Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Háseti Vanur háseti óskast á Núp BA-69 frá Patreks- firði. Upplýsingar hjá skipstjóra í símum 852 2203 og 862 5767. Patreksfirði. Sýslumaðurinn í Ólafsfirði auglýsir eftir starfsmanni í 100% starf til að sjá um afgreiðslu almannatrygginga, almenna afgreiðslu og fleira tilfallandi. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf ekki seinna en 15. nóvember nk. Laun eru samkvæmt kjara- samningum SFR. Frekari upplýsingar veitir Ástríður Grímsdóttir í síma 466 2223. Umsóknum skal skila á skrifstofu sýslumanns fyrir 11. október nk. Bæði karlar og konur eru hvött til að sækja um. Sýslumaðurinn í Ólafsfirði, Ástríður Grímsdóttir. Raðauglýsingar 569 1100 Félagsstarf Félagsfundur Heimdallar Heimdallur heldur félagsfund í kvöld, þriðju- daginn 4. október, kl. 20:00 í Valhöll, Háaleitis- braut 1. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á 36. landsfund Sjálfstæðis- flokksins sem haldinn verður 13.-16. október. Heimdallur. Til leigu Til leigu — Eldri borgarar 2ja herbergja íbúð á 7. hæð í Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, er til leigu. Skilyrði er að viðkomandi sé 60 ára eða eldri. Upplýsingar veitir Friðjón Örn Friðjónsson hrl. í síma 581 1155. Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnar- stræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Mýrarvegur/Kaupangur, versl. hl. A, 01-0101, Akureyri (214-9126), þingl. eig. Foxal ehf., gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 7. október 2005 kl. 10:00. Norðurgata 3, Akureyri (214-9447), þingl. eig. Aron Þór Sigurðsson, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Íbúðalánasjóður, föstudag- inn 7. október 2005 kl. 10:00. Setberg, Svalbarðsstrandarhreppi (216-0359), þingl. eig. AUTO ehf., gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 7. októ- ber 2005 kl. 10:00. Skíðabraut 6, Björk, 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-5179), þingl. eig. Reynir Magnússon, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð, Sparisjóður Hafnarfjarðar og sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 7. október 2005 kl. 10:00. Vestursíða 30E, 03-0301, eignarhl. Akureyri (215-1613), þingl. eig. Garðar Hallgrímsson, gerðarbeiðendur Innheimtustofnun sveitarfé- laga og Kaldbakur hf. (samruni), föstudaginn 7. október 2005 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 3. október 2005. Guðjón Jóel Björnsson ftr. Tilkynningar Grunnskólakennarar — skólastjórnendur Umsóknarfrestur um námsleyfi grunnskóla- kennara og stjórnenda grunnskóla fyrir skóla- árið 2006-2007 er til 20. október 2005. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að við úthlutun verði annars vegar nám, sem tengist raun- greinakennslu, sérkennslu, eða kennsluháttum sett í forgang. Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þess. Umsækjandi, sem æskir námsleyfis, skal full- nægja eftirfarandi skilyrðum og skuldbinding- um, sbr. reglur Námsleyfasjóðs: a) Hafa gegnt kennslustarfi í 10 ár samtals, í eigi minna en hálfu starfi, og verið í starfi sl. fjögur ár. b) Vera fastráðinn starfsmaður sveitarfélags eða aðila sem stofnað er til með samstarfi sveitarfélaga og taka laun samkvæmt kjara- samningi Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna grunn- skólans. c) Ljúka 30 eininga háskólanámi, eða sambæri- legu námi, miðað við 1/1 námsleyfi, og skal námið miða að því að nýtast viðkomandi í því starfi sem hann er ráðinn til að sinna. d) Skuldbindi sig til að starfa að kennslu við grunnskóla eða að öðrum skólamálum í þágu sveitarfélaga í a.m.k. þrjú ár að náms- leyfi loknu. e) Senda Námsleyfasjóði skýrslu um störf sín og nám í námsleyfi innan fjögurra mánaða frá því að námsleyfi lauk. Skýrslan skal miðuð við að unnt sé að birta hana síðar og áskilur Námsleyfasjóður sér rétt til þess. f) Enginn getur fengið hærri fjárhæð í náms- leyfi en sem nemur tveggja ára föstum laun- um á starfsævi viðkomandi. Umsóknum skal skilað til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, Reykjavík, fyrir 20. október 2005 á eyðublöðum sem þar fást og gilda fyrir skólaárið 2006-2007. Umsóknareyðublöð er einnig hægt að nálgast á heimasíðu sambandsins. Þar er einnig að finna reglur sjóðsins sem umsækjendum er bent á kynna sér. Veffang: www.samband.is -> Skólamál -> Námsleyfasjóður. Uppboð Uppboð Að beiðni Lögreglustjórans í Reykjavík fer fram uppboð á eftirfarandi lausafé: Móvindóttur hestur á járnum, 12-13 vetra, meðalstór, fínlegur, ómarkaður og ekki örmerktur. Uppboðið verður haldið að Fákabóli 5, stóðhestahúsi, gegnt Félagsheimili Fáks í Víðidal, þriðjudaginn 11. október 2005 kl. 11:00, þar sem hesturinn er staðsettur. Vakin er athygli á 12 vikna innlausnarfresti skv. 4. mgr. 59. gr. laga nr. 6/1986 um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. Sýslumaðurinn í Reykjavík. 