Tíminn - 07.05.1970, Qupperneq 1

Tíminn - 07.05.1970, Qupperneq 1
 BLAÐ II "ir* ;■ . . • •;•■ 101. tbl. — Fimmtudagur 7. maí 1970. — 54. árg. EJ-Reykjavík, miðvikudag. Klukkan rúmlega átta í kvöld hélðu blaðamcnn við Tímann flug- leiðis tii Heklu að skoða gosið og mynda það. Voru þá 7—8 vindstig við Heklu og aðeins mögulegt að komast að cinu þeirra þriggja gos- svæða, sem þar eru virk þessa stundina. Hins vegar var skyggn- ið betra en það hafði verið í all- an dag. Ferðin að Heklu tók um klukbustund vegna hins sterka mótvinds, en aðeins tók 25 mín- útur að fljúiga til baka til borgar- innar. Þegar kotnið var inn yfir Þing- vallavatn, sást reykmökkurinn, sem kom úr syðsta gossvæðinu. Það svæði er suðaustur af Heklu, og rennur hraunið úr gígunum þar að Trippafjöllum. Reykmökkinn og vikurmistur lagði frá Heklu og norðvestur eft- ir svo langt sem augað eygði, og byrgði fjallasýn að mestu þeim megin. Síðar um kvöldið bar mikið á öskumistri sunnan meg in og var það komið mjög ná- lægt Reykjavík um kl. 22. Blaðamenn Tímans héldu að syðstu gosstfjðvunum, en vegna veðursins var ekki mögulegt að fljúga yfir hin tvö gossvæðin. Voru þar tveir stórir gígar, og gaus þar stöðugt upp grjóti og vikri og mikinn reyk lagði upp. Nokkrir minni gígar voru í grennd við stóru gígana tvo. Mikið hraunflóð var úr þess- um gágum. Næst gígunum hafði hraunið dreifzt á nokkuð breitt svæði, en síðan runnið einkum í átt til Trippafjalla. Þegar blaða- menn Tímans fcomu á síaðinn, var hraunið tekið að renna beggja vegna fjallanna. Virtist ekkert lát á gosinu á þessum stað. Yfir Hefelu sjálfri var mikill skýjabafeki, en sást þó vel sneevi Framhalo á bls. 18. 1 ".v > ,• ý • • " Mynd þessi var tekln í gærkvöldi um klukkan niu, af sySstu gígunum I Heklu, sem þá voru búnir að spýta úr sér hrauninu sem er dökkl stóri flöt- urinn til hægri á myndinni. Neðst eru Trippafjöll, og er hraunið á góðri I eið með að umlykja þau. (Tímamynd Kári), Margra metra háít hraunflóð Nokkur hluti hraunfljótsins sem veltur iiú frarn úr Heklu. (Timarnynd) SB-Reykj avík, miðvikudag. Blaðamaður Timans, Sólveig Jónsdóttir, fór austur fyrir fjall um miðnætti og dvaldist þar í nótt j og dag. Síðdegis sendi liún eftir- ; farandi frásögn: — Þegar við komum að Kög- ur.arhóli. sáuir. við skyndilega eld- ! ana, sem viríust eins og á þrem I stöðum. Alla ieiðina austur sást I betta vel, en þegar við komum að | Haga um 3 leytið, virtust eldarnir I minni, en sáust þó mjög vel þaðan. i Við gd.stum að Haga í nótt 1 góðu I yfiriæti og þegar við komum út í ; morgur., var faliin talsverð aska á 1 túnið, en meiri á Asólfsstaðatúnið, ■ sem er næst og þó mest á efsta- : bænum, Skriðufelti, og þar féU vikur líka. Það var nokkur rign- ing í morgun og að heyra á fólki, að það væri fegið því, vegna gróð- ursins. Fyrst fórum við upp að Búrfelli og eflir því, sem ofar dró, þykkn- a*ði öskulagið á jörðinni. Þegar við komuni að Skriðufelli, var það orðið þverhandarþykkt og þarna Jágu hnefastórir hnullungar á víð og dreif. Þegar komið er upp und- ir Búrfell, eru tunin alveg þakin, aðeias strá úg strá stenduir upp úr öskunni. Við komumst í um 1000 metra fjarlægð frá efsta gígnum vdð Rauðuskál. Það er áhrifamik- ið að heyra dynkina, þegar hraun- ið bræðir snjóinn undir sér. Brún- in á hrauninu, sem þama rann fram, var meira en mannhæðarhá. Þótt ekki væri hægt að komast að gígunum og sjá niður í þá, var þetta ákaflega tilkomumikil sjón. Allmikið þurfti að ganga af þessu og við lögðum af stað aftur niður- eftir um kl. hálf fjögur í dag. í ferðinni höfum við heyrt margt sagt frá viðbrögðum fólks, þegar það gerði sér grein fyrir, að Hekla gamla . .-.ú vöknuð. Hér í Búrfelli var hópur fólks samankominn og var að spila. Þegar fór að byija á þakinu, hélt fólkdð, að krakkar væru komnir upp og einhver hugðist fara út og reka þá niður, en sá þá hvers kyns mundi vera. Einn maður hér var að gera við bíl og lá undir honum. Hann hélt í fyrstunni, að bíllinn væri að hrynja sundur- Annar var að grafa undan húsi, sem hann hugðist flytja til og var hann undir húsinu, þegar læt- in byrjuðu og varð ekki rétt sama. Framhald á bia 18 J •4 /

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.