Tíminn - 24.05.1970, Side 3
SUNNUDAGUR 24. maí 1970.
TÍMINN
3
5
■
:
/VStfífc svj
. i ■■
liiilil®
ÍÍS-SÍK-CÍ
Sum.arsýning opnuð
í Asgrímssafni í dag
í dag verður hin árlega sumar-
sýning Ásgrímssafns opnuð, en
safnið hefur verið lokað undau-
farnar vikur, m. a. vegna ýmis-
konar lagfæringai í húsi Ásgríms
Jónssonar.
Þessi sumarsýning er 30. sýn-
ing safnsins. Leitast er við að sýna
sem fjölþættust verk, og ná þau
yfir hálfrar aldar tímabil, og eru
þá m. a. hafðir í huga erlendir
gestir, sem jafnan skoða Ásgríms-
safn á sumrin. Skýringatexti sem
fylgir hverri mynd er líka á
ensku.
f heimili Ásgríms Jónssonar er
komið fyrir vatnslitamyndum, og
nokkrum teikningum úr þjóðsög-
um.
í vinnustofu listamannsins eru
sýndar bæði vatnslita- og olíumái-
verk, sum þeirra nýkomin úr við-
gerð, og hreinsun, frá Statens Muse
um í Kaupmannahöfn, og hafa
ekki komið fyrir almenningssjón-
ir fyr. Meðal þeirra eru málverk
frá Fljótsdalshéraði, Dyrfjöll og
Hjaltastaðabláin, máluð 1924.
Ásgrímssafn hefur látið prenta
kynningarrit á ensku, dönsku og
þýzku um Ásgrím Jónsson og safn
hans. Einnig kort í litum af nokkr-
um landslagsmyndum í eigu safns
ins,^ og þjóðsagnateikningum.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
í júlí og ágúst verður safnið
opið alla daga á sama tíma nema
laugardaga. Einnig frá 20. iúní til
1. júlí að þessu sinni vegna hinn-
ar fyrirhuguðu iistahátíðar.
Sæunn og arfasatan". Teikning
ELFUR OPNAR
NÝJA VERZLUN
Nýlega opnaði Verzlunin Elfur
á Laugavegi 38, eftir gagngerðar
Innritun 6
SJ-Reyikjaivík, föstudag.
Á vetri komanda verður sex
ára börnum í Reykjavík gefinn
kostur á gkólavist í barnaskólum
borgarinnar. Hér er ek!ki um skóla
skyldu að ræða, en borgaryfirvöld
hafa ákveðið með samþykki
menntamálaráðuneytisins, að gefa
fólki tækifæri til að koma börn-
STAKKUR
KOMINN
ÁFLOT
EB-Reykjavík, föstudag.
Stakkur VE, sem strandaði eins
og kunnugt er á Drangshlíðarfjór-
um s.l. þriðjudagsmorgun, náðist
á flot í dag. Var það Björgun h.f.
sem annaðist björgunarstarfið, en
varð skip dró bátinn á flot Oig síð-
an til Vestmannaeyja.
Báturinn er nokkuð illa farinn
þar eð mikill sjór komzt í lest
og vélarrúm hans.
Fjörug starfsemi
Sunnuklúbbsins
á Sauðárkróki
ú r Njálu, eftir Ásgrím Jónsson.
ára barna aö hefjast
um einu ári fyr í skóla en verið
hefur til þessa.
Innritun fer fram á mánudag-
inn 25. maí í barnaskólum borgar-
innar og æfingaskóla Kennaraskól
ans frá kl. 3—5 síðdegis.
Á milli 1600 og 1700 sex ára
börn, þ.e. börn fædd 1964 eru í
borginni, og er ætlunin að taka
á móti öllum þeim börnum, sem
Skólavistar æskja.
Skólar annsóknir me nntamála-
ráðuneytisins og Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkurborgar annast undir-
búning þessarar nýbreytni. í haust
verður haldið námskeið fyrir vænt
anlega kennara sex ára bamanna.
Sennilega þarf að ráða 20—30
nýja kennara að barnaskólunum,
er þessi nemendafjölgun kemur
til skjalanna.
Skólavist barnanna verður
ókeypis, en ef til vill þurfa for-
eldrar að greiða efnisgjald. Sex
ára börnin hljóta 15 stunda
kennslu á viku, og verður álherzla
lögð á föndur og félagslega þjálf-
un.
Á Sauðárkróki er starfandi fé-
lagssjkapur er nefnist Sunnuklúbb-
ur. í honum eru eingöngu konur
og eru þær nú um 80 talsins. Tím-
inn bað frú Dóru Magnúsdóttur að
segja nokkuð frá starfsemi þessa
klúbbs og tónlistarlífi bæjarins.
Dóra sagði, að Sunnuklúbbur-
inn væri frjáls samtök kvenna á
Sauðárkróki og eru fundir öllum
konum opnir. Á fundum eru eink-
um rædd mál sem konur hafa
áhuga á og gagn af að kynnast
Reynt er eftir ástæðum að halda
uppi alls kyns fræðslustarfsemi.
