Morgunblaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 B 7
Bestum árangri íslensku kepp-endanna náði Íslandsmeistar-
inn Kristjana Sif Pálsdóttir en hún
hlaut silfurverðlaun fyrir æfingar
sínar á gólfi. Kristjana fékk 8,5 í
einkunn fyrir æfingar sínar í úrslit-
um en 8,125 í fjölþrautinni.
Sif Pálsdóttir varð í þriðja sæti á
tvíslá með 8,375 í einkunn en hún
fékk 8,15 í einkunn í fjölþraut. Rún-
ar Alexandersson hafnaði í þriðja
sæti í hringjum með 8,95 í einkunn
en hann fékk 8,8 í fjölþraut. Viktor
Kristmannsson hafnaði í þriðja sæti
á tvíslá með 8,125 en hann fékk 8,35
í fjölþraut. Danmörk, Noregur,
Finnland, Svíþjóð, Skotland, Norð-
ur-Írland, Wales og Írland tóku þátt
á mótinu auk Íslands. Ásdís Péturs-
dóttir, þjálfari og fararstjóri segir
að mótið hafi verið mjög sterkt og
árangur íslenska kvennaliðsins því
glæsilegur. Wales sigraði í kvenna-
keppninni, N-Írar komu þar á eftir
og Skotar enduðu í þriðja sæti.
Landslið karla varð í 7. sæti og
Viktor Kristmannsson varð í 8. sæti
í fjölþraut en Rúnar Alexandersson
keppti aðeins á 2 áhöldum og komst
hann í úrslit á þeim báðum en hann
keppti á bogahesti og í hringjum.
Finnar sigruðu í karlaflokki, Svíar í
2. sæti og Danir í 3. sæti.
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
hafnað í 4. sæti á slá með 7,775 í ein-
kunn en hún fékk 8,0 í fjölþraut.
Fríða Rún Einarsdóttir fékk 6,95 í
úrslitum á slá og endaði í 8. sæti en
hún fékk 7,925 í fjölþraut. Rúnar Al-
exandersson hafnaði í þriðja sæti í
hringjum með 8,95 en hann fékk 8,8
í fjölþraut. Viktor Kristmannsson
hafnaði í þriðja sæti á tvíslá með
8,125 en hann fékk 8,35 í fjölþraut.
Á stökki hafnaði Viktor í 5. sæti
með 8,5125 en hann fékk 8,6 í fjöl-
þraut en á bogahesti varð hann í 7.
sæti með 7,75 með eitt fall en hann
fékk 8,2 í fjölþraut.
Í gólfæfingum varð Viktor í 6.
sæti með 8,025. Róbert Kristmanns-
son varð í 8. sæti í stökki með
8,1625 en hann fékk 8,375 í fjöl-
þraut.
Ingvar Jochumsson keppti á fjór-
um áhöldum.
Góður árangur í Belfast
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í fimleikum endaði í fjórða sæti á opna
Norður-Evrópumótinu sem fram fór í Belfast á N-Írlandi um helgina
en íslenska karlaliðið varð í sjöunda sæti.
Seinni leikurinn, sem fram fór ígær, var því nánast formsatriði
og lauk honum með níu marka sigri
Íslandsmeistaranna, 29:20, en staðan
í hálfleik var 14:11. Samanlagt fara
Haukastelpur því áfram 70:45, í
næstu umferð keppninnar. Styrk-
leikamunurinn á þessum tveimur lið-
um var áberandi Haukum í hag eins
og tölurnar bera með sér. Guðmund-
ur Karlsson, þjálfari Haukastelpna,
sagði þennan mikla mun á liðunum
hafa komið sér á óvart því fyrirfram
reiknaði hann með svissneska liðinu
sem sigurstranglegri aðilanum í þess-
um tveimur leikjum.
Kláruðum dæmið
í fyrri leiknum
,,Þetta lið, sem er svissneskur
meistari, hefur misst þrjá sterka úti-
leikmenn frá því á síðasta tímabili,
tvær í meiðsli og svo er ein ófrísk.
