Mánudagsblaðið - 04.11.1968, Síða 1

Mánudagsblaðið - 04.11.1968, Síða 1
20. árgangur 23. tölublað Mánudagur 4. nóvember 1968 kötUfrnÍAkó H E RRÁD EILD Harðara eftirlit með útgerðinni Skattsvikamálin í Eyjum tilefni frekari rannsókna — Almenningur krefst tafar- lausra aðgerða. Þótt almenningur láti sér að nokkru skiljast þá örðugleika í fjármálum sem skapazt hafa undanfarin misseri, þá eru nú uppi þau svikamál, og á svo háu stigi, að krefjast verður gagn- gerðrar rannsóknar. Undanfarið hafa dagblöðin birt fréttir af tugmilljóna skattsvikum Fiskimjölsverksmiðju í Eyjum, og hafa þau verið staðfest af/ opinberum aðilum. Almenningur, sem mjög og óeðlilega er aðþrengdur spyr: er þetta svona víðar hjá þeim er við fiskvinnslu og útgerð fást? Það má heita furðulegt ef aðeins einn af svo fjölmennum aðilum skuli hafa farið út af braut heið- arleikans í þessum málum. Menn vilja fá á hreint hvort nógu mikið, ef nokkurt, eftirlit er með fjármál- um útvegsi'ns yfirleitt. Þjóðin eys tugum og hundruðum milljóna í þessa botnlausu hít en hvergi sér högg á vatni. Sú afsökun er algeng- ust að þessir styrkir afli gjaldeyr- is. Rétt er það, en sýnilegt er að útgerðarmenn flestir bera þess Jítil merki að við slík vandræði í fjár- málum sé að ræða og þeir vilja vera láta. Margir telja líklegt, að þessi „uppgötvun" í sambandi við Eyja- málið sé aðallega í sambandi við það, að viSs aðili í þeim málum hafi svo kyrfilega brotið af sér á öðrrnn vettvangi að ekki skaði þótt þetta sé tekið með. Vafasamur skortur Það verður að krefjast þess, að hið opinbera láti rannsaka og meta öll fjármál útvegsins. Hér eiga í hlut menn, sem, þrátt fyrir góð- ærin, hafa hlotið geysifjárhæðir af almannafé, en koma saman ár hvert og krefjast aukinna styrkja. Lúxus- villur og íburður allur hjá þessum aðilum, eignir í Reykjavík, lang- dvalir úti í heimi, sýna, að per- sónulega eru engar þrengingar fyr- ir hendi. Bankar eru píndir til að láta stórfé af höndum og þeim eða hinu opinbera á að vera skylt að hafa strangt eftirlit með hversu þessu fé er varið og í hvað því er eytt. Reiði almennins Það er með öllu óhæft að soa og kasta fé í hvern aðila með bátkríli eða verksmiðju, sem þess krefst, nema eftirlit og endurskoðun sé með hverjum eyri. Hið opinbera verður að gera sér ljóst, að þegar skórinn kreppir að, sem nú, þá er reiði almennings í garð þeirrar stéttar sem svo leikur' sér með framlög sem hún hlýtur úr vasa hans, enn meiri en á velmegunar- tímum. Þess vegna verður að krefj- ast að OLL stéttin sé rannsökuð, en ekki aðeins einn aðili, sem þegar er kominn í „súpuna". Saltfiskmálin: Leikfélagi Mánudafsblsðsins nr. 22 Morgunleikfimi. Kirkjuþing við sama heygarðshornið — Samkeppni klerka. Mikil eru umsvif biskupsins okkar. Nú hefur hann náð því fram, að á landinu skuli ríkja þrír biskupar og hann væntan- lega einskonar yfirbiskup, en hinir sitja í Skálholti og fyrir norðan. Austfirðingar, væntanlega trúlaus hjörð eða villutrú- armenn, skulu ekki njóta biskups. en sækja lausn sína til næsta biskupsstóls. Það er hér við lýði einhver slepja og undirlægjuháttur þegar rætt er um biskupa. Þessar mannlegu verur eiga víst ekki, í nútímaþjóðfélagi, að geta gert nokkuð rangt, né skjátlast. Synd væri að segja, og