Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.10.2005, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 4.SÆTIÐ www.jorunn.is SEPTEMBERMÁNUÐUR var kaldur um allt land þrátt fyrir að fyrri hluti mánaðarins væri í meðallagi, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Í Reykjavík mældist meðalhitinn í sept- ember 6,3°C sem er 1,1 gráðu undir með- allagi. Lægsti lágmarkshiti í Reykjavík mæld- ist hinn 25. september, –3,4 stig, en sá dagur var kaldasti septemberdagur síðan 1974. Á Akureyri var meðalhitinn 1,6 gráðum undir meðaltali eða 4,7°C. Á Hveravöllum var meðalhitinn 0,7 stig. Síðast var sept- embermánuður þetta kaldur um allt land árið 1982, en þá mældist meðalhitinn í Reykjavík 5,6 stig, á Akureyri 4,6°C og 0,4°C á Hvera- völlum. Úrkoma í Reykjavík mældist 41 mm sem er einungis rúm 60% af úrkomu meðalárs. Þá mældist úrkoma á Akureyri 92 mm. Dagana 24. og 25. september festi snjó á Akureyri. Slíkt er mjög óvenjulegt og er þetta einungis í sjötta skiptið á síðustu 40 árum sem snjó festir á Akureyri í september. Þrátt fyrir kuldann lét sólin þó sjá sig tölu- vert í Reykjavík, sem gæti hafa ýtt dálítið undir kuldann, sem er yfirleitt meiri undir heiðskírum himni en skýjabreiðu. Sólskins- stundir í Reykjavík mældust 184,7 sem er um 60 stundum yfir meðallagi, og hafa sólskins- stundir einungis tvisvar mælst fleiri í sept- ember, árið 1954 þegar sólskinsstundir mæld- ust 186,2 og árið 1975 þegar þær mældust 186,9. Sólskinsstundir á Akureyri mældust 79 og er það 6 stundum færra en í meðalári. Á myndinni er ungur námsmaður á heimleið, meðfram haustlituðum trjárunna. Morgunblaðið/RAX Kaldasti september síðan 1982 SÆNSKA bókaforlagið Kabusa böcker hefur keypt sænska útgáfuréttinn að skáldsögu Auðar Jónsdóttur, Fólkið í kjallaranum. Auður hefur kynnt bókina á bókastefnunni í Gauta- borg síðustu daga en bókin hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin á síðasta ári. Valgerður Bene- diktsdóttir hjá Rétt- indastofu Eddu segist hafa fundið fyrir mikl- um áhuga á íslenskum bókmenntum á messunni. Kabusa hefur áður gefið út á sænsku Söguna af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason og verk eftir Kristínu Ómarsdóttur. Bókin var einnig seld til Danmerkur ný- lega og búist er við að hún komi út á sænsku á næsta ári. Valgerður segir margt fleira í farvatninu, t.d. hafi Krist- ín Marja Baldursdóttir vakið mikla at- hygli á bókastefnunni og tilboð borist í útgáfuréttinn að skáldsögu hennar, Karitas. | 21 Fólkið í kjallar- anum í Svíþjóð Auður Jónsdóttir JÓNA Guðlaug Vigfúsdóttir, 16 ára lands- liðsstúlka í blaki frá Neskaupstað, hefur gert sjö ára samning við franska liðið Cannes. Félagið er margfaldur Frakklands- meistari og meðal sterk- ustu blakliða í Evrópu og hefur orðið Evr- ópumeistari. Félagið er með lið í Evrópukeppn- inni í ár, bæði karla og kvenna. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur blak- maður gerir atvinnu- mannasamning – áður hafa nokkrir íslenskir leikmenn leikið er- lendis samfara námi. Jóna Guðlaug er ein af fjórum ungum stúlkum sem liðið gerði samning við á þessu ári. Þjálfari Cannes sá Jónu Guðlaugu leika með íslenska landslið- inu á Smáþjóðaleikunum í vor og vaknaði þá áhugi hans á henni. | Íþróttir 16 ára stúlka at- vinnumaður í blaki Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir LAGT er til 45 milljóna kr. tímabundið framlag til átaks í rannsóknum á íslenska minkastofninum á sviði umhverfisráðu- neytisins