Tíminn - 10.03.1970, Side 3
ÞREDJUDAGUR 10. marz 19:0.
TÍM5NN
IÐNAÐUROGTÆKNf
IÐNAÐURINN 1969
Hagsveifluvog iðnaðarins
fyrir sí'ðasta ársfjórðung 1969
lá fyrir í síðustu viku, og þá
um leið yfirlit yfir allt árið,
en áætlað cr að 1969 hafi heild-
araukning framleiðslumagns
iðnaðar numið 7—8%. Er aukn
ingin þó mjög misjöfn eftir iðn-
greinum.
Hagsveifluvogin nær yfir
einn ársf jórðung í senn. Er hér
um a® ræða úrtaksathugun,
sem gerð er á vegum Félags
ísl. iðnrekenda og Landssam-
bands iðnaðarmanna, og nær til
24 iðngreina. Ekki er spurt um
breytingar í tölum, heldur orð-
um, og er því ekki unnt að
mæla breytingar frá einum árs-
fjórðungi til annars í tölum.
Þannig getur framleiðslan auk-
izt eða minnkað, en úrtakið
segir ekkert til um hvað sú
aukning er nákvæmlega mikil.
Svörin í úrtaksathuguninni
eru síðan vcgin saman með
vinnuvikufjölda viðkomandi
fyrirtækja, og umreiknuð í
hundraðstölur, sem látnar eru
gilda fyrir viðkomandi iðn-
grein. Þótt varað sé við að
leggja of mikið upp úr þessu,
þá er lögð áherzla á að þetta
fyrirkomulag gefi haldgóða
mynd af þróuninni.
ÁSTANDIÐ f HEILD
Þegar á heildina er litið, sýn
ir könnunin talsverða fram-
leiðsluaukningu árið 1969 mið-
að við 1968 (áætlað 7—8%).
Aukningin 1969 var verulega
meiri en aukningin 1968 miðað
við 1967. í byrjun árs 1968 var
nettóniðurstaða könnunarinnar
sú, að fyrirtæki, sem höfðu 8%
af heildarmannafla úrtaksins í
þjónusitu sinni, höfðu minni
framleiðslu en 1967, en í árs-
byrjun 1970 er nettóniðurstað-
an sú ,að fyrirtæki með 43%
mannaflans sýna framleiðslu-
aukningu, og er þetta mikil
breyting.
Einnig kemur í Ijós, að húizt
er við frekari framleiðsluaukn-
ingu á þessum fyrsta ársfjórð-
ungi 1970, en það er andstætt
því sem áætlað var um fyrsta
ársfjórðung síðasta árs um ára-
mótin 1968—1969.
Samfara þessari framleiðslu-
aukningu á síðasta ári varð sölu
aukning, en hún virðist samt
ekki alveg hafa fylgt fram-
leiðsluaukningunni, því birgðir
fullunninna vara jukust á síð-
asta ári, og einnig nokkuð hrá-
efnabirgðir.
Nýting afkastagetu batnaði
nokkuð á síðasta ársfjórðungi
1969, og einnig hefur starfs-
mönnum fjölgað, og útlit fyrir
nokkra frekari aukningu í byrj
un þessa árs. Vinnutími hefur
cinnig lengzt eittlivað smáveg-
is. Allt eru þetta merki um
þróun í rétta átt. Kemur þetta
og heim við, að fyrirliggjandi
pantanir og verkefni hafa r.uk-
izt. f ýmsum greinum eru einn-
ig fyrirhugaðar fjárfestingar
umfram það sem var á síðasta
ári.
Það virðist því mega lesa út
úr þessum upplýsingum, að
þróunin í heild sé fram á við,
þótt hvorki sé um stökk né sér-
stakan fjörkipp að ræða.
Þegar einstakar iðngreinar
eru hins vegar skoðaðar, kemur
í Ijós að sumar ganga mjög
vel en aðrar standa í stað eða
dragast jafnvel saman.
Frá því verður nánar sagt í
næsta þætti á morgun.
Elías Jónsson.
15
TRAKTORAR
FULLKOMIN TÆKI — GLÆSILEGT ÚTLIT
FORD traktorar hafa aldrei verið eins tæknilega full-
komnir og nú, né útlitið glæsilegra. Samt getum vér enn
um sinn, boðið yður FORD traktora á óbreyttu verði,
þó miklar verðhækkanir séu á almennum vélamarkaði.
FORD traktorar eru í fjórum stærðum og hentar yður
i
!
»
i
i
i
I
i
í
l
í
i
!
i
i
i
Gagnvart sérhverju atriði varðandi
glernotkun, tryggið þá að fá nýjustu
og beztu ráðleggingar með því að leita
tii tækniráðleggingaþjónustu Pilking-
ton, hinnar leiðandi stofnunar heims í
sínu fagi.
PILKINGTON GlASvS.
Polaris h.f., Austursfræti 18.
Hringið í 21085 til upplýsinga um Pilkington „Insulight" (R)
Glastoglas einangrunargler. Heilsteypt glersamsetning, gjörsamlega
sambrædd, 5 eða 7 mm. loftrúm, útilokuð móðumyndun milli glerja,
fjöldi staðlaðra stærða. upp í 1270x1778 m. Árið 1968 gerði Rann-
sóknastofnun norska byggingariðnaðarins. Þrándheimi, tilraunir
með þessa glertegund, og uppfyllti hún sett skilyrði einangrunar-
glers með 10 ára ábyrgð. Gler þetta er sérstaklega framleitt fyrir
rerktaka á íbúðarblokkum og skricstofuhúsnæði.
í
í
I
I
I