Tíminn - 04.06.1970, Blaðsíða 10

Tíminn - 04.06.1970, Blaðsíða 10
10 TÍMINN FIM1«TUI>AGUR 4. juní 197« FULLT TUNGL Eftir P. G. Wodehouse 5 — Já hún ætlaðí einmitt að faira að tala í símann þegar cg fór út, það var einhver að hringja frá Biandings. — Á'gætt, ég þarf að tala við hana, ég hef veri® að reyna að gefa mér tíma til þess dögum saman, það ef viðvíkjandi þess- um hundum ykkar, á hverju lifa þeir? — Flcstir á ftólunum. — Fredd ie skellti í gótn, að vísu hlær maður að svónú orðaleikjum, en slíkt er óneitanlega hemlar á við skiptahjólin, en Freddie gafst ekki upp hann sagði: — Þú veizt vel hvað ég meina hvað gefið þið þeim að éta? — Það man ég ekki mamma getur sagt þér það, það heitir víst Petersons, eða eitthvað svoleiðis. Snöggir skjálftakippir fóru um glæsilegan líkama Freddies. nann ieit út eins og maður sem hefur verið bitinn í fótlegginn. — Ekki þó Petersons hvolpa- miat? — Jú, það er einmitt naínið. Freddie koinst í svo mikla geðs- hræringu áð hann missti einglyrn ið sitt og sagði: — Guð minn góður, eru allir geggjaðir hérna megin hafsins, þcíta er fimmta tilfellið af Peter- sons hvolpamat sem ég hef rek- izt á á cinni viku. og svc kalla menn Englendinga hundaunnend- ur, langar ykfcuir til áð þessir hund or ykkar veikist af beinfcröm, gi'kt blóðleysi, iiðágigt og magaveiki? en það munu þeir gera. ef þið haldið áfram að eitra fyrir þá með framleiðslu sem skortir öll mikilvægustu vítamín, eins og ég veit að þetta hundafóður gerir. Petersons hvolpamat, heyr á end- emi, nei það sem þeir þurfa, er Donaldson hundafóður, þá verða þeir hundrað prósent hraustir og vöðvastæltir, Donaldson hunda- kex er guðsgjöf fyrir hundabyrg- ið, hvort sem er í glæstum höll- um auðmannanna eða í greni fá- tæklinganna, hundor sem fá Don- aldson kex verða glæsilegir, sterk ir og framúrskarandi hundar sem bera höfuðið hátt og standa öll- um fótum á jörðinni og þora að horfast í augu við heiminn, þú verður að fá hundinn þinn til að hugsa eftir Donaldson kerfinu, láttu Donaldson gera fuglahúndi.m þinn að afburða fuglahundi, beinum löppum írska skothunds- ins þíns inn á hinn breiða veg Donaldson þjóðbrautarinnar og þú munt horfa á eftir honum stökkva til móts við hreysti og gæfu, með ljómandi augum, kait trýni og dillandi rófu. Það er hægt að kaupa Donalusr.n hunda- kex í umbúðum sem kcsta fimm shillinga tvo og hálfan shilling. . . — Freddie. — Já, halló. — Hættu. — Hætta? sagði Freddie sem var rétt að byrja, en Prudenee Garland virtist alveg aðfram kom- in. hún sagði: — Já, hættu, stoppaðu, henn- aðu, hjálui mér, þetta ei eins og flóöbylgja, ég er farin að trúa þessu með fundina. þú hlýtur að ver-a lífið og sálin í þessu öllu. Freddie lagfærði bindið sitt og sagði hæversklega: — Ja, ’ drengirnir óska vanalega eftir að heyra álit mitt. —• Og ég þori að veðja að þeim verður að ósk sinni ef þú ert ínn- an mílu vegar frá þeim. — Hækkaði ég róminn? ! — Þú æptir eins og sál í hreins unai'eldinum. — Ja maður gleymir sér. — Ég er hrædd um að lögregi- an gleymi þér ekki ef þú gætir þín ekki betur, en er það virki- íega tilfellið að þú standir þig vel í viðskiptaheiminum Freddie? — Ja, með