Mánudagsblaðið - 24.12.1962, Qupperneq 6
6
AAánudagsblaðið
Mánudagur 17. desember 1962
Ritstjórj og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason.
Kemur út á mánudögum. Verð. kr 5.00 í lausasölu; áskrifenda-
gjald kr. 260,00. Sími ritstjórnar 13496 og 13975.
Auglýsingasimi 13496. — Prentsmiðja Þjóðviljans.
Hiutleysisruglið í útvarpinu
Hlutleysi (ef nota má það orð) útvarpsins er ekki einbund-
ið við fréttaflutning. Ef rétt væri að farið ætti hlutleysi
að ná til alls, sem þar er sagt, bæði pólitískt og óplitískt.
Erlend ríki, . d. Norðurlönd og Bretland, hafa útvarp, rekið
af ríkinu og eign ríkisins. Þessar stofnanir eru pólitiskt hlut-
lausar, þótt t. d. brezka útvarpið hafi ákveðna menn, sem skýra
eða túlka þýðingar frétta cg atburða, og enn aðra sem lesa
það helzta upp úr fyrirsögnum og leiðurum stærstu og áhrifa-
mestu blaðanna. Þrátt fyrir margar uppástungur um slíka þætti
hér í blaðinu hefur aldrei verið farið inn á þessa sjálfsögðu
braut, en þegar það verður gert, verður það Spánný hugmynd"
frá útvarpsyfirvöldunum.
Hins vegar fer sá ósiður sívaxandi, að einstökum höfund-
um eða „bókmenntavinum" — og þá vinum höfundanna —
er leyft að lesa kafla úr bókum, sem ,,skulu“ seljast um jólin.
Venjulega eru valdir eftirtektarverðustu kaflar hinna ýmsu
verka, getið um forlagið o.s.frv., og þannig reynt að fá hlust-
endur til að kaupa þessar bækur. Þessi ósiður er orðinn svo
magnaður. að hverjum viti bornum manni ætti að vera ljóst,
a'ð hér er ekki annað en ómerkilegt auglýsingaskrum á ferð-
inni og öllu varpað í þá botnlausu og smekklausu hit, sem
gengur, í ríkisútvarpinu, undir nafninu bókmenntaþættir og
upplestrar eftir „merka höfunda". „Hlutleysið“ kemur þar
auðvitað fram í þirri mynd. að lesið er upp eftir hvem lélegan
höfundinn á fætur öðrum, því raunverulega er útvarpið of hlut-
laust til að hafa snefil af smekk.
Hlutleysi er crð, sem yfirvöld útvarpsins eru farin að fara
með heldur gáleysislega og heimskulega. Hlutleysi er sjálfsagt,
svo langt sem það nær t. d. í pólit.ík, en það má aldrei verða
skálkaskjól smekkleysis og yfirdrepsskapar, né heldur ómerki-
leg og ósamboðin auglýsingabrella fyrir nokkra útgefendur eða
höfunda, sem þurfa á skotsilfri að halda fyrir jólin.
Klaufaskapur borgeryfir-
valdanna í úfburðarmálinu
Reykjavíkurborg, yfirvöld henmar, eru oft óheppin. Um
daginn var það, að þau skipuðu fógeta slnum að bera út hjón
með böm. Húsbóndinn lýsti þó yfir, að fógeti sá, sem aðgerð-
ina gerði, hafi reynzt sér hinn mesti drengur, en þunft a'ð sinna
starfi sínu. Þetta er eflaust allt rétt, svo og að eigandinn, sem
krafðist útburðar, vildi flytja í íbúð sína í byrjun desember,
enda sjálfur húsnæ'ðislaus. Borgaryfirvöldin vom hins vegar
hikandi í málinu og slógu úr og í.
En hversu sem það er, er þó einn hlutur viss. Borgar-
stjórnin skaðar sig í áliti. þegar svona klaufaleg óhöpp ske.
Slíkt mundi ekki henda komma eða slík fyrirtæki. Sjálfstæðis-
flokkurinn kom einstaklega klaufalega fram í þessu máli, þvi
þjóðin hefur þessa 15ka djúpu samúð með öllu slíku kerlinga-
væli, og má vera, að atkvæði hennar sýni það, ef þess er ekki
gætt betur, að svona klaufaskapur endurtaki sig ekki. Hins
vegar vill blaðið einnig taka fram, að það telur nú þegar allt
of langt gengið í þessum kjöltubamsframkvæmdum hins opin-
bera gagnvart fólki. Almenningur á ekki að þurfa að vera
ábyrgur gagnvart öllum þeim fjölda, sem hingað flytur. Fjöl-
skyldumenn, hvaðan sem þeir era og hverjir, sem þeir eru,
eiga ekki að vera kjöltubörn Reykjavíkur, þótt þeir rekist hing-
að.
Sementsverksmlöja
ríkisfns
Sementssala og afgreiðsla
fer fram á Akranesi virka
daga kl. 9 f.h. til kl. 5 e.h.,
nema laugardaga kl. 8--12.
— í Reykjavík virka daga
[' kl. 8 f.h. til kl. 5 e.h. og til
kl. 6 e.h. á föstudögum, á
lauaardögum kl. 8 til kL
11,20 f.h. ...................
Verksmíöja Akranesi
Sími 555
Sementsafgreiösla
f Reykjavík
Við Kalkofnsveg, sími 22203.
Islenzkar, enskar og þýzkar jólabækur
í geysifjölbreyttu úrvali
Hafnarstræti 9
Símar 11936 og 10103.
The English Bookshop