Morgunblaðið - 29.08.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2005 29
DAGBÓK
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu
byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa
áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt
ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið-
urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Frá nemendasýningu í Borgarleikhúsinu
Innritun í síma 561 5620
frá kl. 14.00–18.00.
Íbúar í Grafarvogi
og nágrenni,
kennt verður
í Hamraskóla.
Kennsla hefst
12. september
Allir aldurshópar frá 4ra ára
Síðastliðinn vetur kom upp sú hugmynd aðhrinda af stað heilsueflingu og byltu-forvörnum hjá öldruðum á vegumHeilsugæslustöðvarinnar á Akranesi.
Verkefnið er unnið í samvinnu iðjuþjálfa og
heimahjúkrunar, en rannsóknir sýna að byltur
eru þó nokkuð algengar hjá öldruðum í heima-
húsum. Þessar byltur hafa oft slæmar afleiðingar
svo sem lærbrot, mjaðmabrot og úlnliðsbrot svo
eitthvað sé nefnt.
Sigurður Sigursteinsson iðjuþjálfi hefur að-
allega unnið með börnum á Akranesi. „Hug-
myndin um að vinna með öldruðum kom upp með-
al annars til að nýta mig betur sem iðjuþjálfa,“
sagði hann. „Fyrst í stað höfum við aðallega sinnt
eldra fólki sem notar þjónustu heilsugæslunnar.
Ég hef unnið í samráði við heimahjúkrun, en þær
hafa valið úr þá skjólstæðinga sem þær telja þurfa
mest á þessari þjónustu að halda. Nú langar mig
að prófa að senda öllum íbúum Akraness, 80 ára
og eldri, bréf og heimsækja síðan þá sem þess
óska. Í þessum hópi eru margir sem ekki koma
mikið á heilsugæslustöðina og tel ég nauðsynlegt
að ná til þess hóps líka.“
Þjónustan felst í því að Sigurður heimsækir
eldra fólk og fer yfir sögu þess. Farið er yfir þörf
fyrir ýmis hjálpartæki, en margir vilja ekki heyra
minnst á þau. Oft breytist afstaða til þeirra þegar
þeir sjá tækin, t.d. handföng og fleira sem létta
mörgum lífið. „Við skoðum hvað er erfiðast í dag-
lega lífinu, hvernig fólkið kemst í gegnum daginn
og fleira. Ég kenni þeim heimaæfingar, sem eru
styrktaræfingar, mest gerðar með hjálp stóla. Þá
fer ég yfir hættur á heimilinu. Eldra fólk dettur
oft um mottur, snúrur eða þröskulda. Ég bendi á
að þeir sem hafa góða sjón geta oft komið í veg
fyrir fall um slíka hluti ef þeir horfa niður fyrir sig
þegar þeir ganga um. Það er töluvert algengt að
eldra fólk upplifi að allt í einu gefi fóturinn sig. Ég
hef líka komist að því að margir hafa lent í byltum
en hafa verið svo heppnir að komast heilir út úr
þeim. Hins vegar geta þær haft mjög slæmar af-
leiðingar og ég reyni að gera fólki grein fyrir
hættunum. Tilgangurinn er alls ekki að hræða
fólk, en beinbrot á efri árum getur tekið langan
tíma að jafna sig og í verstu tilfellum komið í veg
fyrir að fólk geti búið áfram heima, sem flestir
vilja þó gera.“
Oft er alls ekki auðvelt að fá fólk til að breyta að
mati Sigurðar. Sumir hafa haft mottuna sína á
sama stað í 50 ár og eru ekki tilbúnir að breyta
því. En margt má gera til að draga úr hættum og
oft þarf ekki að breyta miklu. Stundum eru hús-
gögn í gangveginum og auðvelt er að færa þau til.
„Ekki er óalgengt að 80–85 ára gamlar konur séu
að príla upp á stól eða í stiga til að ná í hluti sem
eru uppi í efstu hillu í eldhússkápnum. Ég bendi á
að best sé að raða þeim hlutum sem mest eru not-
aðir neðst í skápana. Ég fer yfir gátlista með fólk-
inu og fer yfir þær hættur sem kynnu að leynast í
eldhúsinu, baðherberginu og svefnherberginu.