hliðsjón af þeirri staðreynd, að hinn stórkostlegi eigandi trúði mér fyrir að hressa upp á útibú sitt hérna megin hafsins, hlýt ég að vera fremur svona. . . jæja þú getur sjálf reiknað dæmið. — Hafðir þú enga reynzlu i þessu áður? — Enga, það var eins og þessu slægi niður í mér eins og eld- ingu. — Jæja, þetta ræður úrslitum, ef þú getur verið verzlunarmað- ur þá geta allir það, sagði P-rud- ence og stóð á öndinni. — Ekki mundi ég nú segja — En það segi ég, en sú heppni að rekast svona á þig, þú hefur einmitt gefið mér það slá- andi dæmi sem ég þurfti, nú get ég þó látið Bill fá í ausunefinu. — Hvaða Bill? — Nú hefur hann sko enga af- sökun, skilurðu, þetta er svo aug- ljóst, þú sem varst eins og hver meðal asni. . . — Nei heyrðu nú. — Og svo kvæntistu og verður strax hræðilega klár, það var það sem réði úrslitum að þú kvænt- ist. Freddie langaðí ekki til að neita þessai’i hugmynd frænku sinnar, hann sagði því: — Já, ég býst við að maður geti sagt það, ég hef aldrei reynt að þræta fyrir að ég á þeirri litlu fflllt að þakka. — Það hefur aldrei orðið neitt úr neinum karlmanni fyrr en hann kvæntist. — Eiginkonan er manns bezti vinur og strang'asti gagnrýnandi, sagði Freddie. — Já, sjáðu bara Hinrik áit- unda og Salómon, þegar þeir byrj uðu að ganga í hjónabaodið, þá héldu þeim engin bönd, þá voru allir bara orðnir áhorfendur og það gildir hið sama um Bill, hann segir alltaf að það sé ekkert gagn í honum sem athafnamanni, er alltaf að telja mér trú um. að hann sé bara dreyminn listamað- ur, en það er tóm vitleysa. ég segi alltaf við hann, — bíddu bara þangað til þú ert kvæntur og sjáðu hvernig þú ferð þa að blómstra, — og nú get ég bent á þig sem fyrsta flokks dæmi, ég segi bara, — Bill líttu bara á Freddie, — og þá veit hann ekki sitt rjúkandi ráð. — Hver er þessi William? — Maður sem ég þekki Gally frændi kynnti okkur, Gally er guð faðir hans, — nú litaðist Prua- ence flóttalega um. svo dró hún upp mynd og sagði: — Hérna er hann. — Myndin var ekki af beinlín- is friðum mar.ni, ef satt s kai segja þá hefði hann þörft að gangast undir töluvert margar breytingaraðgerðir til að geta tekið þátt í þó ekki væri nema mn.niháttar fegurðarsamkeppni, nefið var breitt, eyrun út- standandi og haten framstæð þetta hefði vel getað verið mynd af góðlyndum górillapa, því pó að þetta væri bara augnabliksmynd þá sá maður vel að augun voru góðleg og heiðarleg, skrokkurinn var stór og vöðvamikill. þetta var maður sem kvenrithöfundar Vict- oríutímabilsins hefðu lýst sem. — glæsilega ljótum manni, og fvrstu hugrenningair Freddies voru undr un yfir því að þessi maður skvldi samþykkja að láta taka af sér mynd, svo breyttist þessi tilfinn- ing í áhuga, Fi-eddie ski-úfaði ein glyrnið fastara og skoðaði mynd- ina betur, svo sagði hann: — Hef ég ekki hitt bennan fugl? — Það veiztu bezt sjálfur. — Jú, ég hef hitt hann. —• Hvar? — í Oxford. — Bill var ekki í Oxford. hann fór í listaskóla. — Ég á ekki við háskolann, heldur krá í útjaðri bæjarins, sem heitir Mulberry Tree, ég var van- ur að koma þangað nokkuð ofí, og hvert sinn sem ég kom þang- að þá var þessi fugl þar. sú saga gekk, að