Tíminn - 05.09.1970, Blaðsíða 5
I/AU<iARl>AGUR 5. septeniber 1970,
TIMINN
s
MEÐ MORGUM
KAFFINU
— fjÞ-m ma'öur, þér hafið
be'ðið um hönd dóttur minn-
ar. En getið þér haft ofan af
fyrir fjölskyldu
— Já, hvort ég get. Ég sem
á bæði útvarp og plötuspilara.
— Iívert í ósköpunum ertu
a'ð flýta þér svona? spurði
Úlla Lollu vinkonu sína.
— Það bauð mér ítali út í
gærkvöldi og við fórum í bíó
og svo á ball.
— En skjldirðu nokkuð af
því, sem hann sagði? ,
— Nei, en í morgun keypti
ég orðabók og nú er ég að
fara og gefa honum einn á’ann.
Ökukennarinn við nýjan nem
anda: — Ertu ekki svolítið nær
sýnn?
— Nærsýnn? Nei alls ekki.
— I-ívaða númer er á flutn-
ingabílnum fyrir framan okkur?
— Hvaða flutningabíl?
— Hefurðu nokkurs staðar
séð mömmu?
Farþegaskipið strandaði úti
á reginhafi og sökk. Aðeins
tveir komust upp á eyðieyju,
fyrsti stýrimaður og falleg
dökkhær'ð stúlka. Þau lágu um
stund og jöfnuðu sig í fjörunni,
en loks gat stýrimaðurinn stun
ið upp: — Afsakið fröken, en
erj þér upptekin í kvöld?
— Nei, elskan, það er ekki
pabbi, sem á að fá hneturnar.
Það eru aparnir í dýragarðinum.
©
-CP Q-—
— Því ertu svona afundin við
rnig.
Tvö nýfædd börn lágu Iilið
vi)ð hlið í vöggutnum sínum á
fæðingadeildinni. Þegar hjúkr-
unarkonan er farin út og allt er
hljótt, hvíslar annað þeirra að
hinu: — Ertu strákur eða
steipa?
— Eg er strákur, svarar hitt.
— Hvernig veiztu það?
— Nú ég er í ljósbláum
,'eistum.
ISPEGLI
■lillKtMf
DENNI
DÆMALAUSI
— Takk fyrir þú veizt. Þú hefur
verið mjög hjálplegur.
Andarungarnir fimm, sem
við sjáum á meðfylgjandi
myad. urðu fyrir því óláni að
missa móður sína, en til allrar
hamingju fundu þeir þó fljót-
lega fóstarmömmu, sem var
fús til að taka þá undir
sinn verndarvæng. Að vísu er
Hitlers verður án nokkurs
efa minnzt um ókomna daga.
Hann mun lifa í bókmenntun-
um og á sviðum leikhúsanna
ekki síður en Cæsar og Napó-
leon.
Japanir gera sitt til að niinn-
ingin um foringjann geymist.
Nýlaga var frumsýnt þar nýtt
lei'krit, sem heitir „Hitler er
ekki dauður“. Það fjallar um
tvo menn, sem báðir hafa ver-
ið staðgenglar Hitlers við opin
ber tækifæri, þegar hætta hef-
ur verið talin á morðtilraun.
Þeir halda því báðir fram að
Hitler sé ekki dauður, heldur
segir hvor um sig að hann sé
foringinn, en að líkið sé af
staðgengli.
Leikritið vakti mikla athygli
í Japan og þótti frammistaða
leikenda með afbrigðum góð.
Einkum voru gagnrýnendur
hrfinir af ungri, óþekktri leik-
konu, sem þeir sögðu að túlk-
aði Evu Braun sailldarlega.
En eins og allir vita, eru Jap-
anir frægir fyrir fjölmarga af-
burða skapgerðarleikara.
Elzti sonur Edwards Kenne-
dys, Edward yngri, sem nú er
átta ára, hefur undanfarna
mánuði verið undir handleiðslu
færustu sálfræðinga. Orsök
taugaveiklunarinnar er stöðug-
ur ótti drengsins um að faðir
hans verði myrtur.
Foreldrar hans hafa orðið að
taka hann úr hverjum skólan-
um á fætur öðrum vegna þess,
að félagar hans hafa sagt hon-
um í smáatriðum hvernig föður
bræður hans, Johh og Robert.
voru myrtir. og að næst hljóti
röðin að koma að föður hans.
Þrátt fyrir aðgerðir sálfræð-
inganna er Edward litli ennþá
mjög taugáveiklaður og spyr
föður sinn í sífellu, hvenær
hann verði myrtur eins og
bræður hans.
Edward segist eiga erfitt
með að sannfæra son sinn um
að til þessa komi ekki, því að
innst inni gerir hann sjálfur
ráð fyrir að einhvern tíma
veröi gerð tilraun til að 11110*33
hann.
hún ekki með vængi til að
breiða yfir þá, en hún hefur
engu að síður reynzt þeim sem
bezta móðir.
Það er sannarlega ekkert
grín að bæta á sig fimm börn-
um, og það andarungum, sem
eru sérlega fótfráir og alltaf
Pia Lindström, dóttir Ingrid
Bergmainn, býr i Ameríku og
hefur gert þar mikla lukku sem
fréttamaður við sjónvarp. Hún
var á ferð í Svíþjóð fyrir
skörnmu, ásamt fööur sínum,
Aron-Petter, og auk þess að fá
út úr ferðinni notálegt frí, var
meiningin að taka viðtöl við
iandana.
Fyrstu dagana í Stokkhólmi
___L:
að lenda í klandri, en tíkin
Presto telur eScki eftir sér að
hlaupa á eftir þeim
Á nóttunni hreiðrar svo all-
ur skarinn um sig í körfunni
hennar Presto, og þar er öryggi
og ylur, ekki síður en í hverju
öðru hreiðri.
hafði Pia þó ekki stundiegan
frið fyrir blaða- og fréttamönn-
um, sem áuðvitað þurftu að
fá viðtal vilS dóttur hÍTinar
frægu Bergman.
— Þetta gengur ekki, sagði
Pia, sem afveg var orðin upp-
gefin á látunum. — Ég hef ekki
nokkurn tíma til að taka mín
eigin viðtöl.
•*,
f síðastliðnum mánuði var
frumsýnd í Danmörku amerísk
kvikmynd. sem heitir í ísl. þýð-
ingu ..Frelsi til að elska“
Mynd þessi, sem fjallar á sér-
lega frjálslegan hátt uim kyn-
líf, hefur ekki verið sýnd í
Bandaríkjunum ennþá, því að
þar er hún nefnilega bönnuð.
Framleiðendur myndarinnar
eru tveir bandarískir sálfræð-
ingar, Phyllis og Eberhard
Kronhausen, en leikendurnir
eru allir un-gir og óþekktir.
Danskir gagnrýnendur voru
yfirleitt á einu máli um að
óþarfi væri að banna myndina.
— Hún fjallar á skemmtilegan
og hreinskilnislegan hátt um
samskipti kynjanna, og getur
engan veginn flokkazt undir
klám, sagði einn þeirra.
Á ineðfylgjandi mynd eru
aðalleikendurnir i huggulegri
baðsenu.