Tíminn - 14.05.1970, Qupperneq 16
Flmmtudagur 14. maí 1970
Rætt við Ólaf bónda á Hrísbrú - Sjá bls. 8
eyrélu Gísli minti'
1 vli
blessa&Jt-j
Menntamálaráðuneytið um Kennaraskólann:
STÚDENTSPRÚF EKKI
INNTÖKUSKILYRDI
NÚ I HAUST
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
Mennitamálaráðuneytið hefur
sent frá sér tilkynningu, sem er
ðbeint svar við bréfi Sambands
ísl. barnakennara til ráðuneytisins,
en frá því var sagt hér á dögun-
um. Kröfðust barnakennarar þess
m. a., að nú í haust yrði stúd-
entspróf gert að inntökuiskilyrði í
Kennaraskólann, en í frétt ráðu-
neytisins kemur fram, að svo verð
ur ekki gert.
Segir í tilkynningunni um inn-
tökuskilyrði, a(ð nú verði „lág-
markseinkunn gagnfræðinga til inn
töku í skólann hækkuð úr 6.50 í
7.50. Er þá, svo sem verið 'nefur,
miðað við meðaltai einkunna í mál
um og staerðfræði. Lágmarkseink-
unn í íslenzku er óbreytt, 6.50“.
Annars segir ráðuneytið, að
væntanlega verði lagt fyrir næsta
Alþingi frumvarp til nýrra laga ;
um Kennaraskólann og nýskipan
kennaranámsins, en þar megi gera
ráð fyrir lengingu náms til kenn
araprófs frá því sem verið hefur
og muni ákvæði nýju laganna ein.n
ig taka til þeirra nemenda, sem
innritast í skólann næsta haust.
Einnig segir, að fynsti bekkur
Kennaraskótans muni í liaust fá
húsnæði utan kennaraskólabygg-
ingarinnar ef nauðsyn krefur.
Þá hefur ráðuneytið falið full-
trúa við fræðslumálaskrifstofuna
;,að ræða við alla umsækjendur
um inngöngu í Kennaraskólann í
haust um námsmöguleika þeirra
þá og framvegis og atvinnuhorfur
1 kennarastéttinni — en það kom
einmitt fram í bréfi barnakenn
aranna, að á næstu fjórum muni
• væntanlega 890 kennarar vera um
150—200 kennarastöður og var aug
Ijóst, a® aðeins lítill hluti kenn-
; aranna getur fengið atvinnu við
kennslu.
Ætti ég ekki líka að láta hina
frambjóðendur flokksins í Reykja-
vík gefa yfirlýsingu um að þeir
muni engin afskipti hafa af borg-
armálum, ef við missum meiri-
hlutann?
Tálknafjör8ur:
LÁ VIÐ DRÁTTAR-
VÉLARSLYSI
SJ-tniðvikudag.
Vetrarvertíð er niú á enda og
hefur gengið prýðilega. Hér hefur
verið feilkinóg atvinna við að koena
aflanum undan og aðkomufólk
hér telur um 20. Hér er alltaf
meira en nóg atvinna fyrir heima
fólk, enda erum við vel staddir
með tvo 300 lesta báta í 250
manna byggðarlagi. Bátarnir,
Framh&ló i bls. 14
FINANCIAL TIMES:
ÓTTAST OFFRAMLEIÐSLU A
ÁLIÁ ARUNUM 1971-1973
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
„Óttast offramleiðslu á áli í
heiminum" er fyrirsögnin á frétta
grein, sem iðnaðarmálafréttaritari
brezka stórblaðsins „The Finan-
cial Times“ ritar í blaðið 6. maí
síðastliðinn. Segir þar, að ýmsir
óttist nú offramleiðslu áls-,árin
1971—1973, og að húií ieifTi 'til
verðlækkunar á heimsmarkhðin-
um.
Fara hér á eftir kaflar úr grein
fréttamannsins, Harold Bolter:
„Forystumenn í áliðnaði Noregs,
sem er stærsti álframleiðandi
Vestur-Evrópu með um 28% af
bræðslugetunni, hafa alvarlegar á-
hyggjur af hættunni á offram-
leiðslu árin 1971—1973 og verð
lækkun á heimsmarkaðinum af
þeim sökum.
Þeir telja, að sú staðreynd, að
nú eru þrjár álbræðslur í smíð-
um í Bretlandi, og aðrar fyrirhug-
FLÚOREITRUN
í NÝGRÆÐINGI?
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
„Hekluveikin er eiginlega út-
breiddari en manni datt í hug
að gæti orðið“, sagði Gunnlaugur
Skúlason, dýralæknir í viðtali við
Tímann í kvöld. Hennar hefur nú
orðið vart í fé í Þrándanholti í
Gnúpverjahreppi, sem er neðar á
öskufallssvæðinu en veikin náði
áður. Afleiðiiíg veikinnar er m. a.
sú, að féð hættir að eta fóður-
bæti og hríðleggur af, og ærnar
ihafa þá ekki næga mjólk handa
lömbunum. Lítið er þó um að
ær séu farnar að þera, enn sem
komið er. 1—2_kindur hafa drepizt
úr veikinni. Á bæ einum hýsti
Framhald a ols. 14
aðar annars staðar í „hinum frjálsa
heimi“, geti aukið heimsframieiðsl
una um meira en 4 milljónir tonna,
eða 50%, næstu fjögur árin, að
því er mér var tjáð er ég heim-
sótti álbræðslu ASV í Ardal í Nor
egi.
