Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 47
Sýnd kl. 8 og 10.20 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 16 ára RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Miða sala opn ar kl. 17.15Sími 551 9000 Göldrótt gamanmynd! V.J.V. TOPP5.IS R.H.R. MÁLIÐ  Ó.H´T RÁS 2 KVIKMYNDAHÁTÍÐ 29. september til 9. október Lost Children / Týndu börnin Sýnd kl. 6 Turtles can fl y / Skjaldbökur geta fl ogið Sýnd kl. 8 Shark in the Head / Hákarl í höfðinu Sýnd kl. 10 Sýnd kl. 8 og 10 BETRA SEINT EN ALDREI Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA. Sýnd kl. 6 ísl tal Sýnd kl. 6 Íslenskt tal Skemmtilega ævintýramynd með íslensku tali. RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY Topp5.is 553 2075Bara lúxus ☎ Night Watch is F***ING COOL! Quentin Tarantino i i I ! i i Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Skemmtilega ævintýramynd með íslensku tali. Óbeint framhald af þáttaröðinni Jesú og Jósefína sem var sýnd við miklar vinsældir á Stöð 2 síðustu jól. 400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Miðaverð 450 kr. Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 47 FYRIR þá sem ekki hafa kynnt sér rússnesku myndina Geim- drauma áður en þeir líta hana augum hlýtur hún að virka næsta óskiljanleg lengi framan af. Við fylgjumst með Konyok, einföldum, góðlyndum kokki og áhugaboxara sem kynnist dul- arfullum manni, Gherman, en hann er fyrrverandi pólitískur fangi. Konyok verður hugfanginn af Gherman og skyggir ekkert á það, ekki einu sinni þegar Gherman sefur hjá kærustu hans. Maður skilur þetta ekki al- veg, en þegar í ljós kemur seint og um síðir að Gherman á sér þann draum að komast út í geim- inn fara málin að skýrast. Myndin gerist á þeim tíma þegar Sovétmenn voru nýbúnir að senda út í geiminn sinn fyrsta gervihnött og geimurinn táknaði frelsi og óendanlega möguleika. Gherman er tákn óbilandi trúar á framtíðina og það er hún sem hrífur Konyok. Bakgrunnur myndarinnar er óttalega óskýr; áhugi Konyoks og kærustu hans á að sjá gervi- tunglin líða um himingeiminn er að vísu augljós en hann virðist ekki vera í neinu samhengi við annað sem gerist fyrr en undir lokin. Myndin er því dálítið lang- dregin og er gallinn á handritinu helsti ljóðurinn á myndinni. Margt sjarmerandi ber þó fyr- ir augu, leikurinn er sannfær- andi, myndatakan er afslöppuð, karlremban er skondin og kapp- hlaupsatriði brjóstahaldaralausra kvenna er óborganlegt. Það er bara ekki nóg. Trúin á framtíðina KVIKMYNDIR Regnboginn: AKR 2005 Leikstjóri: Alexey Uchitel. 90 mínútur. Rússland 2005. Geimdraumar (Dreaming of Space)  Jónas Sen HLJÓMSVEIT Fólksins þessa vik- una er Fighting Shit en Morg- unblaðið og mbl.is velja Hljómsveit Fólksins á tveggja vikna fresti. Til- gangurinn er að kynna og styðja við grasrótina í íslenskri tónlist, beina athyglinni að nokkrum af þeim fjöl- mörgu íslensku hljómsveitum sem gera almenningi kleift að hlaða niður tónlist þeirra á netinu, án endur- gjalds. Hljómsveit Fólksins er í samstarfi við Rás 2 og Rokk.is, en hægt er að lesa viðtalið á Fólkinu á mbl.is. Þar eru einnig tenglar á lög sveitarinnar sem geymd eru á Rokk.is. Lag með Fighting Shit verður spilað í dag í Popplandi á Rás 2, sem er á dagskrá kl. 12.45–16 virka daga. Hverjir skipa sveitina? Kolli syngur, Óli trommar, Þórir og Loftur spila á gítar og Ingi á bassa Hver er heimspekin á bak við hljómsveitina? Það er nú ekki beint nein ákveðin heimspeki á bak við þetta en við syngjum og tölum bara um það sem okkur liggur á hjarta hverju sinni. Allt frá stelpum yfir í pólitísk mál- efni, hvernig mannkynið er að rústa jörðinni, grænmetisætur og fleira. Enginn af okkur borðar dýr og fjórir okkar eru „Straight Edge“ (neyta ekki neinna vímuefna og lifa al- mennt heilbrigðu lífi). Hvenær var sveitin stofnuð og hvernig atvikaðist það? Þórir, Loftur og Kolli voru búnir að vera að spila saman í u.