Tíminn - 20.10.1970, Síða 1
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
-T ~"A' _ hKYSTIKISTUR ?
^Iú n Jr FRYSTISKÁPAR *
*
*
*
*
*
*
*
*
P/Mxffg/M^faA- /t~f *
RAfTÆKJADEfLD, HAFWARSTRÆTI 2S, SfMI 1**» Jfc
Niðurlagningarverksmiðjan
á Siglufirði verkefnalaus:
Enn ekkert
hráefni tryggt
til vinnslu
á næsta ári
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Starfsemi Niðurlagningarverk-
smiðjunnar á Siglufirði liggur nú
niðri vegna hráefnaskorts. Þegar
vinnsla er í fullum gangi, vinna
rúml. 100 mans í verksmiðjunni,
bar af um 80 konur. Nú starfa
þar 20 karlmenn. Fyrirsjáanlegt
er að vinnsla hefst ekki fyrr en
eftir áramót þótt eitthvað berist
að af hráefni, þar sem síldin þarf
að liggja i tunnunum í nokkra
mánuði áður en hún verður
vinnsluhæf. Til að verksmiðjan
hafi nægt hráefni allt árið og
vinna þurfi aldrei að leggjast nið
ur, er nauðsynlegt að tryggja 10
þúsund tunnur af síld. Nú hefur
sfldarvertíð við Suðurland staðið
í nokkrar vikur en ekki er farið
að tryggja Niðurlagningarverk-
smiðjunni neitt af þeim afla
sem berst á land.
Niðuriagningarverksmiðjan heyr
ir imdir Síldarverksmiðjur ríkis
ins, en stjórn hennar virðist ek5d
hafa nema takmarkaðan áhuga
á að tryggja nægt hráefni. Eru
Siglfirðingar að vonum gramir
vegna þessara vinnubragða, þvi
atvinna er stopul á staðnum, og
ekki þætir úr skák að sá fjöldi
sem hefur haft vinnu við niður
Tagningu sildar bætist í hóp at-
vinnuleysingja.
SiTdin, sem veiðzt hefur við
Suðuriand er ágæt til söltunar og
er þeim mun meiri slóðaskapur
að ekki er búið að tryggja Niður
lagningarverksmiðjunni hráefni af
þeirri síld. Stendur á fjármagni
til að kaupa saltsíldina, mundu
10 milljónir króna nægja til að
tryggja hráefni, sem dygði næsta
ár. Óþairfi mun að geta þess, að út-
flut n i n gs veTðmæti niðuriagðrar
sildar er mun meira en saitsíld
ar, sem seld er í heilum tunnum.
Viðræður hafa staðið yfir um
að tryggja verksmiðjunni næga
síld, en svo virðist sem áhugi
ráðamanna sé ekki nægur til að
Framnalo a bls i
ÚTVARPS-
UMRÆÐUR
í KVÖLD
EB—Reykjavík, mánudag.
Annað kvöld, þriðjudagskvöld,
“ara fram útvarpsumræður um
fjárlagafrumvarpið fyrir árið
1971. Magnús Jónsson, fjámálaráð
herra, hefur umræðurnar kl. 20,
en síðan tala: HannibaT Valdi
marsson af hálfu Samtaka frjáls
lynd&a og vinstri manna. Halldór
E. Sigurðsson af hálfu Framsókn
arflokksins, Birgir Finnsson af
hálfu Alþýðuflokksins og Geir
Gunnarsson af hálfu Alþýðubanda
lagsins. Magnús Jónsson talar sið
an aftur \ lok umræðnanna.
Bifreið var ekið fram af bryggju á Akureyri:
PIL TUR 0G STÚLKA FÓRUST
15 ÁRA STÚLKU TÓKST AÐ KOMAST ÚT ÚR BIFREIÐINNI OG BJARGAÐIST
SB—Reykjavík, mánudag.
Tvö ungmenni létu iífið
er bifreið, sem þau voru í,
fór fram af bryggju á Odd-
eyrartanga á Akureyri á
sunnudagsmorguninn.
Lára HarSardótMr,
15 ára gömul
Stúlka, sem með þeim var
í bifreiðinni, komst út og
gat sagt frá slysinu. Þau,
sem létust, voru Lára Harð-
ardóttir, 15 ára, til heimilis
að Lundargötu 17, Akur-
SigurSur Brúni Brynjólfsson,
18 ára gamall
eyri og Sigurður Brúni
Brynjólfsson, 18 ára. Hann
átti heima að Grettisgötu
72 í Reykjavík. Stúlkan,
sem komst af, heitir Maria
Jakobína Sölvadóttir, Eiðs-
vallagötu 26, Akureyri.
Lögreglunni á Akureyri barst
tilkynningin um slysið kk 6.15
á sunnudagsmorguninn. Maríu
hafði tekizt að komast út um
glugga á afturhurð bifreiðar-
innar, en hún mun þó hafa
setið í framsætinu hjá hinum
tveirn. Hún var illa haldin, en
komst þó til kunningjafólks
síns neðarlega í Strandgötunni
og gat gert fólki viðvart um
sTysið.
