Morgunblaðið - 24.10.2005, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. OKTÓBER 2005 39
DAGBÓK
Fundur með byggingaverktökum og fasteignasölum
Alcoa Fjarðaál boðar til fundar um húsnæðisþörf í tengslum við
fyrirhugaðar ráðningar starfsmanna til álversins við Reyðarfjörð.
Fundurinn verður í Safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju,
miðvikudaginn 26. október og hefst kl. 9:00.
Léttar kaffiveitingar
Húsnæðisframkvæmdir
á Mið-Austurlandi
www.alcoa.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
A
LC
2
98
98
10
/2
00
5
Félag Sameinuðu þjóðanna efnir í sam-vinnu við Upplýsingaskrifstofu SÞ fyrirV-Evrópu (RUNIC) til málþings í tilefniaf 60 ára afmæli SÞ á milli kl. 10.15 til 12
í dag. Á málþinginu verður sjónum m.a. beint að
starfi öryggisráðs og mannréttindaráðs SÞ. Að
málþinginu loknu verður ný miðstöð SÞ á Lauga-
vegi 42 formlega opnuð. Allir eru velkomnir og að-
gangur ókeypis að málþinginu.
Séra Bernharður Guðmundsson, formaður Fé-
lags Sameinuðu þjóðanna, segir að félagið hafi ver-
ið stofnað fljótlega eftir stofnun SÞ sjálfra fyrir 60
árum. „Hlutverk félagsins er að stuðla að auknum
skilningi og áhuga á starfi Sameinuðu þjóðanna.
Við höfum m.a. sent kynningarbæklinga til 10.
bekkinga og skipulagt í samstarfi við mennta-
málaráðuneytið og Námsgagnastofnun kynningar
á starfsemi Sameinuðu þjóðanna innan skólakerf-
isins. Af öðrum verkefnum er hægt að nefna að fé-
lagið fékk fólk til að segja frá reynslu sinni af því að
vinna fyrir Sameinuðu þjóðirnar í fjarlægjum lönd-
um á mánaðarlegum fræðslufundum síðasta vetur.
Fundum af þessu tagi verður væntanlega fram-
haldið í vetur.“
Að loknu málþinginu verður opnuð ný Miðstöð
Sameinuðu þjóðanna á Laugavegi. Hvar hafið þið
verið til húsa?
„Við vorum í ágætu húsnæði við Skaftahlíð. Þar
sem 365 miðlar þurftu á því húsnæði að halda urð-
um við að færa okkur um set. Við erum ákaflega
ánægð með að nýja miðstöðin skuli vera í alfaraleið
á Laugaveginum. Fólk getur nálgast bæklinga og
fengið aðstoð við að leita uppi upplýsingar um hinar
ýmsu deildir og störf Sameinuðu þjóðanna í mið-
stöðinni. Hingað til hefur mestmegnis leitað til okk-
ar skólafólk í tengslum við ritgerðir og þvíumlíkt.
Svo hefur verið nokkuð um að fólk hafi leitað til
okkar vegna áhuga á að starfa fyrir Sameinuðu
þjóðirnar.“
Eruð þið með starfsmann allan daginn í miðstöð-
inni?
„Starfsfólk á vegum Unicef og Unifem eru í mið-
stöðinni allan daginn. Við erum með mann í hluta-
starfi en stefnum að því að hækka starfshlutfallið
vegna mikilla verkefna.“
Þátttakendur í málþinginu verða Geir H. Haarde
utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, Árni Snævarr, upp-
lýsingafulltrúi hjá Sameinuðu Þjóðunum, Pétur
Leifsson lögfræðingur, Þórdís Ingadóttir, sérfræð-
ingur hjá lagadeild Háskólans í Reykjavík, Davíð
Logi Sigurðsson blaðamaður, Einar Benediktsson
sendiherra og séra Bernharður.
Félag Sameinuðu þjóðanna
60 ára afmæli SÞ fagnað
Séra Bernharður
Guðmundsson er fædd-
ur í Kirkjubóli í Önund-
arfirði 28. janúar 1937.
Hann lauk guðfræði-
prófi 1962 og meist-
araprófi í fjölmiðlun
1978. Hann var vígður
til Ögurþinga 1962 og
auk preststarfa hefur
hann starfað á vegum
kirkjunnar í Eþíópíu og
á vegum lútherska heimssambandsins í Genf í
Sviss. Hann hefur verið rektor Skálholtsskóla
frá 2001 og formaður Félags Sameinuðu þjóð-
anna í tvö ár. Kona hans er Rannveig Sig-
urbjörnsdóttir og eiga þau þrjú börn og þrjú
barnabörn.
Lesendabréf frá öreiga
ÉG heiti Björgúlfur Egilsson og er
1,92 m á hæð, seinast þegar ég var
mældur, fæddur 28. mars 1957 að
Suðurgötu 8. Ég er núorðið með mús-
argrátt hár (kommune), aðeins farið
að þynnast. Finnst ég vera fjallmynd-
arlegur. Sjálfhverfur, besservisser.
Eins og útvarpsstjóri. Eftir þessa lýs-
ingu þarf að sjálfsögðu enga mynd.
Spurning: Er ekki fullt starf að
vera ríkisútvarpsstjóri? Hvað um
Jónas, Vilhjálm, Andrés, Heimi og
Markús? Voru þeir að slugsa? Þeim
nægði að koma fram í sjónvarpi einu
sinni á ári, fáum til mikillar ánægju.
Talandi um sjálfhverfu. Ég man þá
tíð að kerlingar og karlar hittust við
eldhúsborðin og sögðu kjaftasögur
hvert af öðru yfir kaffibolla og Ches-
terfield-sígarettum, tóku oní sig og
sögðu gvöð á innsoginu, plebbinn í
næsta húsi.
