Tíminn - 10.07.1970, Blaðsíða 3

Tíminn - 10.07.1970, Blaðsíða 3
FðSTUDAGUR 10. júlí 1970. TIMINN 3 LIU I VINNUVEIT- ENDASAMBANDID Þorvaldur Þorsteinsson úr Garðahreppi var nýlega kjörinn einn af for- setum Lion á þingi hreyfingarinnar i Atlantic City í New Jersey fyrlr skömmu. Hér á myndinni óskar dr. Robert D. Mc Cullough frá Tulsa í Oklahóma, forseti alheimshreyfingar Lionklúbbanna Þorvaldi til ham- ingju. Á þinginu, sem haldið var í Atlantic City voru yfir 35 þúsund fulltrúar frá 14ó löndum. Þorvaldur er til vinstri á myndinni. Hjúkrunarþingsfulltrúar dreif- ast um landið að loknu þingi PIB—Reykjavík, fimmtudag. Þrettánda þingi S9N var slit- ið í dag, í Háskólabíói. Þrjátíu manna kvennakór frá Finnlandi söng við slitin, _en síðan var sýnd kvikmynd frá íslandi, sem vakti mikla hrifningu allra viðstaddra. Að því búnu söng Guðrún Á. Sdm- onar óperusöngkona, við mikinn fögnuð áheyrenda. Undirleik ann- aðist Ólafur Vignir Albertsson. Þá flutti María Pétursdóttir formað- ur Hjúkrunarkvennafélags Is- lands ávarp, og þakkaði þátttak- endum fyrir komuna, og óskaði þeim góðrar ferðar heim. Að lokum tók Gerd Zetterström Lagervald, formaður SSlN til máls, og þakkaði mótttökur og ánægju- legt samstarf fyrir og meðan á þinginu hefur staðið. Gerið hún þá einnig þær Ágot Lindström fyrr- um formann, frá Danmörku, gjald kera SSN óg Lauru Christiansen að heiðursfélögum samtakanna. Blindrafélagíð Dregið var í happdrætti Blindra félagsins þann 8. júlí og kom vinn ingurinn á miða no. 33570. Handhafi miðans er beðinn að vitja vinningsins, sem er Ford Taunus fólksbifreið, til Blindrafé- lagsins, Hamrahlíð 17 fyrir 14. þ. m. Eftir þann tíma verður lok- að vegna sumarleyfa til 11. ágúst. Síðan sagði hún þingi slitið. Hjúknmarþingsfulltrúar halda nú sumir heim á leið, en aðrir fara í ferðalög um landið, þriggja daga, viku og allt upp í hálfs mánaðar ferðir, og einnig munu nokkrar hjúkrunarkonur fara í skemmtiferð til Grænlands, áður en þær halda heim aftur. EJ—■Reykjavík, fimmtudag. Landssamband ísl. útvegsmanna og Félag ísl. iðnrekenda gengu bæði í Vinnuveitendasamband ís- lands á siíðasta starfsári. að því er segir í frétt um aðalfund Vinnu veitendasambandsins, sem haldinn var í gær. Var þetta framhalds- aðalfundur. Nokkur halli var á rekstri sam- bandsins á síðasta starfsári, og hefur félagsgjald Vinnuveitenda- sambandsins því hækkað. Fjölgað var í framkvæmda- stjórn sambandsins um tvo, þann- ig að í næstu framkvæmdastjórn verða 7 menn. I aðalstjórn eiga hins vegar sæti 39 menn. í stjórn ina voru kjörnir til næstu þriggja ára tveir nýir menn, Sverrir Júlí usson og Gunnar J. Friðriksson, en þeir Kristján Siggeirsson. Karv- el Ögmundsson, Halldór H. Jóns- son, Hallgrímur Fr. Hallgríms- son, Árdís Pálsdóttir og Oli M. ísaksson voru endurkjörnir. Þar sem tveir nýir menn voru kjörnir í aðalstjórnina, hafa ein- hverjir tveir ekki verið endur- kjörnir, en ekki fylgir það frétt Vinnuveiténdasambandsins hverjir féllu út. Laxfoss enn á sínum gamla síað EB—Reykjavík, fimmtudag. Afturhluti Laxfoss gamla hef- ur nú legið um nær tvo tugi ára við innsiglinguna í Sundahöfnina nýju. Var ráðgert að fjarlægja flakið á flóðinu á tíunda tíman- anum í kvöld, en hætt við það vegna veðurs, og nú óvíst hvenær það þarfa verk