Miðar teknir af frumsýninga- gestum? Heyrzt hefur að í ráði sé að taka frumsýningarmiða af ýmsum gestum, sem L ekki mæta á sýningar nema L þegar þeim sýnist. Þetta er i þjóðráð, og ætti fyrr að hafa í verið tekið upp, ef þá Þjóð- (leikhúsið hefur kjark í sér til þess að gera það. Það er óhæfa að haga sér svona, en marga langar til að fá fasta miða. Fastir frumsýningargestir sækja ekki miðana fyrr en í lengstu lög, en erfitt og ó- þægilegt er fyrir aðra, sem gætu fengið miða tveim dögum fyrir sýningu að sinna því, einkum kvenfólk. SÞjóðleikhúsið á fullan rétt til að taka miðana af þessu fólki, því ennþá virðast nóg- ir um boðið. jafnvel guðlast, að telja þá skeikula eða annað á veraldlega sviðinu. Sannleikurinn er sá, að biskupinn okkar nú er æði veraldlegur og það svo geypilega, að kostnaður við embættisfærzlu hans eykst árlega og er nú margfaldur á við fyrri biskupa. Aukning er skiljanleg, en þessi eyðsla er óþörf og til leiðinda. Veldi — misklíð presta Vegur biskups hefur mjög vaxið síðan hann prédikaði gegn vest- rænni menningu í barnaskólaport- inu, taldi þjóðina á barmi glötunar fyrir að vilja vernda sig frá kristni- boðum kommúnismans. Nú er hann æðstur okkar kirkjumanna, umsvifamikill og klerkur góður sagður, ber mítur á höfði og hefur átt stóran þátt í að f jölga svo prest- um, að í sumum sóknum ér ekki betra ástand en svo að klerkar standa í hnakkrifrildi um hver eigi að skíra, gifta eða jarðsetja hvert sóknarbarnið. Óþörf fjölgun Og nú skal fjölga biskupum. Þetta er gert einmitt nú meðan peningaflóðið er að aukast og vel- megun öll þenst út. Þjóðin þarf á öðru að halda en fleiri biskupum og klerkum. Stéttin er nú ekki burð- ugri en svo, að mörgum finnst, að komist þeir ekki í himnaríki án hjálpar sumra þeirra þá sé það ekki þess virði. Getur annaS starfinu einn Biskupi væri miklu nær, að gera svo úr garði þá klerka, sem nú stunda prestsstörf eða sálusorgun almennt, að þeir gætu kristnað al- menning í stað þess að fylgja, flest- ir hverjir, Sigvalda-kerfinu fyrir altari og í stóli. Kirkjan er síður en svo ofar gagnrýni. Og tillögur um það að auka tölu biskupa er algjör- Iega óþörf. Einn biskup ætti að geta stjórnað 300 klerkum og visi- terað skammlaust. Hann hefur bæði bifreið og þau farartæki sem til þarf, en prófastar gætu riðið í þau. útkjálkaköll, sem bifreiðir ekki komast. Það væri vonandi að ein- hverjir prestar, sem hingað sækja kirkjuþing, hefðu kjark til þess, að sýna biskupi fram á, að þetta brölt hans um f jölgun biskupsembætta og presta er algjörlega óþarft, og rýrir ekki aðeins tekjur prestanna sjálfra heldur vekur óánægju almennings, en hún getur þó vart orðið meiri en er. Er þaS satt, að auk 27 gjald- þrotaauglýsinga i Lögbirtingi, sé von á 30—40 í viðbót fyrir áramót. Hneykslið sem brást Poanessa-menn taldir fara með blekkingar einar og ósannindi — Svör SIF manna enn loðin — Ein- örð yfirlýsing P. Ben. — ðhæft ástand. »>. Eins og spáð var hér í blaðinu urðu all-miklar sviftingar milli saltfiskframleiðenda SÍF og SH annarsvegar og meistara Poanessa hinsvegar, en hann kemur skoðunum sinum á fram- færi í gegnum örn Clausen, lögmann, sem vgrið hefur skjól- stæðing sinn af miklum dugnaði. SÍF-fundurinn fyrir skömmu virðist lítið meta