Morgunblaðið - 29.06.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 173. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Herratískan
næsta sumar
Létt og laggott — Inga Rún fjallar
um sumartísku 2006 | 42
Úr Verinu | Flugfiskurinn vaxtarbroddur Hafsjór af fróðleik Bryggju-
spjall Soðningin Íþróttir | Karlalandsliðið lafir í B-riðli Keflavík í
Evrópukeppni Pulis sagt upp hjá Stoke Hannes klár gegn Kippe
LÍTRAVERÐ á 95 oktana bensíni á
bensínstöð með fullri þjónustu er nú
komið upp í 115,20 krónur og hefur
þá hækkað um tæpar ellefu krónur
frá áramótum. Olíufélagið ESSO,
Olís og Skeljungur hafa öll hækkað
verð á 95 oktana bensíni, dísilolíu,
gasolíu, flotaolíu og svartolíu um
eina krónu á lítrann. Eftir sem áður
er eldsneytisverð í sjálfsafgreiðslu
mismunandi.
Orkan hefur ekki hækkað bensín-
verð en lítrinn af 95 oktana bensíni
þar kostar nú 106,80–108,80 krónur.
Lítrinn hjá Atlantsolíu er á 108,90
krónur.
Dísilolían er nú komin upp í 63,10
krónur með fullri þjónustu en er á
bilinu 56,5–59 krónur í sjálfsaf-
greiðslu. Orkan er með lægsta verð á
dísilolíulítra.
Ellefu króna
hækkun frá
áramótum
JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group,
og Hannes Smárason, stjórnarformaður FL
Group, eru á bak við stærstu kaupin á bréfum í Ís-
landsbanka í gær, samtals tæplega 9,5 milljarða
viðskipti, þar sem 5,3% bréfa í bankanum skiptu
um hendur. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins keypti Baugur í einum viðskiptum í gærmorg-
un 400 milljónir hluta í Íslandsbanka á genginu
13,56, fyrir 5,42 milljarða og Hannes Smárason
300 milljónir hluta, á genginu 13,5, fyrir 4,05 millj-
arða króna. Samtals hljóðuðu þessi viðskipti upp á
9,47 milljarða króna.
Morgunblaðið hefur ekki nákvæmar upplýsing-
ar um hver eða hverjir seldu, en þó er vitað að Líf-
eyrissjóðir Bankastræti seldu allan sinn hlut,
1,8%. Talið er líklegt að ákveðinn hluti af bréfum í
eigu Íslandsbanka, sem vistuð eru á svonefndri
veltubók, hafi einnig verið seldur til Jóns Ásgeirs
og Hannesar.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að þessi
viðskipti séu talin styrkja stöðu Karls Werners-
sonar og fjölskyldu í bankastjórn Íslandsbanka.
Karl Wernersson kynnti félögum sínum í banka-
stjórn, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í
liðnum mánuði, áform sín um að stofna sérstakt
eignarhaldsfélag í félagi við þá Jón Ásgeir og
Hannes, þar sem félagið stefndi að því að verða
kjölfestufjárfestir í Íslandsbanka.
Í kjölfar þess fundar seldi Steinunn Jónsdóttir
Burðarási 4,11% hlut sinn í Íslandsbanka á geng-
inu 13,6, fyrir 7,34 milljarða króna.
Baráttan um Íslandsbanka heldur áfram: 5,3% bréfa skiptu um hendur í gær
Baugur og Hannes keyptu
fyrir 9,5 milljarða króna
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
Stærstu hluthafar | 15
ALFREÐ Gísla-
son, þjálfari
þýska hand-
knattleiksliðsins
Magdeburg, hef-
ur tilkynnt for-
ráðamönnum
liðsins að hann
muni hætta þjálf-
un þess þegar
samningur hans
við félagið rennur út sumarið 2007.
Alfreð, sem hefur verið við stjórn-
völinn hjá Magdeburg frá árinu
1999 og hefur gert liðið bæði að
þýskum meisturum og Evr-
ópumeisturum, er sagður í við-
ræðum við þýska liðið Gummers-
bach um að taka við þjálfun þess
eftir tvö ár. | Íþróttir C1
Alfreð hættir
Alfreð Gíslason
♦♦♦
VERSLUNARLEIÐANGRAR eru
ýmist hin besta skemmtun eða óyf-
irstíganleg kvöð. Stundum gengur
vel að finna það sem leitað er að og
verðið jafnvel viðráðanlegt en
stundum er eins og kaupmenn
landsins leggist á eitt um að hafa
ekkert á boðstólum sem hentar
stressuðum kaupandanum.
