Tíminn - 05.06.1970, Blaðsíða 2

Tíminn - 05.06.1970, Blaðsíða 2
’ '''rnHnpírnyT'^^ n*» n»n tj J J. r/' ■ f, J 11 tvt nvTPf t "rT r *r p j 'T |? j í M TIMTNTsI V •<. .T. ~ «■,•' r (. ., níW> .t,<- Y\ít" FÖSTUDAGUR 5. júní 1970 JOHNS-MANVILLE glerullareinangrun er nu seiu fyrr vlnsælasta og örugglega ódýrasta glerullar- einangruu á markaðnum t dag. Aub þesí fáit þér trian álpapplr með. Bagkvæmasta einangrunarefnið i flntningi Jafnvel flugfragt bnrgar sig. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. sem er. M U N I Ð JOHNS-MANVILLE í alla einangrun — Sendum hvert á land JÖN LOFTSSON H.F. HRINGBRAUT 121 Sim 10600 GLERARGÖTU 26. Akureyrt — Siml 96-21344. VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN T I-karaur | Lagerstærðir miðað við múrop: ' Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm i - 210 - x - 270 sm , Aðrar stærðir. smíðaðar eftir beiðni. GLUGGAS MIÐJAN i Síðumúlo 12 ■ Sími 3S220 BLÚMASTOFA FRIÐFINNS Suðurlandsbraut 10. ÚRVAL FALLEGRA POTTAPLANTNA Skreytum við ölí tækifæri. * OpiS ÖU kvöld og allar helgar til kl 22.00 Sími 31099. — PÓSTSENDUM — Dr. Bragi Jósefsson: Framtíð menntaskólanna og „kubbakerfið Landsþing menntaskólanema. Nú hafa menntaskólanemar haldið sitt þriðja .andsþing og eftir öllum sólarmerkj'um að dæma er augljóst að þeir hafa ekki í hyggju að láta sitt eft- ir liggja í baráttunni fyrir bættum fræðsluháttum og betra þjóðfélagi. Mesta athygli vekur samþykkt landsþingsins um að leggja tií að bekkja- og deildaskiptin verði lögð niður í menntaskólunum en í stað þess Ikomi, það sem þeir nefna „stigakerfi“ eða „punkta- ifcerfi“. Kerfið. Á fundum sem ég hélt á ýmsum stöðum út um land, á síðastliðnu sumri, ræddi ég all ítarlega um eðli, tilgang og framkvæmd nefnds kerfis. Sjálfur hef ég notað orðið „einingakerfi“, af orðinu „námseining“. Á einum fund- inum kom fram sú uppástunga að nefna þetta nýja kerfi „fcuibbakerfi“, en skýringar- myndir þær sem ég dró upp munu sennilega hafa orðið nofcfcuð gott tilefni til þeirrar nafngiftar. Hvað sem því líð- ur er hér um að ræ’ða eitt og hið sama fyrirbærið, sem mál- fræðingar og aðrir áhugamenn geta spreytt sig á eftir vild. Fyrst inn á þetta er komið langar mig til þess að drepa á orðið „námsleið“ eða „náms braut“. Þegar almenningur notar þessi orð er venjulega átt við náfcvæmlega það sem orðið segir til um, frá sjónar- héli „þess sem nemur“. í ens>ku máli er til orðið „streaming", sem mjög mikið er notað, og það jafnvel utar. hins ensku- mœlandi heims. Orðið merlkir „námsbraut", en efcki frá sjón- arhéli þess sem nemur, eins og við þekkjum, heldur frá sjón- arhóli „kerfisins", ef svo má að orði komast. Kerfi það sem nú tíðkast í munntaskólunum er einmitt „streaming", eða það sem kallia mœtti „náms- brautakerfi“. Mismunurinn á „námsbrautakerfinu“ og „ein- ingakerfinu" er fyrst og fremst stjórnfræðilegs eðlis, en hefur jafnframt beiin og óbeiin áhrif á alla starfshætti og árangur skólanna. Sú breyting sem orðið hef- ur á menntakröfum nútíma þjóðfélags gerir það að verfc- um að ,,námsbrautakerfið“ verður einstaklega stirt í vöf- um og óheppilegt til þess að veita fjölbreytt nám í sam- ræmi við þarfir og kröfur ein- staklingsins. Þróun evrópskra mennta- skóla (gymnasium, lycée, grammar school o.s. frv.) hef- ur einmitt verið í þá átt, að aðlagast breyttum þjóðfélags- þörf. Sannleikurinn er einmitt sá, að evrópsikir menntaskólar hafa allt fiam á síðasta ára- tug stuðlað beint og óbeint gegn eðlilegri aðlöigun og þró- un heildarskólakerfis viðkom- andi bjóða. Framtið hins evr- ópska menntaskóla var því ein ungis hægt að tryggja með því að endurmeta frá grunni hina þjóðfélagslegu