Tíminn - 07.03.1970, Qupperneq 10

Tíminn - 07.03.1970, Qupperneq 10
20 TIMINN LAUGARDAGUR 7. marz W70. E LEITAR MQRÐINGJA Hugh Travers 33 Afleiðingin er sú, að hann fær sér nýja ástmey, og Skilur við eiginkonuna, sem að sjálfsögðu á því stígi málsins, 'hefur þá þegar leitað sér huggunar hjá öðrum kanlmanni. Og öll sagan endur- tekur sig frá byrjun. Það er ekki sérkennið á af- brýðissömum manni. Ef tii viil v,ar Gréville alls ekki reiður af afbrýðisemi, en þvert á móti reiður, vegna þess að kona hans var honum ekki ótrú! Hafði hann óskað eftir því að sanna sök á hana, en mistekizt það? Hafði hann 'loks í þetta sinn setið fastur í gildru hjónabands- ins? Hafði Suzanne Grévilie verið stungin með rýting, af því að það var eina leiðin til þess að losna við hana? Hugboð Madame Aubry sagði henni, að Julien Gréville, sem myrti konu sina af þeim ástæðum, væri ekiki óhugsanleg- ur. Slíkur verknaður væri að minnsta kosti ekki óeðlilegur manni, sem aldrei hefði elskað neitt nema sjálfan sig (hvað það atriði snerti var hún alveg viss) og sem allur vinskapur, allur heið ur, skemmtanir, vinna, já jafn- vel sjúkdómar, hvíld, hið mikla málverkasafn — var einfaldlega dregið saman til þess að fullnægja þörf hans á að vekja athygli á sér, og takmarkalausri sjálfs- elsku hans. Það var mögúlegt að ihann hefði komið heim örfáum mínútum á undan konu sinni, reiður, vonsvik inn og miður sín. Og það var hugsanlegt að hann hefði séð, hvað 'komið haíði fyrir í vinnu- herbergi hans — málverkið stol- ið og þjónn hans liggjandi með- vitundarlaus. Ef hann svo á sama augnabliki heyrði til konu sinnar út í gang- inum vera að koma inn, hver gat þá sagt um, hvort skarpur heili hans hefði ekki skynjað á örfáum sekúndum, hvilíkt tækifæri væri hér fyrir hendi tii að losa sig við konu sina, án þess að það ve'kti nokkurn grun á honum. En slík ályktun krafðist einn- ig þess, að aliar aðstæður væru fyrir hendi. Að hann þá þegar væri viðbúinn, eða jafnvel þyrfti á því að halda, að flytja nýja ástmey yfir í hjónaband. Madame Aubry lyfti af sér sængurbreiðunni, og settist augnablik fram á rúmbríkina meðan hún hugleiddi hver gæti verið ástmey Grévilles nú. K'lukkan var orðin hálfátta, það var kominn tími til þess að fara að klæða sig. í dag yrði hún köll- uð fyrir yfirmanninn í P.J. Svo mikið vissi hún þó örugglega! Hún teygði sig vel og rækilega og gekk svo inn í baðherbergið. Hún sat á skrifstofu Lebles á annarri hæð, með útsýn yfir að Pont Neuf. Andrúmsloftið var þungt. Það var drungi yfir öllu Palaise Just- ice í dag. Það var eins og'öllum finndist þeir bera ábyrgð á dauða Lenoirs. Og það fannst henni sjálfri. Lebel sat við sitt stóra skrif- borð. Hann hafði ekki svo mikið sem brosað til hennar, en nán- ast tekið á móti henni eins og ókunnugri manneskju. — Ég er á engan hátt viss um, að þér hafið rétt fyrir yður, sagði hann hvað eftir annaj eins og við sjálfan sig. Það var ekki hug- hreystandi. — Nei, ég er auðvitað ekki