Morgunblaðið - 03.10.2005, Side 1
2005 MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HAUKAR VORU SJÁLFUM SÉR VERSTIR/B4
LOGI Gunnarsson, landsliðsmaður í körfu-
knattleik, átti stórleik í sínum fyrsta deildarleik
með Bayreuth í þýsku 2. deildinni í körfuknatt-
leik í gær.
Logi skoraði 25 stig og var stigahæstur sinna
manna þegar liðið sigraði MTV Stuttgart,
92:81. Hann skoraði fimm þriggja stiga körfur
úr níu skottilraunum, tók 6 fráköst og átti 3
stoðsendingar. Þá skoraði Logi einnig 25 stig
fyrir liðið í síðustu viku í æfingaleik og hann
fellur greinilega vel inn í þýska liðið.
Logi gekk til liðs við Bayreuth í sumar frá
Giessen og gerði eins árs samning við félagið.
Bayreuth hefur sett stefnuna á að komast í
efstu deild en 16 ár eru liðin síðan félagið
hampaði þýska meistaratitlinum.
Logi með 25 stig
í fyrsta leik
með Bayreuth
Hörður Sveinsson úr Keflavík ogGreta Mjöll Samúelsdóttir,
Breiðabliki, voru útnefnd efnileg-
ustu leikmennirnir.
Kristinn Jakobsson varð enn og
aftur fyrir valinu sem besti dómari
ársins.
Fimm FH-ingar í liði ársins
Íslandsmeistarar FH-inga áttu
fimm leikmenn í liði ársins og bik-
armeistarar Vals fjóra og þá var
Ólafur Jóhannesson, FH, útnefndur
þjálfari ársins í Landsbankadeild
karla, þriðja árið í röð.
Í liði ársins voru valdir:
Markvörður: Daði Lárusson, FH.
Varnarmenn: Auðun Helgason,
FH, Bjarni Ólafur Eiríksson, Val,
Guðmundur Sævarsson, FH, og
Grétar Sigfinnur Sigurðsson, Val.
Miðjumenn: Helgi Valur Daníels-
son, Fylki, Matthías Guðmundsson,
Val, Baldur Ingimar Aðalsteinsson,
Val, og Viktor Bjarki Arnarsson,
Fylki.
Framherjar: Allan Borgvardt,
FH, og Tryggvi Guðmundsson, FH.
Sex úr Breiðabliki í liði ársins
Úlfar Hinriksson, Breiðabliki,
var útnefndur þjálfari ársins í
Landsbankadeild kvenna og í liði
ársins voru sex leikmenn úr Ís-
lands- og bikarmeistaraliði Breiða-
bliks. Í liði ársins voru eftirtaldir
leikmenn:
Markvörður: Þóra B. Helgadótt-
ir, Breiðabliki.
Varnarmenn: Ásta Árnadóttir,
Val, Bryndís Bjarnadóttir, Breiða-
bliki, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir,
KR, Ólína G. Viðarsdóttir, Breiða-
bliki.
Miðvallarleikmenn: Edda Garð-
arsdóttir, Breiðabliki, Erna B. Sig-
urðardóttir, Breiðabliki, Hólmfríð-
ur Magnúsdóttir, ÍBV, Laufey
Ólafsdóttir, Val.
Framherjar: Greta Mjöll Sam-
úelsdóttir, Breiðabliki, og Margrét
Lára Viðarsdóttir, Val.
Stuðningsmenn FH, Mafían,
voru útnefndir stuðningsmenn árs-
ins.
Ágúst Gylfason, KR, og Ólína
Viðarsdóttir, Breiðabliki, voru valin
prúðustu leikmenn ársins og Kefl-
víkingar áttu prúðasta liðið, bæði í
karla- og kvennaflokki.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeinsson
Verðlaunahafar á lokahófi KSÍ. Frá vinstri Ólafur Jóhannesson, FH, þjálfari ársins, Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir sem tók á móti
verðlaunum systur sinnar, Gretu Mjallar Samúelsdóttur sem efnilegasta leikmanns ársins, Laufey Ólafsdóttir, Val, leikmaður ársins
í kvennaflokki, og Hörður Sveinsson, Keflavík, efnilegsti leikmaðurinn í Landsbankadeild karla.
Borgvardt og Laufey
valin best í annað sinn
ALLAN Borgvardt, FH, en nú leikmaður Viking í Noregi og Laufey
Ólafsdóttir í Val voru útnefnd leikmenn ársins á lokahófi knatt-
spyrnufólks í Broadway á laugardagskvöld. Borgvardt var útnefnd-
ur í annað sinn en hann varð fyrir valinu fyrir tveimur árum. Laufey
hreppti titilinn annað árið í röð.
NJARÐVÍK-
INGAR hrósuðu
sigri á æf-
ingamóti í körfu-
knattleik sem
lauk í Árósum í
Danmörku í gær.
Í úrslitaleik
höfðu Njarðvík-
ingar betur gegn
danska úrvals-
deildarliðinu
Bakken Bears, 69:67, og skoraði
Egill Jónasson sigurkörfu Njarð-
víkinga á lokasekúndum leiksins
með troðslukörfu en Njarðvík skor-
aði níu síðustu stigin í leiknum. Jeb
Ivey var stigahæstur í liði Njarðvík-
inga með 24 stig, Friðrik Stef-
ánsson skoraði 14 stig og tók 14
fráköst og Brenton Birmingham
var með 13 stig.
Í undanúrslitum mótsins lögðu
Njarðvíkingar lið Bakken Bears,
72:60, en Bakken Bears tefldi fram
tveimur liðum á mótinu. Brenton
Birmingham skoraði 23 stig, Frið-
rik Stefánsson 22 og Jeb Ivey 20.
Áður höfðu Njarðvíkingar betur á
móti danska liðinu Svendborg,
82:66.
Lið Þórs frá Akureyri hafnaði í 6.
sæti en Þórsarar biðu í gær lægri
hlut fyrir Svendborg, 90:88.
Egill tryggði
Njarðvík
sigur í
Árósum
Egill
Jónasson
ÍSLANDSMEISTARAR Keflvík-
inga í körfuknattleik hafa gert
samning við Bandaríkjamanninn
AJ Moye um að hann leiki með lið-
inu í Evrópukeppninni í ár.
Moye kemur frá Indiana Hoosi-
ers háskólanum sem leikur í 1.
deild og skoraði hann að meðaltali
10 stig og tók 6,4 fráköst fyrir lið-
ið.
Moye kemur ekki til með að
spila með Keflvíkingum í úrvals-
deildinni þar sem aðeins má tefla
fram einum Bandaríkjamanni í
hverju liði. Fyrir hjá Suður-
nesjaliðinu er Jason Kalshow.
Keflvíkingar taka þátt í Evr-
ópukeppninni þriðja árið í röð.
Þeir leika í riðli með finnsku
meisturum í NMKY og Sumy frá
Úkraínu og komast tvö lið áfram í
riðlinum.
AJ Moye
til Kefl-
víkinga