Ég skil einnig eftir blað með upplýsingum um
hvað eru algengar orsakir byltu. Þær eru til dæm-
is beinþynning, skortur á hreyfingu, skert sjón og
aukaverkanir vegna lyfja, til dæmis svimi.“
Sigurður heimsækir fólkið einu sinni til tvisvar
og hvetur það til að gera æfingarnar heima þrisv-
ar sinnum í viku.
„Mér finnst þetta skemmtileg leið að koma iðju-
þjálfuninni inn í heilsugæsluna og nota hana til
forvarna. Þetta er góð leið til að gera fólki kleift
að búa lengur heima.“
Iðjuþjálfun | Heilsuefling og byltuforvarnir hjá öldruðum á Akranesi
Aldraðir búi lengur heima
Sigurður Þór Sigur-
steinsson fæddist á
Akranesi 1971. Hann
hefur stundað knatt-
spyrnu með ýmsum fé-
lögum alla tíð, fyrst
auðvitað með ÍA. Nú
segist hann vera hætt-
ur í boltanum. Sigurður
lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi, en
árið 1995 hélt hann til Árósa í Danmörku til að
stunda nám í iðjuþjálfun. Eftir að hafa lokið
prófi hóf hann störf á Reykjalundi árið 1998
og starfaði þar í þrjú ár. Þá var stofnuð til-
raunastaða í iðjuþjálfun barna við Heilsu-
gæslustöðina á Akranesi sem Sigurður tók
við. Nú er þetta orðin 100% staða. Sigurður er
kvæntur og á tvo syni.
Taktu tímann.
Norður
♠64
♥ÁK74
♦KG98
♣954
Vestur Austur
♠DG1097 ♠532
♥D3 ♥G1098
♦Á32 ♦765
♣K102 ♣763
Suður
♠ÁK8
♥652
♦D104
♣ÁDG8
Þetta er tímaþraut á opnu borði, svo
lesandinn ætti að líta á úrið áður en
lagt er til atlögu. Fimm mínútur telst
eðlilegur tími, en allt þar undir er frá-
bært.
Viðbúinn, tilbúinn og …nú:
Getur suður unnið þrjú grönd með
spaðadrottningu út? Já eða nei.
Þrautin birtist í The Bridge World
árið 1954 og höfundur hennar var ung-
ur maður, Edwin B. Kantar (f. 1932) að
nafni. Þetta var fyrsta grein Kantars í
tímaritinu, en hann er enn með fastan
dálk í blaðinu röskri hálfri öld síðar.
Kantar gaf upp fimm mínútur sem
eðlilegan tíma, en taldi þó að sannir
sérfræðingar ættu að geta leyst þraut-
ina á þremur mínútum. Aðeins heims-
meistarar eða heimsmeistaraefni gætu
leyst hana á styttri tíma. Nú er að sjá
hvar lesandinn er staddur á mæli-
kvarða Kantars.
Lausn: Áætlun sagnhafa er að brjóta
út tígulásinn, toppa hjartað og senda
vestur inn á þriðja spaðann til að fá
sendingu upp í laufgaffalinn. Suður
drepur því á spaðaás og spilar tígli,
sem vestur má ekki dúkka nema einu
sinni. Vestur spilar spaða aftur, suður
tekur, leggur niður ÁK í hjarta, spilar
tígli heim og sendir vestur inn á spaða.
Vestur tekur þrjá slagi á spaða og spil-
ar sér síðan út á lauftíu! Það gefur
sagnhafa aukaslag á lauf, en þar eð
innkomu vantar á fjórða tígul blinds
fer samningurinn samt einn niður.
Svarið er því: Nei, suður vinnur ekki
þrjú grönd með bestu vörn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. e3 e6 4. Bd3 Rbd7
5. c4 c6 6. b3 Bd6 7. Bb2 b6 8. Rbd2
Bb7 9. Hc1 Hc8 10. O-O O-O 11. Re5 c5
12. f4 Re4 13. Rdf3 f6 14. Rxd7 Dxd7
15. Dc2 Hfd8 16. Rd2 Dc6 17. dxc5
Bxc5 18. Bd4 Bxd4 19. exd4 Dd6 20.
Hcd1 f5 21. Rxe4 dxe4 22. Be2 De7 23.
Dc3 Df6 24. Hd2 Hd6 25. De3 Hcd8 26.
