Tíminn - 05.09.1970, Síða 3

Tíminn - 05.09.1970, Síða 3
MOGaEÐACajR 5. september 1970. TÍM1NN s Heimsókn í boöi ríkis- stjornarinnar tii 8. sept. Framhald af bls. 1 Forseti íslands, Dr. Kristián Eldjánr, svaráði með ræðu, og ræddi mest um hin miklu tengsf Kaupmannahafn-ar og Reykjavíkur, og minntist með gleði námsára sinna hér í Kaupmannahöfn. Málkunnátta forsetans vekur athygli Þessa ræðu, eins og ræðuna sem forsetinn hélt í konungsveizlunni, flutti forsetinn á góðri dönsku. Svo sem kunnugt er af fréttum var ræðum forsetans og konungs- ins sjónvarpað beint úr konungs- veizlunni, og hafa sjónvarpsáhorf- endur haft orð á því hér, hve forsetinn talaði góða dönsku, og hve hann flutti mál sitt vel. Eru þeir sjálfsagt óvanir því, að er- lendir þjóðhöfðingjar tali mál þeirra rétt eins og innfæddir væru. Áður en haldið var í ráðhúsið, heimsóttu hinir tignu gestir sjón- varsbærinn Gladsaxe, en þar stefn ir danska sjónvarpið að því, að hafa alla starfsemi sína, og á öllu að vera lokið þar árið 1980. Hans Sölvhöj, útvarpsstjóri, tók á móti gestunum í Gladsaxe, en August Stagerup, varaformaður danska útvarpsráðsins, ávarpáði gestina og rifjaði har.n upp kynni sin af íslenzkum útvarps- og sjónvarps- mönnum. Minntist hann líka á þau nánu og sérstöku tengsl, sem ís- lenzka og damska sjónvarpið og útvarpið hafa sín á milli. Það sem einna mesta athygli vafcti hjá gestunum í Gladsaxe, var að koma í þá deild danska sjónvarpsins, þar sem fram fara tilraunasendingar með litsjónvarp, en litsjónvarp er á tilraunastigi í Danmörku, og eru sendingar að- eins stutta stumd á degi hverjum. f útvarpshúsinu í Gladsaxe var boðið upp á kampavím og kökur áður en haldið var í Rúðhúsið. Frá Glasaxe var farið í Ráð- húsið, og þar var þoðið upp á kampavin og kökur. Voru urn 300 manns viðstaddir þá móttöku. Hádegisverður í veiðihúsi konungs. Síðan var haldið í veiðihús kon- ungsins, þar sem snæddur var há- degisverður. Voru þar aðeins kon- ungsfjölskyldan og forsetahjónin ásamt fylgdarliði þeirra frá ís- landi. Hádegisverðurinn var snædd ur í Eremitage-höll í Dyrahaven fyrir norðan Kaupmannahöfn, um 20 mínútna akstur frá miðborg Kaupmannahafnar. Að loknurn hádegisverðinum óku forsetahjónin að d’Angleterre hótelinu, þar sem þau dvöldust og hvíldu sig eftir þeytinginn og veizluhöldin undanfarua daga. f boði ríkisstiórnarinnar Á morgun, laugardag, hefst hin óformlega heimsókn forsetahjón- anna í boði dönsku ríkisstjórnar- innar. Fyrsti liður á þeirri dag- skrá er móttaka í íslenzka sendi- ráðinu, en þangað eru boðnir m.a. aliir ræðismenn íslands í Dan- mörku, sem munu vera 10 eða 11 talsins. Alls verða í þessu boði um 40 manns. Á sunnudaginn verður haldið snemma af stað frá d’Angleterxe hóteli og skoðaðar hallir í ná- Framhald á bls. 14. ; : ’• m ;Lu .. Frá veizlunni í Fredensborgarhöll. Við háborðið eru frá vinstri, Ingiríður drottning, Dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands, Friðrik konungur, frú Halldóra Eldjárn og Hendrik prins. ’i. •. i •- Dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands, og Friðrik Danakon ungur, ganga fram hjá lífverði konungs er forsetahjónin komu til Kaup mannahafnar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.