alveg viss sjálf, sagði Madame Au- bry. Á hverjum morgni fékk Lebel skýrs'lu um hvert mál, sem glæpa- málalögi'egian fékkst við. Þennan föstudag var það Madame Aubry sem var kölluð til hans með þeim fyrstu, eins og hún hafði búizt við. Morðið á Lenoir hafði gert GréviHemálið, eitt af þeim alvar- legustu til lausnar tafarlaust. Hún var í óvenju slæmu hug- arástandi. Og Lebel dró ekki dul á óánægju sína. Þó að hann yrði að neyðast til þess að viðurkenna, að fljótlega hefði tekizt að kom- ast að leyndar-málinu um dauða Lenoirs — til að sjá! hafði hann miklar áhyggjur af því — að mað- ur heföi, eins og hann orðaði það, „leyft þessum Algiermanni að sleppa burtu“. Hvað átti hann við með því? Hafði hún máske ,,leyft“ mannin- um að sleppa burt? Lebel hafði auðvitað einnig lesið dagblöðin. Nokkur þeirra lágu enn á borðinu fyrir framan hann. 'Fréttamennirnir voru farn- ir að beina háðsorðum að leyni- 'lögreglunni. Þeir s'krifuðu einn dálkinn, að ef lögreglan hefði skynsemi til þess að fela fréttamönnum nánara starf og upplýsingar, yrði Gré- vil'le málið leyst á örstuttum tíma. Lögreglan hafði engin spor. Starfsemi lögreglunnar tafðist öll vegna skriffinnskunnair inn- an veggja P.J. Algierski morðing- inn — eða nánar tilte'kið, enn einn algierskur morðingi — var sloppinn í gegnum net lögregl- unnar. Eða hafði lögreglan rétt- ara sagt nokkurt net? Mótorhjóla lýður var það eina sem þeir gátu náð tangarhaldi á. Það v,ar auð- velt að sleppa frá því að myrða, en ekki frá því að stilia bifreið sinni á röngum stað! , Eitt blaðanna hafði meira að segja gefið vísbendingu um Mad- ame Aubry. ,,Það hefur spurt:', að lögregl- an beiti konu til þess að upplýsa einn þátt málsins", hafði hún les- ið á leiðinni til Palais de Just- ice. „Við skulum vona, að hún nái betri árangri, heldur karlfélag ar hennar“. Hafði Lebel einnig lesið þetta? Hún vissi það ekki. En henni féll þetta illa. Eftir langa þögn, tók hann loks aftur til má'ls. Við náum aúðvitað einhvern- tíma í þennan Algiermann. En ‘hvernig vitið þér, að hann standi að einhverju í sambandi við morð in í ihúsi Grévilles? — Er það ekki sennilegt? Þeir hafa ekki fundið málverk- ið. Það eru engar sannanir fyrir því, að máðurinn sem drap Leno- ir, hafi nokkurn tíma komið í námunda við Avenue Foch! —Nei, en. . . — Lenoir hefur vafalaust fund- ið eitt eða annað — þess vegna hefur orðið að gera hann óskað- legan. En það getur tilheyrt allt öðru máii. Það er margt sem Algi ermennirnir þurfa að halda leyndu einmitt nú. — Það er mögulegt. En ég trúi því ekki. Ég er fullviss um, að þegar tekizt hefur að ná þessum manni, mtinum við uppgötva, að það var hann sem drap þjón Gré- villes. Og ég held, að í gegnum hann munum við einnig komast að raun um, 'hver myrti Suzanne Gréville. — Væri þáð e'kki dálítið merki legt fyrirbæri? Trter morðingjar í sama húsi, sama kvöldið? — Nema því aðeins að annað morðið hefði svo að segja orsak- að ihitt! — Á hvaða hátt? — Það get ég ekki