Tíminn - 12.05.1970, Qupperneq 2
'i r * } i r *
1 » f » * í ** r
r<i 'ry -{f <v f •w (r v ^ ^
2
TÍMINN
tRIÐJUDAGUR 12. maí 1970.
Ályktun nýstofnaðs Rafiðnaðarsambands íslands:
TRYGGJA VERÐUR SAMBÆRILEGAN KAUP
MÁTT HÉR OG 1 NÁGRANNALÖNDUNUM
EJ-Reykjayík, mánudag.
f kjaramálaályktun nýstofnaíís
Rafiðnaðarsambands fslands segir
m. a., að kaupmáttur launa hafi
verið á stöðugri niðurleið síðustu
árin og „skapað þannig mikinn
háska, sem meðal annars hefur
komið fram í stórfelldum land-
flótta launafólks.“ Telur þingið,
að nú verði „að stöðva þessa öfug
þróun og tryggja sambærilegan
kaupmátt launa á íslandi og gerist
með nágrannaþjóðum okkar. Því
eru þær kröfur, sem nú eru fram
settar, einungis við það miðaðar
Samvinnan
níí helguö
náttúruvernd
SB-Reykjavík, mánudag.
Samvinnan, marz-apríl heftið er
nýkomifð út og er blaðið helgað
náttúruvernd og þar er m. a. mikið
ritað um Þjórsárver og Lxárdal.
Meðal höfunda má nefna Hjört
Þórarinsson Eldjárn, Karl Kristj
ánsson, Hermóð Guðmundsson,
Ingva Þorsteinsson, magister, Gutt-
orm Sigurbjarnanson, jarðfraeð-
ing, Finn Guðmundsson, fugla-
fræðing, Arnþór Garðarsson, dýra
fræðing og Jakob Björnsson, verk-
fræðing. Greinar um sama efni eft
ir þá Jónas Jónsison, ráðunaut,
Steindór Steindórsson, skólameist
ara og Þór Guðjónsson, veiðimála-
stjóra verða að bíða næsta blaðs,
sökum rúmleysis.
Af öðru efni í blaðinu má geta
gagnmerkrar greinar um Lenín,
tvær grednar eru um ungt fólki,
Sigurð Líndal ritar um íslenzka
stjórnmálaflokka, Ijóð eru eftir
Jóhann S. Hannesison, Hrafn
Gunniauigsson og Dag Sig-
urðarson og Erlendur Einarsson
skrifar ferðasögu, sem hann nefn-
ir „Þrír dagar í Georgíu." Ymislegt
fleira efni er í Samvinnunni í þetta
sinn og blaðið kostar 90 kr. í
lausasölu.
að leiðrétta þá kjaraskerðingu, sem
orðið hefur síðustu árin“, segir í
ályktuninni.
Einnig er þess krafizt, „að vald-
hafarnir tryggi öllum launþegum
fuila atvinnu og bendir í því sam
bandi á, að nú eru tugir rafiðn-
aðarmanna við störf erlendis".
Þá segir, að tryggja verði sem
stöðugasta þróun byggingariðnað-
arins sem annarra atvinnugreina
„svo sem með skipulagðri vísinda-
legri áætlunargerð til langs tíma.
Einungis slík skipulagning atvinnu
lífsins megnar að tryggja fullt
atvinnuöryggi og heilbrigða þróun
atvinnumála“, segir í ályktuninni.
I sambandinu, sem etofnað var
8.-9. maí, eru rafvirkjar, rafvéla-
vidkjar og útvarpsvirkjar starf-
andi hjá meisturum, verktökum,
iðjuverum og rafveitum víðs vegar
um landið. Verður framhaldsstofn
þing sambandsins í haust, en kos-
in var sambandsnefnd sem starfa
á til haustsins, og er Óskar Hall-
grímson formaður, Magnús K.
Geirsson ritari, Jón Már Rfkarðs-
son ritari og Gunnar Backmann
gjaldkeri — allir úr Reykjavík, —,
en meðstjórnendur Jóhannes Bj.
Jónsson, Rvík, Engilbert Þórarins
son, Selfossi og Albert K Sand-
ers, Ytri-Njarðvik.
I sambandsstjórn eru auk ofan-
greindra manna, sem mynda mið-
stjórn sambandsins, Bjarni Áraa-
son, Akranesi, Gunar Steinþórs-
son, Isafirði, Sigurjón Erlendsson,
Siglufirðí, Hákon Guðmundsson,
Akureyri, Tómas Zoega, Neskaup-
stað, Bjarni Sigfússon, Reykjavík,
Sigurður Hallvarðsson, Rvík og
Þorsteinn Sveinsson, Rvík.
STEINBÍTSVERTIÐ BRAST
Gæftir voru góðar allan apríl-
mánuð og yfirleitt góður afli, sér-
staklega þó hjá togbátunum.
Fengu þeir ágætan afla fyrri hluta
mánaðarins út af Húnaflóa, en
síðari hluta mánaðarins voru þeir
aðallega í Jökuldjúpinu og suð-
ur á Eldeyjarbanka. Heita má,
að steinbítsvertíðin hafi algjör-
lega brugðdzt hjá límubátunum,
en seinni hluta mánaðarins fengu
margir bátarnir ógætan þorskafla.
Er þorskurinn því uppistaðan í
afla flestra línubátanna í m'ánuð-
inum, en undanfarin ár hefir afli
línubátanna verið nær eingöagu
steinbítur í apríl.
