Morgunblaðið - 29.08.2005, Side 6
6 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
2
91
02
08
/2
00
5
www.lyfja.is
- Lifið heil
FRESHMINT
105 STK. 2 MG
FRESHMINT
105 STK. 4 MG
Nicorette
Ágústtilboð
10% afsláttur
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklings-
bundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar
um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar
sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingumumlyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum
innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt
heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á
brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað
er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
GÍSLI Marteinn Baldursson vara-
borgarfulltrúi lýsti því yfir á fundi
með stuðningsmönnum sínum í
Iðnó í gær að hann hefði ákveðið að
gefa kost á sér í efsta sætið á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
komandi prófkjöri vegna borgar-
stjórnarkosninganna næsta vor. Áð-
ur hefur Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, oddviti sjálfstæðismanna í
borgarstjórn, gefið kost á sér í
efsta sætið.
Gísli Marteinn sagði í samtali við
blaðamann eftir fundinn að hann liti
svo á að hann væri ekki að bjóða
sig fram á móti einum né neinum;
enginn ætti nein sæti. Björn
Bjarnason hefði verið í fyrsta sæti
framboðslista flokksins í síðustu
borgarstjórnarkosningum og væri
enn í því sæti. „Við Vilhjálmur er-
um því báðir að bjóða okkur fram í
efsta sæti listans,“ sagði hann. „Ég
býð mig einfaldlega fram vegna
þess að ég hef fundið fyrir því að ég
geti aukið fylgi Sjálfstæðisflokksins
um þau prósent sem við þurfum að
fá til þess að komast aftur í meiri-
hluta. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
glæsilega sögu í borginni sem
fjöldahreyfing, sem flokkur sem all-
ir geta kosið jafnvel þó þeir upplifi
sig ekki sem harða sjálfstæðis-
menn. Við þurfum að ná þeirri
stemmningu upp aftur – með mál-
efnunum sem við höfum verið að
vinna að síðustu fjögur ár, en líka
með mönnunum.“
Spurður um helstu áherslumál
sín segir hann: „Mín helstu áherslu-
atriði eru áhersluatriði sem borg-
arstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins hefur lagt áherslu á og mun
áfram leggja áherslu á. Við erum
samhentur flokkur sem er búinn að
koma sér upp þéttri málefnaskrá og
ég ætla ekki að róa í neina aðra átt.
Ég ætla að reyna að vera í stafni í
okkar bát, þar sem við öll róum í
sömu átt, og byggjum á þeim mál-
efnagrunni sem við erum búin að
koma okkur upp á undanförnum ár-
um. Og við munum fara með hann
til sigurs.“
Inntur eftir því hvort hann hafi
forystu flokksins á bakvið sig, seg-
ist hann telja að hún gefi ekki upp
hverja hún styðji. Þegar hann er
áfram spurður út í þetta segir
hann: „Ég vona að ég sé ekki að
gera þetta að minnsta kosti í neinni
óþökk flokksforystunnar.“
„Lagast með aldrinum“
Gísli sagði í ræðu, sem hann
flutti í Iðnó í gær, að komandi próf-
kjör sjálfstæðismanna snerist að
sínu viti ekki fyrst og fremst um
málefni. Borgarstjórnarflokkur
Sjálfstæðisflokksins væri samhent-
ur hópur; ekki væri ágreiningur um
nein grundvallaratriði. „Við erum
öll sjálfstæðismenn og sú stefna
sem við höfum unnið eftir undan-
farin fjögur ár er stefna okkar
allra; sameiginleg stefna sem hvert
og eitt okkar í borgarstjórnar-
flokknum hefur lagt sitt af mörkum
við að móta undir góðri forystu Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar. Í próf-
kjöri hljóta kjósendur þess vegna
að gera upp hug sinn fyrst og
fremst með hliðsjón af því hvaða
einstaklingur sé líklegastur til að
afla flokknum fylgist út fyrir raðir
hörðustu sjálfstæðismanna. Það
þarf að gera upp við sig hvaða ein-
staklingur sé líklegastur til að
tryggja Sjálfstæðisflokknum sigur í
komandi kosningum.“
Gísli gerði það síðar að umtals-
efni að hann væri „frekar ungur að
árum“ eins og hann orðaði það, eða
aðeins 33 ára. Hann sagði að ungur
aldur hefði oft verið notaður gegn
stjórnmálamönnum, t.d. Ásgeiri Ás-
geirssyni, þegar hann hefði farið í
framboð 29 ára. Ásgeir hefði hins
vegar svarað því til á kosningafundi
að menn gætu huggað sig við það
að „þetta lagaðist með aldrinum“.
Gísli sagði ennfremur að þótt
hann hefði umtalsverða reynslu af
stjórnmálum, m.a. í gegnum há-
skólapólitíkina, ungliðastarf Sjálf-
stæðisflokksins og nú síðast í gegn-
um borgarstjórnarflokkinn, þá væri
það vissulega rétt að margir hefðu
enn meiri reynslu. „En án þess að
gera lítið úr reynslu annarra, þá er
það samt þannig að enginn er kos-
inn út á það eitt að eiga langa fortíð
í stjórnmálum. Menn eru ekki síður
og jafnvel fyrst og fremst kosnir
vegna þeirrar framtíðar sem þeir
bjóða upp á. Með því er ég ekki að
segja að reynslan skipti ekki máli;
reynsla kjósenda af R-listanum
skiptir t.d. höfuðmáli í næstu kosn-
ingum.“
Gísli Marteinn Baldursson býður sig fram í fyrsta sætið
Telur sig geta aukið
fylgi flokksins
Morgunblaðið/Kristinn
Gísli Marteinn Baldursson ávarpar fjölmennan fund stuðningsmanna sinna í Iðnó síðdegis í gær.
