Tíminn - 27.09.1970, Blaðsíða 1
FRYSTIKtSTUR *
■** n » n m rnioi imoiun ;
* *W 3 FRYSTISKÁPAR *
*
*
*
*
*
*
*
*
I
*
*
*
30t/uBt££a/M**é&cs/£' AJf
aujssdinsma. Kmv&smizn a. st« iai»
50 manns frá
skozku óperunni
koma næstu daga
Mikið verður að gera hjá Þjóð-
leikhúsinu næstu viku við undir-
búning á sýningum fyrir skozku
óperuna. 50 manna flokkur lista-
manna er væntanlegur til landsins
næstu daga frá Edinborg. Þeir
fyrstu koma í dag, sunnudag, og
er j>ar um a® ræða tæknimenn,
en þeir byrja strax á mánudag-
inn að koma fyrir leiktjöldum og
öðrum útbúnaði varðandi sýningar
flokksins. Flugfélag íslands annast
flutning á fólki og leikmunum.
Um 180 pakkar og kassar af ýms-
nm stærðum og gerðum eru þegar
komnir til landsins og vinna starfs
menn Þjóðleikliússins nú að því
að koma leikmunum og tjöldum
fyrir í Þjóðleikhúsinu.
Hér sýna listamennirnir tvær
óperur eftir Benjamín Britten: Al-
bert Herring og The Turn of the
ScrewvHl.iómsveit kemur með
frá Skotlandi. Skozka óperan er
mjög ung að árum, en hefur að
undanförnu hlotið mi'kinn frama og
eir nú talið að Skozka óperan
komi næst hinum fræga óperu-
flokki Covent Garden að áiiti á
Bretlandseyjum.
Opinberri heimsókn
Zhivkovs lýkur í dag
EB—Reykjavík, laugardag.
Todor Zhivkov forsætisráðherra
Búlgaríu skoðaði sig um í dag.
Fór hann ásamt föruneyti í ferð
á Þingvöll og að Búrfellsvirkj-
un og Heklu.
í kvöld héldu gestirnir samsæti
til heiðurs íslenzku ríkisstjóminni
í Átthagasal Hótel Sögu. — For-
sætisráðherrann mun á morgun,
sunnudag, fara fyrir hádegi í skoð
unarferð um borgina, en síðan
snæðiir hann hádegisverð í Höfða
í boði borgarstjórnar Reykjavík-
ur. Síðdegis á morgun flýgur svo
Zhivkov ásamt föruneyti til Kaup-
mannahafnar.
Pétur Sigurðsson,
ísafirði, kjörinn
formaður A.S.V.
EB—Reykjavík, laugardag.
Þingi Alþýðusambands Vest-
fjarða í Alþýðuhúsinu á ísafirði,
lauk kl. 3 í nótt. Skiluðu nefndir
áliti síðdegis í gær og urðu mikl-
ar umræður um þau. Komu fram
tillögur, varðandi almenn kjara-
mál og sérhagsmunamál Vest-
firðinga.
Kosin var ný aðalstjórn sam-
bandsins, og voru eftirfarandi
kjörnir: Pétur Sigurðsson. forseti,
Sigurður J. Jóhannsson, ritari og
Bjarni L. Gestsson, gjaldkeri. Eru
þeir allir frá ísafirði. en í lögum
sambandsins er svo kveðið á, að
peir er aðalstjórn þess skipi, skuli
allir vera búsettir á ísafirði. —
Auk þess eiga tveir sambands-
manna í stjórn ASÍ jafnframt
sæti í aSalstjórn ASV.
FÍ-fokker hrapaði í Fær
eyjum, nítján slasaðir
Uri Zegal stjórnar sinfóníuhljómsveitinni. Myndin er tekin á æfingu f
gærmorgun. (Tímamynd Gunnar)
ari Joseph Kalichstein, píanóleik-
ari. Á dagskránni eru verk eftir
Mozart, Mendelssohn og Sibelius.
Meðal stjórnenda Sinfóníuhljóm
sveitarinnair á fyrra misseri má
nefna auk Zegals, þá Sjostako-
vitsj, O’Duinn og Wodiczko, Pál
P. Pálsson, Ragnar Björnsson og
Róbert A. Ottósson. Á síðara miss
eri verður Bohdan Wodiczko og
mun stjórna flestum tónleikunum.
Af verkunum sem þá verða flutt
má nefna ný hljómsveitarverk eft-
ir íslenzka höfunda.
Nýtt starfsár
Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar
SB—Reykjavík, laugardag.
31. starfsár Sinfóníuhljómsveit-
arinnar er nú að hefjast. Fyrstu
hljómleikarnir verða á fimmtu
dagskvöldið 1. okt. í Háskólabíói.
Stjórnandi er Uri Zegal og einleik-
SB—Reykfavrk, iaugardag.
Leiguflugvél Fiugfélags íslands hrapaSi á Mykjunesi í
Færeyjum um ki. 11 í morgun. Vélin sem var af gerðinni
Fokker Friendship, var a8 koma frá Bergen og var í aðflugi,
er slysið varð. 30 farþegar og 4 manna ísienzk áhofn voru í
vélinni og samkvæmt þeim fréttum, sem borizt höfSu, þegar
blaSiS fór í prentun, lét enginn líflS viS áreksturinn en
19 slösuðust. Ekki var vitað síðdegis í dag nánar um hversu
alvarleg meiðsii fólksins er.