Liðinu tókst ekki að bæta fyrir þenn-
an missi og í ljósi þess var yfirhöndin
okkar í þessum tveimur leikjum og
við auðvitað með okkar góða heima-
völl. Síðan lékum við mjög vel í fyrri
leiknum og hreinlega kláruðum
dæmið þá og leikurinn í dag bar keim
af því. Það er alltaf erfitt að halda
fullri einbeitingu allan leiktímann
þegar munurinn er svona mikill. Hins
vegar átti ég von á þeim sterkari,
þrátt fyrir þessi skakkaföll sem liðið
hefur orðið fyrir.“ Guðmundur segir
að svissneska landsliðið hafi nánast
alltaf haft betur gegn því íslenska í
gegnum tíðina og því ætti svissneska
deildin að vera ívið sterkari en sú ís-
lenska.
„Í ljósi þessa reiknaði ég eiginlega
með því að þær ættu betri möguleika
en við en mitt lið sýndi einfaldlega að
það er mjög gott og á klárlega erindi í
þessa keppni. Við hlökkum til næstu
umferðar enda er þetta skemmtilegt
og ögrandi verkefni og eflir án efa
andann í liðinu.“
Hollt að mæta erlendum
andstæðingum
En hver er, að mati Guðmundar,
helsti ávinningurinn af þátttöku í
Evrópukeppni?
„Fyrst og fremst held ég að leik-
menn nái sér í mjög mikla reynslu,
við keppum við ný lið, lið
sem við þekkjum ekki mikið. Það
þarf að huga að ýmsum þáttum, til
dæmis breyttu leikskipulagi og það
er einfaldlega hollt og gott fyrir ís-
lensk lið að mæta erlendum and-
stæðingum og ná þannig að víkka
sjóndeildarhringinn og, eins og ég
sagði, næla sér í aukna reynslu sem
kemur til með að skila sér margfalt
til baka – engin spurning um það.“
Eins og handknattleiksunnendum
er vel kunnugt um er leikið sam-
kvæmt nýju fyrirkomulagi í vetur og
úrslitakeppnin heyrir sögunni til.
Hvernig skyldi Guðmundi lítast á
þessar breytingar?
,,Ég verð að segja eins og er að
mér fannst ekki nauðsynlegt að
breyta til í kvennaboltanum en það
var klárlega kominn tími á breyting-
ar í karlaboltanum. Það eru svo fá
lið í kvennaboltanum að mér fannst
alger óþarfi að breyta, þetta var al-
veg ágætt eins og það var. Úrslita-
keppnin er mjög skemmtileg og
hefði að ósekju mátt halda sér. Núna
erum við að spila til 5. nóvember og
svo er frí til 7. janúar og það er
nokkuð löng pása. Þannig að við er-
um að leika þrjátíu prósent af deild-
inni nú í október og þetta er því
nokkuð stór mánuður. Fyrir okkur
sem erum að leika í Evrópukeppn-
inni getur þetta því haft áhrif á okk-
ar niðurstöðu. Í sjálfu sér er svo sem
allt í lagi að spila tvöfalda umferð
hér heima en þá þyrftu helst fleiri lið
að taka þátt – það var því óþarfi að
breyta á þessum tímapunkti hjá
stelpunum.“
Sækja titlana ekki verja þá
Guðmundur segir það ekki vera á
dagskrá að verja titlana sem félagið
vann á síðustu leiktíð – það eigi að
sækja þá. „Við ætlum ekki að fara í
neitt varnarstuð en hins vegar hefur
Evrópukeppnin auðvitað einhver
áhrif á þetta hjá okkur og við gerum
okkur vel grein fyrir því. Þess vegna
þurfum við sérstaklega að halda ein-
beitingunni í lagi því deildin hér
heima er mjög jöfn,“ sagði Guðmund-
ur Karlsson, þjálfari Haukastelpna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Harpa Melsted, fyrirliði Hauka, skorar gegn svissneska liðinu St. Otmar í gær en Haukar unnu
báðar viðureignir liðanna í 3. umferð EHF-keppninnar.
