Morgunblaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 4
FORRÁÐAMENN Skandinav-
íudeildarinnar, Royal League,
í knattspyrnu hafa ákveðið að
breyta keppnisfyrirkomulag-
inu fyrir næsta haust er
keppni fer fram að nýju en
deildin var sett á laggirnar sl.
haust. Alls eru 12 lið frá Nor-
egi, Svíþjóð og Danmörku í
deildinni og þótti keppnin tak-
ast með ágætum en mark-
miðið var að búa til mót sem
yrði krydd í tilveruna hjá
knattspyrnumönnunum sjálf-
um og stuðningsmönnum
þeirra yfir veturinn.
Á næsta ári komast tvö
efstu liðin áfram úr þremur
riðlum og þau lið sem eru með
bestan árangur í þriðja sæti
komast einnig áfram. En átta
liða úrslit fara síðan fram en í
fyrra var keppt í milliriðlum
en það keppnisfyrirkomulag
þótti ekki vera ákjósanlegt
þar sem að margir leikir í
þeim riðlum höfðu litla þýð-
ingu.
Breyting á
Royal
League
Liðin sjö sem ekki mættu til ræs-ingar í keppninni eru öll á samn-
ingi hjá Michelin-dekkjaframleið-
andanum og það var þar á bæ sem
tekin var ákvörðun um að keppa ekki
þar sem dekk þau sem fyrirtækið var
með til taks í Bandaríkjunum voru
ekki nægilega traust, að mati tækni-
manna fyrirtækisins. Sérstaklega
höfðu menn áhyggjur af hallandi
beygju, sem er sú síðasta á braut-
inni, og óttuðust að illa færi enda
töldu menn nær öruggt að dekkin
gæfu sig þar eftir nokkra hringi.
„Þetta er hörmung fyrir formúl-
una í Bandaríkjunum,“ sagði Nick
Heidfeld, ökumaður hjá Williams, og
Frank Williams, liðsstjóri, segir
íþróttina hafa skaðast mikið og jafn-
vel svo að tjónið verði aldrei bætt.
Jacques Villeneuve, fyrrverandi
heimsmeistari og ökumaður hjá
Sauber, segist vel skilja viðbrögð
áhorfenda þegar aðeins mættu sex
bílar af tuttugu á ráslínuna. Ville-
neuve sagði líklegt að hann hefði
brugðist eins við sem áhorfandi og
hann er ekki bjartsýnn fyrir hönd
íþróttarinnar í Bandaríkjunum. „Það
tekst aldrei að endurreisa formúluna
hérna,“ sagði hann.
Forráðamenn keppninnar og eig-
endur brautarinnar auk liðsstjóra
liðanna sex reyndu allt sem hægt var
til að finna lausn á málinu. Boðist var
til að laga beygjuna þannig að hún
yrði ekki eins slæm fyrir Michelin-
dekkin. Einvaldurinn Bernie Eccle-
stone féllst á þessa lausn, en fulltrú-
ar FIA, Alþjóða akstursíþróttasam-
bandsins, með Max Mosley forseta í
broddi fylkingar, þvertóku fyrir
þetta þannig að ekkert varð úr því að
brautinni yrði breytt á síðustu
stundu. Einnig fylgir sögunni að
Ferrari hafi neitað að skrifa undir
þessa hugmynd, en Ferrari-menn
nota Bridgestone-dekk ásamt Jord-
an og Minardi.
Ecclestone reyndi allt
Alráður formúlunnar, Bernie
Ecclestone, var allt annað en kátur
með niðurstöðuna og segir uppá-
komuna rústa allri þeirri vinnu sem
lagt hafi verið í til að afla íþróttinni
vinsælda í Bandaríkjunum. „Sú
vinna er öll fyrir bí,“ sagði hann. „Ég
reyndi milljón leiðir til að fá liðin út á
brautina en það gekk ekki. Í gamla
daga hefði maður rekið liðin út á rás-
línuna en það gengur ekki lengur.
Ég hefði talið hálfan sigur unninn ef
ég hefði náð liðunum út á ráslínuna,
en liðin voru annarrar skoðunar.
Mér sýnist staða bandaríska kapp-
akstursins og Michelin ekki góð
þessa dagana,“ sagði Ecclestone.