Flugvélin átti að lenda á flug-1 asit um eftir henni. Nokkru síðar
vel’inum á Vogey kl. 11 í morgun, komu þrír af farþegum í vélinni
en M. 10.57 rofnaði allt samband til by-ggða á Mybjunesj og sögðu
við hana og var þá farið að svip-1 Framhald á bls 11
LEICA A LAXA
í KJÓS HÆKKAR
UM 1.6 MILLJ.
Verður leigð á 3,6 millj. næsta veiðitímabil.
EB—Reykjavík, föstudag.
Leigan á laxveiðiánum virðist
nú fara ört hækkandi. Ræddi Tím
inn í dag í þvj sambandi við Gísla
Ellertsson á MeSalfelli í Kjós en
hann er formaður Veiðifélags
Uppsagnir yfirmanna enn í gildi:
RÆTT UM NÝJA SAMN-
INGAGERÐ UM ÁRAMÓT
OÓ-Reykjavík, laugardag.
Allflestir yfirmenn á far-
skipunum hafa sagt upp störf-
um sínum frá og með 10. okt.
n.k., en þeir hafa átt í kjara-
deilu síðan í vor. 30. júní s.l.
voru sett bráðabirgðalög um
gerðardóm um kjör yfirmann
anna, en þá voru þeir búnir
að vera i verkfalli í nokkra
daga. Þá voru margir yfir-
menn búnir að segja upp
störfum sínum á skipunum,
en eftir úrskurðinn sögðu enn
fleiri upp, og eru uppsagn-
irnar miðaðar við 10. næsta
mánaðar eins og áður segir, j
en það voru stýrimenn, vél-;
stjórar loftskeytamenn ogí
brytar sem sögðu upp. Undan-
farið hafa staðið yfir viðræð-
ur milli deiluaðila um lausn
kjaradeilunnar, og er rætt um
nýja samningsgerð um næstu
áramót,
Gerðardórnsúrskurðurinn var
tilkynntur 22 ágúst s.l. Ekki leizt
yfirmönnum betur á hann en svo,
að uppsagnirnar giltu og gera enn.
Aðilar hafa ræðzt við undan-
farnar vikur til að kanna viðhorf-
in almennt. meðal annars með
það fyrir augum hvort hægt sé
að kosna á samningi sem komi
i staðimi fyrír gerðardóminn, en
at gerðardómurinn gildi til ára-
móta eins og venjulegur kjara-
samningur. Þetta er sá grundvöll
ur sem um er rætt. Hins vegar er
langt frá að samkomulag hafi
náðst og /erður viðræðunum hald
ið áfram í næstu viku.
Ef til þess keimur að yfirmenn
hætti á flutningaskipunum, en
uppsagnarfresturinn er miðaður
við 10. október eru uppsagnirn-
ar miðaðar við að viðkomandi
skip séu þá : íslenzkri höfn. Þá
geta skipafélögm krafizi að yfir
mennirnir fari ekki af skipunum
fyrr en að tveirr dögum liðnum
frá uppsagnardegi ef þannig stend
ur á.
1 einstaka tilfellum munu yfir-
mennirnir geta farið ai skipi i
erlendri höfn.
Kjósahrepps, og spurðist fyrir um
leiguna á Laxá í Kjós næsta veiði
tímabil. — Sagði Gísli, að sex til-
boð hefðu borizt um leigu á vatna-
svæðinu, og hefði tilboði Páls
Jónssonar og félaga verið tekið.
Verður áin leigð þeim félögum
á 3,6 miUjónir næsta veiðitímabil,
en samningurinn gildir í eitt ár.
Liðið veiði-tímabil höfðu sömu
aðilar ána á leigu, og var hún þá
leigð á 2 milljónir og tíu þúsund
krónum betur, svo að leiguverðið
hefur nú hækkað_ u-m tæpa 1,6
milljón króna. — f fyrra var áin
leigð Stangaveiðifélagi Reykjavik-
ur og sagði Gísli, að bá hefði
hún verið leigð á tæpa eina millj-
ón króna.
Eins og veiðimönnum og öðrum
er kunnugt, veiddist vel í ánni í
sumar. eða 1721 lax, sem var rúm-
um 100 löxum meiri veiði en í
fyrra. Þá skal bess að lokum get-
ið að 10 stangir verða í ánni
næsta veiðitímabil. eða einni stöng
betur en í su-mar. Sagði Gísli. að
ekki væri alveg búið að ákveða.
á hvaða veiðisvæði stöngin verður
347 HVALIR
VEIDDSR í ÁR
EJ—Reykjavík, laugardag.
Hvalvertfð er 'okið, og veiddust
samtals 347 hvalir á 98 dögum, en
í fyrra veiddust 423 hvalir á 121
degi. Sem kiinnugt er hófst hval-
veiðin síðar nú en venjulega vegna
verkfallanna í vor.