Tíminn - 26.11.1970, Qupperneq 3

Tíminn - 26.11.1970, Qupperneq 3
flMMWDAGUR 26. ndvember 1970 TÍMINN 3 Frægasti rithöfundur Japans framdi harakiri í Tokió í gær NTB—Tókíó S.J.—Reykjavík, miðvikudag. Yukio Mishima, sem t.alinn hefur verið mestur rithöfund ur í Japan nú ó dögum, framdi kviðristJU (harakiri) í aðalstöðv um hersins í Tókíó í dag, mið vikudag. Ungur fylgismaður Mishima fylgdi dæmi hans, en að svo búnu hjuggu félagar þein-a þá á háls. Mishima hef- ur hvað eftir annað haldið því fram að siðferðisþreki Jap- ana hafi mikið hrakað síðan heimsstyrjöldinni lauk, en liann vildi bæta úr þessu með því að endurvekja þúsund ára gamlar venjur hinna fornu „samuraia“, en kviðristan er einmitt liður í þeim. Mishima ag hópur fylgis- manna hans, sem tilheyra svo- nefndu Skjaldarfélagi, réðust inn í aðalstöðvarnar til að imót- mæla því a@ yfirvöldin gera ekkert til að auka herveldi Jap ans. Tóku þeir yfirmann aðal- stöðvanna, Masuda, sem gísl, eftir a'ó' hann hafði neitað að ræða við þá, og neyddu yfir 2.000 hermenn til að hlýða á Mishima flytja 10 mínútna ræðu, en hótuðu ella að taka Masuda af lífi. í ræðunni kom Mishima með alvarlegar ásak- anir á hendur yfirvöldum og gagnrýndi spillingu vissra þjóð félagsstétta. Hann hvatti her- mennina til að berjast fyrir því að nýrri stjórnarskirá yrði komið á, en sú sem nú væri í gildi hamlaði mjög herveldi Japana. Hún væri auí'mýkjandi fyrir Japani, enda hefði henni verið þvingað upp á þá með stórveldasamningnum í Pots- dam og Jalta. Rithöfundurinn oig fylgis- menn hans báru hvít bönd um höfuð, tákn rísandi sólar, er> einnig merki hinna fomu stríðs manna, „samuraianna“. Hreifðu innrásarmennirnir flugritum til hermanna. Að lokinni þessari þrumu- ræðu hrópaði Mishima „Lengi lifi keisarinn", síðan fór hann ásamt félaga sínum inn á skrif stofu Masuda þar sem þeir stungu sig á kvið með stuttum sverðum. Atburðir þessir minna mjög á kvikmynd sem Mishima stjórn ai'.'i fyrir þrem árum, en þar sést m.a. nákvæmlega þegar ungur liðsforingi fremur kvið- ristu. Þegar fylgismenn Mishima höfðu hálslhöggvið þá félaga, var lögreglan komin á vett- vang. Ko>m til mikilla átafca mili Skjaldarfélaga, lögreglu ag hermanna. Forsalur hússins varð brátt einn blóðvöllur, og fimm hermenn, sem reynt • höfðu að stöðva innrásarmenn- tna, bi'ðu bana, þrír til við- bótair eru hættulega særðir. Masuda hershöfðingi slapp ósneiddur. Mishima stofnaði Skjaldar- félagið áriö1 1968, en hann og fylgismenn hans eru af mörg- um taldir hægriöfgasinnar. Flestir meðlimirnir eru stúd- entar og verða þeir að gang- ast undir stranga líkamsþjálf- un áður en þeir eru teknir í félagið. Síðan 1944 hefur Mishima skrifað yfir hundrað bækur, skáldsögur og ieikrit. Hann hef- ur leikið í kvikmyndum og á síðari árum stundaði hann mjög íþróttir, en hann var fremur veikburða sem dreng- ur. Bókmenntahæfileikar Mis- hima voru taldir einstakir, og til dæmis um það má geta þess, að Nóbelsverðlaunahafi Japana, Yasuair Kawabata hef- ur sagt aö Mishima verðskuld- aði Nóbelsverðlaunin fremur en hann sjálfur. Yukio Mishima var um fertugt. Hálfdán Sveínsson f. 7. 5. 1907, d. T9. 11. 1970 Hálfdán Sveinsson jarðsunginn í dag í dag kl. 2 verður jarðsuniginn frá Akraneskirkju Hálfdán Sveins son, kennari. Hann fluttist til Akraness haustiÖ 1934 ásamt konu sinni Dóru Erlendsdóttirr. Gerðist hann bá kennari við barna- skólann og gegndi því starfi æ síðan. Þau hjón voru bæði af merkum vestfirzkum ættum. Varð þeim fjögurna bama auðið, sem öll eru á lífi. Hálfdán hóf fljótlega störf í þágu verkalýðshreyfingarinnar á Akranesi og gegndi um tugi ára æðstu trúnaðarstöðuim verkalýðs- félaganna. Hann var einnig um tugi ára einn af helztu forystu- mönnum Alþýðuflokksins