Eigendur brautarinnar í Indina-
polis segjast fórnarlömb deilna sem
snerti þá ekkert. „Við fengum engu
um ráðið og ef framhald verður á
keppninni hér þá myndum við vilja
ráða einhverju um framkvæmd
hennar,“ sagði Joie Chitwood, for-
maður brautarfélagsins.
Þegar kauphöllin í París var opn-
uð daginn eftir keppnina lækkuðu
hlutabréfin í Michelin um 2,5%.
Pierre Dupasquier, íþróttastjóri
fyrirtækisins, segir það ábyrgt af
hálfu fyrirtækisins að leggja til við
liðin að taka ekki þátt í keppninni.
„Dekkin voru ekki gölluð heldur
gleymdist að taka einn þátt með í
reikninginn. Við hefðum getað búist
við óhöppum og fordómum í okkar
garð í kjölfar þeirra hefðum við sýnt
það ábyrgðarleysi að taka ekki þessa
ákvörðun. Allir liðsstjórarnir studdu
okkur og skildu ástæðuna fyrir
ákvörðun okkar enda eru þeir tækni-
menntaðir,“ sagði Dupasquier sér-
fræðingur Michelin fyrirtækisins.
Sniðgangan í Indianapolis
mun skaða formúluna
UPPÁKOMAN í Indianapolis-kappakstrinum um helgina, þar sem
sjö af tíu keppnisliðum Formúlu 1 tóku ekki þátt, á að flestra mati
eftir að skaða íþróttina. Alltént eru flestir sammála um að formúlan
eigi sér vart viðreisnar von í Bandaríkjunum.
GUÐMUNDUR Steinarsson skor-
aði tvö mörk þegar Keflavík sigraði
Fjölni, 4:3, í bikarkeppni KSÍ í fyrra-
kvöld, ekki þrjú eins og sagt var í
blaðinu í gær. Stefán Örn Arnarson
og Hólmar Örn Rúnarsson skoruðu
hin tvö mörk bikarmeistaranna sem í
gær drógust gegn öðru 1. deildarliði,
HK, í 16-liða úrslitum keppninnar.
TRYGGVI Guðmundsson, leik-
maður FH, er efstur í SMS kosningu
sem Og Vodafone stendur fyrir á
Manni leiksins að loknum fyrstu sex
umferðunum í Landsbankadeild
karla í knattspyrnu. Hann hefur
fjórum sinnum verið valinn maður
leiksins en þeir Andri Fannar Ott-
ósson, Fram, Matthías Guðmunds-
son, Val, Grétar Hjartarson, KR og
Pálmi Haraldsson, ÍA, hafa allir ver-
ið valdir tvívegis.
VALUR hefur fengið flest heildar-
atkvæði áhorfenda eftir þessar sex
fyrstu umferðir. síðan kemur FH, þá
Fram, KR, Þróttur, Fylkir, ÍA,
Grindavík og ÍBV og Keflavík reka
lestina.
BLAKSTÚLKUR í þriðja flokki
Þróttar í Neskaupstað léku til úr-
slita í sínum flokki í einu stærsta
blakmóti heims, Power Cup, en það
fór fram í Finnlandi. Í flokki stúlkn-
anna var 61 lið sem mætti til leiks og
vann Þróttur alla sína leiki nema úr-
slitaleikinn við Finna.
SAMUEL Eto’o, kamerúnski
framherjinn hjá Barcelona, hafnaði
tilboði frá Chelsea og hefur þess í
stað ákveðið að vera áfram í herbúð-
um Börsunga.
ARSENAL er á höttunum á eftir
Guti, leikmanni Real Madrid, en
kappinn sá er metinn á 13 milljónir
punda. Guti er 28 ára miðjumaður og
hefur lýst yfir áhuga á að leika með
Arsenal, en hann var nærri genginn
til liðs við félagið fyrir tveimur árum
en hætti við á síðustu stundu og
samdi við Real.
WEST Ham gekk í gær frá tveggja
ára samningi við tékkneska varnar-
manninn Thomas Repka. Hann átti
tæpt ár eftir af samningi sínum við
félagið og var talið að hann væri á
förum þaðan, en hinn 31 árs gamli
varnarmaður skrifaði undir í gær og
tók á sig við það tækifæri nokkra
launalækkun frá fyrri samningi.
