Tíminn - 20.10.1970, Side 1

Tíminn - 20.10.1970, Side 1
* * * * * * * * * * * * * -T ~"A' _ hKYSTIKISTUR ? ^Iú n Jr FRYSTISKÁPAR * * * * * * * * * P/Mxffg/M^faA- /t~f * RAfTÆKJADEfLD, HAFWARSTRÆTI 2S, SfMI 1**» Jfc Niðurlagningarverksmiðjan á Siglufirði verkefnalaus: Enn ekkert hráefni tryggt til vinnslu á næsta ári OÓ—Reykjavík, mánudag. Starfsemi Niðurlagningarverk- smiðjunnar á Siglufirði liggur nú niðri vegna hráefnaskorts. Þegar vinnsla er í fullum gangi, vinna rúml. 100 mans í verksmiðjunni, bar af um 80 konur. Nú starfa þar 20 karlmenn. Fyrirsjáanlegt er að vinnsla hefst ekki fyrr en eftir áramót þótt eitthvað berist að af hráefni, þar sem síldin þarf að liggja i tunnunum í nokkra mánuði áður en hún verður vinnsluhæf. Til að verksmiðjan hafi nægt hráefni allt árið og vinna þurfi aldrei að leggjast nið ur, er nauðsynlegt að tryggja 10 þúsund tunnur af síld. Nú hefur sfldarvertíð við Suðurland staðið í nokkrar vikur en ekki er farið að tryggja Niðurlagningarverk- smiðjunni neitt af þeim afla sem berst á land. Niðuriagningarverksmiðjan heyr ir imdir Síldarverksmiðjur ríkis ins, en stjórn hennar virðist ek5d hafa nema takmarkaðan áhuga á að tryggja nægt hráefni. Eru Siglfirðingar að vonum gramir vegna þessara vinnubragða, þvi atvinna er stopul á staðnum, og ekki þætir úr skák að sá fjöldi sem hefur haft vinnu við niður Tagningu sildar bætist í hóp at- vinnuleysingja. SiTdin, sem veiðzt hefur við Suðuriand er ágæt til söltunar og er þeim mun meiri slóðaskapur að ekki er búið að tryggja Niður lagningarverksmiðjunni hráefni af þeirri síld. Stendur á fjármagni til að kaupa saltsíldina, mundu 10 milljónir króna nægja til að tryggja hráefni, sem dygði næsta ár. Óþairfi mun að geta þess, að út- flut n i n gs veTðmæti niðuriagðrar sildar er mun meira en saitsíld ar, sem seld er í heilum tunnum. Viðræður hafa staðið yfir um að tryggja verksmiðjunni næga síld, en svo virðist sem áhugi ráðamanna sé ekki nægur til að Framnalo a bls i ÚTVARPS- UMRÆÐUR í KVÖLD EB—Reykjavík, mánudag. Annað kvöld, þriðjudagskvöld, “ara fram útvarpsumræður um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1971. Magnús Jónsson, fjámálaráð herra, hefur umræðurnar kl. 20, en síðan tala: HannibaT Valdi marsson af hálfu Samtaka frjáls lynd&a og vinstri manna. Halldór E. Sigurðsson af hálfu Framsókn arflokksins, Birgir Finnsson af hálfu Alþýðuflokksins og Geir Gunnarsson af hálfu Alþýðubanda lagsins. Magnús Jónsson talar sið an aftur \ lok umræðnanna. Bifreið var ekið fram af bryggju á Akureyri: PIL TUR 0G STÚLKA FÓRUST 15 ÁRA STÚLKU TÓKST AÐ KOMAST ÚT ÚR BIFREIÐINNI OG BJARGAÐIST SB—Reykjavík, mánudag. Tvö ungmenni létu iífið er bifreið, sem þau voru í, fór fram af bryggju á Odd- eyrartanga á Akureyri á sunnudagsmorguninn. Lára HarSardótMr, 15 ára gömul Stúlka, sem með þeim var í bifreiðinni, komst út og gat sagt frá slysinu. Þau, sem létust, voru Lára Harð- ardóttir, 15 ára, til heimilis að Lundargötu 17, Akur- SigurSur Brúni Brynjólfsson, 18 ára gamall eyri og Sigurður Brúni Brynjólfsson, 18 ára. Hann átti heima að Grettisgötu 72 í Reykjavík. Stúlkan, sem komst af, heitir Maria Jakobína Sölvadóttir, Eiðs- vallagötu 26, Akureyri. Lögreglunni á Akureyri barst tilkynningin um slysið kk 6.15 á sunnudagsmorguninn. Maríu hafði tekizt að komast út um glugga á afturhurð bifreiðar- innar, en hún mun þó hafa setið í framsætinu hjá hinum tveirn. Hún var illa haldin, en komst þó til kunningjafólks síns neðarlega í Strandgötunni og gat gert fólki viðvart um sTysið. Þegar lögreglan kom á stað inn, gat María ekki áttáð sig greinilega á, hvar bifreiðin hafði farið fram af bryggjunni ■en lö|gregT!u'mennirnir fundu verksummerki á gamalli bryggju, tni'lli olíubryggjunnar og kauipfélagsbryggjunnar, Sverrisbryggju, eins og hún var kölluð í gamla daga. Var þá fenginn froskmaður, Sigurð ur Sigurðsson og fann hann bifreiðina þarna framan við bryggjuna og líkin tvö í henni. Þarna er talsvert djúpt og .’