3. október 2005. Félagslíf I.O.O.F. Rb. 4  1541048-8½ 0* Sunnudagur 4. september. Haustganga Hornstranda- fara FÍ. Hin árlega haustganga Horn- strandafara Ferðafélagsins verð- ur farin laugardaginn 8. október nk. Gengið verður um fallega staði í Hrunamannahreppi. Skemmtun fer fram í Árnesi. Ganga, árshátíð, útivera og skemmtun, allt í einni ferð. Verð: Rúta, skemmtun, sund og matur kr. 5.000. Allir velkomnir. Skráning hjá FÍ, sími 568 2533.  HLÍN 6005100419 VI  FJÖLNIR 6005100419 III  EDDA 6005100419 I Lífssýn - Félagsfundur Í kvöld, þriðjudag 4. okt. kl. 20.30 í Bolholti 4, 4. hæð, verður hald- inn fyrsti félagsfundur hausts- ins. Erla Stefánsdóttir flytur okk- ur frásögn af hulduverum á leið norður í Djúpa Dal. Aðgangseyrir kr. 500. Kaffiveitingar. Stjórnin. ÍSLENSKUM námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi og Noregi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa í þeim löndum. Ekki er vitað fyrirfram hvort ein- hver styrkur kemur í hlut Íslend- inga. Umsækjendur skulu hafa lokið BA- eða BS-prófi eða öðru sambæri- legu prófi. Upplýsingar og umsókn- areyðublöð fást í ráðuneytinu og einnig á eftirgreindum vefsíðum. Í Finnlandi eru styrkir veittir til 3–9 mánaða og nemur styrkfjárhæð- in 1.000 evrum á mánuði. Upplýsing- ar og eyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu CIMO (Centret for Interna- tional Mobility) http://finland.- cimo.fi/ Í Noregi eru styrkir veittir til 1–10 mánaða námsdvalar. Styrkfjárhæð er 8.000 n.kr. á mánuði og skulu um- sækjendur vera yngri en 40 ára. Upplýsingar og eyðublað fást á vef- síðu Rannsóknarráðs Noregs http:// www.rcn.no/is Umsóknir um styrkina skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Um- sóknarfrestur er til 15. desember nk. Styrkir til háskólanáms í Finnlandi og Noregi FRÉTTIR SPARISJÓÐUR Kópavogs, SPK, og körfuknattleiksdeild Breiðabliks hafa gert með sér samning þess efnis að SPK verði aðalstyrktarað- ili deildarinnar, bæði unglingaráðs og meistaraflokks karla og kvenna. Með þessum samningi eykst stuðningur Sparisjóðsins enn frek- ar við barna- og unglingastarf í Kópavogi en í kringum 100 krakk- ar æfa nú hjá körfuknattleiksdeild Breiðabliks, að því er segir í frétta- tilkynningu. Meðfylgjandi mynd er tekin við undirritun samningsins á dögunum. Á henni eru: Helga Björk Sig- bjarnardóttir forstöðumaður þjón- ustu- og markaðssviðs SPK, Unnur Guðríður Indriðadóttir, markaðs- fulltrúi SPK, Eggert Baldvinsson formaður körfuknattleiksdeildar Breiðabliks og Einar Hannesson formaður meistaraflokksráðs karla. Sparisjóður Kópavogs styrkir körfuknattleiksdeild Breiðabliks UNIFEM á Íslandi og Mannrétt- indaskrifstofa Íslands, í samvinnu við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykja- vík, standa fyrir opnum umræðu- fundi með Elle Flanders, leikstjóra myndarinnar Enginn aðskilnaður (Zero Degrees of Separation), um friðarhreyfingar í Ísrael og Palest- ínu. Fundurinn verður haldinn í Mið- stöð Sameinuðu þjóðanna, Skaftahlíð 24, í dag, þriðjudag, kl. 17.15–18.30. Elle Flanders er alin upp í Kanada og Ísrael. 18 ára gömul byrjaði hún að festa á filmu áhrif ísraelska her- námsins á líf Palestínubúa en hún hefur síðan skoðað það efni jafnt með ljósmyndasýningum og kvikmynda- gerð. Í heimildamyndinni Enginn að- skilnaður skoðar Elle deilurnar fyrir botni Miðjarðarhafs með augum tveggja samkynhneigðra para sem eiga það sameiginlegt að annar að- ilinn í sambandinu er Ísraeli og hinn Palestínuarabi. Kvikmyndin Enginn aðskilnaður verður sýnd í Tjarnarbíói í kvöld kl. 21. Kvikmyndagerðarkonan Gréta Ólafsdóttir stýrir umræðum með Elle Flanders í kjölfar sýningarinn- ar. Umræður með Elle Flanders um Ísrael og Palestínu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.