málflutning Arnar og nokkurra félaga hans, telja það allt rangfærslur og kunnáttuleysi, sem gagnrýnt er í starfsemi SÍF. Því er þó ekki að neita, að nokkurs þunna- hljóð gætir í frásögn Morgunbl. um fundinn, er blaðið birtir um- sögn ýmissa manna, allt frá ágætum og raunhæfum rökum niður í tittlingaskít eins og er Finnbogi Guðmundsson tók til máls og kvað stjórn SÍF hafa unnið mjög gott starf. Það má heita undarlegt, að jafn alvarleg mál og þessi skuli nú vera heiftarmál milli fiskútflytjenda og því verra, sem um er að ræða al- gjörar andstæður í skoðunum. ís- lendingar hafa allt annað að gera í útflutningsmálum sínum en skipt ast í flokka. Gera hreint Hvort sem deilur þessar af hálfu Poanessa-málsins eru réttmætar eða ekki, þá er það óheyrt, að ekki skuli forráðamenn stærsm sam- bandanna, sem annast fisksölu, gera nokkra viðhlítandi grein fyrir kjarna málsins. íslendingar eru orðnir harla þreyttir á einræði og einokun í þessum málum og'krefj- ast þess, að þau félög eða samtök, sem næst þessum þjóðarhagsmun- um standa geri nú þegar hreint fyrir sínum dyrum og annaðhvort hreki algjörlega ásakanir í sinn garð eða játi þau mistök, sem hinir hafa fullyrt að átt hafi sér stað. Því verður sannarlega ekki neit- að að andstæðingar SÍF hafa flutt mál sitt meira af æsingi og uþp- slætti en rökvísi og vissulega, eins og ýmsir talsmenn SÍF hafa bent á, er hér um mjög mikil alvörumál að ræða, sem í senn kref jast háttvísi í sölumálum og kaupmennskubragð vísi. Pétur Ben. Þá verður ekki framhjá því geng ið, að yfirlýsing Péturs Benedikts- sonar á fundinum, sem rakin er ýtarlega í frásögn Morgunblaðsins, gefur mjög mikið tilefni til þanka um það, hvort Poanessa og hans menn hafi vísvitandi farið með lyg ar einar og fáfræði og lúti henti- stefnu í sölumálum, sem gætu kom ið í koll allri fisksölu okkar, eyðilagt ýmsa möguleika. Pétur mun ein- mitt vera sá maður. sem vel þekkir til mála ytra, en störf hans áður en hann hvarf heim voru m.a. mjög tengd þessum málum og veitm hon um mikla innsýn í ástand og horf- ur þar. Spurningar / Skömmu fyrir fundinn birti Vís- ir tólf spurningar frá þremenning- unum, Jóni Gunnarssyni, Halldóri Snorrasyni og Árna Halldórssyni. Það vakti nokkra furðu, að á fund- inum hafði þesum spurningum ekki verið svarað lið fyrir lið heldur á almenna vísu, en vissulega ber ekki að hunza spurningar þessar né afgreiða þær sem álygar einar og hugaróra. Olli talsverðum von- brigðum að fyrirsvarsmenn SÍF skyldu ekki hafa svör á reiðum höndum, þar sem þessi mál hafa svo lengi verið í deiglunni. Hitt var og áberandi að þeir þremenn- ingar skyldu ekki fyrir all-löngu hafa beint þessum spurningum að stjórn SÍF í stað þess að nota þær sem vafasama „sensasjón", því allt- af mátti koma þeim á opinberan vettvang án slíkrar æsimennsku. Æsimennska Þessi mál eru of alvarlegs efnis til þess, að þau skuli gerð að æsi- málum, ákærum og skætingi og stjórn SÍF hlýtur að skilja, að það er hennar að skýra mjög náið frá hversu málin liggja raunverulega fyrir, en alls ekki, eins og sumir gerðu, reyna að sleppa frá þeim með samúðaryfirlýsingum og ó- þarfri hrifningu af, störfum for- ustumanna SÍF. (Varfærinn útgerðarmaður).

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.