hann fengi borgun fyr- ir að koma þarna að staðaldri. — Frændi hans átti þessa krá. — Jæja, það er þá skýringin á því að hann var eins og límdui- við staðinn, nú þar sem hann var þarna alltaf og ég kom oft til að fá mér mat eða drykk þá leiddi það til þess að við urðum góðir kunningjar. hann hét Lister — Og heitir enn. — Já, Bill Lister, við kölluðum hann Bliter, (bóla eða blaðra á hörundi) og hann v&r listamaður, eins og þú segir. ég man að mér fannst það skrýtið mér fannst einhvern veginn að listir færu ekki vel við svona andlit. — Hvað meinarðu eiginlega með, — svona andlit? — Ja, hvað finnst bér? — Ásjónan á þér Freddie minn, er nú ekki til að státa af, mér finnst Bill yndislegur, en skrýtið að þið skulið vera vinir, sagði Prudence, kuldalega. — Alls ekki, allir sem þekfctu Blister elskuðu hann. — Ég meina að það er skrýtið. maður gat ekki litið inn í krána án það rekast á hann, það var eins og hann fyllti út í all- an staðinn, og þegar maðiur hitti hann þá var maður auðvitað vin gjarnlegur, svo á frændi hans kráma? — Ekki lengur, hann dó um daginn og eftirlét Bill hana. — Eru nokkrir hunctar þar? er fimmtudagur 4. júní — Quirinus Tungl í hásuðri kl. 13.48 Árdegisliáflæði í Rvík kl. 6.23 HEILSUGÆZLÁ SlökkviiiðiV siíikrabifi-piðir. Sjúkrabifreið í Hafnarfirði sima 51336. fyri. '• vkjavík og Kópavog sími 11100 Slysavarðstofan i Borgarspítalamnti er opin ailan sóiarhringinn. Að eins móttaka slasaðra. Siml 81212, Kópavogs-Apótek og Kenavikur Apótek erc opin virka daga kl 9—19 laugardaga kl. 9—14 helga daga kl. 13—15. Almennar upplýsmgar um tækna bjónustu 1 borginni eru gefnar símsvara L æknafélrcs Reykiavik ur, simi 18888. Fi garhc " a t Kópavogi. Hlíðarvegi 40. sími 42644 Apótek Hafnarfjarðar er opíð alla virka daga ftá fcl 9—7 á laugar dögum ki. 9—2 óg a sunnudögum og öðrum helgidögum er opið irá kl. 2—4. Kópavogs-',pótek og Keflavikur' apótek eru opin virka daga kl. 9 —19 laugardaga kl. 9—14. helgi- daga kl. 13—15 Tannlæknavakl er ' Heiisuvernd arstöðinni (þar sem slysavarð stofan var) og er opin laugardaga og sunnudaga kl 5—6 e. h. Sími 22411 Kvöld og helgarvörzlu Apoteka i Reykjavík annast vikuna 30. maí til 5. júní Apótek Austurbæjar og Holts-Apótek. Næturvörzlu í Keflavík 4 júní annast Guðjón Kletnenzson. SIGLINGAR Skipadcild S.f.S.: Arnarfell fór 2. þ.m. frá Hull til Rvíkur. Jökulfell fór í gær frá íslandj til New Bedford. Dísarfell er í Gdynia, fer þaðan á morgun til Valkom. Litlafell fer væntan- lega í kvöld frá Svendborg til Is- lahds. Helgafell fór í gær frá Vent- spils til Svendborgar. Stapafell væntanlegt til Keflavíkur á morg- un. Mælifell er í Valkom. Falcon Reefer væntanlegt til New Bed- ford í dag. Fálkur er á Akureyri. Nordic Proctor er á Akureyri. Snowman fór 1. þ.m. frá Gauta- borg til Hornafjarðar. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er í Rvik. Hcrjólfur fer frá Vestmannaeyjum kl. 12.00 á há- degi í dag lil Þorlákshafnar, þaðan aftur kl. 17.00 til Veslmannaeyja. Herðúbreið er í Rvík. FLUGÁÆTLÁNIR Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug. GuUfaxi fór til Osló <>'A Kaupmanna hafn'ar kl. 08,30 í inorgun. Er væntaniegur aftur til Keflavíkur kl. 16.55 í dag. Gullfaxi fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:30 í fyrramálið. