Tíminn - 01.03.1970, Page 3

Tíminn - 01.03.1970, Page 3
r SUNNUDAGUK 1. marz 1970 TIMINN 15 Á þessum tímum var það veuga að senda bænaskrá til Alþingis uro margvísleg mál- efni. Nökfcrir íbúar Seyðisfjarð artorepps sendu slíka skrá til Aiþingis um að Seyðisfjörður yrði löggiltur kaupstaður. Bænasfcrá þessi var dagsett í júní 1891. Undir hana skrifa Halldór Gunmlögsson, Bjarni Siggeinsson og í fjarveru Björns Þorlákssonar Sigurður JónsBon. Bænaskráin er rituð fyrir hand meiri hluta íbúa Seyðis- fjarðarhrepps. Þar segir m.a.: ,,í Seyðis- fjarðarhreppi eru 2 löggiltir verzlunarstaðir, annar Seyðis- fjörður með Búðareyri, og hinn Vestdalseyri. Á báðum þessum kauptúnum er afár- mikil verzlun, og fer einatt vaxandi, eins og íbúatalan er nú aptur tekin aið vaxa, eptir að hún hafði að vísu minnk að um síðusu harðinda- og aflaleysisár. Um síðasta ný- ár, voru í öllum Seyðisfjarðar- hreppi 650 manns, og þar af í hinum umgetnu kauptúnum um 350“. „. . . tafcmörk hinna 2gja fyrii'huguðu sveitarfélaga skyldu vera á lamdiamerkjum Fjarðar og Sörlastaða annars vegar, en á merkjum Vestdals og Dvergasteins hinum meg- in“. „. . . á svæði því, er hinn fyrirhugaði eða nýji Seyðis- fjarðarhreppur myndi ná yfir. voru við síðasUiðið nýár 200 manns, en' á .svæði bví er bær- inn á að ná yfir 450“. Samfcvæmt þessu hafa íbúar á Fjarðaröldu með bæjunum á því svæði verið um 100 bals- ins.. „Á verzlunarstöðunum Seyð- isfirði og Vestdalseyri eru nú 7 fastar verzlanir, auk smá'- verzlana og lausafcaupaverzl- ana“. Síðan er málsmeðferð heima í sveitinni rafcin í bæna- skránni og lýkur henni á þessa leið: „Út af þessu og í sam- hljóðun við það, sem hér er framtekið, leyfum vér oss í um- boði meiri Muta Seyðfirðinga að fara þess virðingarfyllst á leit við hið heiðraða AUþingi: að það gefi út lög um það, að verzlunarstaðirnir Vestdalseyri og Seyðisfjörður með Búðar- eyri ásamt jörðu'num Vestdal og Firði með Odda og Fjarðar- seli, verði bæjarfélag og lög- sagnarumdæmi sjer, með kaup staðarréttindum og bæjar- stjónn .. .“. Bœnasfcránni fylgdu 5 fylgi- sfcjöl. Það fyrsta listi yfir nöfn þeima, sem að skránni stanida. Fyrsta nafnið er Otto Wathne, kaupmaður, Búðar- eyri. Þarna eru t.d. Stefán Th. Jónsson, úrsmiður, Fjarðar- öldu, Stefán Sigurðsson, hús- eigandi, Strönd, halldór Gunnlögsson, verzlunarstj., Vestdalsey-i, Gestur Sigurðs- son, beyldr, Firði, Guðmundur Þórðarson, járnsmiður, Vest- dal, Einar Helgason, húsmað- ur, Vestdalsgerði, Vigfús Ólafs son, húsmaður, Fjarðarseli, Jón Þorvaldsson, bóndi, Fornastekk o.m.fl. Annað fylgiskjal er fundar- gerð fundar, sem haldimn var 14. maí 1891 á Vestdalseyri til að ræða skiptingu hreppsins og stofnun fcaupstaðar. Fund- arstjóri var Bjarni, hrepp stjóri, Siggeirsson og fundar- sikrifari Guðmundur, læknir, Sche.ing. Fundarmenn voru aQir sammála um skiptinjguna og kaupstaðarmálið og kusu 6 manna nefnd til að fjalla nán- ar um málið. í nefndinni voru: HaHdór verzílunarstjóri Gunn- lögsson, Vestdalseyri, Bjarni, hreppstjóri Siggeirsson s.st., Otto, kaupm. Wathne, Búðar- i eyri, síra Björn Þorláksson, Dvergasteini, Sveinn Jónisson, bóndi Brimnesi o.cr Jóhann Sveinsson, tómithúsmaður, Þór- arinsstaðaeyrum. Þegar nefndin hefði lokið störfum skyldi hún kalla sam- an almennan fund til að ræða ag greiða atkvæði um skipt- ingiaruppástungu hennar. Þriðja fylgkkjal var álit nefndarinnar, sem er dagsett 25. maí 1891 og fjallar um