stöðu skólans. Áhrif þessarar þróunar virðist í fljótu bragði byltingarkennd, en þá er vert að hafa í huga að við lifum á öld hraða og mikilla framfara. „Einingakerfið“ hefur flesta þá kosti sem einkenna gotl skipulag, enda losar það skóla kerfið við ýmsa fylgifiska frá fyrri öldum, sem engu já- kvœðu hlutverki gegna í nú- tíma þjóðfélagi. Hér á landi höfum við verið a® sóa dýr- mætum tíma í að pexa út af tilgangslausum formsatriðum og klastra upp á úrsér-gengið fyr irkomulag, sem flestar menn- ingarþjóðir heims hafa þegar lagt niður, eða eru vel á veg komnar með að leggja niður. Að vísu má benda á að Jó- hann S. Hannesson skólameist ari á Laugarvatni hefur kom- ið á nokkrum formbreyting- um, en þegar litið er á heild- armyndina er ástandið mjög langt frá því að vera viðun- andi. Hér er um a’ð ræða form- breytingu án fullnýtingar á þeim aðstæðum sem við breyt- inguna skapast. Auðvitað er mér fuirijóst að .Tóhann skóla- meistari gerir sér grein fyrir þeim takmörkunum sem hon- um eru settar, en þar með er ekki sagt að almenningur í landinu þurfi að standa hjá að gerðarlaus og láta forpokun og skammsýni . áðamanna hindra framgang eðlilegra um bóta, svo sem þeirra er hann hefur barizt fyrir undanfarinn ártug. Það er því sérstabt á- nægjuefni að menntaskólanem ar hiafa tekið ákveðna afstöðu til þessa máls, og sízt ætti að spilía málstaðnum að tals- menn tillögunnar eru einmitt úr hópi hins gamla og virðu- lega menntaskóla í Reykjavík. Menntaskólinn við Tjörnina. Á síðastliðnu ári sendi ég menntamálaráðherra nokkur drög að tillögu um breytingar á starfsháttum hins nýja, og þá fyrirhugaða, menntaskóla í Reykjavík. Hugmynd mín var fyrst og fremst í þá átt, að skipuleggja frá grunni starfs- hættá og námsfyrirkomulag skólans með tilliti til „eininga kerfisins". Breytingin af þessu tagi er mun auðvéldara að koma á I nýjum skóla heldur en þar sem sbapazt hafa fjöl- mörg tilefni til árekstra. Ég benti einnig á, að með því að innleiða „einingakerfið" í þess um ákveðna menntaskóla skap aðist gullið tækifæri til þess að vinna að heildarsamræmingu a „námseiningum“ gagnfræða- og menntaskólastigsins al- mennt, og þar með væri lagð- ur grundvöllur að „samskóla- hugmyndinni", en tillaga um það efni var ftott I Borgar- stjórn Reykjavíkur nú fyrir skömmu. Sú hugmynd að gera Menntaskólann við Tjöm- ina að sérstökum máladeildar- skóla er því skref aftur á bak, og í engu sainræmi við fyrir- sjáanlega þróun þessara mála. Menntaskc á ísafirði. 14. maí 1965 voru samþykkt lög þar sem, segir í 1. grein á þessa leið: „Menntaskólar skulu vera sex, tveir í Reykja- vík, einn á Akureyrl, einn á Laugarvatni, einn á ísafirði og einn á Austurlandi. Heimilt er að stofna fleiri menntaskóla í Reykjavík eða nágrenni". f menntaskólafrumvarpinu sem lagt var fram í fyrra var 1. grein breytt, sem hér segir: Menntaskólar sfcu’u vera svo margir sem þörf er á a'ð dómi menntamálaráð- herra. . Sú staðreynd að ný lög eru samiþykkt áður en hin eldri ná fram að ganga er dag- legt brauð, að því er fræðslu- málum við víkur. f þessu til- felli var hugmyndin auðsjáan- lega sú að svæfa ísafjarðar- skólann, en fyrir hörku og samstöðu viðkomandi aðila hef ur nú verið ákveðið að skól- inn verði stofnaður. Stofnun Menntaskóla á ísafirði á vafa- laust eftir að verða ísfirðing- um og Vestfirðingum almennt ómetanlegt mienningarfram lag. Sú hugmynd hefur komið fram að ef til vill mætti setja á stofn félagsfræðideild við væntanlegan menntaskóla á ísa firði. Um það í sjálfu sér er ekkert nema gott að segja, enda ætti félagsfræði fyrir löngu að vera orðin föst náms grein í ölum menntaskólum landsins. Að leggja sérstaka