Mánudagsblaðið - 21.11.1960, Síða 5
Mánudagur 21. nóv. 1960 MÁNÚDAGSBLAÐIÐ
'3-
■%r*' ■
f
Ef þiVvilt kynnast
náunganum
Næst þegar þér er boðið til
kvöldverðar, skaltu spyrja
sessunaut þinn þessara spurn
inga, og það mun ekki líða
á löng-u áður en allir boðs-
gestir vilja fá að vera með í
leiknum. Svörin eru skemmti
leg, en þau geta lík-a verið til
fróðleiks um þann, sem svar-
ar. Svaraðu spurningunum
fyrst sjálfur, lestu svo,
hvaða upplýsingar svörin
veita um þig.
Hvað vildurðu vera ganiall,
■ef þú mættir ráða, það sem
eitir er æviimar?
Aldurinn, sem menn velja,
fer venjulega eftir því hve-
nær þeir voru upp á sitt
hezta eða hamingjusamastir.
Þeir sem vildu verða börn
eða unglingár á nýjan leik,
hafa venjulega vanþroskað
tilfinningalíf: þeir þrá tíma-
bil ábyrgðarleysisins. Þeir
sem velja sinn núverandi ald
ur, hafa oftast komið sér vel
áfram og eru sáttir við um-
hverfið. — Gamlir menn
kjósa venjulega að verla
10 árum yngi'i en þeir eru
eða meira. Hins vegar er það
konum eðlilegt að vilja vera
30 ára það sem eftir er æv-
innar. !
Hvað myndirðu gera, ef
þú misstir aleiguna?
Þeir, sem vildu reyna að
bi'jótast fram á nýjan leik,
eru að líkindum menn, sem
komizt hafa áfram af eigin
xamleik. Sá. sem léti sér
nægja örugga en þýðingar-
litla stöðu, sýndi töluverða
■skynsemi en lítinn lífsþrótt.
En að vilja kasta sér út um
' gluggann, bæri vott um fá-
tækt innra fvrir.
Ef eldur gysi upp hjá þér
«g þú hefðir aðeins tíma til
- að gripa einn hlut, hvað
' mundirðu þá taka með þér?
Ef hluturinn er fat til að
■ -skýla klæðleysi þínu, þá ertu
varkár og vanafastur. Ef
það er minjagripur, sem
skírskotar til tilfinninga
þinna, ertu rómantískur. Ef
þér verður fyrst gripið til
einhvers dýrmæts hluts,
ertu dálítið hneigður til efn-
ishyggju. Ef þú þrífur vesk-
ið þitt eða tösku, sem í eru
peningar, ökuskírteini o. s.
frv., ertu hagsýnn maður.
Ef þú gætir valið þér einn
einasta stað, þar sem þú gæt
ir verið hað, sem eftir er æv-
innar, hvar mundirðu þá
vilja vera?
Ef þú svarar á þá leið, að
þú vildir helzt vera þar, sem
þú hefur átt heima undanfar
ið, ertu sennilega ánægður
með þitt hlutskipti í Íífinu.
Kjósirðu einhvem stað langt
í burtu, ertu hálfgerður
draumóramaður. En ef þú
kærir þig ekki frekar um
einn stað en annan, ertu ó-
stöðugur í lund og átt enga
vini, sem þú er bundinn
sterkum tryggðaböndum.
Ef þú ættir einungis einn
sólarhring ólifað, hvernig
mundirðu eyða, honum?
Ef þú vildir helzt vera með
ástvinum þínum, hefurðu
djúpar og ríkar tilfinningar.
Ef þú vildir helzt vera einn,
þá ertu mislyndur og óá-
nægður. Ef þú vildir nota
tækifærið til að slá þér út
í síðasta skiptið, ertu forlaga
trúar og tekur hverju sem að
höndum ber með jafnaðar-
geði. Ef þú létir engan vita,
heldur eyddir deginum eins
og ekkert hefði í skorizt,
bæri það vott um sterka sál.
Til hvers mundirðu fyrst
leita, ef þú værir í alvarlegri
klípu?
