Mánudagsblaðið - 23.11.1981, Blaðsíða 8
Sannur Iþróttaandi
hálfkommar I mann
úðarleik og pöddur
I hveitisekkjum
Pöddur í hveitisekkjum
Húsmæður kvarta sáran yfir því að fyrir komi að ormar
eða pöddur finnist í hveitisekkjum, sem seldir séu út úr
búðum. Telja þær að eftirlit sé ekki nógu strangt og enn verra
TILBREYTING
Hún er í sjóræningjastíln-
um þessi, en slík
múndering þykir af-
bragðs skemmtilcg þessa
dagana. Og óneitanlega
fer hún stúlkunni á
myndinni einkar þokka-
lega þótt við birtum
myndina ekki í litum, en
gctum þess aðeins að
mittislindinn og skórnir
er hvort tveggja eldrautt,
alveg eins og ekta sjóræn-
ingjar í gamla daga hefðu
haft það. Þeir eru
fundvísir á eitthvað nýtt,
tískukóngarnir, og sjá um
endalausa tilbreytingu
fyrir augað.
sé að slíkt hið sama hendi oft í sykursekkjum. Það væri
óskandi að hið opinbera herti enn eftirlit með þessari vöru svo
að þessu yrði kippt í lag.
EVIannúðarfrumvarp
hálfkomma
Nú hafa þrír kommar eða öllu heldur hálfkommar flutt
mannúðarfrumvarp á Alþingi. Eru það þeir sálufélagarnir
Guðmundur J., Helgi Seljan ásamt gervimenninu Baldri
Oskarssyni. Nú hafa þessir menn fundið það út, að
fangelsisvist sé óholl föngum og rétt væri að endurskoða
refsilögin og milda þau. Ef svo heldur fram, sem horfir, má
búast við að þeir kumpánar fari í fótspor Svía og krefjist að
fangar fái að hafa konugaman eftir vild. Það væri eftir okkur.
Allt vitlaust
Að sögn er ekki allt með jafn kyrrum kjörum innan Félags
bókagerðarmanna og gefið var í skyn eftir fund félagsmanna í
miðri vikunni, þegar tilkynningin að fundarlokum hljóðaði
uppá mikinn einhug félagsmanna og að hvergi yrði hvikað frá
þeim kröfum, sem settar hafa verið fram. Þeir, sem best
þekkja til segja þetta ekki alveg sannleikanum samkvæmt, því
að á þessum fundi hafi hreinlega verið hver höndin upp á móti
annarri og mikil ólga, en forystuliðið haft sitt fram um að sýna
kreppta hnefana. Ekki allir jafn kátir með verkfallið í þeim
herbúðum.
Að ganga með vopn
Og talandi um kreppta hnefa, þá hafa verkfallsverðir
bókagerðarmanna látið ófriðlega við eigendur smærri
prentsmiðja, sem áfram vinna við tæki sín, og er ekkert við því
að segja að félög standi vörð um verkfallsvopnið. En slík vopn
eru hættuleg og mega ekki komast í hendur óprúttinna
náunga í bófahasar, sem brúka munnsöfnuð og nota hótanir
við heiðarlegt fólk í fullum rétti, eins og hefur átt sér stað í
yfirstandandi verfalli. Slíka náunga þarf að afvopna - þeir hafa
ekki þroska til að ganga með vopn.
Að vilja eða vilja ekki
Þekktur verkalýðsleiðtogi með mikla reynslu af
samningamálum lét þau orð falla, að yfirstandandi verkfall
bókagerðarmanna myndi ekki leysast fyrr en sáttatillaga yrði
borin beint fyrir félagsfund. Hinn óbreytti félagsmaður
myndi vilja semja, en harðlínustjórn félagsins viljiekkisemja,
sagði sá mæti maður.
Oddaverjar á
samningsbuxum
Ein smá klausa af sama toga. Prentsmiðjan Oddi kvað nú
reyna stíft að ná sérsamningum við starfsmenn sína, enda
virðast vera þar öll spjót úti og rekstrarstöðvun ekki bara
alvarleg, heldur gæti hún orðið banvæn, ef svo má að orði
komast. Menn fylgjast af áhuga með framgangi þess máls,
sem gæti breytt ýmsu á ófriðarvelli íslenskra verkalýðsmála,
þar sem launafólk og vinnuveitendur standa sitt hvorum
megin víglínunnar gráir fyrir járnum mörgum sinnum á ári og
forsvarsmennirnir æfa sig í ræðumennsku og komast í
sjónvarpið í þykjustunni vegna verkamannsins, sem fær svo
nokkur prósent ofaná launin sín. Við vitum öll hvað verður
um þau prósent.
Aætlanir Alberts
Sagt er að Albert Guðmundsson hafi á prjónunum
áætlanir um að gelda starfsemi Ríkisskips þannig að smátt og
smátt dragi úr starfsvettvangi þess en Hafskip og Eimskip
skipti á milli sín verkefnum þess og sigli með varning á
strandhafnir hér. Má segja að Albert standi jafnan í
stórmælum en aldrei meir en nú eða síðan hann barg
Utvegsbankanum.
