Morgunblaðið - 29.06.2005, Blaðsíða 18
Blönduós | Íbúar Blönduóss eru kátir í blíðviðrinu
þessa dagana. Margir voru úti við síðdegis í fyrradag
en þá var nítján stiga hiti og bullandi gróðrartíð. Jónas
Skaftason var að leggja grunninn að sumarhúsi og
Lárus B. Jónsson, forstjóri Kráks, lét heldur ekki sitt
eftir liggja með hamarinn.
Gæsirnar setja ekki síður svip sinn á bæjarlífið
þessa dagana. Þeim hefur fjölgað mikið undanfarin ár.
Ungarnir tútna út í grasinu og foreldrarnir sýna hinum
tvífættu samborgurunum sínum á Blönduósi enga virð-
ingu þegar þeir ganga yfir götur og þjóðvegi.
Svona er lífið
á Blönduósi
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Byltan og Brattahlíð | Kosningu um nöfn
á íþróttahúsin á Bíldudal og á Patreksfirði er
lokið en hún fór fram á miðlunum Tíði og á
vef Arnfirðingafélagsins. Nafnið Brattahlíð
hlaut mest fylgi á Patreks-
firði eða ríflega 36% at-
kvæða en 653 tóku þátt í
kosningunni. Valið stóð á
milli nafnanna Brattahlíð,
Íþróttamiðstöð Patreks-
fjarðar, Klif og Miðvangur.
Byltan varð fyrir valinu hjá
Bílddælingum, var með sléttan helming at-
kvæða en 128 tóku þátt í kosningunni á vef
Arnfirðingafélagsins. Nafnatillögur þar voru
Byltan, Uppsalir, Kistan og Deiglan.
Bæjarstjórn fær niðurstöður kosninganna
til athugunar en niðurstöðurnar verða hafð-
ar til hliðsjónar við endanlegt val á nöfnum
fyrir íþróttamiðstöðvarnar.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Gunnar í Frost | Gunnar Larsen, sem
verið hefur sölu- og markaðsstjóri Brims
hf., hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri
Kælismiðjunnar Frosts hf. á Akureyri.
Gunnar hefur starfað hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa og síðar Brimi hf. í hálfan
annan áratug; var tæknistjóri ÚA 1990 til
1997 og framleiðslustjóri eftir það þar til
hann varð framkvæmdastjóri félagsins. Því
starfi gegndi hann 2003–2004, en síðasta
hálfa annað árið hefur hann verið sölu- og
markaðsstjóri Brims hf.
Selkjötssmakk í boði | Á Reykhóladeg-
inum sem haldinn verður hátíðlegur næst-
komandi laugardag verður hlunnindasýn-
ing. Þar mun Steindór
Haraldsson mat-
reiðslumeistari kynna nú-
tímalega matseld hlunn-
indaafurða milli kl. 14 og
16. Fólki gefst kostur á að
smakka, meðal annars sel-
kjöt í nýstárlegum bún-
ingi.
Margt annað verður um
vera, leiktæki fyrir börnin
og kökubasar. Boðið verður upp á göngu-
ferð með leiðsögn um fuglaskoðunarstíginn
um Langavatn og Reykhólaþorp.
Klukkan sex síðdegis verður grillað í
Hvanngarðabrekku. Þar mæta íbúar
hreppsins og gestir og skemmta sér fram
eftir kvöldi.
veiðar í Laxá í Aðaldal
þegar húnn veiddi sinn
fyrsta lax, 12 punda
hæng. Laxinn tók flug-
una Black Sheep númer
10 og var hún svo djúpt
í laxinum að honum
varð ekki sleppt aftur í
ána.
Það er alltaf sér-stök upplifunþegar veiðimaður
fær sinn fyrsta lax, svo-
kallaðan maríulax, en
það fékk hún Sigrún
Rós Elmers að reyna um
síðustu helgi.
