Tíminn - 18.04.1970, Síða 3

Tíminn - 18.04.1970, Síða 3
LAUGARDAGUR 18. aprfl 1970. 3 TÍMINN ENN LOÐNA í fyrrakvöld hélt Félag matvörukaupmanna og Félag kjötverzlana almennan félagsfund í Neðribæ, og var þar rætt um skipulagningu og staðsetningu verzlana^F ramsögumaður var Guðmundur G. Þórarinsson, verk- fræðingur, en á eftir voru umræður og fyrirspurnir. Myndin er frá fundinum og sýnir Guðmund flytja fram- söguerindi sitt. (Tímamynd-Gunnar) HEILBRIGÐISMIÐSTÖÐIN Á HÚSAVÍK TEKIN í NOTKUN ÞJ-Húsavík, föstudag. HeilbrigðismiðstöS Húsavíkur verður formlega tekiu í notkun á morgun, en hún verður til húsa í sjúkrahúsbyggingunni nýju. Þrjár deildir sjúkrahússins taka einnig til starfa jafnframt, rann- sóknarstofa, skiptistofa og rönt- gendeild. Að öðru leyti mun nýja sjúkrahúsið taka til starfa í nagsta mánuði. Hlutverk heilbrigðismiðstöðvar- innar er að annast störf heilsu- verndarstöðvar fyrir Húsavík og auk þess að vera læknamiðstöð fyrir Húsavíkurlæknishérað og ef þörf krefur einnig fyrir nágranna héruðin. Þá skal stofnunin halda full- komna- hieilsiufarsskrá utn íbúa á starfssvæðinu. Undanfarin ár hef- ur Húsavíkurbær rekið vísi að slíkri starfseimi í héraðslæknis- bústaðnum. í hinni nýju heilbrigð ismiðstö'ð munu auk læknamið- stöðvar starfa læknir og hjúkrun- arkona, að heilsuverndarstörfum. Læknar í Húsavík fá þarna góða aðstöðu til almennra lækninga. BANGSARNIR ÞRIR í AUSTUPBÆI- ARBÍÓI f dag kl. 3 verður barna- skemmtun í Austurbæjarbíói á vegum Fóstrufélagsins. Á skemmt- uninni koma fram um 50 börn af barnaheimilum Sumargjafar hér í borginni. Skemmtumn er ætluð bæði börnum og fullorðnum og kostar aðgangurinn 75 krónur. Myndin var tekin á æfingu í gær. Er hér verið að leika söguna um bangsana þrjá og litlu stúlkuna, sem heimsótti lieimili þeirra, þeg- ar þeir voru fjarverandi. (Tíma- mynd Gunnar' Skcmmtunin verð- ur endurtekin á sumardaginn fyrsta og þá á vegum Sumargjaf- ar. Húsnœði nýju stöðvarinnar er á 1. hæð sjúkrahúsbyggingarinnar, þar eru herbergi fyrir lækna til skoðunar 4 sjúiklinga í senn. Auk þess era biðstofur, skriflstofur og önnur aðstaða fyrir lækna og hjúkrunarfól'k. Húsnæðið er í tengslum við rannsóknarstofu, skiptistofu og röntgendeild nýja sjúkrahússins, og taka þessar deildir einnig til starfa á morgun, en að öðru leyti verður sjúkrahúsið tekið í notkun í naesta mánuði. Umferðartakmarkanir leyfðar við meiri háttar útisamkomur SKB-Reykjavík, föstudag. í gær mælti Stefán Valgeirsson fyrir breytingartillögu í umferðar- Iögum er hann flytur ásamt Braga Sigurjónssyni, S teingrími Páls- syni og Gísla Guðmundssyni. Er þessi tillaga flutt samkvæmt beiðni nokkurra ungmennafélaga og í samráði við Dómsmálaráðu- neytið. Er breytingartillagan á þá leið að við lögin bætist svohljóðandi málsgrein: „Við samkomustaði, þar sem meiri háttar útisamkom- ur fara fram, getur lögreglustjóri, sett ákvæði um takmörkun um- ferðar um vegi á samikomusvæð- inu, sem hann telur nauðsyn á, m. a. vegna gjaldtöku á leyfðri samkomu, enda annist lögreglu- menn eftirlit með framkvæmd slíkrar takmörkunar.“ Breytingartillaga þessi var sam- þykikt með 20 atkvæðum giegn 2. TSL HORNA- FJARÐAR AA—Hornafirði, föstudag. Hinigað kom Seiley í dag með fullfermi af loðnu. Enn eru um tíu 'bátar á loðnuiveiðum. Seley fékk þenna.n afla austan við Ing- olfshöfða, en annans hefur verið lóðað á loðnu hér allt austur und- ir. Verksmiðjan hefur ennþá sem svarar viku vinnu af loðnu óbrætt, og var gott að flá þessa viðbót. Hér hafa koimið á land um 5600 lestir af bollfiski frá áramótum. Hefur veiði hjá netaþátum verið saamiieg að undanförnu. Aflalhæsti báturinn í dag er Fanney með um 700 lestir. Þáttaka