verður framkvæmt. En unnið er nú að því, á vegum Reykjavíkr.rhafnar, að hreinsa innsiglinguna í Sundahöfn. Átti að nota til fyrrgreinds verks flotkrana Reykjavíkurhafn- ar og björgunarskipið Goðarm, en froskmenn unnu að því í gær, 300 dollurum stolið úr herbergi sofandi hjóna OÓ-Reykjavík, fimmtudag. Bíræfinn þjófnaður var framinn á Hótel Borg í dag. Var stolið 300 dollurum frá bandariskum hjónum, milli kl. 3 op 4, en pen- ingarnir voru á snyrtiborði í her- bergi þeirra, en hjónin sváfu í herberginu á meðan þjófurinn læddist inn og framdi ránið. Hjónin komu flugleiðis til lands ins í morgun. Voru þau þreytt eftir ferðina og skömmu eftir að þau komu á hótelið, lögðu þau sig til svefns, og sváfu fram á dag- inn. Hafði maðurinn lagt frá sér veski sitt á snyrtiborðið í her- berginu. Rétt fyrir kl. 4 urðu vakta- skipti hjá herbergisþernum. Stúlka, sem þá kom á vakt, átti leið inn á snyrtiherbergi á fyrstu hæð hótelsins, fann veski vafið inn í handiknæði. Fór hún með það í afgreiðslu hótelsins, og þar kom í ljós, hver éigandinn var. Var hringt í manninn úr afgreiðsl unni og hann vakinn og saknaði hann þegar evskis síns af snyrti- borðinu. Var þá búið að hirða 300 doll- ara úr veskinu, en persónuskilríki og fleira var skilið eftir. Af þess- ari upphæð voru tveir 50 dollara seðlar. 1200 hestamenn þegar komnir til Þingvalla Landsmót hestamanna hefst að Skógarhólum í dag. ' KJ—Reykjavík, fimmtudag. Hestamenn hvaðanæva að tóku að streyma í Skógarhóla í dag, og var þar aðallega um að ræða hestafólk með keppn- is- og sýningarhross. Var tal- ið, að um 1200 manns væri komið á staðinn í dag, með um 3000 Woss. Tjaldborg var risin á staðn- um og allt orðið hið mótsleg- asta. í fyrramálið kl. 10, föstu- dagsmorgun. hefst mótið, en kl. 2 e. h. setur Albert Jó- hannsson í Skógum. formaður Landssambands hestamanna. mótið Á morgun ærða kynbóta- hross og góðhestar sýndir Þá fara fram undanrásir i kappreiðum, og síðar um dag- inn fér fram Keppni góðhesta fyrir Evrópukeppni íslenzkra hesta í Þýzkalandi. Þá fer fram sölusýning á hrossum, og um kvöldið verð- ur kvöldvaka, sem hestamenn sjá um sjálfir. Mótið heldur svo áfram á laugardag og sunnudag, en þá verður því slitið. , að koma vírum á flakið. Eins og flestir vita var Laxfoss áður fyrr í áætlunarferðum milli Reykjavíkur og Akraness — fyr- irrennari Akraborgarinnar — en strandaði um 1950 á Kjalarnesi. Var hann svo dreginn þaðan inn á sund þar sem hann brotnaði um brúna, og sökk afturhlutinn þar sem innsiglingin verður nú í Sundah'öfnina nýju. Máiverka- og högg- myndasýning á Akranesi GB—Akranesi, miðvikudag. Magnús Á. Árnason opnar mál- verka- og höggmyndasýningu í Tónlistarskólanum á Akranesi. næstkomandi föstudagskvöld, 10. FramhiLd » bls. 14. Hríðarbylur Framhald af bls. 1 veðrið niður. Færðin var sæmi leg, þrátt fyrir snjókomuna. í dag var slæmt samband við bílan.a en búizt var við þeim niður í Bárðardal undir kvöld- ið. Nokkrir fjallvegir urðu ófær ir vegna snjókomunnar í nótt, og voru þeir ruddir í dag. Hell isheiði -eystri, sem er milli Vopnafjarðar og Héraðsháls, varð ófær öllum bílum. í nótt var einn bíll á ferð yfir Vopna fjarðarheiði, og var búinn að vera níu klukkustundir á leið inni, þegar hann komst til byggða, en þarna er aðeins