Morgunblaðið - 26.08.2005, Qupperneq 4
4 B FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
!" #
$$$
%
&' ()' * +
',,-
',- VOLKSWAGEN Passat á sér langa
sögu. Hann kom fyrst á markað 1973
og um leið urðu þau tímamót hjá VW
að framleiðsla hófst á framhjóla-
drifnum bílum. 1996 kom bíllinn í
gerbreyttri mynd og setti nýjan stað-
al hvað varðar stærð, útbúnað og
aksturseiginleika í D-stærðarflokkn-
um. Í sumar var síðan kynnt sjötta
kynslóð bílsins og hann er stærri,
breiðari og með meira hjólhafi en
fyrri kynslóð og auk þess umtalsvert
betur búinn. Og nú hefur sú fjöður
bæst í hatt VW að Passat hefur feng-
ið fimm stjörnur í árekstrarprófun
Euro NCAP, og sérlega góða út-
komu hvað varðar öryggi barna sem
ferðast í bílnum.
Óhætt er að segja eftir þó nokkur
kynni af nýjum Passat að Volks-
wagen hefur enn tekist að setja nýj-
an staðal í búnaði og frágangi á bíl í
D-stærðarflokki en jafnframt náð að
gæða þennan áður fyrr virðulega bíl
sportlegri ásýnd en áður. Þar kemur
ekki síst til alveg nýr framendi (sem
svipar óneitanlega til systurmerkis-
ins Audi), mikill bogi á þakinu og
óvenjulegur frágangur á afturenda,
þ.e. ljósabúnaði.
Þrjár gerðir af
dísilvélum í boði
Sem fyrr er Passat boðinn í fjórum
búnaðarútfærslum, þ.e. Trendline,
Comfortline, Sportline og Highline.
Ólíkt flestum öðrum framleiðendum
hefur VW ekki framleitt Passat
nema í tveimur gerðum, þ.e.a.s. sem
stallbak og langbak. Ekki hefur verið
þróaður hlaðbakur eða þrennra dyra
coupé-útfærsla. Passat af sjöttu kyn-
slóðinni hefur frá því hann var kynnt-
ur um mitt sumar eingöngu verið fá-
anlegur sem stallbakur en innan
tíðar sýnir Hekla langbaksgerð bíls-
ins.
Passat er boðinn með fjórum gerð-
um bensínvéla hér á landi, 1,6 l, 115
hestafla, 2,0 l FSI, 150 hestafla og
sömu vél með forþjöppu sem skilar
þá 200 hestöflum, sem er sama vélin
og í VW Golf GTI. Aflmesta gerðin er
svo 3,2 lítra, V6 vél sem skilar 250
hestöflum. Þá eru í boði þrjár dísil-
vélar; 1,9 l, 105 hestafla, 2,0 l, 140
hestafla (320 Nm) og 2,0 l, 170 hest-
afla (350 Nm).
Prófaður var á dögunum bíll í
Comfortline-útfærslu með 140 hest-
afla dísilvélinni og sex þrepa DSG-
gírkassa (sjá rammagrein hér til hlið-
ar).
Óhætt er að segja að bíllinn hafi
strax komið ánægjulega á óvart fyrir
mikið vélarafl. 140 hestöfl eru svo
sem engin stórtíðindi í bíl af þessari
stærð en þegar haft er í huga að hér
er á ferðinni dísilvél, og þó ekki nema
2ja lítra að rúmtaki, þá er þetta hest-
aflatala sem vekur athygli. En það er
auðvitað fyrst og fremst togið í vél-
inni sem gerir þennan bíl að hálf-
gerðri rakettu.
Laðar fram ánægjubros
Þetta er bíll sem laðar fram
ánægjubros á þungbrýndustu mönn-
um þegar þeir aka honum í fyrsta
sinn. Það heyrist vissulega „dísil-
glamur“ í vélinni í lausagangi en um
leið og ekið er af stað dettur allt í
dúnalogn, nema hvað ef menn gæta
sín ekki á inngjöfinni er hætt við því
að þeir spóli með látum í upptakinu,
eða allt þar til ESP-kerfið tekur yfir.
