Tíminn - 07.05.1970, Blaðsíða 2

Tíminn - 07.05.1970, Blaðsíða 2
14 TIMINN FIMMTUDAGUK 7. maí 1970. Þykkt öskulag í Búrfelli : EB-Reyíkjavík, Þegar við komum í Búrfells- virkjun um hádegisbilið var unn ið að kappi við að koma vikri ■burtiu af mlaninu framan við stöðvarhúsið. Náðum við þar tali af vörubifreiðarstjóra — Páli Egikssyni .— og spurðum hann frétta. „Hvenær urðu þið Búrfelling ar varir við gosið í Heklu?“ — Það var á milli hálftíu og tíu í gærlcvöldi, að við heyrðum steina bylja á húsunum. Eðlilega' urðu al'lir mjög undrandi yfir steinkastinu og einn maður hélt að börn væru að kasta steinum í hús sitt. Hann snaraðist út og ætlaði að ávíta börnin fyrir ótukt arskapinn, en efckert varð úr því ætlunarverki. — Hívernig brugðuzt þið við er þið vissuð hið sanna? | — Flestir urðu skelfingu lostn ir og flúði mikill hluti fólksins niður í stöðvarhús ’ ar sem beðið BlaSamaSur Tímanns með gjaitstein sem komið hefur úr gosinu í nótt og fannst í Sötvahrauni. (Tímamynd Gunnar) var eftir rútu sem svo flutti allt fólfc héðan nema nauðsynlegustu starfskraftana. Fólkið var fyrst flutt niður í nýja félagsheimilið þeirra Gnúpverja. — Og hér h-efur orðið mikið öskufall. — Já, það féll allmikið af vikri í nótt og hér á planinu hef ur mælzt 7 cm þyifcbt lag. Þá urðum við varir við smá jarð hræringar í byrjun gossins, en þær liðu hjá innan klukkutíma oig ihefur ekki orðið vart við þær síðan. Einnig heyrðum við drunur mikl ar og sáum eldglæringar. — Hafa sfcemmdir orðið ein- hverjar? — Ekki hafa þær verið miklar. Samit sem áður brotnuðu rúður í nokkrum bifreiðum i gærkveldi sökum vikurfallsins og svo ein rúða á skrifstofubragganum. Á virkjuninni sjálfri hafa engar skemmdir orðið. Raforkuframleiðsl an hefur gcngið sinm eðlilega gang og ekki virðist nein hætta á því að vikurinn vaidi truflunum. — Og þú vinnur hér óhnæddur í dag? — Já, þetta lítur allt svo vel út núna. Gos í þriðja sinn á ævinni Skömmu fyrir hádegi í gær hitt um við Sigurjón Pálsson bónda í Galtalæk, sem er einn næsti bær við Heklu. í Kamp I. Vikurlag á bifreiS og bragga. (Tímamynd Gunnar). Vikurhrúgur á planinu framan við stöðvarhúsið (Tímamynd Gunnar). ,Þú varst einn af þeim fyrstu er urðu varir við gosið í Heklu?“ „Já, það var um hálftíuleytið í gærkveldi, sem heimilisfólkið hérna á bænum varð vart við gosið. Heyrðust drunur miklar og þeir sem kyrrir sátu, fundu jarð hræringar .Grunaði okikur þegar, hvað um var að vera og sáum eldtungu koma upp í syðri hluta fjallsins, og skömmu síðar sáum við koma upp eldtungu að því er virtist í nyrzta hluita Heklu. Eld- tungan úx þeim gíg hvarf þó skjótt, en kom upp aftur laust eftir kl. tíu. Þá kom skömmu síð- ar þriðji gígurinn í ljós nokkuð neðarlega í norðvesturhluta fjalls ins. Sá eldur leit í fyrstu út sem bílljós, en skömrnu síðar heyrðust sprengingar miklar og því næst steig eldtungan hátt til himins. Þá var greinilega hægt að sjá hrauniflóðið er streymdi úr þeim gíg. Á þessari stundu var fjallið mjög tignarlegt á að líta, enda skyggni gott, en þegar birta tók, sást eldurinn skiljanlega ekki eins vel og áður og auk þess varð skyggni verra eftir iþví sem líða tók á morguninn‘. „Hvernig varð ykkur hér á Galtaiæk við þennan mikla at- burð?‘ „Eðlilega urðurn við nokkuð óttaslegin, þar eð við máttum bú- ast við hinu versta. Ekki gerðum við þó annað en að breiða yfir bifreiðar og önnur tæki er úti stóðu. Hinis vegar höfum við — enn sem komið er — ekkert tjón hlotið af gosd þessu. Vindátt hef- ur verið okkur hagstæð, svo að hér hefur lítil aska fallið og ég tel hana ekki valda skemmdum á túninu.* „Varst þú ábúandi hér á Galta læk 1947?“ ,Já, ég bjó hér þegar Hekla gaus síðast, og virðist mér þetta igos ekki ætla að verða eins mik- ið og gosið iþá. Eionig var ég vitni að Kötlugoskm 1918 svo að maður fer varla að kippa sér mi'kið upp við atburð sem þenn- an“. Miðsiöðin biluð? Laust eftir hádegi í gær hitt um við Ásólf Pálsson hónda á Ásólfsstöðum, sem er eitt næsta býli við Búrfellsvirkjun. — Hvenær varðst þú fyrst var i við gosið í Heklu, Ásólfur? — Það var iaust eftir kl. hálf tíu í gærkveldi. Við hjónin héld um í fyrstu að eitthvað væri að miðstöðinni okkar, vegna mikils I súgs og fór konan mín fram að 1 athuga það. En þá heyrðum vi’ð s drunur og fundum titring. Við ! litum þá út um glugga og sáum gosmökk rnikinn ieggja upp í siið austri. Héldum við fyrsií að Katla væri byrjuð að gjósa, en sáum fljótt að gosmökkurinn kom frá j Heklu eða 1 námunda við hana Mökkinn lagði yfir Biirfellið og í var dimmit yfir austurloftinu. Urn ! kl. tíu heyrðum vi’ð svo eitthvaS í j falla á þakið og sáum þá að i j komið var vikurregn. Rigndi nið l ur vikurmolum og voru þeir 3-—4 i cm að þvermáli. Regn þetta stóð jyfir skamma stund, en eftir nokk urt hié tóku að falla gróf vikur koru. Fallið var mest fyrstu klukkustundirnar en dró svo brátt úr því og stytti að fullu upp um kl. 5 í morgun. — Hefur eklci orðið nofckuð tjón hér í sveitinni vegna þessa öskufalks? — Hjá mér er allt haglaust og vikurlagiS hér í túninu er ca. 2 cm þykkt. Sé ég mér nú ekki annað fært en að taka allan fénað nin á gjöf sem um hávetur væri. PáM Egilsson (Tímamynd Gunnar). Sigurión Pálsson bóndi á Galtalæk, í baksýn eru kindur sem höfðu ösku í ullinni. (Tímamynd Gunnar) Asólfur Pálsson bóndi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.