Tíminn - 20.11.1970, Blaðsíða 3

Tíminn - 20.11.1970, Blaðsíða 3
PÖSTUDAGT7R 20. nóvember 1970. TÍM1NN 15 Hópmynd. Brynja Grétarsdóttir, leikur hiklaust, blæbrigðalaust, en það sexa verst er, gjörsamlega geðhitalaust. Þrátt fyrir lítt áberandi ' framsagnargalla tekst Guð- laugu Hermannsdóttur hlns vegar, að gera sér lundarfar Kalóniku, kvenlega hlýju henn- ar og fjör svo inniíft að naest- um stöðugri aðdáun sætir. Hún er hýr, kímileit og spaug- söm. Þórhildur Þorleifsdóttir leikur af einbeitni, öryggi, skörungsskap, en ef til vill ekki af nægilegri hugljómun. Lampídó er ákaflega vel borg- ið í höndum Beirgþóru Gúst- avsdóttur. Málfar hennar er fagurt, limaburður til fyrir- myndar og túöoin hennar áferðarfalleg og trúverSug. Þrátt fyrir lofsverða við- ieitni og dáfagra smáspretti, er ofmælt, að Svanhildur Jó- hannesdóttir valdi hluverki Myrrhinu fullkomlega, en þó að byrjendabragurinn sé mik- ill ennþá, þá er það engu að síður trú þess, er þetta ritar, að það sé allgóður efniviður f Svanhildi. Valgerður Sverris- dóttir og Helga Sigurðardóttir eru allra snotrustu stúlkur, en því minna sem sagt er um leik þeirra því betra fyrir þær. Gestur Jónasson fer með hlutverk fógetans og tekst hon- um að bregða uPP allkostulegri mynd og heilsteyptri af hroka, sjálfsbirgingshætti og fordild þessa makalausa embæt.tis- manns. Túlkunarmáti Sigmund ar Arnar Arngrímssonar og sviðsfas er yfirlætislaust og eðlilegt, enda finna menn fljótt, að geð hans býr yfir ósvikinni glóð, þótt hóflega sé í allar sakir farið. Uan Björgu Baldsvinsdótt- ur, Sigurveigu Jónsdóttur og Þóreyju Aðalsteinsdóttur í kór kvenna er óþarft að vera lang- orður. Þær eru hver annarri , betri og fara á kostum og það meira að segja óvenjulega hreinum. U,m Arnar Jónsson er það að segja, að sjaldan bregzt málmur í landareign hans, en þótt hann sé lífið og sálin í kór öidunga, þá má það í rauninni lygilegt heita, að nýliðarnir tveir, þeir Eggert Þorleifsson og Þorgrímur Gestsson skuli komast svo að segja tii jafns við jafnóvenju- legan listamann og Arnar Jóns son er. Hér er átak leikenda samstillt og svo einhuga og markvisst stefnt að fyrirfram ákveðnu marki að unun er á að líta. Leikur kóranna er það hressilegasta, skemmtilegasta og tilkomumesta, er sézt hefur á íslenzku sviði það sem af er þessu leikári. Leikarar á Akur eyri sýna það hér og sanna, að þeir eru engan veginn eftir- bátar starfsfélaga sinna sunn- an Holtavörðuheiðar. Þegar Brynja Benedikts- dóttir sviðsetti Lysiströtu fyr- ir Menntskælinga í fyrra hrós- aði sá, sem þetta ritar, henni fyrir smekkvísi, útsjónarsemi, góða yfirsýn og skynbragð á eðli fjölleiks og fleira. Ef frá er talið hversu misvalið var í titilhlutverkið, þá hefur Brynja unnið að þessu sinni enn betra verk og glæsilegra, sem er ef tii vill ekki að undra, þar sem reyndari og hlutgemgari listamenn eiga hlut að máli. Að lokum langar mig til að beina nokkrum orðum til leik- ara á Akureyri: Verið umfram allt sjálfstæðir og stoltir og farið ykkar eigin leiðir í leik- ritavali. Hafið því oftar en raun ber vitni aðra rétti á boðstólum en leikhúsin í Reykjavík og minnizt þess, að sú andlega fæða, sem þau hafa upp á að bjóða, er ekki endi- lega alltaf það hollasta og und irstöðubezta, sem völ er á hverju sinni. Ennfremur heiti ég á bæjarstjórn Akureyrar að veita þessu fjárvana félagi rif- legri styrk, svo að það megi bæta starfsskilyrði sín og færa út. kvíarnar í menningarlegri viðleitni sinni og síðast en ekik sízt vil ég hvetja alla bæj- arbúa og nærsveitarmenn til að sjá þennan nýstárlega fögn uð, sem Leikfélag Akureyrar býður nú upp á á sírra litla sviði. Fyrri leikdómur cninn um sama verk endaði svona: „Hann (þ.e. fögnuðurinn) svík ur engan“. Þau orð get ég enn endurtekið með óbland- inni sannfæringu, en nú lang- ar mig til, og það af gildustu ástæðu, að hrópa hástöfum út um torg og stræti þau orð, sem hér fara á eftir: >rLysistrata spillir engum“. Halldór Þorsteinsson. Kgnningapftpðld Kanaríeyjar kynntar í Góðtemplarahúsinu á ísa- firði, sunnudaginn 22. nóvember kl. 21,00. Með myndum, hljómlist og frásögnum kynnum við eyjar hins eilífa vors í Suður-Atlantshafi. — Kynnir: Markús Örn Antonsson. — Ath.: Happ- drættisvinningur, ferð fyrir tvo í sólarfrí með Flugfélagi íslands til Kanaríeyja. j Dansað til kl. 1, að lokinni kynningu. FLUCFÉLAC ÍSLANDS r iýsa bezt Gerið samanburð á verði og komizt að raun um að þér fáið 14 UNITRA Ijósaperur í stað 10 af öðrum gerðum Utsöluverð í Reykjavík UNITRA Ijósaperur 15- 25 - 40 og 60 vatta — Allar stærðirnar — Kr. 13.-/stk. KILDSÖLUBIRGDIR ® INIFlUININGSDflLl

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.