikna hið langþráða
hótel.
Það mun vera ætlunin að Þjóðleikhúsið sýni Julius
Caesar eftir Shakespeare núna í haust, enda var farið
að æfa það í vor; um önnur viðfangsefni er lítið vitað
.... Akureyringar reka leikfélag þorpsbúum til gam-
ans; en félagið ætti að reyna sig meira á gamanleikjum
en tragedium, sem það ræður ekki við, þótt vilji sé
fyrir hendi.
Frjáls þjóð er nú komin út, en ritstjórnina skipa
Bergur Sigurbjörnsson og Þórhallur Vilmundarson í
fjarveru hinna. Það má segja að þetta sé furðulegasta
stjórnmálablað heimsins ef dæma á eftir efninu. For-
síðan er þýðing ur „Hvíta fálka“ Keflavíkurmanna,
ásamt tilkynningu um framhaldssöguna, og tilkynn-
ingu um grein á 5. síðu, ásamt afsökun blaðsins varð-
andi ,,stefnu“ í markaðsmálum og aðvörun til barna
um að erta ekki hundstík. Aðalgreinin er um gróður
Húsavíkur! Önnur síðan er framhöld af fyrstu og aug-
lýsingar, 3. síðan leiðari og vændi á Filippseyjum, 4.
síðan um leirskáldið á Tjörn, sú 5. þýdd grein, 6.
framhaldssaga, 7. framhöld og á 8. eru tvær þýddar
greinar úr N.Y. Times og „Fálka“ Keflavíkurmanna.
Þetta er blaðið og mennirnir, sem ætla að umturna
og bæta stjórnmálalífið á Islandi — ha—ha—ha!
Grein Jónasar
Framhald af 4. síðu.
toga og snillinga 19. aldarinnar
við að vernda og tigna Þingvöl.
Takmark þeirra var ekki að
flytja þangað löggjafarsa-mkomu.
Ekki heldur að hafa þar fámenna
kröfufundi í stjórnmálum. Hvort
tveggja er liðin tíð. Nú er hlut-
verkið að gera Þingvöll að sann-
arlegum þjóðarhelgidómi. Hérað-
ið verður þjóðarkirkja í allra víð-
ustu mei’kingu. Þjóðin á dóm-
kirkju og eignast landskirkju í
höfuðstaðnum, en þjóðarkirkjan
er miklu meira fyrirtæki. Þar er
ekki fullskipað í sæti en þar er
mörkuð leið. Mestu skáld, mestu
stjórnmálaskörungar og mesta
breiðfylking þjóðhollra æsku-
manna hafa sýnt hug sinn um
viðreisn Þingvalla. Þar er hægt
að framkvæma allt það sem þá
hefur dreymt um með samstilltu
þjóðarátaki. Misfellur gáleys-
ingja í meðferð Þingvalla verða
að heitri eggjan.
Góðir íslendingar hafa og
munu hafa málið í sínum hönd-
um á ókomnum árum.
En mörg handtök eru óunnin
á þeirri leið.
Þetta kann ef til vill að særa suma, en er ekki nóg
komið af minningargreinum um smábörn, sem skyndi-
lega látast, Vinríulega skilja allir söknuð nákominna,
en- vafasamt' er að birta ævisögu unglinga í dagblöð-
unum. Þá ættu og höfundar minningagreina að hætta
að ávarpa þann látna — það er vægast sagt óheppilegt
en aldrei skáldlegt — þó sú aðferð sé höfð í öndvegis
skáldverkum.
HvaÖ á oð gera I kvöld?
(Sunnudagur)
Gamla bíó: Eg græt að morgni. S. Hayward. Kl. 5, 7, 9.
Nýja bíó: Innrásardagurinn 6. júní. R. Taylor. Kl. 5, 7, 9.
Tjarnarbíó: Læknir á lausum kili..D. Borgade. Kl. 5, 7, 9.
Austurbæjarbíó: Vítiseyjan. F. Mac Murrey. Kl. 5, 7, 9.
Stjörnubíó: Saga Eddy Duchin.. Kl. 5, 7, 9.
Tripolibíó: Rasputin. P. Brasseur. Kl. 5, 7, 9.
Hafnarbíó: Harðskeyttur andstæðingur. Kl. 5, 7, 9. ,
(Birt án ábyrgðar).
Þegar þeta er skrifað er sól-
skin og göturnar fullar af iétt-
klæddum stúlkum; búningurinn
sem stúlkan er í á myndinni
kemur íslenzkum stúlkum vel
hppar vp! viðrar.
Mánudagur 10. ágúst 1959.
Ung íslenzk stúlka, Ragnlieiður Jónasdóttir, Sveins-
sonar læknis, og konu hans Ragnheiðar Hafstein,
sem athygli vakti, er hún var kjörin miss Adria í
fyrra hefur stundað leiklist í Englandi undanfarin
missiri, jafnframt því, sem hún hefur komið fram í
landkynningamyndum þar. Ragnheiður er hiífandi
stúlka, ljóshærð og vel vaxin — sjá mynd, og hefur
fengið tilboð um að leika í kvikmyndum m. a. bauð
hinn kunni, brezki leikari Alec Guinness henni hlut-
verk,, en kennari hennar miss Freedman, afþakkaði
það fyrir hönd Ragnheiðar. Nýlega var Ragnheið-
ur á ferð í Danmörku með foreldrum sínum og not-
Billed-Blaðið tækifærið og birti margar myndir og
umsögn um hana, þar sem hún er m. a. kölluð Lollo
norðursins, og er ekki fráleitt að það sé réttnefni.