Eigum klárlega er-
indi í þessa keppni
Haukastelpur eru komnar áfram í þriðju umferð, 32 liða úrslit, EHF-
keppninnar í handknattleik eftir að hafa lagt svissneska liðið TSV
St. Otmar tvívegis mjög örugglega að velli á Ásvöllum. Á laugardag
fóru leikar 41:25 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 20:15, en sá
leikur taldist heimaleikur svissneska liðsins.
St. Otmar var engin fyrirstaða fyrir Hauka
Eftir Svan Má Snorrason
PETER Crouch, hinn stóri og
stæðilegi framherji Liverpool,
var í gærkvöld valinn í enska
landsliðshópinn í knattspyrnu
sem mætir Austurríkismönnum
og Pólverjum í undankeppni HM.
Sven Göran Eriksson valdi 24
manna hóp og í honum eru meðal
annars Alan Smith, Manchester
United, og Sol Campbell, Arsenal,
en hvorugur þeirra hefur verið í
hópi Englendinga í síðustu leikj-
um. Hópurinn er þannig skip-
aður:
Markverðir: Paul Robinson
(Tottenham), Robert Green (Nor-
wich), Chris Kirkland (WBA)
Varnarmenn: Ashley Cole (Ars-
enal), Phil Neville (Everton),
Luke Young (Charlton), Jamie
Carragher (Liverpool), Rio Ferd-
inand (Man. Utd.), John Terry
(Chelsea), Sol Campbell (Arsenal),
Ledley King (Tottenham)
Miðjumenn: David Beckham
(Real Madrid), Steven Gerrard
(Liverpool), Frank Lampard
(Chelsea), Joe Cole (Chelsea),
Shaun Wright-Phillips (Chelsea),
Jermaine Jenas (Tottenham), Al-
an Smith (Man. Utd.), Kieran
Richardson (Man. Utd.)
Framherjar: Michael Owen
(Newcastle), Wayne Rooney (Man.
Utd.), Jermain Defoe (Totten-
ham), Darren Bent (Charlton),
Peter Crouch (Liverpool).
Crouch í
enska
landsliðið
ÓLAFUR Stef-
ánsson skoraði 4
mörk fyrir
spænska liðið
Ciudad Real
þegar það sigr-
aði rúmenska
liðið Dinamo
Búkarest, 29:24,
á útivelli í
Meistaradeild
Evrópu í hand-
knattleik á laugardagskvöldið.
Alfreð Gíslason og lærivein-
ar hans í Magdeburg hrósuðu
sigri í Moskvu í Rússlandi í sömu
keppni þegar þeir lögðu Che-
hovski, 30:25. Hvorki Sigfús Sig-
urðsson né Arnór Atlason komust
á blað fyrir Madgeburg en
markahæstir í liði Magdeburg
voru þeir Grzegoez Tkaczyk og
Renato Vugrinec með 6 mörk
hver.
Dagur Sigurðsson og læri-
sveinar hans í austurríska liðinu
Bregenz töpuðu fyrir hinu sterka
franska liði Montpellier, 33:24, í
Meistaradeildinni í gær og skor-
aði Dagur tvö af mörkum sinna
manna.
Ólafur skor-
aði fjögur í
Búkarest
Ólafur Stef-
ánsson
2, Hafdís Hinriksdóttir 1, Ágústa Edda
Björnsdóttir1.
Mörk KA/Þórs: Inga Dís Sigurðardóttir 8,
Jurlita Marevicute 3, Erla Tryggvadóttir 3,
Guðrún Tryggvadóttir 3, Þórstína Sigur-
dórsdóttir 2.
Víkingur – FH 22:28
Mörk Víkings: Ásta Björg Agnarsdóttir 9,
Hekla Daðadóttir 5, Þórhildur Björnsdóttir
3, Sigrún Brynjólfsdóttir 2, Natasja Dam-
lianovic 2, Margrét Elín Egilsdóttir 2.