á Akra- nesi, fyrst sem hreppsnefndar- maður og síöar í bæjarstjórn allt til þess að hann gaf ekki kost á sér við síðustu kosningar. Voru honum falin þar ýmis æðstu trún- aðarstörf, var forseti bæjarstjórn- ar og um skeið bæjarstjóri. Fjöl- margar aðrar trúnaðarstöður hafði hann á hendi, bæði fyrir bæjarfé- iagíö og ýmis félagasamtök. þó eigi gefist tóm til að rekja það frekar hér. —G.B. Aðalfundur Vlunuuiálasam- bands Samviíinufélaganna Aðalfundur Vinnumálasam- j bands samvinnuíélaganna var hald j inn í Reykjavík föstudaginn 20. j nóvember s.l. Formaður stjórnarinnar, Harry; Frederiksen, framkvæmdastjóri,; flutti skýrslu stjórnar. ; Framikvæmdastjóri Vinnumála- \ sambandsins, Júlíus Kr. Valdi-! marsson, skýrði frá samningagerð ; um og starfsemi Vinnumálasam- j bandsins á liðnu starfsári. Enn- í fremur sagði hann frá ráðstefnu j um atvinnulýðræði sem haldin var i í Noregi nýlega svo 05 frá heim- sókn sinni til Vinnumálasambands samvinnufélaga í Osló. Á fundinum urðu umræður um stöðu samvinnuhreyfingarinnar á íslandi, sem vinnveitanda, og sam skipti hennar við verkalýðshreyf inguna. Einnig var nokkuð rætt um atvinnulýðræði. Einn stjórnarmanna, Jakob Frí mannsson, kaupfélagsstjóri, baðst undan endurkjöri, en hann hefur setið í stjórn Vinnumálasambands ins frá stofnun þess, eða um 1-9 ára skeið. Var kjörinn í stjórn Jólafundur Hús- mæðrafélaqs Rvíkur verður 2. des. nk. Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur himn árlega jólafund, í Súlmasal Hótel Sögu, miðvikudag- inn 2. des. næstkomandi kl. 20. I upphafi fumdarins mun sr. Grímur Grímsson flytja hugvekju og jólasármar verða sungnir. Síðan verður söngur, Guðmund- ar Jónssonar ópeiuisöngvara og Svölu Nílsen óperusöngkonu. Á Tízkusýningu verður sýnt sitthvað frá kjólaverzluninni Elsu. Efnt verður til skyndihappdrætt- is í lok fundarins og dregið um nokkra valda vinninga. Osta- og smjörsalan hef-ur veg og vanda af matarsýningu og verða þar um 20 réttir af ýms-u tagi til sýnis. Margrét Kristins- dóttir húsmæðrakennari hefur með höodum framkvæmdir og Tæt ur í té leiðbeiningar og svarar fyrirspurnum. Aðgöngumiðasala verður að Hallveigarstöðum mánu daginn »0. o-óv. n.k. frá kl. 2 — 5. e.h. samtakanna í han-s stað, Valur Arnþórsson, aðstoðarkaupfélags- stjóri Kaupfélags Eyfirðinga, AJlíureyri. Harry Frederiksen, formaður Vi n num áí asarmbandsins ávarpaði Jakob Fi'ímannsson og þakkaði honum mikii'dg' vel uahin" störf i þágu VinhtirnálfeambáÍBdsins.»» Stjórn Vinnumálasambandsins skipa nú: Harry Frederiksen, framkvæmda stjóri, formaður; Oddur Sigur- bergsson, kaupfélagsstjóri, Rögn valdur Sigurðsson. kaupfélagsstj., Valur Arnþórsson, aðstoðarkaup- félagsstjóri, og Þorstein-n Sveins- son, kaupfélagsstjóri. Galdra-Loftur SJ—ftéýiijavík, miðvikudag. Jólaíeikrít sjónvarpsins að þessu sinni verður Galdra- Loftúr'eftir Jóhann Sigurjóns- son.' Úpptaka stendur nú yfir, og er Sveinn Einarsson leik- stjóri.' Pétur Einarsson leikur Galdra-Loft, Valgerður Dan Dísu og Kristbjörg Kjeld fer með hlutverk Steinunnar. Leikrit Sveins Einarssonar, Viðkomustaður. verður sýnt alveg á næstunni. En sjónvarpsleikritin Baráttusæt- ið eftir A-gnar Þórðarson, og Kristrún í Hamravík eftir Hagalín verða sýnd eftir ára- mót. Reykjaneskjördæmi Kjördæmisþing framsóknar- manna í Reykjaneskjördæmi verð- ur háð sunnudaginn 29 nóveim- ber í Félagsheimili Kópavogs og hefst kl 10 árdegis Varaformaður Framsóknar- flokksins, Einar Agústsson, mætir á þinginu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundar- störf. Ákvörðun um framþoð Lagabreytingar. Almennur fundur 3. desember. ,Er íþrótta- kennslan van- rækt í skólum?