Sannur íþróttaandi
Hinn sanni íþróttaandi var líklega rikjandi á
áhorfendabekkjunum í Laugardalshöllinni um daginn, þegar
þar áttust við spænska liðið Atletico Madrid og Víkingur. Allt
var með kyrrum kjörum meðal áhorfenda meðan Víkingar
áttu leik, en þegar hinir erlendu gestir sóttu upphófst hið
ömurlegasta lúðrapíp og skarkali, og kvað svo rammt að því,
að tæplega var hægt að heyra þulinn í sjónvarpssendingunni
um kvöldið. Ef það er að verða til siðs að áhorfendur taki þátt í
að klekkja á gestum þeim, sem við bjóðum til íþróttaleikja, og
koma þeim undir, væri þá ekki betra að þeir vopnuðust t.d.
langdrægum baunabyssum eða bara köstuðu grjóti í gestina?
MANU0A6SBUDD
Mánudagur 23. nóv. 1981
Litla buddan
Litla skvísan Lucy I Dallasþáttunum er ekki há
í loftinu, aðeins 149,8 sm, en vegur áhinn bóginn
99 ensk pund. Leikkonan heitir annars Charlene
Tilton og verður 22 ára 1. desember n.k. Við
óskum henni til hamingju með daginn.
Þá kæmi kannski einnabest í ljós „hinn sanni íþróttaandi”,
sem undir býr.
MFyrir launafólk”
• Það veitir ekki af að búa vel að unga fóikinu í hinum
svonefndu æðri skólum landsins. Sama unga fólkinu og fór í
verkfallið um daginn sællar minningar. Við megum hvorki
spara eitt né neitt til að vel fari um það. Jafnvel þótt þjóðin
rambi á gjaldþrotsbarmi. Þannig verðum við að sjá til þess, að
í hinum „æðri” menntastofnunum sé listinni gefinn gaumur,
og í þeim tilgangi þarf vönduð hljóðfæri í hvern skóla. Þetta
hefur mönnum skilist í Menntaskólanum i Reykjavík. Þar er
vandaður flygill í hátíðasal, sem vera ber, og annar í
svonefndri „Kösu”, eða nýja húsinu Casa nova, sem er ekki
lengur nýtt. Flygillinn á „Kösu“ er af Steinway gerð, það er
einhver dýrasta og vandaðasta tegund slíkra hljóðfæra.
Þannig er búið að níðast á þessu rándýra og vandaða hljóðfæri,
að líklega er heimsmet. Skemmdarfíknin og eyðileggingar-
starfið er svo hroðalegt að engu tali tekur. Hljóðfærið erorðið
öskuhaugamatur eftir að hafa lengi staðið meðal þeirra, sem
eiga að erfa landið. Það er ekki að búast við virðingu fyrir
verðmætum, eða þess vegna listum, þegar þeir erfingjar eru
komnir til valda í landinu. Og það hefði verið hægt að gera
eitthvað annað við þessa skattpeninga en henda þeim á slíkan
hátt fyrir svínin. Er furða þótt menntakerfið kosti
skildinginn?
Hverju skal trúa
Það virðist vera skammt stórra högga á milli hjá
hljómplötufyrirtækinu Fálkanum sem selur reiðhjól
og kúlulegur líka. Fyrir nokkru auglýsti það nýjustu innlendu
hljómplötu sína og kallaði hana „vönduðustu hljómplötu,
sem komið hefur út á Islandi” og þrem fjórum dögum síðar
kom út á vegum fyrirtækisins plata með gömlum
lögum hljómsveitarinnar Queen, sem sumir eflaust hafa heyrt
nefnda, og þá auglýsti Fálkinn: „merkilegasta safnplata, sem
komið hefur út”. Minna mátti ekki gagn gera. Það virðist því
ekki vera hægt að ná öllu lengra í hljómplötuútgáfu ef marka
má hástemmdu lýsingarorðin í auglýsingunum frá Fálkanum,
og reyndar er það fyrirtæki ekki eitt um slíkar auglýsingar á
varningi sínum. Spurningin er bara: hverju á kúnninn að
trúa?
Ung og útkeyrð
Ung og veivaxin stúlka, frekar sexý kom til lækms og
kvartaði sáran. „Eg er alltaf þreytt og óupplögð. Hefi ekki
þrek til neins. Það hlýtur að vera lágur blóðþrýstingur, eða
vítamínskortur, er það ekki?”
Læknirinn rannsakaði liana allnákvæmlega en sagði síðan,
„Það er sosum ekki neitt að þér. Utkevrð það er allt og sumt.
Þú hefur unnið of mikið síðustu daga. Ég sting uppá að þú
haldir þig frá rúminu í 2-3 vikur.”