Millihröðunin er líka athyglisverð.
Það er nánast ekkert þjöppuhik að
finna og vinnslan er þétt og jöfn á
breiðu snúningssviði, eða alveg frá
um 1.800 snúningum upp í um og yfir
3.000 snúninga. DSG-skiptingin er
lungamjúk og menn verða ekki varir
við skiptingarmynstrið, nema þeir
taki sjálfir af skarið og handskipti
bílnum. Fyrir vikið er Passat 2.0 TDI
líka þægilegur í þjóðvegaakstri þeg-
ar þær aðstæður geta skyndilega
komið upp að þörf er fyrir mikla
millihröðun við framúrakstur. Sam-
spilið milli þessarar 2ja lítra dísilvél-
ar og DSG-gírkassans er líka eftir-
tektarvert. Það er eins og
sjálfskiptingin sé sífellt leitandi og
þar af leiðandi hikandi í lágsnúningi
eftir besta hlutfallinu allt þar til öku-
maður tekur af skarið og gefur bíln-
um inn.
Með styttri gírskiptitíma og kjör-
hlutfalli hverju sinni dregur úr
eyðslu bílsins um leið og viðbragðið
eykst. Aksturstölvan í bílnum sýndi
reyndar vel yfir 9 lítra eyðslu á
hundraðið en hafa ber í huga að
mestanpart var ekið innan borgar-
markanna og það var ekki stundaður
sparakstur. Uppgefnar eyðslutölur
frá VW eru reyndar sléttir 9 lítrar í
borgarakstri en 6,6 lítrar í blönduð-
um akstri. Þetta getur svo farið alveg
niður í 5,3 lítra í þjóðvegaakstri ef
menn vanda sig.
Áður hefur verið fjallað um búnað,
pláss og aksturseiginleika Passat á
þessum vettvangi og nægir að segja
hér að allar breytingar sem urðu á
bílnum eru til batnaðar og miða að
því að gera hann eigulegri en áður.
Það sem kom hvað mest á óvart þeg-
ar nýr og stærri Passat var kynntur
var verðið. Bíllinn hækkaði óveru-
lega í verði þrátt fyrir allar umbætur.
Verðið rúmar 2,9
milljónir króna
Af þeim vélum sem undirritaður
hefur prófað hefur hann heillast mest
af 2,0 lítra dísilvélinni, 140 hestafla.
Þetta er togmikil vél og með DSG-
gírkassanum skilar hún eftirtektar-
verðri vinnslu á breiðu snúningssviði.
Þess vegna er það ekkert nema til-
hlökkunarefni að prófa 170 hestafla
vélina, þegar hún býðst síðar á þessu
ári hér á landi.
Verðið á VW Passat 2.0 TDI í
Comfortline er 2.915.000 kr. Talsvert
ríkulegur staðalbúnaður fylgir þess-
ari útfærslu, en þó ekki álfelgur.
Þarna má nefna hluti eins og þoku-
ljós, 6 öryggispúða, aftengjanlega
spólvörn, ESP-stöðugleikastýringu,
diskahemla á öllum hjólum, raf-
magnshandbremsu, stiglausa hæðar-
stillingu á ökumannssæti, loftkæl-
ingu, aksturstölvu og fleira.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ný kynslóð Passat er nú fáanleg með dísilvélum, þ.á m. 140 hestafla.
Dísilvél sem kemur á óvart
REYNSLUAKSTUR
Volkswagen Passat
Guðjón Guðmundsson
2ja lítra dísilvélin togar mest 320 Nm og skilar mikilli vinnslu.
gugu@mbl.is
Vél: Fjögurra strokka,
1.968 rúmsentimetrar,
forþjappa, millikælir.
Afl: 140 hestöfl við 4.000
snúninga á mínútu.
Tog: 320 Nm við 1.800
snúninga á mínútu.
Gírskipting: Sex þrepa
DSG-skipting
(Direct Shift Gearbox).
Hröðun: 9,8 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km/klst.
Hámarkshraði:
206 km/klst.
