Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 22.02.1960, Blaðsíða 1

Mánudagsblaðið - 22.02.1960, Blaðsíða 1
31cl6fyriv alla 13. árgangur Mánudagur 22. febrúar 1960 7. tölublað. STORFELLT HNEYKSLI I FISKDTFLUTNINGNUM — Markaður íslendinga ytra í stór- tuettn — Sökudólfjunum hlíft Hinar sífelldu fré'ttir utan úr heimi, þaðan sem Islend- ingar selja fiskafurðir, varðandi skemmdan fisk og lélega framleiðslu yfirleitt, hafa valdið íslenzkum markaði stór- tjóiíi. Nýlega keyrði þó svo um þverbak; að tveir ícorstjór- ar, Jón Axel Pétursson og Kristján Einarsson flugu skyndi- lega til Jamaica til þess að vera viðstaddir uppskipun á íslenzlium .fiski, en þaðan bárust áður fréttir að fyrri i'arm- ur héðan hefði ekki verið mannamatur. Ekki nýtf Það er á engan hátt nýtt að það komist upp að íslenzk- ir útgerðarmenn — svonefnd ir „fiskframleiðendur' — hafa viljandi eða vegna stór- kostlegrar vanrækslu sent ó- nýtan fisk til útflutnings og brotið allar þær reglur, sem þeim bauð að fara eftir, og komið slíku óorði á fram- leiðslu okkar, að langan tíma tekur að vinna henni gott orð aftur. Forstjórarnir báðir lýsa vel ótta sínum og áhyggjum er verið var áð skipa upp seinni farminum og hinum mikla létti þegár hamingjan frem- ur en tilstilli framleiðend- anna sýndi að fiskurinn var að mestu ætur. Tapa ekki persónulega Skemmdi fiskurinn, sem nýjasta uppsteytinu olli kom að mesfu frá Ólafsfirði, eh orsökin er sú, að hann var illa þurrkaður, enda hafði sjálfur fiskurinn legið 2—3 daga dauður í sjó. Framleið- andinn telur það sjálfsagt, að því bezt virðist, að senda svona fisk út — innan um óskemmdan fisk, og engin hætta er á því, að hann per- sónuléga %api fé, því þessum drengjum er greitt fullt verð fyrir hvaða óþverra sem þeir framleiða, . undir yfirskyni hins mikla þarfaverks og gjaldeyrisöflunar, sem þeir ei’u að inna af héndi. Glæpi næsf Þetta brjálæði að láta svona dóna — ekki aðeins nú heldur oft áður, komast upp með svona starfshætti er sér lega vítavert. Forráðamenn fiskútflutningsins eiga hik- laust að draga svona pilta til ábyrgðar, og láta alþjóð vita hverjir starfa að því að ó- frægja og eyðileggja líflínu íslenzks útflutnings. Sam- keppnin í þessum efnum er orðin svo geigvænleg, að það gengur glæpi næst að láta svona mönnum líðast fram- 1 leiðslusvik refsingarlaust. Þetta er ekki hægt " JÓHANNES NORDAL, bankastjóri, er sagður vera að flytja inn nýjan Austin- bíl á nafni föður síns, og þá væntanlega án skatta. . . SPURT ER: hvað heitir skip etfcfc í Svíþjóð, sem sigl- ir undir sænsku flaggi en eigendur eru: Gunnar Guðjónsson, skipa miðlari, Egill Thorarensen, Selfossi og Vilhjálmur Þór, banka- stjóri. ÞAÐ ER GOTT að spara, en mestu leiðindi að horfa á bifreið f jármálaráðerra í mjólkursendingum um bæ- Ungfrú Valerie Shane, sem nú syngur í Litlo, vekur mikla at- hygli gesta. Myndin liér við hliðina er af ungfrúnni eins og hún kom fram í Windmill Xheatre í London. Sjá grein á 3. s. inn. Það er forustumannanna að ganga fram