á bifreiðin á hvolfi, 6—8 metra frá bryggjunni. Veður var sæmilegt. þegar slysið varð, norðan beTgingur, en þurrt og engin hálka á bryggj- unni, en á þessum tíma er kol- dimmt. Sigurður Brúni hafði verið gestkomandi hjá kunningja- fól'ki sínu að Gránufélagsgötu 20 á Akureyri og hafði hann fengið bifireiðina að láni þar á laugardagskvöldið. Seint um kvöldið hitti hann stúlkurnar tvær og fleira fólk og höfðu þau öll farið í ökuferð um bæinn og nágrenni hans um nóttina. Þegar slysiið varð, voru þó allir, nema stúlkurnar, farn- ir út úr bifreiðinni. Bifreiðin var stór. amerísk fóiksbifreið, 11 ára gömul. Engin spor eftir rjúpnaskyttuna þrátt fyrir mikla leit í 2 daga KJ—Reykjavík, mánudag. f dag og í gær hafa fjölmennir leitarflokkar af Reykjavflrursvæð inu, Suðumesjum og Suðurlandi leitað að týndri rjúpnaskyttu, Viktori Hansen, Álftamýri 32 Reykjavík. Þrátt fyrir mikla leit bæði gangandi manna og vir flug vélum, hefur Viktor ekki fundizt, og ekkert sem bent gæti til hvað orðið hefur um hann. Viktor er 41 árs gamall ein- hleypur vörubílstjóri hjá Slipp- félaginu í Reykjavík. Um hádeg ið á laugardag fór hann á rjúpna veiðar í BTáfjöTl, ásamt félaga sín um Agli Hallgrimssyni. Fóru þeir á Bronco-bfl Viktors, og skildu við bílinn, en ætluðu að hittast þar aftur síðla dags. Egill kom að bílnum á tilsettum tíma, éða um klukkan hálf fimm, og beið við bílinn tiT klukkan sjö um kvöld- ið, en fó^r þá um nágrennið og leitaði að Agli, og skaut úr byssu sinni upp í loftið, en um niu leyt ið hélt hann niður af fjallgarðin um þarna, og í áttina að Sand skeiðinu til að leita hjálpar. Um miðnættið var Egill kominn til lögreglunnar, og þá voru strax gerðar ráðstafanir tiT að kalla út leitarflokka, sem síðan hafa verið á ferðinni á þessu svæði myrkr anna á milli. Erfitt leitarveður á sunudaginn. Á þriðja hundrað leitarmenn gengu um Bláfjallasvæðið á sunnu daginn, auk þess sem leitað var úr lofti eftir því sem hægt var vegna veðurs. Var leitað meira og minna á svæðinu allt frá Suð urTandsvegi hjá Sandskeiði og niður í Selvog, ef ske kynni að Viktor hefði villzt, en leitin bar ekki árangur. Skilyrði til leitar voru ekki sem bezt, þvj töluverð ur skafrenningur var. og auk þess er þarna víða illt yfirferðar j úfnu hirauni, þar sem eru marg ar gjár og gjótur. Máttu sumir leitarflokkarnir hafa sig alla við til að sjá hver til annars í Teit- inni. - •• Myndln var tekln í aSsetri Flugbjörgunarsveitarlnnar á Reykjavíkurflugvelll f gær. Haukur Hallgrímsson situr viS kort af svæSinu, sem leitaS er á, og Ární Edwinssori tekur niSur upplýslngar f síma. (Tímamynd G.E.) Svæðið fínkembt á mánudag. i dag voru hátt á þriðja hundr uð manns við leit á þessu svæði, an þrátt fyrir nokkuð gott leitar eður fannst ekkert sem bent gæti til ferða Viktors. Leitinni iiefur verið stjórnað af Flug- hjörgunarsveitinni í Reykjavík, og hefur Sigurður Waage haft mest- an veg og vanda af stjórn leitar innar. Aðalleitarmiðstöðin hefur verið í fjallabíl sem var á þeim slóðum þar sem þeir Egill og Viktor skildu Broneoinn eftir, eða sunnan við Þríhnúka og vestan við BTáfjöIlin, en þangað upp eft- ir er nokkuð góður jeppavegur. Hver leitarflokkur er svo í tal stöðv-rsambandi við aðalleitarstö'ð- ina, sem samræmir leitina, og gef ur flokkunum fyrirmæli. Aðalleit arstöðin er svo í góðu sambandi við aðsetur Flugbjörgunarsveitar innar á Reykjavíkurflugveíi, en þangað hafa margir gefið upplýs Framhald á bls. 11. ;

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.