hneppamörk, skiptingu eigna og ómaga milli hinna nýju sveitarfélaga. Hið fjórða fylgiskjal er fund argerð aimenns sveitarfundar, sem haldinn var á Vestdals- eyri 30. maí 1891. Þar var til- laga nefndarinnar borin upp. Fyrst fyrir íbúum hins verð- andi bæjar og var samþykkt með 14 atkvæðum gegn 6, og síðan fyrir íbúum sveitarinnar og var hún þá samþykkt með öllum atkvæðum (22). Þá voru þeir Bjarni Siggeirs son, Björn ->orláfcsson og Hall- dór Gunnlögsison, „'bosnir í nefnd tii að undirbúa og af- greiða til alþingis í sumar mál- efni þetta um skiptingu Seyð- isfjarðarhrepps . , . og um það að innri'hluti sveitarinnar fengi bæjarréttindi eða yrði kaup’staður“. Hið fimmta fylgiskjal fjall- ar fyrst um yfirfýsin.gu Ólafs Sigurðssonar, bónda, Fjarðar- seli, eiganda að háifri jörð- inni Firði með Fjarðarseli og Odda, þess efnis að hann sam- þykki að jörð hans verði tek- in í hinn fyrirhugaða kaup- stað. Síðan sams konar yfirlýsing Katrínar Einarsdóttur, Sleð- brjótsseli, eiganda hálfrar jarð arinnar Fjarðar. Málið var síðan sent Aliþingi, en gleymzt hafði að bera það undir sýslunefnd Norður-Múla sýslu. Þetta leiddi til frestunar málsins um tvö ár. Hireppsnefnd Seyðisfjarðar hrepps lagði síðar málið fyrir sýslunefnd, sem samþykkti á fundi sínum 24. apríl 1893 sveitarskiptinguna Oig kaup- stað arstof nu n ina. Þann 25. maí 1893 boðaði svo hreppsnefndin til almenns fundar fyrir Seyðisfjarðar- hrepp, sem halda sikyldi í skólahúsinu á Vestdalseyri 30. maí það ár til þess þar, að bera undir atkvæði hreppsbúa, skiptingu sveitarinnar og stofnun kaupsbaðar í Seyðis- firði eins og hún var ákveðin á fundinum 30. maí 1891. Fundurinn var boðaður í Austra og þess getið í fundar- boðinu, að öllum væri kunnugt um þau mistök 1891, að málið skyldi ekki sent sýslunefnd og þess vegna talið ófært að leggja það fyrir Aliþingi. Otto Wathne lét máia þessa mynd. Gamli bærinn Fjörður undir Bjólfi. Fundur þessi var haldinn á tilsettum tíma. Stefán Th. Jóns son setti fundinn. Fundarstjlóri var Einar Thorlaeíus, sýslu- maður, og fundarritari Skapti Jósepssön. Nokkrar umræður urðu og fcom fram almennur vilji um skiptingu hreppsins og stofn- un kaupstaðar. Síðan var sam þyfckt, að aillur fyrri undirbún ingur máisins og áilyktanir skyld'i standa óraskað. At- kvæði féllu þannig, að 33 sam- þykkitu, en 6 voru á móti. Kaupstaðarmálið á Alþingi. Þann 24. júlí 1893 var fyrsta umræða í neðri deild Alþingis um frumvarp til laga um bæj- arstjórn á Seyðisfirði. Flutningsmenn voru séra Einar Jónsson 1. þingmaður Norður-Múlasýslu, þá prestur á Kirkjubæ í Hróarstungu, Jón Jónsson 2. þingmaður Norður- Múlasýslu, þá bóndi á Sleð brjót í Jökul'sórbilíð, Sigurður Gunnarsson 1. þingmaður Suð- ur-Múlasýslu, þá prestur á Val- ’þjóf’sstað og Asi í Fel'lahreppi. Fyrsta grein frumvarpsins var svohljóðandi: „Sey ðisf j arðarkaupsbað ur með Búðareyri og Vest- dalseyri, og jarðirnar Vestdal- ur og Fjörður með Fjarðar- seli og Odda skal vera lög- sagnarumdæmi út af fyrir sig, með kaupstaðarréttindum“. Frumvarpið er talsverður bálkur, en í seinustu og 32. gr. þess segir að landshöfðingi geri ráðstöfun til, að lög þessi geti öðlazt fuílt gildi 1. dag janúarmánaðar 1895. Framsögumaður var séra Einar Jónsson. Hann gat þess að áður fyrr hafi Eskiíjörður vierið fcjörinn aðalverzl'U'nar- staður á Austfjörðum. Hins vegar hafi Seyðisfjörður vaxið hraðar og sé nú (1893) orð- inn miHum mun stærri en Esfcifjörður. Menn