Á fundunum er til dæmis kennd
matreiðsla, við höfum fengið
lækna til að ræða um heilsuvernd
og fleira, sem konur hafa gagn
af að fræðast um. Rætt hefur ver-
ið um garðyrkju og sitthvað fleira.
Þá eru oft sýndar fræðslukvik-
Starfsvöllur
opnaöur
SJ-Reykjavík, föstudag.
í næstu vifcu verður nýr leik-
völlur fyrir 8—12 ára börn opn-
aður við Meistaravelli í Reykjavík.
Kalla mætti völl þennan starfs-
völl, og er hann sá fyrsti sinnar
tegundar í Reykjavík. Hann er stór
og afgirtur, og á honum er um
40 ferm. stór skáli. Bömin fá
þarna nóg af smíðaefni, gamalt
timbur, kassa, plast og annað.
Verður þeim úthlutað lóðum, þar
sem þau fá að byggja sér sína
smáskúra. Guðmundur Magnússon,
teiknikennari, mun stjórna starfs-
vellinum, og fer innritun barna,
sem þar vilja koma, fram á mánu-
daginn frá 2—5 síðdegis. Innritun
argjald er ekkert, en börnin þurfa
síðar að greiða efnisgjald fyrir
saum, málningu o. þ. h.
Starfsvöllur hefur verið rekinn
í Kópavogi og gefið góða raun.
Ætilunin er að stofna fleiri slíka
í Reykjavík, ef vel tekst til á
Meistaravöllum. Eru svæði til
reiðu í þessu skyni í Vogahverfi,
Árbæ og Breiðholti.
Sumarstarf Æskulýðsráðs
Reykjavíkur kynnt
EB-Reykjavik, miðvikudag.
Æskulýðsráð Reykjavíkur stend
ur fyrir margþættri starfsemi í
sumar fyrir unga fólkið. Þessi
starfsetni beinist einkum að úti-
veru. Búvinnunámskeið verður
'haldið, farið í silungsveiði til nær-
liggjandi vatna, siglingar og róðr-
ar í Fossvogi o.g skemmtanir og
félagstsarf í Tónabæ.
Sem áður verður starfsemin í
Saltvík í mörgum þáttum. 4—5
helgarskemimtanir verða haldnar
á vegum Æskulýðsráðs og félags
samtaka. Þá munu m.a. íþrótta-
menn æfa þar og keppa, unnið
að fegrun staðarins, og efnt til
gönguferða og náttúraskoðunar.
Vikuna 25.—30. maí efnir æsku
lýðsráðið til búvinnunámskeiðs
með Búnaðarfélagi íslands og verð
ur það í svipuðu formi og í fyrra.
Erindi verða flutt m.a. um bú-
Framhald á 11. siðu
Asta Lindelow syng-
ur í Norræna húsinu
Dansk sænska ljóðasöngkonan
Asta Lindelöw kemur fram í
Norræna húsinu í dag, sunnudag,
kl. 16. Syngur hún lög eftir norræn
tónskáld við eigin undirleik. Söng
skemmtunin er á vegum Norræna
hússins og Norræna félagsins.
myndir og svo er spilað. Konurn-
ar hittast mánaðarlega og eru
fundirnir alltaf vel sóttir, enda er
reynt að hafa þá bæði fræðandi
og eitthvað til skemmtunar.
í bænurn er starfandi samkór
og lúðrasveit er nýendurvakin.
Karlakórinn hefur ekkert starfað
í ár, en talsverður tónlistaráhugi
er í bænum og mætti gjarna efla
það með meiri tónlistarkennslu
en nú er. Engin tónlistarkennsla
hefur verið í skólunum s. 1. þrjú
ár. En Tónlistarskóli er starfandi
og sér Tónlistarfélag Skagfirðinga
um rekstur hans. Er Tónlistarskól-
inn mjög vel sóttur, en þar er
ekki kennt nema á píanó. Er nauð-
syn á að fjölga kennurum við
skólann og taka upp kennslu á
fleirj hljóðfæri. Reynt hefur ver-
ið að fá hingað tónlistarkennara
og standa vonir til að það takist
bnáðl'ega. Mundi það örva tónlist-
arlífið í bænum og víst er að
áhuginn er fyrir hendi.
Dóra Magnúsdóttir
breytingar. Hefur verzluninni
bætzst viðbótarhúsnæði, sem gerir
fært að skipta benni í tvær deild-
ir, kven- og barnafatadeild. Er það
von eigenda að viðskiptavinir
kunni vel að meta hina stórbættu
aðstöðu, sem skapast til betri þjón
ustu eftir breytingarnar.
Verzlunin Elfur hefur verið
starfræfet í rúmlega 6 ár. Hún hef-
ur á því tímabili áunnið sér traust
og vinsældir, fyrir vandaðar vör-
ur og góða þjónusttt.
f
Jafnframt því, sem hdn nýja
verzlun var opnu©, var sölubúð,
sem starfræfet var á Sbólavörðu-
stig 13, lö:gð niður. Hins vegar
er rekstur ú'tibús í Vestmanna-
eyjum óbreyttur. Verzlunarstjóri
er Sigurður E. Haraldsson. —
Myndin er úr nýju verzluninni.