Morgunblaðið - 26.08.2005, Side 8

Morgunblaðið - 26.08.2005, Side 8
8 B FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar HÁ MA RKS GÆ ‹I Á F RÁ BÆ RU VER ‹I! REYKJAVÍK · HAFNARFIR‹I · AKUREYRI · REY‹ARFIR‹I · EGILSSTÖ‹UM AUTOMAN LOFTPRESSUR A lþjóðarallinu Rally Reykja- vík lauk síðasta laugardag og þá höfðu ökuþórarnir lagt að baki meira en 1000 km með mörgum sérleið- um sem voru bæði erfiðar og krefj- andi. Þessar sérleiðir lágu um allt suðvesturhorn landsins. Á fimmtudeginum var byrjað á Djúpavatnsleið í suður og síðan var Krísuvíkurleiðin ekin norður. Tvær stuttar sérleiðir voru þessu næst ekn- ar í Gufunesi. Á föstudeginum var ek- ið um Hekluleið, Dómadal og Tungn- árleið. Þessar leiðir voru síðan eknar til baka og reyndust mörgum kepp- andanum erfiðar. Þó þær séu fallegar er ólíklegt að erlendu keppendurnir, sem voru tíu, hafi mikið getað notið þess því ökumaðurinn hefur átt fullt í fangi með að halda bílnum á veginum og aðstoðarökumaðurinn upptekinn við að lesa leiðarlýsinguna fyrir hann. Á laugardeginum var ekið fram og til baka um Tröllháls, Kaldadal og Uxahryggi. Stutt sérleið var við Geit- háls og rallinu lauk svo með akstri um Kleifarvatn og Djúpavatn. Sprungin dekk örlagavaldar Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson sigruðu í rallinu og tryggðu sér með því Íslandsmeistara- titilinn í Rally 2005. Forskot þeirra er orðið slíkt að enginn annar keppandi á möguleika á að ná þeim þó svo að ein keppni, haustrallið, sé eftir. En sigur Sigurðar Braga og Ísaks var ekki fyrirhafnarlaus því að á fimmtu- dag á stuttri sérleið í Gufunesi brutu þeir hjöruliðskross í drifskafti og gátu rétt hökt leiðina á enda. „Við lentum skelfilega í því. Þetta er alls ekki sú byrjun sem við vorum að vonast eftir,“ sagði Sigurður Bragi síðar. „Við náðum 43 sekúndna for- skoti á tveimur fyrstu leiðunum en í upphafi þeirrar þriðju brotnaði drif- skaftið og við töpuðum 400 sekúndum og höfum því dregist verulega aftur úr. Staðan okkar á fimmtudagskvöld- ið var eins og að vera 6–0 undir í fót- boltaleik, ef svo má að orði komast.“ Sigurður Bragi og Ísak börðust áfram og af miklu harðfylgi tókst þeim að vinna sig aftur upp og taka forystuna. Á Tungnárleið sprengdu Sigurður Bragi og Ísak dekk en urðu tiltölulega fljótlega varir við það og með því að aka varlega og gæta þess að taka ekki skarpar beygjur tókst þeim að halda dekkinu á felgunni og klára leiðina án þess að tapa miklum tíma. Það sama verður ekki sagt um Guðmund Guðmundsson og Jón Bergsson sem börðust við Sigurð Braga og Ísak um sigurinn, en þeir sprengdu einnig á Tungnaá. Neyddust til að skipta um dekk „Við reyndum að keyra á sprungnu og komumst um 8 km,“ sagði Guð- mundur. „Þá var bæði dekkið og felg- an farin undan bílnum svo að við neyddumst til að stoppa og setja varadekkið undir. Við töpuðum fjór- um til fimm mínútum á þessu. Ef við hefðum getað klárað leiðina á sprungnu hefðum við e.t.v. tapað tveimur mínútum og það munar öllu í svona slag. Það kostaði okkur of mik- ið og svo bilaði aftur. Pústgreinin brotnaði við túrbínuna svo að hún varð óvirk og við höfðum ekki nema nokkur hestöfl, svona rétt til að koma okkur áfram. Við erum ánægðir yfir að hafa get- að klárað keppnina í dag. Í svona slag má ekkert koma uppá en við vorum þó með nokkuð öruggt forskot á þriðju menn,“ bætti Guðmundur við. Sigurður Bragi var himinlifandi yf- ir að hafa landað Íslandsmeistaratitl- inum og vonaðist til að kveða niður gamlan draug með því. „Ég var nálægt því að vinna titilinn 1998. Þá voru nokkrir kílómetrar eftir þegar dekk sprakk hjá mér svo að ég missti af titlinum. Ég hélt að ég yrði svekktur yfir þessu í nokkra daga en hef komist að því að ég er alltaf jafn svekktur þótt árin hafi liðið. Eina lækningin við þessu var að ná titlinum og nú er það orðið staðreynd svo að ég losna vonandi við þennan draug úr kollinum á mér.“ Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson lögðu mikla áherslu á að vinna forskot á keppi- nauta sína, strax á fyrstu sérleið Reykjavíkurrallsins sem lá um Djúpavatnsleið. Sighvatur Sigurðsson og Andrés F. Gíslason mættu með glænýjan bíl í rallið, Land-Rover Tomcat, en þeir lentu í bilunum strax á fyrstu sérleið og urðu að sætta sig við að detta úr keppni. Sigurður Bragi og Ísak orðnir Íslandsmeistarar                                      !"#  $     %#   & '() )* %      !" +  +    ," +   - . %/   0 # &&    1      ,  2  (  1     34"%  /    /  5446 3 5 7 8 6 9 : ; < 34 64 7; 54 38 <=6 < : 9 6 6 ..>- ?#6 @ 0 AB  &;4 D) >?  > A>%  D) > E  ) D) 3944 D) > 3944 Ljósmynd/JAK Ísak Guðjónsson og Sigurður Bragi Guðmundsson fögnuðu sigri í Alþjóðarallinu og nýlönduðum Íslandsmeistaratitli á viðeigandi hátt á Austurvelli. Ísak Guðjónsson fylgist áhyggjufullur með aðstoðarmönnum sínum þegar þeir keppast við að gera við Mishubishi Lancer Evo5 bílinn í tveggja klukkustunda viðgerðarhléi sem keppnisliðin fengu í lok fyrsta keppnisdagsins. JAK@ismennt.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.