Tíminn - 31.05.1970, Page 3
WNNUDAGUR 31. maí 1970.
TIMINN
15
Atkvæðatalning í Austurbæjarskólanum eftir forsetakosningarnar 1968
(Mynd Kári)
Þeir telja atkvæðin
fyrir birgðum gluggum
Rætt við fjóra starfsmenn Ríkisprentsmiðjunnar Gutenberg,
sem annast talningu atkvæða í Austurbæjarskólanum
f daig eru bæja- og sveita-
stjórnakosningar á landinu.
Yfir 150.000 manns eru á kjör
skrá, yfir 100.000 utan Reykja-
víkur en miili 50.620 og 50.630
í Reykjavík. Megnið af þess-
um mannfjölda fer á kjörstað
og neytir atkvæðisréttar síns.
Mikill undirbúningur hefur
farið fram fyrir kosningarnar
bæði af hálfu ríkis, bæja og
sveita sem og stjórnmálafiokk
anna. í ríkisprentsmiðjunni
Gutenberg var nú í vikunni
verið áð leggja síðustu hönd
á kjörseðlana, sem þar
eru prentaðir. Upplag kjör-
seðla fyrir Reykjavík að þessu
sinni er 53.000. Og þegar blaða
maður Tímans kom í heim-
sókn í prentsmiðjuna biðu
þeir innpakkaðir eftir að vera
dreift á kjörstaðina svo borg-
arbúar gætu í dag kosið sér
af þeim stjórnendur. í Guten-
berg vinna raunar nokkr-
ir menn, sem hafa meiri af-
skipti af kosningum en þau a'ð
útbúa kjörseðla fyrir landið
allt. Síðan 1934 hafa starfs-
menn prentsmiðjunnar annazt
atkvæðatalningu í Reykjavík.
í kvöld og nótt sjá fjórir
menn, tveir bókbindarar og
tveir prentarar, um talningu
atkvæða Reykvíkinga. og gafst
mér tækifæri til að spjalla við
þá um þetta ábyrgðarstarf.
Talningin er sérfræð-
ingastarf
Til þess að telja hið mikla
atkvæðamagn í Reykjavík
þurfa að veljast menn, sem
eru vanir að umgangast pappír
og fljótir að telja hann. At-
kvæðin eru tvítalin svo þeir
fjórmenningarnir telja hver
um sig um 25.000 seðla, og ef
eitthvert hundraðið reynist
rangtalið verður að fara yfir
það í þriðja sinn o.sv. frv. þar
til ber saman. Einhverjum
kynni að detta í hug að gjald-
kerar væru tilvaldir til þessa
starfa en svo er þó ekki því
pappírinn í kjörseðlunum er
öðruvísi að handleika ea pen-
ingaseðlar. Og óvanir gæfust
fljóttcgn upp á að telja öll
þessi ósköp, en ef ekki; taéki
það þá óratíma, því þeir
kunna ekki handitökin. Taln-
ingin er þvl hvert annað sér-
fræðingastarf.
Árið 1934 var Steingrímur
Guðmundsson, fyrrverandi
prentsmiðjustjóri beðinn að
útvega talningarmenn fyrir
kosningar í Reykjavik. Einn
þeirra er hann benti á, Gnð-
geir Jónsson, bókbindari, hef-
ur starfað við talninguna i
mörgum kosningum síðan og
gerir það einnig að þessu sinni
en stundum hefur hann verið
á framboðslista og því aðrir
orðið að koma í hans stað.
Hinir þrír eru Einar sonur
Guðgeirs, sem byrjaði 1956,
Thor Cortes, prenitari, sem tók
við þessum starfa af föður sín-
um, Emanúel, um 1965 og Ein
ar Jónsson, prentari, sem talið
hefur í kosningum síðan 1946.
Talning í Reykjavík hefst nú
áður en kjörfundi lýkur eða
um 7.30 síðdegis í leikfimisal
Austurbæjarbarnaskólans. Áð
ur hafa fulltrúar framboðslist-
anna ásamt starfsmönnum yfir-
Ikjörstjórnar og Reykjaivíkur-
borgar flokkað atkvæðaseðl
ana eftir bókstöfum. Allir
gluggar eru birgðir og enginn
fær að fara út úr salnum eða
inn í hann fyrr en eftir að
kjörfundi lýkur kl. ellefu. Eft-
ir þann tíma er áhorfendum
og fréttamönnum leyfður
frjáls aðgangur, en talningar-
menn og þeir sem vinna að
flokkun seðlanná fá því aðeins
að skreppa frá séu þeir í lög-
reglufylgd. Borðum er raðað
þannig að þau mynda ferhyrn
ing og sitja yfirkjörstjórn og
flokkunarn.enn við þau, en
innan í ferhyrningnum sitja
talningarmennirnir við borð
við sína iðju. Talningunni lýk
ur nú venjulega um hálf þrjú
að nóttu.