Sigrún var þá við
Birgir Steingrímsson
á Húsavík var leið-
sögumaður Sigrúnar og
að hans sögn gekk bar-
átta hennar við laxinn
vel. Hann tók fluguna í
Mjósundinu og það tók
Sigrúnu Rós um 25 mín-
útur að landa laxinum.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Fékk maríulax í Mjósundi
Davíð Hjálmar Har-aldsson veltir fyr-ir sér fram-
kvæmdum. Fyrst austan:
Lítið fyrir landið mitt
leggst, því börnin erfa
firna stóran forarpytt
en fjalladalir hverfa.
Bleikir strá og blómahnoss
brúngrátt stíflulónið.
Þakinn auri þegir foss.
Þannig verður Frónið
Svo norðan:
Norn ég sá á norðurleið
í nístings kuldabáli.
Kústi sínum kerla reið
með kjaftamél úr áli.
Frá Húnaflóa að Húsavík
hímir byggð í fjötrum
og Fjallkonan sem liðið lík
í leigðum álverstötrum.
Magnús Ólafsson
heyrði konu skipa manni
sínum út með hundinn:
Með hundinn labba úti
í því þarf að drífa.
Krýpur síðan kné sín
kúkinn upp að þrífa.
Sigrún Haraldsdóttir:
Sá er varla sæll og glaður,
sveininn ég í huga lít.
Kúgaður og kvalinn maður
krýpur yfir hundaskít.
Um fjallkonuna
pebl@mbl.is
Grýtubakkahreppur | Kaupfélag Eyfirð-
inga og Grýtubakkahreppur hafa stofnað
samstarfshópinn „Kaldbakur kallar“, sem
hefur það að markmiði að auðvelda útivist-
arfólki aðgengi að fjallinu Kaldbaki við
austanverðan Eyjafjörð – t.d. skíðafólki,
göngufólki og vélsleðafólki.
KEA leggur fram hálfa milljón króna og
Grýtubakkahreppur aðra hálfa milljón til
að fjármagna starfsemi starfshópsins.
Fyrsta skrefið er að hvetja til og undirbúa
gerð vegar frá Grenivík upp í Grenjárdal í
sunnanverðum Kaldbaki, sem myndi bæta
til muna aðstöðu þeirra sem nú þegar
stunda útiveru í Kaldbaki, einkum yfir
vetrarmánuðina. Strax á þessu ári verður
hugað að legu nýs vegar og tilskilanna
leyfa aflað til vegagerðar.
Sem kunnugt er hefur verið boðið upp á
ferðir á Kaldbak í snjótroðara undanfarna
vetur og hafa vinsældir þeirra aukist ár frá
ári, enda hefur því verið haldið fram að af-
líðandi hlíð Kaldbaks sé lengsta og jafnvel
skemmtilegasta skíðabrekka landsins.
Hyggjast
leggja nýjan
veg að
Kaldbak
Skagafjörður | Afmælishátíð Sölva Helga-
sonar verður haldin að Lónkoti í Skagafirði
dagana 1. til 3. júlí næstkomandi, á Veit-
ingahúsinu Sölva-Bar. Kokkar staðarins
munu kitla bragðlauka gestanna með dýr-
indis krásum úr matarkistu Skagafjarðar,
að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Liðin eru tíu ár frá opnun Veitingahúss-
ins Sölva-Bars og frá því Sölva Helgasyni
var reistur minnisvarði við ferðamanna-
staðinn Lónkot. Sýning á verkum Sölva
hefur verið opnuð í galleríi staðarins.
Haldið upp á
afmæli Sölva
Helgasonar
♦♦♦
Með kveðju.
Grétar, sími 696 1126.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
BREIÐHOLT - TVEGGJA-
ÍBÚÐA HÚS
Mér hefur verið falið að leita eftir tveggja
íbúða raðhúsi eða einbýli í Breiðholti fyrir
ákveðinn kaupanda. Verð allt að 38,0 millj.
Önnur svæði koma einnig til greina. Um ríf-
legan afhendingartíma getur verið að ræða.
Áhugasamir vinsamlegast hafi sam-
band og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Mannlíf