sagt yður. Mér finnst aðeins. . . Hún stanzaði í miðri setningu. Hvernig í ósköpunum átti hún að fara að því að gera nákvæma grein fyrir því, sem hún sá fynr sér í einhvers konar ímyndunar þoku? Hann hafði þannig á’hrif á hana, að hún væri eins og skóla- telpa, sem hafði sviikizt um að lesa lexíurnar sínar, og gæti því ekki svarað þeim spurningu-m sem lagðar voru fyrir hana. Hún ósk- aði þess innilega að hún gæti losnað algerlega út úr þessu máli. Þannig hafði það alltaf verið. Þannig var það meðan hún var ungur l'ögfræðinig'Ur. Henni var strax stillt upp í samikeppni við karlmennina, og lagðar fyrir hana spurningar af öðrum mönnum, sem til að sjá báru lítið eða ekk- eða ekkert traust tii hæfileik* hennar. —Og þér álítið, að ef til vill geti það verið Gréville sjálfur, er það ekki rétt? — Það hef ég ekfci sagt. Ég - Sniðkennsla Kvöldnámskeið í kjólasniði hefst 10. marz. Einnig fram haldsnámskeið (dagtímar). Innritun í síma 19178. Sigrún A. Sigurðardóttir Drápuhlíð 48, II. hæð. er laugardagur 7. marz — Perpetua Tungl í hásuðri kl. 13.29. Árdegisháflæ'ði í Rvík kl. 6.10. HEILSUGÆZLA SLÖKKVTLIDIÐ og sjúkrabifreiðir Símj 11100 SJÚKRABIFREIÐ I Hafnarfirði síma 51336. SLYSA V ARÐSTOFAN t Borgar spitalanum er opin allan sólar hringinn. Aðeins móttaka slas- aðra. Sími 81212 Nætur- og helgidagavörzlu Apóteka í Reykjavfk annast vik- una 28. febr — 6 marz Lyfjabúð- i1 [ðunT' oi Gar-V- ^oote:- Næturvörzlu í Keflavíik 7.3. og 8. 3. annast Guðjón Klemensson. Næturvörzlu í Keflavík 9.3. ann- ast Kjartan Ólaifsson. Kvöld og helgidagavörzlu apóteka í Reykjavik vikuna 7. marz — 13. marz annast Apótek Austurbæjar og Borgar-Apótek. FÉLAGSLÍF Kvenfélag Kópavogs. Aðalfundur félagsins verður hald- inn í Félagsheimilinu fimmtudag- inn 12. marz kl. 8.30. Venjuleg að- alfundarstörf. Lagabreytingar. Önnur mál. Stjórnin Kvenfélag Grensássóknar heldur fund mánudaginn 9. marz kl. 8.30 í Safanðarheimiliin'U Mið- bæ. Upplestur, séra Sveinn Viking ur. Kvennadeild Borgfirðingafélag'sins heldur aðalfund í Hagaskóla þriðjudaginn 10. marz kl. 8.30. Sýndar verða myndir o. fl. Prentarakonur. Aðalfundur kvenfélagsdus Eddu verður haldinn þriðjudaginn 10. marz kl. 8.30 að Hverfisgötu 21. Óvænt skemmtiatriði. Stjórnin Tónabær, Tónabær, Tónabær. Félagsstarf eldri borgara. Á mánu daginn hefst félagsvistin kl. 1.30 og teikning og málun kl. 2 e. h. Neskirkja Æskulýðsstarf Neskirkju. Fundir fyrir stúlkur og pilta 13 —17 ára verður i Félagsheimilinu mánudaginn kl. 8.30. Opið hús frá kl. 8. Frank M. Halldórsson. Ferðafélagsferð. Reykjanesferð á sumnudags- morgun kl. 9.30 frá Arnarhóli. Ferðafélag tslands. Nátturúlækningafélag Reykjavíkur Aðalfundur félagsins. verður haldinn í Matstofu félagsins. Kirkjustræti 8, fimmtudaginn 12. rnarz kl. 21. Venjuleg aðalfundar störf. mikilvæg félagsmál. Félagar fjölmennið. Veitingar. Stjórn N.L.F.R. Óhá'ði söfnúðurinn. Afmælishóf i tilefni 20 ára a<- mælis safnaðarins verður haldið sunnudagimi 