Þeir, sem ekki vildu leita
á náðir neins manns, heldur
reyna að komast úr henni
hjálparlaust, em baráttu-
menn með mikla trú á sjálf
um sér. Þeir, sem leita til
ættingja eða náins vinar,
vilja láta vernda sig og koma
ábyrgðinni yfir á aðra. Þeir
sem kysu lögfræðing eða ein-
hvern, sem réði yfir prakt-
ískum meðölum til að losa
þá ur klípunni, eru fullkomn-
ir ráunsæismenn.
f:
í'
BlLASALAN
Klapparsfig 37
áelur bQana.
Mesta úrvalið.
Hagkvæmustu greiðsluskilmálarnir.
öruggasta þjónustan.
Klappgtsfig 37_
EINN STUTTURr HARÐUR <
OG SANNUR LEIKDOMUR
Sannast bezt sagt, undirritað-
ur gekk út þegar ca. 15 mínútur
voru eftir af frumsýningu Þjóð-
leikhússins á George Dandin
eftir Moliére. Leiki-it þetta er
hundómerkilegt, eitt lélegasta
verk hins góða gamanleikja-
skálds, stuttur farsi um peninga
snobb, alþýðu og aðal. Jafnvel
Lárusi Pálssyni tekst ekki að
blása lífi í leikinn og lætur hon
um þó bezt svona hlutverk, en
Rúrik og Bessi Bjarnason klóra
nokkuð vel í bakkann. Útlendur
leikstjóri var fenginn til að
setja stykkið á svið, og væri
meiri þörf að fá kunnáttumenn
erlendis frá í meiri verkefni en
þetta. Leikstjórnin var ekki sér-
stök, tjöld og annað ósköp hvers
dagslegt. Það er ekki ætlunin að
segja annað hér en satt er, og
samt veigrar maður sér við
að tæta lið fyrir lið leikritið
sjálft, tylliástæðuna fyrir að
sýna það, og að lokum leik ein-
stak'ra áðila.. Vera má, að síð-
ustu mínúturnar hafi bætt allt
hitt upp, „svo segja jötnarnir
Grímsson og Hjartarson,“ en þá
hlýtur að hafa verið söðlað yfir
í skyndi. — Myndin er af Rúrik
Haraldssyni, Herdísi og Lárusi
Pálssyni. A.B.
Úr skemmtanalífinu
Framhald af 8. síðu.
að leggjast niður a. m. k. á hin
um betri veitingastöðum. Kunn
ingsskapur er góður að vissu
marki, en þjónum ber skylda að
athuga að hann leiði ekki af sér
óþægindi fyrir gesti, sem vilja
frið með sig og sína. Þeir, sem
eru í sífelldu „réttarskapi“ er
þeir koma á veitingastaði ættu
að krúnka sig saman á búlurnar,
og hafa það gott. Að hoppa á
milli borða er hvimleitt og þyk-
ir ekki takandi í mál nema á 3.
flokks veitingastöðum.
B L 0 M
Daglega ný afskorln
blóm .
BLÓMABtJÐIN,
HBlSATEIG 1.
SlMI 34174.
(Gegnt Laugarneskirkju).
HÚSMÆÐUR!
Heimsending er ódýrasla heimilishjálpin ]
• *
Sendum um allan bæ
STRAUMNES
Sími: 19832
SKÝRINGAR: 1
Lárétt: 1 Þjóðhöfðingi 8 Ungviðis (flt.) 10 Upphafs-
stafir 12 Ljósgjafi 13 íþróttafélag 14 Glaða 16 Kjána 18
í fjárhúsi 19 Drekk 20 Kvenmannsnafn 22 Veita eftirfoc
23 Ósamstæðir 24 Leyni 26 Ósamstæðir 27 Gola 29 Ósjálf-. .
bjarga. _ ...i f,,.
Lóðrétt: 2 JÖkull 3 Flakka 4 Barði 5 Styrkja 6 Uþúi":'"
hafsstafir 7 Matsveinn 9 Féll 11 Setja skeifu urtdir hest.
13 Stein 15 Kaðal 17 Hár 21 Forfeður 22 Sjóða 25 SamÍ';^
hljóði 27 Iþróttafélag 28 Ósamstæðir. t j j
Krossqáta