. Jejin, Michelet,, forstjóri ASV-
samsteypunnar, sem er stænsti ál-
framleiðandi í Noregi, bendír á,
að til viðbótar við nýju álbræðsl-
urnar í Vestur-Evrópu, geti ál frá
kommúnistaríkjunum og banda-
rískar álbirgðir haft áhrif á fram
boðið næstu fjögur árin.
Sovétmenn framleiða meira en
þeir þurfa að nota af áli, og þessi
umframframleiðsla er að mestu
leyti seld á tiltölulega lágu verði
til helztu álframleiðenda á Vestur
öndum, og endurseld af þeim fram
leiðendum til þess a® koma í veg
fyrir dumping (undirboð).
Þar sem eftirspurn eftir áli
eykst að meðaltali um 7—8% á
ári, er talið víst, að fljótlega verði
þörf fyrir þá auknu álframleiðslu,
sem nýjar og fyrirhugaðar ál-
bræðislur framleiða, en þar til sú
þörf verður fyrir hendi geti ýmsir
framleiðendur lent í erfiðleikum.
ASV, sem er að hálfu eign norska
ríkisins og að hálfu eign stórfyrir-
tækisins Alcan, er nógu stórt til
að yfirstíga þá erfiðleika, en Mich
elet telur, að ýmsir minni álfram-
leiðendur í Noregi gætu lcnt í al-
varlegum vandræðum“.
Fréttamaðurinn ræddi einnig við
John E'lton, framkvæmdastjóra A1
oan, sem er skráð í Bretlandi —
en Alcan er að byggja eina þcirra
nýju álbræðsla, sem nú eru í smíð
um í Brettandi.
Elton er ekki viss um, a@ of-
framleiðslan muni leiða tii verð-
lækkunar. Segir hann, að stofn-
kostnaður álframleiðslufyrirtækja
sé mikill, og að verðið verði að
vera nógu hátt til þess að fjár-
magna frekari uppbyggingu þess.
iðnaðar. Telur hann, að arðsemi í'
vestrænum áliðnaði verði að au&
ast mjög verulega, ef hægt á a§
vera að fjármagna þá helmings
framleiðsluaukningu, sem stefnt er
að á næstu 10 árum — þ. e. að
heildarfiramleiðslan hækki úr 9
milljónum tonna á ári í 18 milljón
ir.
Elton segir, að nú þurfi a@ fjár
festa um 1.000 sterlingspund (210.
000 krónur) til að framleiða eitt
tonn af áli — og er þá átt við
öll megin framleiðslustigin.
Arðsemi álframleiðslu í dag er
ekkj nægilega mikil til þess að
standa undir slíkri fjárfestingu,
segir Elton í Financial Times.
60 listamenn undir
rita áskorun vegna
Lækjargötuhúsanna
FB-Reykjavík, miðvikudag.
Blaðinu hefur borizt undirskrifta
listi undirritaður af milli 60 og
70 listamönnum ungum sem öldn
um, * málurum, höggmyndurum,
teiknurum o g fl., varðandi varð-
veizlu húsaraðar þeirrar við Lækj
argötu, sem ákveðið hefur verié
að rífa. Áskorunin, sem á skjali
þessu stendur hljóðar svo: „Vér
undirritaðir, skorum á mennta-
málaráðherra að beita sér fyrir
því, að húsaröðin frá stjórnarráð-
inu að Menntaskólanum við Lækj
argötu, verði varðveitt, vegna
menningansögulega og listræns
gildis hennar. (Að Gimli undan-
skildu).“
STEFNA
Atvinnumálaáætlun
• Framsóknarflokkurinn legg-
ur til að gerð verði sér-
stöik áætlun um atvinnumál í
borginni næstu árin og verði
við samningu hennar gætt
fyllsta samræmis við tilsvar-
andi áætlanir annarra byggðar
laga.
• Telur flokkurinn, að efla
beri undirstöð'uatvinnuvegina,
og brýn r.auðsyn sé að koma
á fót nýjum atvinnugreinum,
útrýma atvinnuleysi og skapa
• Framsóknarílokkurinn vav-
ar við þeirri þróun, sem átt
hefur sér stað að undanförnu
í borginni ,að bátam og tog-
urum hefur fækkað stórlega
—
þeim Reykvíkingum, sem dvelj
ast erlendis í atvinnu, mögu-
leika til að sn-úa heim aftur.
• Þá telur flokikurinn, að
borgir. eigi að haga fram-
kvæmdum sínum þannig, að
þær stuðli að atvinnujöfnun
milli ára og henni beri að
leggja höfuðáherzlu á að efia
og glæða atvinnulífið almennt,
fremur en gerast beinn þátttak
andi í atvinnurekstri, nema
brýna nauðsyn beri til.
og útgerð smábáta lagzt niður
með öllu. Telur flokkurinn. að
eftirfarandi atriði þurfi að
leggja áherzlu á við sjávar-
útveginn:
að Bæjarútgerðin verði enduT
skipulögð með það fyrir
augum, að þar geti farið
fram meiri fullvinnsla sjáv
arafurða en nú á sér stað.
að núverandi togarar Bæjarút
gerðarinnar verði endurnýj
aðir með kaupum á skut-
togurum af fullkomnustu
gerð.
að borgin stuðli að því, að ein
staklingar og félög geti
eignazt togara og báta, sem
gerðir yrðu út frá Reykja-
vík.
að fiskveiðilandhelgin verði
stækkuð, fiskirannsóknir
efldar og eftirlit aukið, svo
að ofveiði skaði ekki fiski-
stofnana.
að reykvískir útgerðarmenn
njóti sömu lánskjara við
kaup á bátum og þeir, sem
annars staðar eru búsettir a
landinu.
Sjávarútvegur