8. marz i AtthagasaJ Hótel Sögu og hefst með sameigin- legu borðhaldi kl 19.00 Til skemmtunar verða ræðuhöld. einsöagur og tvísöngur, gaman- þáttur. dans o.fl. Aðgöngumiðar verða seldir mámu daginn 2. marz og þriðjudaginn 3. marz i Kirkjubæ kl. 5—8 báða dagana. Safnaðarfólk fjölmennið Stjórn Óháða safnaðarins. Kvenfélag Hallgrímskirkju heldur síðdegissamkomu fyrir aldr að fólk í Félagsheimili kirkjunn- ar á sunnudaginin kem-ur 8. marz klukkan 2.30 eftir hádegi. Kaffi- veitingar, söngur og fleiri skemmti atriði. Árshátíð Siglfirðingafélagsins í Reykjavik og nágrenni verður hald in að Hótel Sögu miðvibudaginn 25. marz n. k. og hefst kl 19 með borðhaldi. Nánar auglýst síðar. ORÐSENDING Kvenfélagasamband tslands. Leiðbeiningarstöð húsrnæðra Hall veigarstöðum. símt 12335 er opin alla virka daea frá ki. 3—5. nema iaugardaga Kvenfélag Háteigssóknar vill vekja athygli á fótsnyrtingu t'yrir aldrað fólk i sókninni. Uppl. og pöntunum veitt móttaka fimm- tudag og föstudag kl. 11—12. 1 síma 82959. KIRKJAN Hábæjarktrkja. Barnaguðsþjómusta kl. 10.30, Messa kl. 2. Séra Magnús Runólfs- son. Hafnarfjarðarkirkja Barna- 'guðsþjónusta kl. 11. Sérá Garðar Svavarsson Ásprestakall Messa í Laugarnes.kirk.ju kl. 11. Einnig barnasaimkoma í Laugarás- þjónusta kl. 2. Séra Gunnar Árna- bíói kl. 11. Séra Grímur Gríms- son. son. Dómkirkjan. Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns. Barnasamkoma í samkomusal Mið- bæjarskólans kl. 11. Séra Óskar J. Þorláksson. Langholtsprestakall Barnasamkoma kl. 10.30. Séra Ár elíus Níelsson. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Sigurður Haufcur Guð- jónsson Óskastund barnanna bl. 4. Kirkja óháða safnaðarins. Messa kl. 2. Minnzt 20 ára afmælis safnaðarins. Séra Emil Björnsson. Hallgrímskirkja. Barnaguiðsþjóniusta kl. 10. Karl Sigurbjörns'son stud. phil. Messa fcl. 11. Dr. Jakob Jónsson. (Ræðu efni :Krilstindómur, pólitík og hungur). Laugarneskirkja. Messa kl. 2 e. h. Barnaguðsþjón- ustan fellur niður Séra Garðar Svavarsson. Kópavogskirkja. Barnasamkoma kl. 10.30. Guðs- Neskirkja. Barnasamkoma kl. 10.30. Æsku- lýðsguðsþjónusta kl. 2. Helgileik ur Ungt fólk leibur og syngur. Gunnar Kristjánsson stud. theol. prédikar. Séra Frank M. Iíalldórs son. Þorlákshöfn. Sunudagaskóli kl. 10.30 f. h. Séra Ingþór Indriðason Háteigskirkja Lesmessa kl. 9.30. Barnasamkoma kl. 10.30. Séra Arngrímur Jóns- son Æs'kulýðsguðsþjónusta kl. 2. Ung-menni lesa pistiil og guðspjall dagsins. Séra Jón Þorvarðsson. Lárétt: 1 Eldfjall. 6 Rugga. 8 Fæði. 10 Mánuður. 12 Fljót. 13 Röð. 14 Æða. 16 Ris. 17 54. 19 Flótti. Krossgáta Nr. 513 Lóðrétt: 2 Maður. 3 Gras- sylla. 4 Aría. 5 Meri. 7 Berja 9 Vatn. 11 Hljóma. 15 Rödd. 16 Gera hreint. 18 Ending. Ráðiiing á gátu nr. 512. Lárétt: 1 Eldur. 6 Mór. 8 Bón. 10 Rás. 12 Um. 13 Næ. 14 Rak. 16 Far. 17 Aka. 19 Smátt. Lóðrétt: 2 LMN. 3 Dó. 4 Urr. 5 Áburð. 7 Ósærð. 9 Óma. 11 Ána. 15 Kám. 16 Fat. 18 Ká.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.