FÓLKÉg ætla ekki að nota þessi meiðslisem einhverja afsökun en ég
átti í erfiðleikum með að slá beint
þar sem að ég gat ekki lokið við
framsveifluna eins og ég er vanur og
öll högg fóru í sveig til vinstri – 10
metrum meira til vinstri en ég er
vanur að slá. En ég er mun betri í
dag en á mánudaginn er ég fór í með-
ferð hjá Gauta Grétarssyni sjúkra-
þjálfara og ég verð orðinn góður á
allra næstu dögum,“ sagði Birgir en
hann mun halda til Lúxemborg á
laugardag þar sem hann mun æfa
fyrir næstu törn á Áskorendamóta-
röðinni. „Flatirnar eru aðalmálið á
þessum mótum og ég verð að ná
betri árangri í púttunum en ég hef
ekki verið nógu stöðugur í þeim
þætti leiksins, stundum er það að
ganga vel en stundum ekki. En ég er
mjög ánægður með hvernig ég er að
slá og hvernig til hefur tekist í þeim
mótum sem ég hef leikið á til þessa.
Það hefur alltaf gengið að komast í
gegnum niðurskurðinn, var í efsta
sæti eftir fyrsta daginn á Evrópu-
móti en það hefur aldrei gerst áður
hjá mér og ekki einu sinni á Áskor-
endamótaröðinni. Ég er því mjög
bjartsýnn á framhaldið og trúi því að
þetta muni ganga vel í framhaldinu,“
sagði Birgir en hann lék með Frakk-
anum Jean Van de Velde á þriðja
keppnisdegi en hann er líklega
þekktastur fyrir að vera „sá sem fór
úr sokkunum“ á Carnoustie vellinum
árið 1999 á Opna breska meistara-
mótinu en hann var með þriggja
högga forskot fyrir lokaholuna en sló
í vatn fyrir framan flötina og í stað
þess að taka víti reyndi hann að slá
upp úr vatninu. Hann lék á þremur
yfir pari á holunni og tapaði síðan í
bráðabana gegn Paul Lawrie.
„Pakkaði Frakkanum saman“
„Ég sé mest eftir því að hafa ekki
lagt undir gegn Van de Velde því ég
pakkaði honum saman,“ sagði Birgir
í léttum tón. „En hann var mjög al-
mennilegur og spurði mig um ým-
islegt sem tengist landinu. En hann
hefur átt við meiðsli að stríða undan-
farin tvö ár og er að reyna að vinna
sig úr þeim vanda. En það var mikil
athygli á okkar ráshóp þegar hann
var með mér. Sjónvarpið frá Frakk-
landi fylgdist grannt með honum og
það var mikið af áhorfendum sem
fylgdu okkur eftir. Ég lék frábært
golf fyrstu 10 holurnar og var fjóra
undir pari og það gefur mér mikið
sjálfstraust að hafa leikið vel undir
þessum kringumstæðum.“ Íslands-
meistarinn fylgdist ekkert með Opna
bandaríska meistaramótinu sem
fram fór um helgina enda í mörg
horn að líta en hann segir að sigur
Michael Campbell frá Nýja-Sjálandi
gefi kylfingum sem séu í „harkinu“ á
Áskorendamótaröðinn von um
árangur. „Ég var á Áskorendamóta-
röðinni árið 1998 er Campbell var að
ná sér á strik á ný eftir að hafa átt við
meiðsli að stríða og sigur hans sýnir
að það er allt hægt í þessu. Það þarf
endalausa þolinmæði og það má
aldrei gefast upp hvað sem á dynur,“
sagði Birgir Leifur.
„Er mjög bjartsýnn
á framhaldið“
BIRGIR Leifur Hafþórsson kylf-
ingur úr GKG mun taka sér frí
frá keppni næstu tvær vikurnar
vegna meiðsla í hálsi en Birgir
ætlaði að taka þátt á Áskor-
endamótaröðinni í þessari viku
en valdi þess í stað að fá sig
góðan af meiðslunum sem hafa
hrjáð hann undanfarin misseri.
Birgir sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöld að hann
hefði fundið fyrir meiðslunum
um helgina í Frakklandi á móti á
evrópsku mótaröðinni undir lok
þriðja keppnisdagsins og á
lokakeppnisdeginum hafi hann
vart getað snúið hálsinum í
framsveiflunni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr GKG ætlar sér stóra hluti
á Áskorendamótaröðinni í sumar.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is