í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Um er að ræða tveggja ára átak til útrým- ingar á mink á þremur afmörkuðum land- svæðum þar sem saman færu veiðar, skipuleg vöktun og rannsóknir meðan á átakinu stendur. Markmið aðgerðanna er að kanna möguleika á að útrýma mink og hvaða aðferðir henta best til að fækka honum verulega. Í frumvarpinu er einnig gerð tillaga, undir liðnum endurgreiðslur til sveitarfé- laga vegna veiða á ref og mink, um tíma- bundna fjárveitingu að upphæð 5,5 millj- ónir kr. í fjögur ár vegna refaveiða. | 6 45 milljónir í útrýmingu minka MIKILL munur er á verði á þjónustu hjól- barðaverkstæða á höfuðborgarsvæðinu við skiptingu, umfelgun og jafnvægisstill- ingu. Þannig er tæplega 80 prósenta mun- ur á hjólbarðaskiptingu á jeppa á 30–32 tommu dekkjum. Þetta kemur fram í könnun verðlagseftirlits ASÍ á 28 verk- stæðum á höfuðborgarsvæðinu. Talsverð hækkun hefur orðið á þjónustu hjólbarðaverkstæða frá síðustu könnun, sem gerð var í desember 2003. Mest er hækkunin í flokki stærri fólksbíla, en þar er hún á bilinu 8–9,5%. Minnst er hækk- unin á þjónustu við litla jeppa, eða um 3–4% á tímabilinu. | 20 Mikill verðmunur á hjólbarðaskiptingu ÁRNI Magnússon félagsmálaráð- herra sagði á kynningarfundi um sameiningu sveitarfélaga í Eyja- firði, sem haldinn var á Dalvík í gærkvöldi, að ef ekki tækist að sameina sveitarfélög með frjálsum kosningum, eins og þeim sem fram fara víða um land næstkom- andi laugardag, sé eðlilegt næsta skref að huga að lagasetningu til að sameina sveitarfélög. Taldi ráð- herrann að komandi sameining- arkosningar gætu verið þær síð- ustu þar sem reynt yrði að sameina sveitarfélög með frjálsum kosningum. Nú yrði þessi aðferð fullreynd og ekki meira gert í sameiningarmálum á þessu kjör- tímabili. Áður en gripið verður til þess að sameina sveitarfélög með laga- setningu þarf að ákveða hver lág- marksstærð þeirra á að vera, að mati Árna. Hann nefndi hugmynd Samfylkingarinnar um að í hverju sveitarfélagi væru a.m.k. 1.000 íbúar og spurði hvort það væru nógu margir. Taldi Árni að ef til þessa kæmi myndi umræðan um lágmarksstærð sveitarfélaga fara fram á næsta kjörtímabili Alþing- is, þ.e. á árunum 2007 til 2011. Næstum 200 manns mættu á kynningarfundinn í Dalvíkurskóla í gærkvöldi. Stærsta sameiningin, sem kosið verður um á laugardag- inn kemur, er í Eyjafirði þar sem lagt er til að 9 sveitarfélög sam- einist í eitt. Félagmálaráðherra var með framsögu á fundinum og tóku margir þátt í málefnalegum umræðum. Í máli nokkurra fundarmanna kom fram ótti við að allt vald myndi færast til Akureyrar ef sameiningin gengi eftir. Þröstur Jóhannsson, fyrrver- andi hreppsnefndarmaður í Hrís- ey, tók til máls og kvaðst greina sama ótta hjá þessum fundar- mönnum og varð vart í Hrísey 1998 þegar lagt var til að sameina hana sveitarfélögum sem urðu að Dalvíkurbyggð. Hríseyingar felldu sameiningartillöguna þá. Í fyrra sameinuðust þeir Akureyri og taldi Þröstur að óttinn við sam- einingu hefði verið ástæðulaus og sagði að nú væru flestir eyjar- skeggjar ánægðir með að hafa sameinast Akureyri. Sjálfur kvaðst hann vera stoltur af að búa í einu af úthverfum Akureyrar. Gæti verið síðasta tilraun til frjálsra sameininga Morgunblaðið/Margrét Þóra Nærri 200 manns mættu á kynningarfund um sameiningarmál í Dalvíkurskóla í gærkvöldi. Árni Magnússon félagsmálaráðherra á kynningarfundi á Dalvík Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is  Kosið um sameiningu | 22–23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.