á- herzlu á félagsfræði við ísa- fjarðarskólann er þó að mínu viti fyrir neðan allar helur. Á teiknilborðinu geta slíkar huá- myndir gengið, en þegar litið er á raunverulegar aðstæður til framkvæmda er hætt við að annað verði upp á teningnum. Kvennaskólinn í Reykjavík. Þá vil ég víkja nokkrum orð um að tillögu þeirri, sem fram hefur komið um að veita Kvennaskólanum í Reykjavík réttindi til þess að útskrifa stúdenta. Kvennaskólinn var stofnaður 1874 og er því einn af elztu skólu;.. landsins. Saga þessa skóla er þeim sem að honum standa til mikils sóma enda hefur skólinn allt fram á þennan dag verið meira held ur en venjulegur framhalds- haldsskóli fyrir stúlkur, og fyrst og fremst merk uppeldis- og menntastofnun. Þess má einn ig geta að mangir af merk- ustu skólum heimsins eru ein- mitt fyrir konur einungis eða karla einungis. Réttindi Kvennaskóla.-s til þess að út- skrifa sitúdenta geta aðeins orðið tii þess að gera hann að áhrifameiri og betri mennta- stofnun. Ýmsir sérfræðingar hafa bent á nauðsyn þess að piltar ?g stúlkur umgangist og starfi saman við nám. Spurn- ingin hér er þó ekki hvort leyfa eigi piltum inngöngu Kvennaskólann, heldur hvort Kvennaskólinn fái aukin rétt- indi sem nienntatstofnun. Það á ekki að vera takmark okkar að gera Kvennaskólann að venjulegum inei.ntaskóla. Það á einniitt að vera takmark okk ar að veita honum aðstöðu til þess að þróast eðlilega, sem menntaskóla fyrir stúlkur. Þeir sem bezt þeLxja til starfs hátta Kvennaskólans munu fagna eindregið framgangi þessa máls. Árekstrar þeir sem orðið hafa út af lágmarkskröfum Læknadeildar Háskólans eru i fyllsta máta eðlilegir. Sögulega séð gaf stúdenfaprófið rétt til inngöngu í Háskólana. Þróun æðri menntunar á síðustu ár- um hefur einkennzt af sérhæf- ingu og slíkri þekkingaraukn- ingu, sem engu líkist frá fyrri tímum. Enda þótt háskólinn sé stjórnfræðUega samnefnari hinna ýmsu deilda er þróunin ■ greinilega í þá átt að auka sjálfstjórn og séraðstöðu deild anna. Samkvæmt þvf hljóta námskröfur hinna cinstöku deilda Háskólans að þróast. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, þá hlýtur það að koma í hlut viðkomandi deilda að leggja tU og meta hæfUeg inntökuskilyrði vænt- anlegra stúdenta. Á hinn bóg- inn er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, að núgUdandi ,,námsbrautakerfi“ mennta- skólanna gefur allsendis ófull- nægjandi forsendur fyrir hinni hamdahófskenndu ábvörðun deildanna á lágmarkseinkunn á stúdentsprófi. Með tiikomu „einingakerfisins“ yrðu allir slfkir árekstrar að engu, enda vissu nemendur þá að hverju væri gengið. Vandamál deUd- anna er skiljanlegt og eðlUegt, en framkvæmd málsins er ó- réttlát. Síðastliðið sumar ræddi ég við foystumeim ýmissa fram- haldssbóla um þá hugmynd að koma á fót landsþingi fram- haldsskólanema. Undirtektir voru slQtar að telja má víst að hugmyndin verði að veruleika. og er enginn vafi á því að slfkt landsþing muni hafa vekjandi og örfandi áhrif á þróun skóla mála í landinu. Enda þótt hin- ir ýmsu hópar framhaldsskóla eigi einstakra hagsmuna að gæta er enginn vafi á því að hin sameiginlegu hagsmuna mál eru engu veigaminni. Það eru ekkl einungis skól- arnir, sem við viljum endur- skapa, hað er þjóðfélagið allt sem við vUjum endurbæta og styrkja. Það er ekki nóg að koma á stofn góðum skólum. Þjóðfélagið sjálft þarf a0 rétta örvandi hönd r æskunnar þeg ar skólanámi lýkur. Nú hafa menntaskólanemar tekið for- ystuna. Framundan bíða heill- andi verkefni sem við trúum að ykkur muni takast að leysa þjóðinni aUri til heiUa. (Gredín þessi hefua- beðið birt inigar notokurn tíma).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.