Eyðsla: 9 lítrar innan-
bæjar, 5,3 lítrar í þjóð-
vegaakstri (skv. VW).
Lengd: 4.765 mm.
Breidd: 1.820 mm.
Hæð: 1.472 mm.
Eigin þyngd: 1.476 kg.
Farangursrými: 565 lítrar.
Hemlar: Diskahemlar,
kældir að framan.
Dekk og felgur:
205/55 R16 V.
Olíuskipti: 30.000 km.
Verð: 2.915.000 kr.
Umboð: Hekla hf.
Volkswagen Passat 2.0
TDI Comfortline
VOLKSWAGEN býður upp á DSG-
sjálfskiptingu í Golf og Passat, en
þessi skipting er ólík öðrum skipt-
ingum að því leyti að í henni er tvö-
faldur kúplingardiskur. DSG-
skiptingin býr yfir öllum kostum
góðrar sjálfskiptingar, þar á meðal
handskiptivali milli sex þrepa.
Skiptingin er með tvöföldum kúp-
lingardiski þannig að skipt er um gír
án þess að bíllinn missi kraft. DSG-
skiptingin kom fyrst fram í sportlegri
útgáfu af Golf, en með henni var
hægt að skipta mjög hratt og lip-
urlega. Drifbúnaðarsérfræðingar
Volkswagen hafa síðan lagað stig-
lausu DSG-sjálfskiptinguna að öfl-
ugum dísilvélum. Rafeindabúnaður er
nýttur til þess að virkja vélina sem
best og hámarka afköst hennar. Hún
togar því kröftugar en venjulegar
dísilvélar við lítinn snúningshraða og
ekki þarf að auka hann til þess að
bæta fyrir það skrik sem einkennir
hefðbundna átaksbreyta.
Verkfræðingunum hefur tekist að
samræma TDI (forþjöppudísilvélar)
og DSG til þess að skila hámarks-
afköstum í Golf, Golf Plus, Touran og
nýja Passatinum.
DSG-skiptingin kom á markað í
upphafi árs 2004 og þegar hafa
rúmlega 150.000 viðskiptavinir valið
hana í bíla sína hjá Volkswagen.
Helsti kostur tvöföldu skipting-
arinnar er sá að hún er jafn skilvirk
og beinskipting vegna vélrænu afl-
skiptingarinnar. Stiglausa DSG-
sjálfskiptingin skiptir einnig á milli
gíra án þess hnykks sem er óhjá-
kvæmilegur í skiptingum með ein-
földum kúplingardiski. Mjög auðvelt
er að stjórna skiptingunni sem leiðir
meðal annars til þess að viðbragð er
ákjósanlegt þegar tekið er af stað til
þess að koma í veg fyrir tap í tog-
krafti af völdum forþjöppunnar.
Stuttan tíma tekur að skipta um gír,
eða aðeins 40 millisekúndur, auk
þess sem hægt er að sleppa fleiri en
einum gír þegar verið er að skipta
niður.
Hagstæðasti gírinn er valinn en
það getur verið breytilegt þegar not-
ast er við hefðbundna átaksbreyta.
Besta val á gír dregur úr eldsneyt-
iseyðslu öfugt við hefðbundna átaks-
breyta sem auka eldsneytiseyðslu.
Ökumenn dísilbifreiða þekkja kost-
ina við notkun dísilvéla með tilliti til
eldsneytiseyðslu þegar ekið er og
skipt um gíra við lægsta mögulega
snúningshraða. Stiglausa DSG-
sjálfskiptingin nýtir sér þetta í TDI-
vélinni, sem boðin er í Golf og Pas-
sat. Togkraftur eykst við lágan
snúningshraða en það tryggir að vél-
in getur alltaf togað fullnægjandi.
Rafeindabúnaðurinn sér um afgang-
inn. Innspýtingunni er stýrt af svo-
kölluðum „dynamic pilot control“
búnaði þannig að allt að 15% meiri
togkraftur en annars er til staðar
þegar snögglega þarf að skipta um
gír.
DSG-skipting með tvöföldum kúplingardiski