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
„ÉG BÝÐ Gísla Martein velkominn
í kosningabaráttuna sem fram-
undan er,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn, en
Vilhjálmur gefur eins og Gísli
Marteinn Baldursson kost á sér í
fyrsta sætið í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna vegna komandi borg-
arstjórnarkosninga.
„Í prófkjöri okkar sjálfstæð-
ismanna legg ég verk mín og
reynslu af borgarmálum undir
dóm þátttakenda í prófkjörinu en í
öllum mínum störfum í þágu borg-
arinnar á und-
anförnum árum
hef ég lagt
áherslu á að
vinna fyrir fólk-
ið og vinna með
fólkinu í borg-
inni,“ segir Vil-
hjálmur.
Hann tekur
fram að sjálf-
stæðismenn
stefni að því að ná meirihluta í
borgarstjórn Reykjavíkur „og
hrinda í framkvæmd nauðsyn-
legum hagsmunamálum borgarbúa
og koma betri skipan á stjórn
borgarinnar á svo mörgum svið-
um,“ segir hann.
Gísli Marteinn sagði í ræðu sinni
á fundinum í Iðnó í gær að hann
hefði þegar rætt við Vilhjálm um
þá ákvörðun sína að stefna á
fyrsta sætið. Vilhjálmur hefðu tek-
ið erindinu sem heiðursmaður.
„Við vorum sammála um að
hvernig sem prófkjörið færi væru
það kosningarnar í vor sem augu
okkar ættu að beinast að,“ sagði
Gísli.
Mun leggja fram verk mín og
reynslu í væntanlegu prófkjöri
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
STEINUNN V. Óskarsdóttir borg-
arstjóri segist ekki kippa sér upp
við skrif Össurar Skarphéð-
inssonar, þingmanns og fyrrver-
andi formanns Samfylkingarinnar,
á vefsíðu sinni, en þar átelur hann
Steinunni fyrir ummæli hennar um
framboð Stefáns Jóns Hafsteins
borgarfulltrúa í fyrsta sætið á
framboðslista flokksins í Reykja-
vík.
„Össur hefur í gegnum tíðina
haft skoðanir á mönnum og mál-
efnum, bæði utan og innan Sam-
fylkingarinnar. Ég kippi mér ekk-
ert upp við það þótt hann hafi
þessar skoðanir
á því sem ég
sagði.“
Steinunn gefur
kost á sér í efsta
sætið á fram-
boðslista Sam-
fylkingarinnar í
komandi borg-
arstjórnarkosn-
ingum, en Stefán
Jón sækist einnig
eftir því sæti. Innt eftir því hvernig
henni lítist á framboð Stefáns segir
hún þetta eitt. „Það er búið að
liggja lengi í loftinu.“
Kippir sér ekkert
upp við skrif Össurar
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
SAMKVÆMT nýrri raforkuspá
Orkuspánefndar mun almenn raf-
orkunotkun heimila koma til með
að aukast á næstu árum sökum
fleiri tækja á heimilum og fleiri
heimila almennt. Gert er ráð fyrir
að þessi þróun haldi áfram á allra
næstu árum en síðan fari að hægja
á henni. En spáin er gerð til næstu
25 ára.
Raforkunotkun hefur verið að
aukast mikið á undanförnum árum
sökum aukinnar stóriðju og enn
meiri aukning sé framundan á því
sviði. Á næstu árum vex notkun
stóriðju um 7.300 GWh og verður
komin í 80% af allri raforkunotkun
á landinu árið 2009.
Almenn heimilisnotkun utan raf-
hitunar hefur vaxið hraðar en ráð
var fyrir gert en á síðasta áratug
hefur hún aukist úr 3,5 MWh/heim-
ili í 4,4 MWh/heimili. Helstu orsakir
hækkunarinnar eru að tækjum hef-
ur fjölgað mikið á heimilum á þessu
tímabili svo sem sjónvörpum og
tölvum og algengt er að þau séu
höfð í biðstöðu fremur en að slökkt
sé á þeim, en það kallar á nokkra
raforkunotkun. Einnig hefur vægi
raforku í útgjöldum heimila minnk-
að og af þeim sökum minni hvati til
að spara orkuna en áður. Áfram er
gert ráð fyrir aukningu í notkun
heimila og að hún verði komin í 5,0
MWh/á heimili eftir áratug en
standi í stað eftir það. Á spátíma-
bilinu er búist við verulegri fjölgun
fólks eldra en 40 ára sem gerir það
að verkum að heimilum fjölgar
hlutfallslega meira en landsmönn-
um sem kallar á aukna raforku-
notkun.
Raforkunotkun hefur
vaxið hratt í þjónustu
Í atvinnustarfsemi utan stóriðju
hefur raforkunotkun vaxið hraðast í
þjónustu svo sem í smásöluverslun
en í opinberri þjónustu hefur orðið
mest aukning í skólum og íþrótta-
mannvirkjum sem rekja má til upp-
byggingar heilsdagsskóla.
Rafskautakötlum hefur fjölgað
nokkuð á undanförnum árum í
fiskimjölsverksmiðjum og á þann
hátt hefur raforka komið í stað olíu
og gert er ráð fyrir nokkurri aukn-
ingu á því sviði á næstu árum. Mikil
aukning hefur verið í raforkunotk-
un við byggingastarfsemi á síðasta
ári sökum virkjana og stóriðjufram-
kvæmda á Austurlandi en sú notk-
un nær hámarki árið 2006. Heild-
arnotkunin við þær framkvæmdir
er áætluð 310 GWh en það er álíka
mikil orka og 70.000 heimili nota á
einu ári.
Raforkunotkun
heimila eykst enn