Þessi börn voru þó langt frá því
að vera stressuð þegar þau virtu
fyrir sér úrvalið í búðarglugga í
miðbæ Reykjavíkur. Kannski voru
þau í leit að gjöf handa góðum vini
og þurftu að íhuga peningamálin
gaumgæfilega áður en ákvörðun
væri tekin. Annars er aldrei að vita
nema hið fornkveðna virki hjá
kaupmönnum borgarinnar: „Hún
mamma kemur í bæinn bráðum og
borgar skuldina mína.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbyggin börn í verslunarleiðangri
Washington, Fort Bragg. AFP, AP.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
flutti í nótt ávarp frá Fort Bragg-
herstöðinni í Norður-Karolínu í til-
efni þess að ár er
liðið frá því að
heimamenn tóku
við völdum í Írak.
Ræðunni var
sjónvarpað um öll
Bandaríkin en
markmið forset-
ans með henni
var að fylkja
þjóðinni bak við
stefnu sína í mál-
efnum Íraks nú þegar stuðningur
Bandaríkjamanna við stríðið fer sí-
fellt minnkandi. Samkvæmt nýrri
könnun dagblaðsins Washington
Post og ABC fréttastofunnar eru
56% ósátt við stefnu Bush í Írak og
52% telja að forsetinn hafi „vísvit-
andi afvegaleitt“ þjóðina í rökstuðn-
ingi sínum fyrir hernaði þar.
Nauðsynlegt til að
tryggja öryggi
Í drögum að ræðunni, sem dreift
var í gærkvöldi, kom fram að Bush
hygðist ekki leggja fram tímaáætlun
um hvenær Bandaríkjaher yrði kall-
aður heim frá Írak. Einnig að forset-
inn myndi segja frá því að hann, eins
og flestir landa sinna, sæi myndir af
„ofbeldi og blóðsúthellingum“ frá
Írak daglega og að þær væru
„hryllilegar og þjáningarnar raun-
verulegar. Mitt í öllu þessu ofbeldi
veit ég að Bandaríkjamenn spyrja:
Er þessi fórn þess virði? Hún er
þess virði og hún er nauðsynleg til
að tryggja öryggi þjóðarinnar í
framtíðinni“.
Demókratar hófu gagnrýni á for-
setann snemma í gær. „Hver sem
skoðun okkar á Íraksstríðinu kann
að vera, þá ættum við öll að hafa
áhyggjur af því að forsetinn skuli
ekki vera með áætlun um hvernig
megi sigra í Írak,“ sagði Ted
Kennedy, öldungadeildarþingmaður
demókrata.| 16
Bush segir
fórnirnar
þess virði
George W. Bush
Vín. AFP. | Sameinuðu þjóðirnar (SÞ)
hafa undir höndum ásakanir um að
bandarísk stjórnvöld haldi grun-
uðum hryðjuverkamönnum föngn-
um leynilega um borð í skipum víðs
vegar um höf.
Manfred Nowak, sendimaður SÞ
sem rannsakar ásakanir um pynt-
ingar, greindi frá þessu í gær. Kvað
hann ásakanirnar á hendur Banda-
ríkjamönnum þess eðlis að tilefni
væri til opinberrar rannsóknar á
málinu. Hann tók þó fram að enn
teldust þær einungis „orðrómur“.
„Það eru uppi mjög, mjög alvar-
lega ásakanir um að Bandaríkja-
menn starfræki leynilegar fanga-
búðir, aðallega á skipum,“ sagði
Nowak, og bætti við að talið væri að
skipin væru flest á Indlandshafi.
Slík „fangaskip“ skapa aðstæður
þar sem hægt er að yfirheyra fanga
leynilega og þar sem yfirheyrsl-
urnar fara fram á alþjóðlegu haf-
svæði eru þær utan bandarískrar
lögsögu, sagði Francis Tusca, bresk-
ur sérfræðingur á sviði öryggis-
mála, í viðtali við fréttastofu AFP.
Þar af leiðandi sé hægt að beita
„mikilli hörku“ við yfirheyrslur.
Bandarísk fangaskip?
Úr Verinu og Íþróttir í dag