Mega ekki vera
spenntir
Þeir fjórmenningarnir líta á
þetta hlutverk sitt sem hvert
anniað trúnaðar- og skyidu-
starf. Þeir verða að hafa allan
hugann við talninguna svo
þeir fipist ekki og geta því
lítinn gaum gefið að eftirvænt
in-gu fólksins umhverfis, sem
horfir með óþreyju á hvernig
atkvæðabunkar hinna ýmsu
lista stækka mishratt.
— Þiað veitir ekki af að
söfckva sér niður í áð telja,
sagði Einor Guðgeirsson, þeg
ar ég spurði hvað kosninga-
taining þeim fyndist hafa ver
ið mest spennandi.
— Það ríkti geysileg eft-
irvænting eftir forsetakosning
arnar 1968, sagði Einar Jóns-
son. — Menn voru alveg hissa
á hve atkvæðamunurinn var
mikill og höfðu alls ekki bú-
izt við slíkum úrslitum. Fylg-
ismenn Gunnar Thoroddsen
urðu mjög miður sín þegar at-
kvæðamunurinn kom í ljós.
— Það sást strax hvernig
fárá mundi, í síðustu forseta-
kosningum, sagði Guðgeir
Jónsson, þegar ég spurði hann
hvaða talningu honum hefði
fundizt mest spennandi. —
Það væru helzt alþingiskosn-
ingarnar 1946. Kosning Bjarna
Benediktssonar þá og Katrín-
ar Thoroddsen fyrir Sósíallista
flokkinn. Hefði hún ekki ver
ið kosin, hefði Sjálfstæðisflokk
urinn fengið einurn manni
fleiira, og stóð það mjög
Ölöggt.
Þeir Guðgeir, Einar og Thor
þurftu fljótlega að hverfa til
starfa sinna í prentsmiðjunni,
en ég spjallaði áfram við Ein-
ar Jónsson.
Voru ötulir að draga
kjörfund á langinn
— Þegar ég var fyrst við
talningu var aðeins kosið í
Miðbæjarskólanum, sagði
hann. — Talning fór fram þar
og hófst ekki fyrr en að kjör-
fundi lauk. Það gat dregizt í
tímann því ekki mátti loka
nokkurri kjördeild nema eng-
inn kjósandi hefði komið í 20
mínútur, og síðustu árin sam
þessi tilhögun hélzt voru
áhugasamir menn í stjórnmála-
flokknum býsna duglegir að
koma með einn og einn kjós-
anda frarn eftir öllu. Lengi vel
vorum við aðeins tveir. Oft var
ekki byrjað að telja fyrr en
eftir tvö kosninganóttina og
því ekki lokið fyrr en 6 eða
7 morguninn eftir.
Nú eru höfð tvö sett af at-
kvæðakössum í kjördeildum í
Reykjavík. En þær eru 63 og
eru þá meðtaldar kjördeildir
í Elliheimilinu Grund og
Hrafnistu. Um sexleytið á
kjördag sækja lögregluþjónar
kassana en yfirstjórn fær I
hendur lyklana. Síðan er hald-
ið upp í Austurbæjarskóla þar
sem um 30 manns eru lokað-
ir inni í umsjá lögreglu þar
til kjörfundi lýkur.
— Þar eru kassarnir opnað-
ið, sagði Einar, — og lögreglu-
þjónar hella innihaldimu I
stóra kistu. Síðan sjá þeir fólk
inu, sem flokkar. fyrir seðlum
úr kistunni. Yfirkjörstjóm lit-
ur yfir flokfcunina og kveður
upp úrskurð um vafaatriði og
þá er röðin komin að okkur
að telja atfcvæðamagn hvers
lista. Flokkuninni er hagað
þannig að starfsmenn stjóm-
málaflokkanna flofcka at-
kvæði lista hverra annairTa,
þannig að C-lista maður flokfc-
ar t.d. atkvæði D-listans eða
öfugt og svo kol af kolli. 061
atkvæði eru tvítalin t.d. þann-
ig að við Guðgeir teljum sam-
an en Thor og Einar Guðgeirs-
son saman. Stundum kemur
fyrir að tnunar einum se'ðU
til eða frá og er bá talið á ný.
Yfirkjöirstjórn hefur bókhald
yfir kjöirsóikn og að lokúmi
talningu eru taldir atkvæða-
seðlar bornir saman við hana.
Sjaldnast skakkar miklu og
ekki man ég eftir að þurft hafi
að telja upp aftur. Til kjör-
stjórnarinnar berast einnig
alls kyns kvartanir og mál ut-
an frá kjörstöðunum meðan
kosning heldur enn áfram og
sendir hún úrskurð sinn úr
leikfimisal Austurbæjarskól-
ans.
Áhorfendum fer
fækkandi
— Við tökum lítið eftir því
sem fram fer í salnum. Áhorf-
endur komast ekki inn á af-
Fr-mhald á bls. 18.
Frá vinstri: Einar Jónsson, prentari, Thor Cortes, prentari, GuSgeir Jónsson og Einar GuSgeirsson, bók-
bjndarar (Mynd Gunnar)