Tíminn - 16.07.1970, Blaðsíða 1
Dr. Bjarni Benediktsson Benedikt Vilmundarson Frú Sigríður Björnsdóttir
Forsætisráðherrahjónin
dr. Bjarni Benediktsson
og frú Sigríður Björnsdóttir
*
Kveðjuorð frá formanni Framsóknarflokksins
Þegar sorgartíðindin um hið sviplega fráfall forsæt-
isráðherrahjónanna spurðust s- 1. fðstudagsmorgun,
áttu orð Jónasar skálds Hallgrímssonar áreiðanlega
við:
Nú reikar harmur í húsum
og hryggð á þjóðbrafutum.
Svo djúp voru áhrif þeirrar harmafregnar. Og í
dag eru forsætisráðherrahjónin, Bjarni Benediktsson
og Sigriður Björnsdóttir, og dóttursonurinn ungi,
kvödd af þjóðinni allri. Á þeirri kveðjustund er
margs að minnast, en í fáeinum kveðjuorðum verð-
ur fátt eitt sagt.
Með dr. Bjarna Benediktssyni er hniginn í valinn
einn svipmesti stjórnmálamaður þjóðarinnar. Hann
hefur í störfum sínum komið víða við og markað hér
dýpri spor en flestir aðrir samtímamenn hans. Síð-
asta áratuginn hefur hann óefað verið valdamesti og
áhrifaríkasti stjórnmálamaður landsins. Þegar slík-
ir menn hverfa af sjónarsviðinu, verður skarð fyrir
skildi.
Bjarni Benediktsson átti að baki óvenjulega glæsi-
legan starfsferil. Hann varð ungur að árum kennari
í lögfræði, borgarstjóri í Reykjavík liðlega þrítug-
ur að aldri, var ráðherra um tuttugu ára skeið, og
þar af síðustu sjö árin forsætisráðherra. Alþingis-
maður var hann frá því 1942. Formaður Sjálfstæðis-
flokksins var hann frá 1961, en hafði þá áður um
árabil verið varaformaður. Auk þess gegndi hann
fjölmöcgum trúnaðarstörfum öðrum, sem hér verða
eigi rakin. Öll starfssaga hans ber því vitni, að allt
frá unga aldri og æ síðan naut hann mikils og óvenju-
legs trausts þeirra, er þekktu hann bezt. Ég held og,
að ekki sé ofmælt, að stjórnmálaandstæðingar hafi
almennt virt hann og viðurkennt, þrátt fyrir allt sem
á milli bar.
Allt frá æskuárum hafði Bjarni Benediktsson rika
hneigð til fræðimennsku og stjórnmálastarfa. Má
vera, að framan af hafi þessir þættir nokkuð togazt
á um hann. En allan síðari hluta ævi hans sátu stjórn-
málm í fyrirrúmi, og hans er er nú fyrst og fremst
minnzt sem stjórnmálamanns. Þó hygg éjg, að fræði-
störfin hafi jafnan átt í honum rikan þátt. Og honum
auðnaðist að inna af hendi fræðistörf, sem lengi
halda gildi. Lagadeildin sýndi honum því verðskuld-
aðan sóma, er hún sæmdi hann doktorsnafnbót. Hygg
ég, að honum hafi þótt vænt um þann virðingarvott.
Ég kynntist Bjarna Benediktssyni fyrst sem kenn-
ara í lögum.' Ég var nemandi hans öll námsár mín í
Háskólanum. Á ég um hann góðar minningar frá
þeim árum. Hann var góður kennari, skýr, ákvcðinn
og þungur á bárunni. Það varð síðar hlutskipti mitt
að fást sérstaklega við þau fræði, er hann kenndi,
og hefi ég á ýmsan liátt stuðzt við þann grundvöll,
er hann lagði.
Eftir að ég kom á Alþingí, og reyndar áður, átti
ég við hann margvísleg samskipti á stjórnmálasvið-
inu. Þar vorum við á öndverðum meiði, og sá ég
hann því auðvitað frá annarri hlið en samherjar, og
er mín mynd af honum því eðlilega önnur en þeirra.
Hann var sterkur pólitískur ’andstæðingur, skapheit-
ur baráttumaður, slyngur málafylgjumaður og gat
verið harðskeyttur og þykkjuþungur, ef því var
að skipta. Ilann var ágætur og rökfastur ræðumað-
ur, hafði frábært minni og gott vald á íslenzku
máli. í málflutningi hans var oft mikill þungi og
undiralda mikilla skapsmuna. Hann var margreynd-
ur maður og vitur, en bar eigi tilfinningar sínar á
torg. Hann var alla tíð starfsmaður mikill. Hann var
tvímælalaust fremstur sinna flokksmanna að mfo-
um dómi.
Dr. Bjarni Benediktsson var umdeildur eins óg
aðrir stjórnmálaleiðtogar. Um slika menn stendur
oftast stormur og styrr í lifandi lífi. Þeir njóta
sjaldnast sannmælis fyrr en siðar, er sagan leggur
dóm á verk þeirra, og er sá dómur þó enganveginn
alltaf óskeikull. Það liggur í hlutarins eðli, að
stjórnmálaandstæðingar líta öðrum augum á ýmis
stjórnmálastörf Bjarna Benediktssonar en skoðana-
bræður hans. Þeir gagnrýna þau mörg, og verður þar
sjálfsagt engin breyting á. En hvað sem öllum
ágreiningi um stjórnmálastefnur og dægurmál líður,
munu allir á einu máli um það, að Bjarni Benedikts-
son hafi verið mikilhæfur stjórnmálaforingi. Hann
var einn þeirra manna, er settu hvað mestan svip á
þjóðlífið síðustu árin og hafði úrslitaáhrif á fram-
vindu margra mála. Að honum er mikill sjónar-
sviptir. Alþingi verður svipminna án hans. Allir —
jafnt stjórnmálaandstæðingar sem samherjar —
munu sakna þess að fá ekki fraihar að sjá hann eða
heyra í sölum Alþingis.
Frú Sigríðul- Björnsdóttir, forsætisráðherrafrú var
greind kona og myndarleg, og var af öllum, er ttl
þekktu talin ágætiskona og bezta húsfreyja. Hún
var manni sínum traustur lífsförunautur og stoð í
Fraimihald á bls. &