Morgunblaðið - 01.11.2005, Qupperneq 4
JAKOB Sigurðsson, körfuknatt-
leiksmaður hjá Bayern Leverkusen í
þýsku úrvalsdeildinni, gerði 10 stig
fyrir lið sitt þegar það tapaði á
heimavelli fyrir Karlsruhe 89:92.
LOGI Gunnarsson, sem leikur
með Bayreuth í 2. deild suður í
Þýskalandi, gerði 18 stig fyrir liðið
sem vann Breitengüssbach 93:75.
NORÐMAÐURINN Ståle Sol-
bakken hefur verið ráðinn sem þjálf-
ari danska úrvalsdeildarliðsins FC
Kaupmannahöfn og tekur hann við
af Hans Backe um næstu áramót.
Solbakken sem er 37 ára gamall lék
á sínum tíma með liðinu en varð að
hætta sem atvinnumaður árið 2001
vegna hjartagalla. Solbakken hefur
þjálfað norska liðið Ham/Kam frá
árinu 2002 en liðið hélt sæti sínu í
norsku úrvalsdeildinni í ár.
FORSVARSMENN þýska knatt-
spyrnuliðsins Schalke boðuðu leik-
menn liðsins á fund með stjórn og
þjálfara liðsins eftir 1:0 tap liðsins
gegn Hamburger SV í deildinni um
helgina en þetta var annar tapleikur
liðsins í röð en Frankfurt gjörsigraði
Schalke, 6:0, í þýsku bikarkeppninni
í liðinni viku. Fundurinn stóð yfir í 3
tíma en Schalke er nú 10 stigum á
eftir Bayern München sem er í efsta
sæti deildarinn og mæti Schalke
tyrkneska liðinu Fenerbache í
Meistaradeild Evrópu í þessari viku.
FORRÁÐAMENN spænska knatt-
spyrnu liðsins Athletic Bilbao hafa
sagt Jose Luis Mendilibar, þjálfara
liðsins, upp störfum og ráðið Javier
Clemente, fyrrverandi landsliðs-
þjálfara Spánar, í hans stað. Liðið er
í neðsta sæti spænsku deildarinnar
en liðið hefur aðeins unnið einn leik
af 10 til þessa í deildarkeppninni.
BANDARÍSKI kylfingurinn Casey
Martin sem er 33 ára gamall segir að
hann sé hættur að eltast við atvinnu-
mennskuna eftir að hann komst ekki
í gegnum fyrsta stig úrtökumótsins
fyrir PGA-mótaröðina. Martin var
mikið í fréttum fyrir nokkrum miss-
erum er hann fór í mál við PGA-
mótaröðina þar sem honum var
meinað að nota golfbifreið í keppn-
um á þeirra vegum en Martin er með
sjúkdóm sem gerir það að verkum að
blóðrásarkerfið í öðrum fæti hans
virkar ekki sem skyldi.
HANN á því erfitt með gang og
þreytist fljótt en forsvarsmenn PGA
vildu ekki veita honum undanþágu í
keppnum á sínum vegum. Martin lék
á PGA-mótaröðinni árið 2000 og náði
hann 23. sæti á einu móti sem var
hans besti árangur. Í 29 mótum á því
tímabili náði hann aðeins að „öngla
saman“ 8,7 millj. kr. en það dugði
ekki til þess að hann fengi áfram-
haldandi keppnisrétt á mótaröðinni.
FÓLK
Þetta gæti orðið góð skemmtisagaog ég hef ekkert á móti konum
sem hafa það að atvinnu að leika golf,
en það sem er að gerast er í raun og
veru farsakennt,“ sagði Van de Velde
áður en keppni hófst á lokamóti
Evrópumótaraðarinnar á Valderama-
vellinum á Spáni.
„Það er mitt mat að það eigi að
draga mörkin með skýrum hætti. Ef
konur geta tekið þátt á karlamótaröð-
inni þá eigum við að geta tekið þátt á
kvennamótaröðinni. Ég ætla mér að
sækja um þátttökurétt á Opna breska
meistaramótinu fyrir konur en til
þess þarf ég að fara í gegnum úrtöku-
mót á þeirra vegum. Ef ég fæ leyfi til
þess að taka þátt þá mun ég raka hár-
in af fótleggjunum á mér og leika í
Skotapilsi. Ég skil bara ekki hvað er í
gangi þegar konur fá tækifæri á
karlamótum og ég mun fara eins
langt með málið og ég get ef ég fæ
ekki svör vegna umsóknar minnar um
Opna breska meistaramótið í kvenna-
flokki. Ég er að vekja athygli á þessu
máli og er ekki að taka afstöðu í bar-
áttu kvenna fyrir jafnrétti. Það skipt-
ir meira máli að þeir sem stjórna at-
vinnumótaröðum víðsvegar um heim
komi sér saman um reglur hvað varð-
ar langa púttera og kanni hvort kylfur
sem kylfingar nota á mótum séu inn-
an þeirra marka sem reglugerðir
kveða á um,“ segir franski kylfingur-
inn en hann vakti heimsathygli árið
1999 á Opna breska meistaramótinu á
Carnoustie vellinum þar sem hann
missti niður þriggja högga forskot á
lokaholunni og tapaði síðan í bráða-
bana gegn Paul Lawrie.