‘ Félaig ungra f-namsóknairmanna í Kéýkjavik heldur almennan fund ’fim.nftudaigúm 3. desember nk. kl. 20,30. Fundarefni: § Er íþróttakenn-sla 1 vamrækit í skólum? Frummælandi: 1 Alfreð Þorsteins- f son, íþróttafrétta- || ritari. f íþróttanefndum skólamna og íþróttakennurum er sérstaiklega boðið á fundinn. Fundarstaður auglýstur síðar. — Stjómin. JÓLAMERKI KBWANIS ’70 Einn af þjónustuklúbbum Kiwan ishreyfingarinnar á íslandi — HEKLA í Reykjavík — gefur nú út jólamerki 3ja árið í röð. Á ár- inu 1968 hófst útgáfa á ákveðinni jólamerkjaseríu sem HaL’dór Pét- ursson, listmálari, teiknaði. í þess ari s-eríu eru myndir af jólasvein- urnim einum og átta og í lokin koma svo Grýla og Leppalúði. Alls verða jólamerkin 10 ta’sins og er gefið út eitt merki á hverju ári. Jólamerki ársins 1970 sýnir Bjúgna kræki. Þá hefur klúbburinn leyfi Póst- málastjórnarinnar til að nota sér- stakan Norðurpólsstimpil á um- slög með jólamerkinu og ætti það að vera skemmtil-eg nýbreytni að stimp.’a jólapóstinn til útlanda frá þeim stað sem iólasveinninm er inn eiga heima. Jólamerkin eru til sölu hjá frí- merkjasölum og i ýmsum bóka- verzlunum. Þá er unnt aið panta jólamerkin beint frá klúbbm-um, skriflega í pósthólf 5025 eða í síma 23490. Ö.’lum ágóða af sölu þessara jóamerkja er varið til líknar- og þjónustustarfs Kiwanis- klúbbsins Heklu. AVlÐA WMíl Vinstri viðræSurnar „hrærigrautur" Sjónvarpið hélt á þriðjudag- inn áfram að yfirheyra for- menn stjórnmálaflokkanna og var það Ragnar Amalds, for- maður Alþýðubandalagsins, sem þá sat fyrir svörum. Átti hann erfitt með að svara ýms- um spurningum fréttamanna, einkum þó varðandi klofning Alþýðubandalagsins og þá stað reynd, að þótt það hafi veriS sagður tilgangurinn með stofn un þess fyrir 14 árum, að sam- eina vinstri menn í landinu, þá eru þeir enn sundraðri nú en þá. Snemma í þættinum var Ragnar spurður um, hvað hann teldi að kæmi út úr viðræðum Alþýðuflokks, Alþýðubanda- lags og Frjálslyndra, um sam- einingu vinstri manna, og var Ragnar ekki bjartsýnn á sam- komulag. „Okkur hefur frá fym«» stundu verið það Ijóst, aS þarna yrði um mjög erfitt mál að ræða“, sagði hann. „f Al- þýðuflokknum er hópur af for- ustumönnum, sem hafa komið fram á undanförnum árum scm hreinir hægri menn, bæði í orði og verki. Alþýðuflokkur- inn sjálfur hefur auðvitað feng ið á sig nokkuð hægrisinnaðan svip af þessum sökum. Það segir sig auðvitað sjálft, að það er ekki mikil von til þess að árangur verði af samningavið- ræðum við hægri menn um sameiningu vinstri aflanna. Út úr því getur eiginlega h'tið ann að komið en einhvers konar hrærigrautur“. Úrsögn úr NATO ekki skilyrði Ragnar var minntur á tillögu Alþýðubandalagsins á þingi um úrsögn úr NATO oe brottför varnarliðsins, og spurður hvort þetta hvort tveggja yrði skil- yrði af hálfu Aiþýðubandalags ins við stjórnarmyndun. Ragnar sagði: „Þetta eru tvö mál, sem ekki má blanda saman. Við teljum vansæmandi fyrir íslendinga að enn skuli vera erlendur her í landinu. og við teljum það ekki gæfulegt fyrir fslendinga að vera óbein ir þátttakendur í hverju því hernaðarbrölti, sem Banda- ríkiamenn kunna að sjá ástæðu til að láta flækja sig f. Þess vegna er það krafa okkar að herstöðvarsamningnum verði tafarlaust sagt upp og við muí um vafalaust setja það skilyrði við myndun ríkisstjórnar. Sp.: En úrsögn úr NATO? Ragnar: Nei, við munum ekki setja það að skilyrði“. „Ný tegund af stjórn- málaflokki" Mikið var spurt um klofn- ing Alþýðubandalagsins, sem Ragnar kallaði reyndar „klofn- ingsbrölt einstakra manna", sem hefðu „hlaupizt á brott af annarlegum ástæðum“. Þeg- ar gengið var á Ragnar með það, hvers vegna Alþýðubanda laginu, sem stofnað var fyrir 14 árnm til að sameina vinstri Framh. á 14. síots.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.