fyrir skjöldu og spara. Mestu einstaklingshyggju- menn luinna því illa, að þeir, sem nú boða nýja tíma og bjargráð, skuli persónulega hugsa um það eitt — að bjarga sjálfum sér !!! Merkismenn i Austurstræti Hverja sér Jón Reykvík- ingur á ferð sinni ura Aust- urstræti? Sjá Mánudagsþanka á 3. síðu. Gísli Jónsson, alþingismaður, erfðafjárskatturinn og helstefna Sjálfstæðisflokksinns — Rödd Sjálfsiæðismanns I gærkvöldi byrjaði ný söngkona, Svanhildur Jakobsdóttir, að syngja með Leiktríóinu í Leikhúskjallaranum undir stjórn Kristins Vilhelmssonar. Ólafur Gaukur sá um út- .setriingu laganna, sem Svanhildur syngur, en myndin sýnir ungfrúna og tríóið. Fátt hefur vakið meiri furðu af því, sem skeði í þjóðlífinu í síðustu viku, þrátt fyrir efna- hagsfrumvarp ríkisstjórnarinnar og holskurði á fjármálum þjóð- arinnar, en frumvarp Sjálfstæð- ismanna um öflun erfðafjár- skatts. „RÚNTUR“ GÍSLA Gísli Jónsson háttvirtur þing- maður fyrst og fremst Barð- strendinga, sá maðurinn, sem hefur haft það orð á sér að vilja afnema ýmislegt í ,,socíaleringu“ í okkar þjóðfélagi virðist hafa runnið „rúnt“ og gerzt aðal bandamaður kommúnista í af- námi vestrænna þjóðfélagshátta á íslandi. Það er því miður hin ljóta saga Sjálfstæðisflokksins, að hann hefur algjörlega brugð- izt í varðstöðu sinni fyrir frjáls- um vestrænum þjóðfélagsháttum á íslandi og verið þátttakandi í öllum þeim aragrúa af lagasetn- ingum, sem allar hafa miðað að því, að murka lífið úr kapítal- ismanum á Islandi, jafnt stór- eignasköttum sem öðru. Hann hefur aldrei haft kjark til að segja hingað og ekki lengra. GRUNDVALLARATRIÐI Hér er verið að ráðast á grund- vallaratriði, sem ekki verður mót mælt, við verðum ekki þátttak- endur í neinu „stjórnarsam- starfi“, sem miðar að því að ráð- ast á grundvallarreglur okkar, því ef þær verða brotnar er ver- ið að vega að rótum frjálsrar vestrænnar þjóðfélagsbygging- ar. Og um leið er verið að brjóta á bak aftur hugsjónakerfi, „ideologíu“, Sjálfstæðisflokksins, og ef það verður gert er ílokk- urinn orðinn villuráfandi stað- festulaus lýður, sem í raun og veru veit ekkertihvað hann vill, heldur berst fyrir ólgusjó vinstri niðurrifsaflanna, sem að lokum sökkva honum til botns og dauða. En nú svo kornið, að jafnvel kratar eiga í vandræðum með hvað íhaldið er orðið sócialísér- að í hugsun. ÁHYGGJUEFNI Þetta er orðið öllum sönnutn Sjálfstæðismönnum mikið á- hyggjuefni, svo mikið, að stór hópur manna, sem ráðið gætu gjaldþroti flokksins, eru búnir að fá nóg og minnsta tilefni getur orsakað að stofnaður verði nýr hægriflokkur, fyrirvaralausf. AÐALVOPNIÐ T En' í nýkomnu frumvarpi virð ist ekki eingöngu koma fram und ansláttarsemi við árásir vinstri aflanna heldur hefur íhaldið hér gengið fram fyrir skjöldu og tek- ið íorustuna til „vinstri", og verður ekki annað séð, en að hér sé um að ræða hreina fákænsku og' fáfræði. Vita ekki Sjálfstæð- ismenn, og Gísli Jónsson, að ein Framhald á 7. síðu. ,

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.