Mörk FH: Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir
10, Maja Grönberg 5, Ásdís Sigurðardóttir
4, Eva Albrechtsen 4, Gunnur Sveinsdóttir
2, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 2, Arna
Gunnarsdóttir 1.
Staðan:
Valur 3 3 0 0 79:58 6
Stjarnan 3 2 1 0 83:64 5
HK 2 2 0 0 60:46 4
ÍBV 2 1 1 0 59:42 3
Haukar 1 1 0 0 36:24 2
Grótta 3 1 0 2 63:64 2
KA/Þór 3 1 0 2 71:85 2
FH 3 1 0 2 75:83 2
Víkingur 3 0 0 3 65:93 0
Fram 3 0 0 3 51:83 0
Þýskaland
Minden – Düsseldorf.............................31:33
Pfullingen – Großwallstadt ..................22:23
Wetzlar – Göppingen ............................23:30
Hamburg – Delitzsch ............................33:21
Gummersbach – Lemgo .......................26:26
Staðan:
Gummersbach 6 5 1 0 189:144 11
Magdeburg 7 5 1 1 220:193 11
Kiel 6 5 0 1 206:178 10
Lübbecke 6 5 0 1 187:171 10
Lemgo 6 3 2 1 194:161 8
Nordhorn 6 4 0 2 189:169 8
Flensburg 5 4 0 1 166:137 8
Kronau 6 4 0 2 161:158 8
Großwallstadt 6 3 1 2 164:160 7
Hamburg 7 2 1 4 199:185 5
Göppingen 5 2 0 3 147:151 4
Melsungen 6 2 0 4 154:187 4
Düsseldorf 5 1 1 3 138:170 3
Minden 5 1 0 4 128:165 2
Wilhelmsh. 6 0 2 4 156:176 2
Pfullingen 6 1 0 5 147:169 2
Wetzlar 5 1 0 4 141:163 2
Delitzsch 7 0 1 6 158:207 1
COLIN Montgomerie sigraði á
Dunhill-meistaramótinu í golfi
sem lauk í dag á St. Andrews í
Skotlandi en hann lék á 279
höggum samtals og var einu
höggi betri en Kenneth Ferrie
frá Englandi sem var með
fimm högg í forskot fyrir loka-
daginn. Montgomerie lék á 71
höggi í gær á meðan Ferrie lék
afar illa og endaði á 77 höggum
og samtals á 280 höggum. Ro-
bert Karlson frá Svíþjóð, And-
ers Hansen frá Danmörku, Pa-
idraig Harrington frá Írlandi
og Henrik Stenson frá Svíþjóð
voru jafnir í þriðja sæti á 7
höggum undir pari samtals.
Keppt var á þremur mismun-
andi völlum á þessu móti en
keppendur léku lokahringinn á
St. Andrews en einnig var leik-
ið á Kingsbarns og Carnoustie.
Colin Montgomerie sigraði á
Dunhill meistaramótinu í golfi
sem lauk í dag á St. Andrews í
Skotlandi en hann lék á 279
höggum samtals og var einu
höggi betri en Kenneth Ferrie
frá Englandi sem var með
fimm högg í forskot fyrir loka-
daginn. Það eru 19 mánuðir frá
því að Montgomerie sigraði síð-
ast á Evrópumótaröðinni og
fékk hann tæplega 50 millj. kr.
fyrir sigurinn.
„Þetta er mikilvægasti sigur
minn frá upphafi og það var
stórkostlegt að ná að landa
honum á þessum stað og þess-
um velli. Ég lék vel á Opna
breska meistaramótinu á þess-
um velli og ég gat varla beðið
eftir því að fá tækifæri að leika
hér á ný,“ sagði Montgomerie
sem hefur hægt og bítandi
klifrað upp styrkleikalistann á
Evrópumótaröðinni en hann
var um tíma í 82. sæti á heims-
listanum.
Langri bið
„Monty“
lauk á St.
Andrews