klukkustundar akstur við venju leg skilyrði. Jökuldalsheiði varð ófær öllum minni bílum. Voru þessir fjallvegir ruddir í dag. Víðar snjóaði á vegi, en bó ekki meira en svo að umferð stöðvaðist ekki. Ekki er vitað um aðra ferða mannahópa, en þann sem áður getur. sem var á ferð á snjóa- svæðinu í nótt. Mikill ferða- mannastraumur er nú víða um landið, er til dæmis hópur frá Feraðfélaginu fyrir norðan. en hann var í byggð í nótt. Sjálf sagt eru fleiri smærri hópar ferðamanna á tiríðarsvæðinu. en þeir, sem leggja hálendis- ferðir fyrir sig, eru að öllum jafnaði vanir ferðamenn. ng ætti þeim ekki að verða meint af, þótt veður kólni og geri hríð. Hvorugt tll sóma Að sögn Alþýðublaðsins í gær hefur mcimtamálaráðuneyt- ið upplýst, að styrkur þess til grænlenzkunáms, 60 þús. krón ur, hafi aðeins tvisvar verið veittur þau sjö ár, sem hann hefur verið í boði, og þá í hvorugt skiptið til grænlenzku náms, heidur náms í menning- arsögu Grænlendinga. Áhug- inn er nú ekki meiri. Liklega eigum við því engan íslend- ing, búsettan hér á landi, svo færan í grænlenzku, að hann gæti gerzt dómtúlkur ef á þyrfti að halda. Þetta er auðvitað með öUu óhæft, að við skulum ekki vera færir um að skiptast á orðum við næsta nágranna. En hvað skal nú til varnar verða vorum sóma? Þegar litið er í hina áttina, til næsta nágranna okkar í austri, Færeyinga, verður ann- að uppi á teningi, en þó litlu betra. Þessir nágrannar eru okkur svo náskyldir, að hvorir geta lesið sér til skilnings rit- mál hins lærdóms- og fyrir- liafnarlaust. Færeyskan er eina erlenda málið, sem íslending- ar geta lesið þannig. Samt bregður svo kynlega við, að þessar tyær þjóðir skiptast ekki á bókum sínum og blöð- um, svo að heitið geti. Fær- eyskar bækur og blöð eru fá- séð undur eins og hvítir hrafn ar í íslenzkum bókabúðum, og litlu fleiri íslenzkar bækur mun að finna í Færeyjum, en þó mun hlutur Færeyinga betri í þessu efni. Þannig er þá ástatt um menningarsamskipti okkar við nágrannana. Aðra getum við ekki mælt málum þótt líf liggi við. og mál hinna viljum eða nennum við ekki að lesa, þótt við skiljum hvert orð. Hvor- ugt er til sóma. Harla goft, segir Vísir Vísir vill ekki viðurkenna, að ncítt atvinnuleysi sé hér á landi og skrifar um það for- ustugrein í gær, segir að „ekki sé hægt að tala um atvinnu- leysi á fslandi, því að lausar stöður í bjóðfélaginu skipti jafnvel hundruðum, þótt ekki sé miðað við annað en vinnu- aflsskortinn á fiskiskipunum og í fiskvinnslustöðvunum. Það ríkir því umírameftirspurn eftir vinnuafli hér á landi en ekki atvinnuieysi“. Þetta er sem sagt gott, mjög gott, seg- ir Vísir. Vísir segir ennfremur: .,Það er talið, að allt að 8000 skóla nemár komi á vinnumarkað- inn á hverju vori. Þar af^virð ast í þetta sinn aðeins tæplega 300 ekki hafa fengið vinnu, sem þeim þykir boðleg. Hvar vetna annars staðar í heimin- um þætti bað kraftaverk að finna sumarviunu fyrir hóp, sem nemui 10% af heildar- mannafla þjóðarinnar“. Þessi orð sýna bezt, hvílík- ur hattarmaður heldur þarna á penna. Hann ætti bó að gera sér ljóst, að mikill hluti þeirra skólanemenda, sem I vinnu- markaðinn kemur á vorin, er neðan við aldursmark það, sem haft er við atvinnuleysisskrán Framhaid ö bls. 14.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.