Þegar lögreglan kom á stað
inn, gat María ekki áttáð sig
greinilega á, hvar bifreiðin
hafði farið fram af bryggjunni
■en lö|gregT!u'mennirnir fundu
verksummerki á gamalli
bryggju, tni'lli olíubryggjunnar
og kauipfélagsbryggjunnar,
Sverrisbryggju, eins og hún
var kölluð í gamla daga. Var
þá fenginn froskmaður, Sigurð
ur Sigurðsson og fann hann
bifreiðina þarna framan við
bryggjuna og líkin tvö í
henni. Þarna er talsvert djúpt
og .’á bifreiðin á hvolfi, 6—8
metra frá bryggjunni. Veður
var sæmilegt. þegar slysið
varð, norðan beTgingur, en
þurrt og engin hálka á bryggj-
unni, en á þessum tíma er kol-
dimmt.
Sigurður Brúni hafði verið
gestkomandi hjá kunningja-
fól'ki sínu að Gránufélagsgötu
20 á Akureyri og hafði hann
fengið bifireiðina að láni þar
á laugardagskvöldið. Seint um
kvöldið hitti hann stúlkurnar
tvær og fleira fólk og höfðu
þau öll farið í ökuferð um
bæinn og nágrenni hans um
nóttina. Þegar slysiið varð, voru
þó allir, nema stúlkurnar, farn-
ir út úr bifreiðinni.
Bifreiðin var stór. amerísk
fóiksbifreið, 11 ára gömul.
Engin spor eftir rjúpnaskyttuna
þrátt fyrir mikla leit í 2 daga
KJ—Reykjavík, mánudag.
f dag og í gær hafa fjölmennir
leitarflokkar af Reykjavflrursvæð
inu, Suðumesjum og Suðurlandi
leitað að týndri rjúpnaskyttu,
Viktori Hansen, Álftamýri 32
Reykjavík. Þrátt fyrir mikla leit
bæði gangandi manna og vir flug
vélum, hefur Viktor ekki fundizt,
og ekkert sem bent gæti til hvað
orðið hefur um hann.
Viktor er 41 árs gamall ein-
hleypur vörubílstjóri hjá Slipp-
félaginu í Reykjavík. Um hádeg
ið á laugardag fór hann á rjúpna
veiðar í BTáfjöTl, ásamt félaga sín
um Agli Hallgrimssyni. Fóru þeir
á Bronco-bfl Viktors, og skildu
við bílinn, en ætluðu að hittast
þar aftur síðla dags. Egill kom að
bílnum á tilsettum tíma, éða um
klukkan hálf fimm, og beið við
bílinn tiT klukkan sjö um kvöld-
ið, en fó^r þá um nágrennið og
leitaði að Agli, og skaut úr byssu
sinni upp í loftið, en um niu leyt
ið hélt hann niður af fjallgarðin
um þarna, og í áttina að Sand
skeiðinu til að leita hjálpar. Um
miðnættið var Egill kominn til
lögreglunnar, og þá voru strax
gerðar ráðstafanir tiT að kalla út
leitarflokka, sem síðan hafa verið
á ferðinni á þessu svæði myrkr
anna á milli.
Erfitt leitarveður á
sunudaginn.
Á þriðja hundrað leitarmenn
gengu um Bláfjallasvæðið á sunnu
daginn, auk þess sem leitað var
úr lofti eftir því sem hægt var
vegna veðurs. Var leitað meira
og minna á svæðinu allt frá Suð
urTandsvegi hjá Sandskeiði og
niður í Selvog, ef ske kynni að
Viktor hefði villzt, en leitin bar
ekki árangur. Skilyrði til leitar
voru ekki sem bezt, þvj töluverð
ur skafrenningur var. og auk
þess er þarna víða illt yfirferðar
j úfnu hirauni, þar sem eru marg
ar gjár og gjótur. Máttu sumir
leitarflokkarnir hafa sig alla við
til að sjá hver til annars í Teit-
inni.
-
••
Myndln var tekln í aSsetri Flugbjörgunarsveitarlnnar á Reykjavíkurflugvelll f gær. Haukur Hallgrímsson situr
viS kort af svæSinu, sem leitaS er á, og Ární Edwinssori tekur niSur upplýslngar f síma. (Tímamynd G.E.)
Svæðið fínkembt á mánudag.
i dag voru hátt á þriðja hundr
uð manns við leit á þessu svæði,
an þrátt fyrir nokkuð gott leitar
eður fannst ekkert sem bent
gæti til ferða Viktors. Leitinni
iiefur verið stjórnað af Flug-
hjörgunarsveitinni í Reykjavík, og
hefur Sigurður Waage haft mest-
an veg og vanda af stjórn leitar
innar. Aðalleitarmiðstöðin hefur
verið í fjallabíl sem var á þeim
slóðum þar sem þeir Egill og
Viktor skildu Broneoinn eftir, eða
sunnan við Þríhnúka og vestan
við BTáfjöIlin, en þangað upp eft-
ir er nokkuð góður jeppavegur.
Hver leitarflokkur er svo í tal
stöðv-rsambandi við aðalleitarstö'ð-
ina, sem samræmir leitina, og gef
ur flokkunum fyrirmæli. Aðalleit
arstöðin er svo í góðu sambandi
við aðsetur Flugbjörgunarsveitar
innar á Reykjavíkurflugveíi, en
þangað hafa margir gefið upplýs
Framhald á bls. 11.
;