þ.b. hálft ár áður en Óli kom inn í þetta. Svo var okkur boðið að spila á Stretch- ArmStrong-tónleikunum í sept- ember 2003 sem gaf okkur svona spark í rassinn. Fundum okkur strax bassaleikara, sömdum og æfð- um á þessari einu viku sem við höfð- um. Hvaða tónlistarmenn eru hetjur ykkar? Veit nú ekki hvort hetjur er rétta orðið, en það eru ófáar hljómsveitir sem hafa haft áhrif á okkur. Þar standa hæst Minor Threat, Carry On, Section 8, Tragedy, Shai Hulud, Down in Flames, Kid Dynamite og DS13. Við hljómum svolítið eins og hrærigrautur af öllum þessum. Eru einhverjir innlendir áhrifa- valdar? Páll Rósinkrans … nei, nei. I adapt hafa haft einhver áhrif á okk- ur, bæði sem persónur og hljóm- sveit. Og auðvitað hefur fólkið sem maður umgengst dagsdaglega mest áhrif á mann. Hvað finnst ykkur um íslenska tónlist í dag? Frábær, endalaust af frábæru tónlistarfólki út um allt. Hvort sem það er í metalnum, harðkjarnanum, poppinu, indí eða einhverju öðru, maður finnur góðar hljómsveitir alls staðar. Er auðvelt að fá að spila á tón- leikum? Já, og ef það eru engir tónleikar til að spila á getur maður líka bara haldið þá sjálfur. Það er gaman. Er auðvelt að gefa út? Já ef maður hefur metnaðinn til að þurfa jafnvel að gera það allt sjálfur þá er það ekkert mál. Maður á ekki endalaust að bíða eftir að útgáfufyrirtækin „finni“ mann. Segið eitthvað um lögin sem þið eruð með á Rokk.is? „No Hope For the Dead“ er af ný- útkomnum split-diski okkar með bresku hljómsveitinni Dead After School sem kom út hjá Cat ’n Cakey- útgáfunni í Bretlandi. „Blóð“ er af split-diski með ís- lensku hljómsveitinni Brothers Maj- ere (eitt besta band Íslands!), þetta lag fjallar á mjög harðan hátt um það hvað okkur finnst rangt að borða dýr. Snerum því eiginlega svo- lítið upp í grín með því að ýkja text- ann þannig að það hljómar eins og við viljum bara útrýma fólki sem borðar kjöt. Þarna er líka „John Doe vs The Thought Police“ af sömu út- gáfu. Þarna eru líka lögin „Shove it“, „Good Riddance“, „Girls Kick Ass“ og „Fuck you“ sem eru öll af okkar fyrstu útgáfu – Tuned For Thrash. „Girls Kick Ass“ er örugglega eina jákvæða lagið okkar … og það er um stelpur … kaldhæðnislegt. Hver er mesti gleðigosinn ? Hmmm … ætli það séu ekki Óli og Ingi, en á móti kemur að þeir eru líka án efa þeir vitlausustu og barna- legustu. Hvað er á döfinni hjá ykkur? Erum að fara út með félögum okk- ar í I Adapt í desember. Cat ’n Cakey ætlar að endur- útgefa gamla efnið okkar einhvern tímann á næstunni og svo kemur út 7" vinýlplata snemma á næsta ári, líka hjá Cat ’n Cakey Records. Eitthvað að lokum? Diskarnir okkar fást í 12 tónum, Smekkleysu, Geisladiskabúð Valda og auðvitað hjá okkur sjálfum á mjög vægu verði. Veriði svo góð! Hljómsveit Fólksins | Fighting Shit Ljósmynd/Guðný „Enginn af okkur borðar dýr“ Tjarnarbíó kl. 17:00 Þriðjudaginn 4. október Nikifor minn og stjörnurnar fimm www.filmfest.is Háskólabíó 18:00 Vetrarkoss 20:00 37 og hálfs 22:00 George Michael: Önnur saga Regnboginn 18:00 Týndu börnin 20:00 Skjaldbökur geta flogið 22:00 Hákarl í höfðinu Tjarnarbíó 17:00 Nikifor minn 19:00 Heimavinna 21:00 Enginn aðskilnaður NÝR BÚNAÐUR Í TJARNARBÍÓI „Ég hvet áhugafólk um góðar myndir til að sjá Nikifor minn, eitt magnaðasta verk hátíðarinnar“, segir gagnrýandi Morgunblaðsins í fimm stjörnu dómi sínum um Nikifor minn, pólskt snilldarverk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.