Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 06.08.1973, Page 7

Mánudagsblaðið - 06.08.1973, Page 7
Mánudagur 6. ágúst 1973 Mánudagsblaðið 7 Ritstjón og ábyrgöarmaður: AGNAR BOGASON Sími titstjórnar: 1 34 96 — Auglýsingasími: t 34 96 Verð i Lausasölu kx 40.00 — Áskriftir ekki teknar Prentsmiðja Þjóðviljans Óánægja með Landhelgisgæzluna Framhald at i. síðu forgang landhelgismálsins er gjörsamlega út í bláinn. Landráðamenn Þeir sem dirfast að gagnrýna meðferð landhelgismálsins á op- inberum vettvangi eru hreinlega ofsóttir. Á dögunum leyfði Þor- steinn Sæmundsson sér að benda á ýmislegt, sem betur hefði mátt fara í erindi, sem hann hélt í útvarpið. Tíminn og Þjóðviljinn trylltust gjörsamlega og sögðu hann gengiinn á mála hjá Bret- um. Það má enginn trufla hale- lújasönginn, sem stjórnin kyrjar um afrek sín í landhelgismálinu. Áður hefur verið minnzt á ó- heOindi kommúnistans Lúðvíks Jósepskýs í þessu máli. Hans tak mark er fyrst og fremst að gera Ianidið varnarlaust. Ekki hefur verið ýjað að því á nokkurn hátt, að við ættum að fara í viðskipta- stríð við Breta, eða gera aðrar viðhlýtandi ráðstafanir. — Og stjórnin segist ekki enn hafa get- að útvegað skip til að efla Land- helgisgæzluna. Trúi því hver sem vill. 200 mílur En þótt við getum á engan hátt varið 50 mílurr vantar ekki rostann í landann. Nú dugar ekki minna en 200 mílur. Eftir því að dæma ætti að vera mun auðveldara að verja þessar 200 mílur heldur en hinar 50 .Að sjálfsögðu þorir enginn að vera á móti þessari snilldarhugmynd. Slíkt gæti nefnilega talizt til landráða og nú er bara spurn- ingin sú ,hvaða pólitíkus verður fyrstur til að leggja til að við færum landhelgina út í 500 míl- ur og afli sér með því þúsunda atkvæða. KROSSGÁTAN LÁRÉTT: LÓÐRÉTT: 1 Þyngdareining 1 Barnaleikrit 5 Höfuðborg 2 Stormi 8 Kyrrð 3 Tamdi 9 Smáhús 4 Röð 10 Klumpa 5 Skott 11 Amboð 6 Atviksorð 12 Ungviða 7 Veiðisvæði 14 Bleyta 9 Sýður 15 Angan 13 Rödd 18 Ósamstæðir 16 Eldsneyti 20 Auð 17 Litað 21 Hætta 19 Und 22 Læsing 21 ílát 24 Dínamór 23 Ósamstæðir 26 Grafa 25 Illmenni 28 Blóma 27 Bindindisfélag 29 í stiga 30 Her" Svar við getraun Það er öldungis fráleitt, að melónur vaxi í dasembermánuði í Wis- consin! Coca-Cola - Þad er drykkurinn Coca-Cola hefir hið ferska, lifandi braqð, sem fullnaeqir smekk hins nýja tíma Glæpamenn Framhald at 3 síðu. Stuttu síðar voru þrír bræðranna skotnir. Aðeins Mémé komst hjá þeim örlög- um; hann hafði nefnilega ver- ið dæmdur í tuttugu ára fang- elsi og sat inni. Alltént betra en að vera dauður. En jafnvel þótt Guerini- bræðurnir væru dauðir eða úr umferð á annan hátt, linnti ekki morð- og árásar- bylgjunni í Marseille. Hún náði hámarki með morðunum í „Tanagra", þar sem tvær saklausar manneskjur létu líf- ið með Bistoni og Lomini. Sá síðarnefndi, „Jói bo!i“, var reyndar alltaf vanur að ganga með 45 kalíbera Colt-skamm- byssu á sér, eftir „heppni“ sína í bílnum forðum. Hann náði þó ekki að notfæra sér hana. Hann dó með höndina á skeftinu. Enginn veit eða þorir að spá um, hve lengi bófastríðið í Marseille hcldur áfram. Það verður ekki fyrr en nýr og sterkur leiðtogi nær yfirhönd- inni, sem lífið færist aftur í „eðlilegt" og rólegt horf í þessari „heitustu borg Frakk- lands.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.