skólafólks kjarabaráttu Skemmtun Framsóknar- félaganna í Arnessýslu Hafsteinn 11 SJ-Reyikjavík, föstudag. í kvöld efna Hagsmunasamtök skóiaiflólks til flundar um þátttöku Skólaföliks í kjaraíbaráttu verkalýðs hueyfingarinnar í 1. ikennsilustofu Háslkóla íslands. M. a. verður rætt um eftirtfarandi: a) er orðið tímabœrt fyrir n-emendiahreyfiniguna á íslandi að stíga fram sem sjáifstætt afll til þjóðfélagslegrar umibreytinga? b) getur skólafólk almennt set- ið hjá meðan iðnnemar taka upp baráttu fyrir verkfallsrétti? c) á að efna til skólaverkfalla til .stuðnings við ífcrötfur verkalýðs- hreyfingarinnar og ‘kröfuna um verkfallsrétt iðnnema? Ekki var v-itað um niðurstöður fundarins er blaðið fór í prentun. Hin árlega skemmtun fram sóknarfélaganna í Árnessýslu verður í Selfoss- bíói síðasta vetr- ardag og befst kl. 21. Dagskrá: 1. Ávarp: Haf- steinn Þorvalds- son. 2. Karlakór Selfoss syngim. 3. Jörundur Guð- wundsson skemmtir. Hljómsveit Þorsteins Guðmunds- sonar leikur fyrir dansi. Gömlu fulltrúamir óbægir Þegar fundur átti að hefjast á tilteknum fundartíma í borg- arstjórn Reykjavíkur á fimmtu daginn, varð mikið fjaðrafok hjá íhaldinu, því að a'ðeins sex fulltrúar þess voru koninir þegar setja átti fund. Með svo skertum liðskosti virtist ílialdið alls ekki þora að hefja fund, og var nú beð- ið í fimmíán roínútur. Þá kom 7. íhaldsfulltrúinn loks á vett- vang, og áræddi forseti þá loks að setja fund, en fór þó að öllu með gát. Áttundi og síðasti fulltrúinn kom svo skömrou síðar, og var þungum steini augsýnilega létt af for- sjóninni. En allur er varinn góður, og því hafði íhaldið ní- unda fulltrúannn lengi fundar við höndina til vara, ef einhver hinna gömlu og óþægu fulltrúa skyldi hlaupa út. Verðgæzlufrumvarpið Þar sem Morgunblaðið hefur tínt up nokkrar setningar úr grein, sem Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS, hefur skrifað í tímaritið Frjálsa verzlun um verðgæzlufrumvarp rikisstjórn arinar, augsýnilega í blekláng- arskyni,, þykir Tímanum rétt a® takavhér greinina upp: „Ég átti sæti í nefnd þeirri, sem vann að samningu frum- varpsins, sem fulltrúi Sam- bands ísl. samvinnufélaga. Stjórn Sambandsins, að einum stjórnarmanni undanskildum, var samþykk áritun miimi undir nefndarálitið. Stjórn Sambaudsins var þannig sam- þykk frumvarpinu. Þessi af- staða var ábyrg og byggð á reynslu núgildinda verðlags- laga og framkvæmd þeirra. Afgreiðslu frumvarpsins var pólitískur skolla'eikur á hæsta stigi. Má þar fyrst nefna, að einn af ráðhemmum skyldi fella frumvarpi'ð, sem var stjórnarfrumvarp. f öðru lagi vekur það furðu, að frumvarp- ið skyldi vera tekið til af- greiðslu þegar einn af ráðherr- unum var á móti því. f þriðja lagi tel ég, að Sjálfstæðisflokk- urinn hafi ekki neytt þess afls, sem hann hefur innan ríkis- stjórnarinnar varðandi af- greiðslu frumvarpsins á Al- þingi. f fjórða lagi láðist ríkis- stjóminni að leita samstarfs við stærsta stjórnarandstöðu- flokkinn um samþykkt frum- varpsins. f fimmta lagi kom mér á óvart, að allir þingmenn Framsóknarflokksins í Efri- deild skyldu greiða atkvæði á inóti frumvarpinu. Samstaða flokksius um að vera á móti frumvarpinu var að mínu viti óviturleg og stangaðist á við stefnu flokksins í þessum mál- um. Varðandi framtíðarhorfur í verzluninni þá eru þær væg- ast ságt mjög alvarlegar, þeg- ar um smásöluverzlun með nau'ðsynjar er að ræða. Ég tel, að ríkisstjórnin, sem hefur oddaaðstöðu í verðlagsnefnd, gæti bætt úr þessu með því að sjá svo um að migildandi verð- lagslög verði framkvæmd í fullu samræmi við lögin, en á það liefur skort á undauförn- um árum.“

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.