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Vest- mannaeyja (2 ferðir), Akureyrar (3 ferðir), Raufarhafnar, Þórshatn ar, Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar, ísfjarðar og Egilsstaða. Á morgun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja (2 ferðir), Akur eyrar (2 ferðir), Húsavíkur, Patreksfjarðar, ísafjarðar, Sauðár- króks, og Egilsstaða. ÁHEIT OG GJAFIR Hallgríinskirkja kr. 500 N.N. SÖFN OG SÝNINGAR Dýrasýning. Dýrasýning Andresar Valberg er opin öll kvöld kl. 8—11 og laug- ardaga kl. 12—10 Aðgöngumiðar er happdrætti. dregið er vikulega 1 vinningur sem er 2M> milljón ára gamal] steingerður kuðung- ur. ísienzka dýrasafnið verður opið daglega i Breiðfirð- ingabúð. Skólavörðustíg 6B kl. 10—22. tsl dýrasafnið. ORÐSFNDING Orlofsnefnd húsmæðra í Reykja- vík opnar krifstofu að Hallveigar- stöðum mánudaginn 8. júní. Tekið á móti umsóknum mánudaga, mið- vikudaga og ' tudaga frá kl. 4— 6. Uppl. í síma 18156. Frá Mæðrastyrksnefnd: Hvíldarvikur mæðrastyrksntfnd ar að Hlaðgerðakoti byrja 19 jú.J og verða tveir hópar ' - -’dri konur Þá verða mæður með börn sín eins og uni'-’nfarin sumur og beim skipl í hó»a. Konur, sem ætla a.l fá' .i.mar- dvöl hjá nefndinni tali við skrif- stofuna sem fyr=*' að Njálsgötu 3. Þar eru gefnar nánari uppl Opið daglega frá kl. 2—4 nema laugar- rlno a ^írrn 14/149 Orðsending frá barnaheimilinu Vorboðinn. Getum bætt við okkur nokkrum börnum til sumardvalar í Rauðhól- um Uppl. kl. 2—6 daglega á skrif stofu verkakvennafélagsins Fram- sókn^r st 26931. Nefndin. FÉLAGSLlF Ferðafélagsfcrð uni næstu helgi 1. Þórsmerkurferð á laugardag kl. 2. 2. Heklueldar kl. 2 á laugardag. 3. Suður með sjó (fuglaskoðun á Hafnabergi og víðar) á sunnudags- morgun kl. 9,30. 4. Fjöruganga frá Kúagerði í Straumsvík. Kl. 9.30 á sunnudag. Ferðafélag íslands, Öldugötu 3 símar 19533 og 11798. GENGISSKRÁNING Nr. 62 — 3. jóni 1970 1 Bandar. dotlar 87,90 88,10 1 Steriingspund 211,00 211,50 1 KanadadoHar 85,20 85,40 100 Dansfcar tor. 1.172,00 1.174,66 100 Norskar kr. 1.229,80 1.232,60 100 Sænskar kr. 1.691,54 1.695,40 100 Finnsk mörk 2.108,42 2.113,20 100 Franskir fr. 1.592,90 1.596,50 100 Belg. frankar 177,10 177,50 100 Svissn. fr. 2.043,60 2.048,26 100 GylMni 2.424,80 2.430,30 100 V.-þýzk m. 2.419,58 2.425,00 100 Lárur 13,96 14,00 lOO Austurr. sch. 339,60 340,38 100 Escudos 307,83 306,53 100 Pesetar 126,27 126,65 100 Reikningskrónur — Vörusklptalön.i 99,86 100,14 1 Reikningsdollar — Vöruskiptalöna 87,90 $8,10 1 Reikningspund — Vöruskiptalönd 210,95 211,45 ■r 3 V > :ni rm m f ■ 1 j ■: 11 ( J, f ■ ■ Lárét.t: 1 Þjálfun. 6 Borg. 8 Forföður. 9 Hás. 10 Hrúga. 11 Drykkur. 12 Grænmeti 13 Óhreinka. 15 Óx. Krossgáta Nr. 551 Lóðrétt: 2 Yfirhafnjr. 3 Tveir. 4 Frá Noregi. 5 Gljá- bera. 7 Fjárhirðir. 14 Drykk ur. Káðning á gátu nr. 550. Lárétt: 1 Skóli. 6 Aki. 8 Ma*-!. 9 Fár. 10 Tin. 11 Umbun. 12 Ann. 13 Tað. 15 L#ir. Lóðrétt: 2 Kantata. 3 Ok. 4 Lifnaði. 5 Umbun. 7 Krón.». 14 at.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.