Núna bloggar fólk. Gróa á Leiti er
komin á Netið. Bloggarar eru allt frá
dóms- og kirkjumálaráðherra upp í
vinstri græna sagnfræðinga, ekki nóg
með það, heldur er sprottin upp heil
stétt blaðamanna, sem virðast vera á
fullu kaupi við það eitt, að sítera þess-
ar blaðursíður í sínum miðlum. Einu
sinni þótti það bónus í kassann að
vera blaðamaður, skríbent, núna er
það að mestu leyti sótt af öðrum miðl-
um. Eftiröpun. Helgarblöðin uppfull
af viðtölum við kollega. Ég er vafa-
laust bölvaður kverúlant og besser-
visser. Lýðræði er ekki til, það er
mesta lygi mannkynssögunnar. Eina
sem virkar er upplýst einræði. Það
þarf bara að finna þann upplýsta!
Lifi Kristján XI.
Ómakleg gagnrýni
ÉG var að lesa Ljósvakann í Morg-
unblaðinu 20. okt. sl., gagnrýni á að
ríkissjónvarpið sýndi þáttinn „Hrjóta
ekki allir?“ á besta útsendingartíma.
Vil ég benda skrifara á að þátturinn
vakti mikla athygli og fannst mér
óþarfi að gera grín að svona þætti.
Skrifari gerir sér ekki grein fyrir því
að hér á landi bíða um nokkur þúsund
manns eftir svona vél og grímu til að
hægt sé að ná andanum. Var ég ekki
ánægð með þessi skrif.
Eldri borgari.
Fyrirspurn
MIG langar að spyrja hvort nýi út-
varpsstjórinn hennar Þorgerðar
Katrínar sé svo lágt launaður að hann
þurfi að lesa fréttir og inn á auglýs-
ingar og fá fyrir það 175 þús. á mán-
uði eins og sagt var í Fréttablaðinu.
Vil ég láta í ljós óánægju með nýja
útvarpsstjórann og dagskrána yf-
irleitt, sem er ömurleg. Eins finnst
mér nýja Kastljósið ekki gott, þetta
er alltof langur þáttur.
Þóra Skarphéðinsdóttir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Bf4 Bg7 4. e3 d6 5.
h3 0–0 6. Bc4 c6 7. 0–0 b5 8. Be2 Bb7 9.
Rbd2 Rbd7 10. c3 a6 11. a4 Rb6 12. a5
Rbd7 13. Bh2 c5 14. c4 bxc4 15. Rxc4 cxd4
16. exd4 Rd5 17. He1 R7f6 18. Rfd2 Hb8
19. Da4 Re8 20. Re3 Rec7 21. Bc4 Ba8 22.
Rxd5 Bxd5 23. Hab1 Bxc4 24. Dxc4 Rb5
25. Rf3 Dxa5 26. Hxe7 Hbc8 27. Dd5 Db4
28. Hee1 Hfe8 29. Hxe8+ Hxe8 30. Dc6
He2 31. Dc8+ Bf8 32. Bf4 Rxd4 33. Rxd4
Dxd4 34. Be3 De4 35. Hd1 Dc2 36. Hc1
Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í
Menntaskólanum við Hamrahlíð. Bene-
dikt Jónasson (2.283) hafði svart gegn
Ágústi Sindra Karlssyni (2.307).
36. … He1+! og hvítur lagði niður vopnin
þar sem hann tapar drottningunni eftir
37. Hxe1 Dxc8 eða verður hróki undir eft-
ir 37. Kh2 Hxc1.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Í FORSAL þjóðdeildar Lands-
bókasafns er lítil sýning helguð
Bessastaðaskóla, en í ár eru liðin
200 ár frá stofnun hans. Á sýning-
unni eru fágætisbækur sem komu
frá skólasafni Lærða skóla þ.á m.
helgisiðabók frá 1513 og náms-
bækur skólapilta. Einnig er á sýn-
ingunni þrjú myndverk eftir Jón
Helgason biskup (1866–1942) sem
varðveitt eru í Minjasafni Reykja-
víkur. Á þeim má sjá Hólavalla-
skóla, forvera Bessastaðaskóla, og
Reykjavík á tímum Lærða skóla.
Sýningunni lýkur 1. desember.
Sýning helguð
Bessastaðaskóla
Já, ég þori,get og vil!
KOMIN er út bókin Leynilandið eftir
breska metsöluhöfundinn Jane John-
son. Í henni segir frá Ben Arnold sem
hyggst kaupa sér bardagafiska í
gæludýrabúð. Heimsókn hans þang-
að markar upphaf að furðulegu æv-
intýri þegar talandi köttur vísar hon-
um veginn til leynilegs töfralands.
Framhald af Leynilandinu hefur þegar
verið ritað og þriðja bókin mun koma
út. Bandarískt kvikmyndafyrirtæki
hefur óskað eftir rétti að verkinu.
Höfundurinn var í mörg ár útgáfu-
stjóri JRR Tolkiens og tengdist gerð
kvikmyndanna eftir Hringadrótt-
inssögu. Fylgibækur hennar með
myndunum hafa selst í milljónum ein-
taka. Hún hefur einnig, undir dulnefn-
inu Jude Fisher, samið þriggja binda
ævintýra- og spennusögu fyrir 15 ára
og eldri og hefur hún verið gefin út í
tíu löndum og lengi átt sæti á met-
sölulistum.
Leynilandið er 247 blaðsíður. Um-
brot annaðist Helgi Skj/Öflun ehf.
Prentsmiðjan Oddi hf. sá um prent-
vinnslu. Bókaútgáfan Æskan ehf. gaf
út. Viðmiðunarverð er 2.880 kr.
Leynilandið
Ein áskrift... ...mörg blöð