hafi fund- ið meira og meira til þess, hve óþægilegt sé að hafa efcM full umráð yfir bænum, til að gera þar ýmsar ráðstafanir, er sérstaklega séu fyrir kaup- staði, svo sem varðandi bygg- ingar o.fl. Hamn getur þess og, að Seyð firðingar hafi haldið almenn- an fund til að undirbúa mál þetta til Alþingis og samlþyhkit að fá komið á skiptum á Seyð- isfjarðarhreppi í bæjarfélag og nýjan hrepp. Málið hafi komið inn á þing 1891 en eigi þótt þá nógu vel undirbúið, þar sem gleymzt hafði að hera það und- ir sýslunefnd Norður-Múla- sýslu. Mál’ið kom þá ekki til umræðu. Vorið 1893 sam- þyfckti sýslunefnd N.M. mál- ið einu Mjóði. Seýðfirðingar héldu svo nýj- an fund og kom þar fram að vilji þeirra hafði etoki breytzt í málinu. Þó voru 6 atkvæði á móti því, en það var aðeins lítiM hluti atkvæðagreið- enda. Hann taldi að íbúar hins fyrirhugaða kaupstaðar væru rúmlega 500 talsins. Þann 4. ágúst 1893 var frum varpið samþyfckt í neðri deild Alþingis og sent efri deild. Þann 8. ágúst var málið á dagskrá efri deildar og þá sam- þyklfct að kjósa þriggja manna nefnd til að athuga það. f nefndina voru kosnir Kristján Jónsson, þá fconungskjörinn þingmaður, Guttormur Vigfús- son, frá Geitagerði I Fljótsdal, þá bóndi á Strönd á Völlum, þingmaður S.-Múl. og Einar Ásmundsson, bóndi í Nesi, þingm. S.-Þing. Framjsögumaður nefnidarinn ar var svo Guttormur Vigfús- son, sem skýrði frá því að nefndin hafi rannsakað málið ítarlega og komizt að þeirri niðurstöðu að rétt væri að málið fengi framgang, Við þessa umræðu gerðist það, að landshöfðingi, Magnús Stephensen, Jagðist gegn frum varpinu og taldi tilgangslítið að samþyfckja það. Eðtilegra væri að c..,t>ta Seyðisfjiarðar- 'hreppi í tvo hreppa. í milíitíðinm hafði það gerzt, að neðri deild hafði fellt fram- varp um að fyrirhuguðu bæj- arfógetaembætti ó Seyðisfirði yrði veitt sömu laun og sams konar emfoættum eða kr. 500.-. Lagt hafði verið til, að sýslu- maður N.-Múlasýslu fengi þau laun fyrir að tafca að sér emib- ættið. Við aðra umræðu í efri deild bar Guttormur fram viðauka- tillögu um, að bæjarfógeti á Seyðisfirði skyldi hafa 300 kr. árslaun. Þann 19. ágúst 1893 var -frumivarpið ásamt viðaufcatil- lögunni, sem samþykkt var áður, samþykkt í efri deild og send aftur til neðri deildar. Þann 22. ágúst 1893 var svo frumvarpið samþykkt óbreytt í neðri deild og afgreitt tií landshöfðingja sem lög frá AI- þingi. Á nýársdag 1895 gengu lög- in í gildi og Seyðisfjörður fékk kaupstaðarréttindi. Rétt er að geta þess að um tíma störfuðu tvær hrepps- nefndir í Seyðisfirði. Hrólfur Ingólfsson, bæjarstjóri á Seýð- isfirði sagði mér að 22. júní 1894 hafi þær verið kosnar og hreppsnefnd Innrihrepps hald- ið nokkra fundi áður en bæj- arstjórn tók til starf-a skv. Mn- um nýju lögum um stofnun kaupstaðar. Helztu heimildir sem ég hef stuðzt við eru: Þættir úr sögu Austurlands á 19. öld eftir Halldór Stefáns son. Blaðið Austri annar _ á Seyðisfirði. Síldarsaga ís- lands, eftir Matth. Þórðar- öon, Skútuöldin eftir Gils Guðmundsson. Þingtíðindi og sfcjalasafn Alþinigis. 1945 l.MARZ 1970 í tilefni 25 ára afmælis fyrirtækisins gefum við næstu viku afslátt af öllum vörum verzlunarinnar Einnig setjum við á markaðinn 2 nýjar gerðir af sófasettum og 2 nýjar gerðir af svefnbekkj- um hannaða af Þorkeli G. Guðmundssyni húsgagnaarkitekt Húsgagnaverzlunin BÚSLÖÐ v. NÓATÚN — SÍMI 18520

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.