í apríl stunduðu 45 bátar róðra
frá Vestfjörðum, 28 réru með
línu, 11 með botnvörpu og 6 með
net. Alls bárust á land í mánuð-
inum 7.846 lestir, en á sama tíma
í fyrra bárust á land 4.549 lestir.
Af þessum afla er afli línubát-
anna 3.374 lestir í 584 róðrum.
Heildaraflinn frá áramótum er
nú orðinn 22.625 lestir, en var á
sama tíma í fyrra 19.154 lestir.
Aflahæsti línubáturinn í aprfl
er Dofri frá Patreksfirði með
225.7 lestir í 25 róðrum. Af tog-
bátunum er Kofri frá Súðavík
aflahæstur með 488.0 lestir og af
netabátunum Tálknfirðingur með
379.7 lestir í 15 róðrum. í fyrra
var Sólrún frá Bolungavík afla-
hæsti Mnuibáturinn í april með
121.1 lest í 19 róðrum, Guðbjart-
ur Kristján frá ísafirði aflahæsti
togbáturinn með 132.2 lestir og
Tálknfirðingur aflahæsti netabát-
urinn með 274.7 lestir í 8 róðr-
um.
Mestan afla frá áramótum hef-
ir Kofri frá Súðavík 1024.9 lestir,
en í fyrra var Tálknfirðingur afla
hæstur á sama tíma með 739.1
lest. Sólrún er nú aflahæst þeirra
báta, sem eingön-gu hafa róið með
línu, og er afli hennar 693.1 lest
í 77 róðrum. Sólrún var einnig
aflahæst á sama tíma í fyrra með
582.0 lestir í 80 róðrum.
Nokkrir bátar frá Bolungavík
reyndu með handfæri í lok mán-
aðarins og fengu ágætan afla.
Má gera ráð fyrir, að margir
rækjubátarnir og minni línubát-
arnir fári á handfæraveiðar strax
og vetrarvertíð lýkur .
HRINGIÐ í SÍMA 22900
OG FÁIÐ OKEYPIS MYNDALISTA
OG 14 ÁKLÆÐAPRUFUR
EIH SÍMTAL OG ÞÉR GETIÐ SKOÐAÐ FALLEGUSTU
HÚSGÖGN A ISLANDI
*
1
Simi-2.290.0 Laugaveg 26
LEIKRITIÐ
VASCO SÝNT
Á ÍSAFIRÐI
GS—ísafirði.
Sagan af Vasco nefnist
leikrit sem Litli leikklúbb-
urinn, ísafirði mun hefja
sýningar á 14. maí í Alþýðu
húsinu ísafirði. Lei-kritið er
eftir Libýumanninn Georges
Sohehade, sem er fæddur
í Alexandríu, en ritaði á
frönsku og er leikurinn
þýddur úr því máli af Úlfi
Hjörvar kennara.
Georges Schehade skrifaði
mörg leikrit, en þetta er
þekktast þeirra. Er þetta
fyrsta leikrit höfundarins
sem sýnt verður hér á landi.
Leikritið fjaUar um hörm-
un-gar stríðs og hermennsku
og er efninu gerð ski-1 í
bitru háði.
Leikstjóri er frú Hel-ga
Hjörvar, en hún stjómaði
leiklistarnámskeiði á veg-
um Litla leikklúbbsins í
febrúar og marz í vetur.
Leikendur eru 13 og fara
sumir þeirra með meira en
eitt hlutverk. Titilhlutverk-
ið, Vasco, leikur Finnur
Magnússon. Önnur aðalhlut
verk eru Cæsar, sem leik-
inn er af Lúðvík Jóelssyni
og Margareta sem Þórann
Jónsdóttir leikur.
Þetta er níunda verkefni
Litla leikklúbbsins. Formað
ur hans er Finnur Magnús-
son verzlunarmaður.
„Bátar I hrófom" eftir Kristinn Ástgeirsson er meSal verka á sýningunni.
(Tímamynd — G.E.)
LISTA-
SÝNING
ASÍ
EB-Reykjavík, mánudag.
Á laugard. opnaði Listasafn ASÍ
málverkasýningu í sýningarsalnum
að Laugavegi 18. Á sýningunni eru
27 máiverk eftir 7 iistamenn —
og a»uk þess nokkrar skissur að
i-iálverkum. Sýningin verður op-
in út ma-í-mánuð — alla daiga
nema mánudaga, frá kl. 15—18.
Hjörleifur Sigurðsson forstöðu
maður Listasafnsins sýndi blaða-
mönnum sýnin-guna í dag. Hann
sagði að myndirnar væru yfirleitt
í einkaeign, þó væru nokkrar
fengnar frá byggðatsafninu í Vest
mannaeyjum. >au sem málverk
eiga á sýningunni eru: Gísli Jóns-
son, Gunnþórunn Sveinsdóttir,
Halldór Jónsson, ísleifur Konráðs-
son, Jón Hróbjartsson, Jónas Elí-
asson og ICristinn Ástgeirsson.
Allt er listafólk þetta óskóla-geng-
ið í listinni og hefur gert verkin
í frístundum sínum. Tveir málar-
anna eru látnir, þeir Jón Hró-
bjartsson og Gísli Jónsson — og
hinir komnir yfir miðjan aldur,
sá elsti — Gunnþórunn Sveins-
dóttir — 85 ára.
Hér er ekki um sölusýnin-gu að
ræða — en þó kemur til mála að
ninnsta kosti einn málaranna selji
verk sín. Myndirnar eru aðallega
igerðar með olíu- eða vatnslit-
um og mikið af þeim eru lands-
lagsmyndir.
Sýningin er öllum opin og ókeyp
_________________________ J