Mánudagsblaðið - 23.11.1981, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 23. nóv. 1981
Yfir 25 ára reynsla.
Við göngum frá og sendum
jólapakkana um allan heim.
Allar sendingar eru fulltryggðar
yður að kostnaðarlausu.
RAMMAGERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19
‘I tt. T ~)
nrrirjl iiii 11 TTITI ■ III 1 \m
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Auglýsingar í
símaskrá 1982
Dreifibréf með upplýsingum um auglýs-
ingar i simaskrá 1982 hefur verið sent
flestum fyrirtækjum landsins og Póst- og
Simstöðvum. Athugið að frestur auglýs-
enda til að endurpanta sambærilega stað-
setningu fyrir auglýsingar sinar i næstu
simaskrá, sem kemur út að vori, var til 1.
nóvember. Almennur skilafrestur fyrir
pantanir á auglýsingum i simaskrá 1982 er
til 1. desember.
Nánari upplýsingar i sima 29140.
Simaskrá — Auglýsingar
Pósthólf 311,121 Reykjavik
BRÉF TIL BLAÐSINS:
Barnaklám á vegum
Norræna félagsins -
Góðir leikdómar
Leikdómarnir
eru bestir
Hr. ritstjóri
Ég ætla bara að þakka fyrir gott og
líflegt Mánudagsblað í nýjum
búningi. Blaðið er nú komið í
nútímahorf og vonandi kemur það
reglulega út framvegis. Efni eins og
Kakali, slúðursögurnar á baksíðu og
fleira er mjög vinsælt, en það sem
mér finnst persónulega mest um
vert eru leikdómar blaðsins. Þaðeru
tveir leikarar í minni ætt og bæði
þeir og leikhúsfólk sem ég þekki eru
sammála um að Agnar Bogason sé
eini krítikerinn sem skrifi nákvæm-
lega eins og honum fínnst en láti
ekki kunningsskap eða annað hafa
áhrif á þessi skrif. jón Árnason.
Mafía SfS og
Framsóknar
Flugstarfsmaður sendi eftir-
farandi.
Þakka fyrir frétt í síðasta blaði
um mafíuna, SÍS, Arnarflug og
Iscargo. Þetta er frétt sem ekkert
dagblaðanna virðist hafa þorað að
birta. Þeir sem fylgjast með þessum
hlutum vita hins vegar að Stein-
grímur neyddi Flugleiðir tii að selja
meirihluta sinn í Arnarflugi til þess
að þóknast herrunum í SÍS. Svo á
að láta Arnarflug kaupa gjaldþrota
fyrirtæki, Iscargo, til þess að bjarga
einkavini Steingríms og Framsókn-
ar, Kristni Finnbogasyni, sem Oli
Jó hélt einu sinni að væri
kraftaverkamaður.
Það sem er ljótast í þessu er það,
að Flugleiðir eiga enn nærri 50% í
Arnarflugi, en fá samt engu að ráða,
helaur fyrirtækið beinlínis neytt til
að fara út í samkeppni við sjálft sig
með því að Steingrímur ætlar að láta
Arnarflug fá leyfi til að fljúga í
áætlunarflugi milli landa. A bak við
þetta brall allt saman stendur SIS,
mafían og Framsókn með stuðningi
kommanna sem leggja ofurkapp á að
eyðiieggja Flugleiðir.
Ég skora á Mánudagsblaðið að
fylgjast vel með framvindu mála og
greina lesendum frá því sem næst
gerist. Varla verða önnur blöð til
þess.
Barnaklám
Alveg er það fyrir neðan allar
hellur hvernig þetta Norræna félag
leggur sig fram um að flytja hingað
inn óþverra frá Skandinavíu. Á
dögunum var kynnt norræna
kvikmyndavikan og eftir því sem
blöðin sögðu átti að sýna þarna
barna- og unglingamyndir. Dóttir
mín og vinkona hennar, báðar 12
ára, fengu leyfi til að bregða sér einn
sunnudag til að sjá þarna mynd. Þær
komu slegnar og miður sín til baka
og sögðu að myndin hefði verið svo
„sjokkerandi”.
Ég fór því á stúfana að afla mér
nánari upplýsinga og kom þá í ljós,
að telpurnar höfðu farið að sjá
danska barnaklámmynd sem leikin
var af unglingum og fjallaði um
samfarir þessa aldurshóps.
Jafnframt var mér sagt að þessi
mynd væri sýnd hér með styrk frá
Norræna menningarsjóðnum, en
Norræna félagið hefði haft
milligöngu. Einnig var mér sagt, að
þessi sjóður hefði styrkt þýðingar á
dönskum barnaklámsögum sem
kommar hér hefðu þýtt yfír á
íslensku.
Aldrei hefði svona nokkuð
viðgengist meðan Guðlaugur
heitinn Rósinkranz stýrði Norræna
félaginu, eða aðrir álíka
heiðursmenn. Burt með þennan
óþverra sem beint er hingað frá
kynferðisbrengluðum Dönum og
Svíum. Reiður faðir.
Samkeppni til
góðs
Sigurður J. skrifar blaðinu og
segir:
Þakka fyrir frábært blað, sem er
alveg að mínu skapi. Ég hef reyndar
alltaf haft einhverjar taugar til
Mánudagsblaðsins og fundist það
eiga rétt á sér, en nú fínnst mér það
vera mun skemmtilegra en áður og
ég verð örugglega tryggur kaupandi.
Annars ætlaði ég að ræða um bréf
til blaðsins, sem birtist í blaðinu 2.
nóv. síðastliðinn, og er frá
„flugmanni”. Hann talar um að það
sé verið að leggja Flugleiðir í rúst ef
Arnarglug fái áætlunarleyfi til
einhverra borga í Evrópu.
Með fullri virðingu fyrir erfiðri
stöðu Flugleiða um þessar mundir
vil ég segja það, að samkeppni hefur
yfírleitt orðið fyrirtækjum til góðs.
Það er ekki ástæða til að halda annað
en að Flugleiðir hefðu bara gott af
nokkurri samkeppni. Og áreiðan-
lega myndi hún koma sér vel fyrir
hinn íslenska farþega í millilanda-
flugi, sem með því fengi sennilega
lægri fargjöld.
Ekki er að sjá annað en Eimskip
hafi bara haft gott af því að hafa
Hafskip í kjölfarinu. Samkeppnin
heldur öllum aðilum vakandi fyrir
sparnaði í rekstri, nýjungum, sem að
gagni mega koma og fleiru.
Þess vegna vil ég bara óska þess,
að Steingrímur Hrmannsson sam-
gönguráðherra veiti Arnarflugi
leyfíð. Ég held það verði öllum til
góðs. Með kveðjum og óskum um
áframhaldandi frábært blað.
Sigurður J.
Ef þú ætlar
að gleðja
víni og vandamenn
erlendis um jólin...
. . . þá borgar sig að líta við hjá
RAMMAGERÐINNI. ,
Þar er fjölbreytt úrval íslenskrar gjafavöru.
Silfurskart, bækur um ísland, keramik og plattar.
Handprjónaóar peysur, sjöl, vettlingar og húfur.
Fisléttar værðarvoóir, útskornar gestabækur
og tilbúnir matarpakkar, bara til aó nefna eitthvaó.