Mánudagsblaðið - 28.01.1974, Qupperneq 7
Mánudagur 14. janúar 1974
Mánudagsblaðið
7
VIGGÓ ODDSSON skrifar frá S-Afríku:
nnmaarareinar
rnn að hvíla í friði", eru upp-
gjafarorð þeirra sem eru sam-
þykkir í huga sér, en hví mega
þeir sem lifa ekki fá stundleg-
an frið fyrir vinum þeirra sem
yfirgefið hafa þennan heim? Éig
skyldi skrifa laglega minningar-
grein ef þessi endemis blaða-
mennska „gæfist upp á rólun-
Furðuleg blöð
Nokkur dagblöð á íslandi,
einkum Mogginn og Tíminn,
ríghalda í þá furðulegu blaða-
mennsku að birta margar blað-
síður af minningargreinum um
allrahanda fólk sem „enginn
þekkir" né varðar neitt um. Þessi
blaðamennska er svipuð því sem
enn má finna t.d. í Noregi, í
afdölum nyrðra, þar sem kven-
félög, templaraklíkur og samsafn
af ofsatrúarmönnum gefa út smá
pésa til að bjarga heiminum.
Undantekningarlítið eru þessar
hysterísku minningargreinur svo
um fólk sem almenning varðar
ekkert um, eins og 5 ára furðu-
börn sem verða undir bíl, eða
drukkna í skúringafötunni, marg
ar blaðsíður „frá skólasystkinum"
nemenda í barnaskóla, það hljóta
að vera til greinar til að fylla
tuttugu bindi af minningargrein-
um um kerlingar á Vesturgöt-
unni og Húnavatnssýslu.
Hvern er
verið að plata
Er þetta eirhver hefðarkona?
spurði útlendingur sem sá eina
af þessum minningargreinum
upp á fleiri blaðsíður, um ein-
hverja kerlingu úr Húnavatns-
- sýshv sem- „aldrei steig fæti út
fyrir sína .sveit." Eða kerlingu á
Vesturgötunni, sem varð ódauð-
leg á prenti af því hún gaf „rit-
höfundinum" er skrifaði minn-
ingargreinina, kaffibolla á mánu
dagsmorgni, þegar hann var að
stelast úr vinnunni. Hann fékk
jafnvel leifar af kleinum með.
Þetta var uppistaðan í greinum
um þessar heiðurskonur. Þá
koma greinar um kvensköss sem
höfðu þá eiginleika „að bera
með sér góðvild, hlýju og yl"
Á opinberri skrifstofu sem ég
sá slíka persónu húkti hver í
sínu horni með sína fýlu, en
skassið sem ég nefndi strunsaði
um með nefið upp í loftið, skell-
and'i hurðum, skilaboð urðu að
fara gegnum þriðja mann, því
að ekki var talað við suma árum
saman. fslenzk óstjórn leið þetta
andrúmsloft sem sjálfsagðan hlut.
Eru lofgreinar um vandræðafólk
þjóðfélagsins til að blekkja mig,
Sankti Pétur eða bara til að gera
fólk alvarlega hneykslað í síðasta
sinn, við lestur þessara öfug-
mælaigreina?
Ekki vinsæll
Það er víst bara til að fá á
sig óorð, að skrifa um svona
hluti. Þegar ég fluttist til Afríku
fyrir tæpum áratug, keypti ég
ísafold, sem var betri en ekki
neitt, vikublað með helztu frétt-
um, aðallega fyrir bændur sem
vildu ekki auglýsingar og annað
léttmeti á háu verði Morgun-
blaðsins. Eftir nokkurn tíma dó
ísafold fða 1MB út aI.
Mogginh ætlaði~þá að koma til
mín í fluigpósti í stað ísafoldar,
á hátt í 100 kr. eintakið stund-
um. Þá sprakk blaðran. Ég skrif-
aði; sagðist ekki vilja sjá þenn-
an auglýsingahrærigraut (sem þá
var); ruglið úr Ingólfi, hve það
væri nauðsynlegt að gefa 7
Keflavíkurvegi á ári í styrki til
bændahítarinnar, auk nær tífalds
verðs á afurðum þeirra; né vildi
ég borga stórfé fyrir minningar-
greinar og annan þvætting um
Kerlingar á Vesturgötunni og í
Húnavatnssýslu, sem „enginn
þekkir." Síðan hefi ég verið á
þeirri skoðun að ég njóti lítilla
vinsælda á þeim stað. Léttlyndir
hafa þeir sjaldan verið á Mogg-
anum. Svo segir fólk í ásökunar-
tón: Af hverju skrifarðu ekki í
Moggann?
Þeir sem ifa
Það er þó oft skömminni
skárra þegar skrifað er um lif-
andi fólk, afmælisgreinar eða
viðtöl um þá sem ennþá eru á
ferli og oft gagnlegt og gaman
að þekkja nánar. Þeir eru þá
líka til staðar til að hemja
skrumfýsn þeirra sem vilja aug-
Iýsa hann. Oft hefi ég undrazt
hvernig prestunum líður sem
lofa hástöfum látið fólk við
jarðarfarir sem allir vita að hafa
verið landi og þjóð til ógæfu,
armæðu og ama, mestallt sitt líf.
Stjórnmálamenn, sem hafa ek-
ið þjóðinni út í jökuiá verð-
bólgunnar. Verzlunarmenn, sem
sviku og svindluðu eins og hægt
var á sínum' viðskiptamönnum,
fólk sem eitraði andrúmsloftið
á vinnustað árum saman, og
gerði allt sem hægt var (t.d. í
kvenlegu valdi) til að gera vinnu
staðinn að helvíti. „Leyfið dán-
Vélaverkfræðingar
Óskum eftir að ráða til starfa við áliðjuverið
í Straumsvík:
Vélaverkfræðing.
Ráðning nú þegar eða eftir samkomulagi.
Nánari uplýsingar gefur ráðningarstjóri.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavík
og bókabúð Olivers Steins Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar eigi síðar en 31. jan-
úar 1974 í pósthólf 244, Hafnarfirði.
Véltæknifræðingar
Óskum að ráða til starfa við áliðjuverið í
Straumsvík:
V éltæknif ræðing.
Ráðning nú þegar eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavík og
bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar eigi síðar en 31.
janúar 1974 í pósthólf 244. Hafnarfirði.
ÍSLENSKA ÁLFÉLAGIÐ H.F.