Hfd1 Ba6 27. b4 h6 28. b5 Bb7 29. c5
bxc5 30. dxc5 Hxd2 31. Hxd2 Bd5 32.
c6 g5 33. c7 Hf8 34. Dxa7 gxf4 35. Db8
Da1+ 36. Hd1 Dc3 37. Db6 f3 38. gxf3
exf3 39. Hxd5
Staðan kom upp í áskorendaflokki
Skákþings Íslands sem lauk fyrir
skömmu í Háskólanum í Reykjavík.
Hjörvar Steinn Grétarsson (1926)
hafði hvítt gegn Haraldi Baldurssyni
(2033). 39... Dg7+! Hvíti kóngurinn
lendir nú í óvenjulegri klemmu. 40. Kf2
Dg2+ 41. Ke3 Dxe2+ 42. Kf4 De4+ 43.
Kg3 Dg4+ 44. Kf2 Dg2+ 45. Ke3
Dg1+ og hvítur gafst upp enda er
drottningin hans að falla í valinn.
Hjörvar Steinn stóð sig mjög vel á
mótinu en hann er tólf ára.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Hvenær kemur grasið?
ÍBÚAR í Stekkjahverfi í Breiðholti
þurftu að umbera mikið umrót og
umferðartruflanir meðan yfir stóðu
framkvæmdir við nýjar brýr og
gatnagerð á Reykjanesbraut á mót-
um Reykjavíkur og Kópavogs.
Íbúarnir í nágrenninu hlökkuðu
því til þegar þessum framkvæmdum
loksins lauk í fyrra og farið var að
snyrta til og jafna út mold þar sem
stórvirkar vinnuvélar höfðu rótast
um áður. T.d. var grasfræjum sáð í
grasflatirnar, þó ekki fyrr en í sum-
arlok. Rétt í þann mund þegar gras-
ið fór að gægjast upp úr moldinni,
rétt áður en næturfrostin skullu á,
birtust stórvirku vinnuvélarnar
óvænt aftur, ösluðu yfir nýræktina
svo að djúp beltaförin stóðu ein eftir.
Þau voru vel sjáanleg allan síðasta
vetur og í allt sumar fram í lok júlí.
Þá var moldin loksins sléttuð, en
hvenær verður sáð og hvenær kem-
ur grasið?
Íbúarnir í nágrenninu eru orðnir
afar óþolinmóðir og biðja þá sem
þessu stjórna að svara ofan-
greindum spurningum á þessum
vettvangi sem allra fyrst, áður en
vetrarmyrkrið skellur á.
Nokkrir íbúar við Stekkina.
Kveðja til Þórhalls miðils
ÞÓRHALLUR minn, ég sendi þér
þakklætiskveðju fyrir þinn góða og
gefandi þátt á þriðjudagskvöldum í
útvarpinu. Hugleiðslan og góðu orð-
in í lok þáttarins eru mjög svo til
góðs. Það vantar meira af þess hátt-
ar í fjölmiðlana. Með guðs blessun til
þín.
Laufey.
Biðstöð á Sæbraut
ÆTLA þeir hjá Strætó bs. að breyta
biðstöðinni við Sæbrautina, en þarna
er mjög erfitt að komast um og er
þarna ófremdarástand. Það þarf að
komast yfir mikla umferðargötu og
ekkert biðskýli er þarna. Mæli ég
með því að þessu verði breytt sem
fyrst.
Eldri borgari.
Leyfum túnunum að vera
Á LANDAKOTSTÚNI blasir við
grænt túnið og er svo fallegt. Nú er
verið að skera það í sundur og búa til
blómabeð og það finnst mér ekki fal-
legt.
Það er alltaf verið að búa til
blómabeð á öllum túnum í borginni
og fylla beðin af blómum. En það er
ekki alltaf nægilega vel hugsað um
beðin og kostar mikla vinnu og virð-
ist hreinsunardeildin ekki komast
yfir að hreinsa þau.
Það getur verið gott að leyfa börn-
um að hlaupa um og leika sér á tún-
unum en nú er það ekki hægt fyrir
blómabeðum og trjágróðri.
Ein ósátt.
Blágræn flíspeysa týndist
BLÁGRÆN flíspeysa frá 66°N tapaðist í Vesturbæ Reykjavíkur í annarri
viku ágústmánaðar, líklega á leiðinni úr Þjóðarbókhlöðu vestur á Seljaveg.
Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 848 1735. Fundarlaun.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fréttir á SMS