Opna breska meistaramótið í
kvennaflokki fer fram á Royal
Lytham-vellinum 3.–6. ágúst á næsta
ári og er í umsjón breska kvennagolf-
sambandsins. Í reglugerð um mótið
kemur fram að aðeins konur geti tek-
ið þátt í því og ef grunur leiki á um að
keppandi sé ekki af réttu kyni verði sá
að sanna kynferði sitt með því að
gangast undir skoðun hjá lækni.
„Það er ekki hægt að breyta regl-
unum aðeins með þeim hætti að þær
virki í aðra áttina. Ég var nálægt því
að sigra á Opna breska meistara-
mótinu og í keppni gegn konum þá tel
ég mig eiga góða möguleika þar sem
að teighöggin hjá körlum eru lengri
en hjá konum. Það er kannski tími til
komin að keppt verði í opnum flokki í
frjálsíþróttum, í 100 metra hlaupi eða
að Mike Tyson fari í hnefaleika gegn
konu,“ bætti hann við en van de Velde
er afar ósáttur við að fimm efstu kylf-
ingar á stórmótunum fjórum á ári
hverju í kvennaflokki fái tækifæri til
þess að taka þátt á úrtökumótum fyr-
ir Opna breska meistaramótið.
„Ég er alls ekki að gera lítið úr
kylfingum á borð við Anniku Sören-
stam eða Michelle Wie. Ég tel einfald-
lega ekki rétt að konum sé boðið að
taka þátt í karlamótum.“
Franski kylfingurinn Jean van de Velde segir að hann ætli
sér að taka þátt á Opna breska meistaramótinu fyrir konur
„Í Skota-
pilsi og
rakaðir
fætur“
FRANSKI kylfingurinn Jean van
de Velde segir að hann ætli sér
að taka þátt á Opna breska
meistaramótinu fyrir konur og
mótmæla með þeim hætti að
konum sé leyft að taka þátt í
mótum á karlamótaröðunum í
Evrópu og Bandaríkjunum.
Reuters
Jean van de Velde vakti mikla athygli, þegar hann reyndi að slá
kúlu sína upp úr vatni á Opna breska meistaramótinu 1999.
KYLFINGURINN Sean Fister
sló lengsta upphafshöggið á
heimsmeistaramóti þar sem
keppt var um hvaða kylfingur
gat slegið lengst allra í upphafs-
höggi. Fister náði að láta boltann
enda í 345,5 metra fjarlægð frá
sér eftir höggið og fékk hann
rúmlega 6 millj. kr. í sinn hlut.
Annar varð Danny Luirette en
hann náði 338 metra löngu
höggi.
Í kvennaflokki sigraði Stacey
Shinnick með 285 metra löngu
höggi og í keppni eldri kylfinga
sigraði Gerry James en hann
náði að slá boltann 334,5 metra. Í
elsta keppnisflokknum sigraði
Steve Griffith en með 292,5
metra löngu höggi.
Í keppninni nota kylfingar
mjög sérhæfðar kylfur, drævera,
sem eru með lengra skafti en
venjulegar kylfur og oftar en
ekki er fláinn eða hallinn á kylfu-
hausnum 4–6 gráður, en á venju-
legum dræverum er fláinn eða
hallinn á bilinu 8,5–11,5 gráður.
Lengsta högg sem mælst hefur
hjá Fister er 405 metrar og var
hann því nokkuð langt frá sínu
besta.
Fister er högglengstur
ins. Hann hefur aðeins einu sinni
sigrað á Evrópumótaröðinni, árið
2002, í Portúgal en á því móti gátu
keppendur aðeins leikið 36 holur
vegna votviðris.
Pettersson, sem er 28 ára, er
þriðji sænski kylfingurinn sem
sigrar á PGA-mótaröðinn en Jesp-
er Parnevik og Gabriel Hjertstedt
hafa einnig sigrað. Parnevik hefur
reyndar ekki sigrað frá árinu
2001.
Hidemichi Tanaka frá Japan
varð þriðji ásamt Bandaríkjamönn-
unum Stewart Cink, Bo Van Pelt,
Tag Ridings, Tim Herron, Tom
Pernice og Steve Lowery. Sá síð-
astnefndi var í efsta sæti mótsins
fyrstu þrjá keppnisdagana en hann
lék á 75 höggum á lokadeginum og
átti því ekki möguleika á sigri.
SÆNSKI kylfingurinn Carl Pett-
ersson sigraði með minnsta mun á
Chrysler-mótinu í golfi á PGA-
mótaröðinni á sunnudagskvöld er
hann lék lokahringinn á pari vall-
ar, 71 höggi, en þetta er í fyrsta
sinn sem Pettersson sigrar á PGA-
mótaröðinni. Hann lauk keppni á 9
höggum undir pari og var einu
höggi betri en Bandaríkjamað-
urinn Chad Campbell sem var á 8
höggum undir pari vallar. Besti ár-
angur Pettersson fyrir mótið var
2. sætið á Buick-mótinu árið 2003.
„Mér líður stórkostlega en ég er
varla búinn að átta mig á hlut-
unum. Þetta er ótrúlegt, mjög sér-
stakur dagur, ég er hræðrur og
veit varla hvað ég á að segja,“
sagði Pettersson eftir að hann
hafði fengið afhent verðlaun móts-
Loks fagnaði Pettersson
Reuters
Carl Pettersson