Tíminn - 29.11.1970, Blaðsíða 12
SB—Reykjavík, laugardag
Flugbjörgunarsv. á Akureyri
mun í ár, eins og í fyrra, bjóða
bæjarbúum jólapakka sína til
kaups. Ágóðinn af sölu pakk-
anna rennur til kaupa á full-
kominni sjúkrabifreið. f fyrra
rann ágóðinn af jólapakkasöl-
unni til kaupa á vélsleða, sem
komið hefur þegar að góðuro
notum.
Verð jólapakkanna í ár er
150 króriur. Sjúkrabifreiðin,
sem sveitin hyggst kaupa, er
mjög fullkomin, með drifi á öll-
um hjólum og sjúkrakörfum
fyrir 4—5 manns, ásamt full-
komnustu tækjum, sem yö: er
á. Bifreiðin verður keypt óinn-
réttuð, eu félagar Flugbjörgun-
arsveitarinnar munu sjá um að
ganga frá klæðningu og annarri
innréttingu hennar í frístudum
sínum.
Um leið og Flugbjörgunar-
Framhald á bls. 22.
ISLEIFUR KONRAÐSSON
SÝNIR AÐ HRAFNISTU
FB—Reykjavík, laugardag
ísleifur Konráðsson, listmálari,
hefur opnað málverkasýningu í
setustofuoni að Hrafnistu, dva.'ar-
heimili aldraðra sjómanna. Á sýn-
ingunni eru 35 myndir, auk fjög-
urra aukamynda, og eru allar mynd
irnar til sölu. Sýningin verður op-1
in daglega milli kl. 14 og 22.
Isleifur, sem er 82 ára gama.l,.
hefur haldið sjö málverkasýningar
til þessa. Allar þær myndir, sem
nú eru á sýningunni, eru málaðar
árið 1969 til ’70. Verð mynda ís-
leif.s er frá 2000 krónum til 45 þús-
und króna, og flestar eru þær mi.'li
fimmtán og tuttugu þúsund. Mynd-
in er af listamanninum við verk sín.
(Tímamynd GE)
Stórfelld sjúkdómahætta
fylgir hundahaldi í þéttbýli
FB-Reykjavík, laugardag.
Heilbrigðismálaráð borgarinn-
ar hefur sent borgarráði umsögn
um hundahald í borgioni, og er
hún í fjórtán liðum, þar sem al.’t
mælir gegn því, að hundahald
verði gefið frjálst. Þar kemur
fram, að enda þótt sullaveiki sé
orðin svo tii óþekktur sjúkdómur,
finnst hún enn hjá gömlu fólki.
Hafa héraðsdýralæknar bent á,
að su.laveiki fari áberandi vax-
andi í sumum sveitum, að þeirra
mati, sé miðað við þá sulli, sem
vart verður við í sláturhúsum.
í greinargerð Heilbrigðismála-
ráðs er þess einnig geti'ð, að spólu-
ormar hafi fundizt í allríkum
mæii í hundum í Reykjavík, en
ormar þessir geta verið hættuleg-
ir börnum. Annað veigamikið at-
riði er, að verði hundahald .'eyft,
má reikna með að erlendum hund
um verði smyglað inn í landið, og
gætu þeir flutt með sér sjúkdóma,
svo sem hundaæði, en þeirrar
veiki mun nú gæta talsvert á meg-
inlandi Evrópu, og hefur hún
einnig borizt til Englands.
Af öðrum atriðum í greinargerð
inni má nefna, að þar kemur fram,
að farið sé að bera á því, að hund-
ar komi með eigendum sínum í
matvöruverzlanir, veitingahús og
aðra þá staði, þar sem matvæ.’i
séu, og má telja það mjög var-
hugavert. Hundar geta valdið um-
ferðartruflunum, og sézt hefur, er
börn hlaupa á eftir þeim út á
götur, án þess að gæta varúðar
sem skyldi í umfepðinni. Alkunna
er, að hundar geta glefsað í börn
og fullorðna, og börnum er oft lítt
um hunda og þora vart mil.’i húsa,
ef vitað er um hunda lausa í ná-
grenninu. ITundar valda einnig
óþægindum víða í sambandi við
sambýli manna. Þeir spangóla og
gelta og eru oft til óþægiudp í
þeim húsum, þar sem fleiri en ein
fjölskylda býr, og hafa kvartaoiir
borizt þar ,að lútandi ti’ heilbrigð
iseftirlitsins.
Að lokum er í greinargerðinni
vitnað í viðtal við Björn Guð-
mund.sson heilbrigðisfulltrúa á
Akureyri, þar sem segir svo:
| „Samkvæmt símtali við Björn
Guðmundsson, heilbrigðisfulltrúa
á Akureyri 13. nóvemblr 1970, er
það hans skoðun, að undanþága
sú, sem veitt var 1962 ti7 hunda-
halds á Akureyri, hafi að hans
dómi reynzt það illa, að Björn
hefur lagt til við heilbrigðisnefnd
bæjarins, að ofangreind undan-
þága verði afturkölluð".
MÓTUM OG FRAM TIL 1930
SJ—Reykjavík, laugardag.
í kaffistofu Landssímahússins
við Sölvhólsgötu er nú sýning á
póstkortum fyrir starfsmenn 'Pósts
og síma. Póstkortin eru flest göm-
ul, frá því um aldamót og fram til
1930, en ekkert yngra en frá stríðs
byrjun. Þrír starfsmenn Pósts og
síma, ívar Helgason, Bjarni Guð-
mundsson og Björn Halldórsson
sýna þarna smásýnishorn úr póst-
kortasöfnum sínum, en að sögn
beirra er áhugi á póstkortasöfnun
nú mjög vaxamdi.
Eiztu ís.'enzku póstkort eru frá
því um aldamót og með öruggri
vissu er vitað um póstkort, sem út
voru gefin 1907. Fj'rstu póstkortin
voru gefin út í Þýzkalandi 1869.
íslenzk póstkort eru merkar
heimildir um gamlar byggingar í
Reykjavík og úti á landi í fyrri tíð.
Á sýningunmi eru kort, sem sýna
atvinnuhætti, myndir af íslenzk-
um skáldum, leikurum, söngvur- j
um o<f'EönskálutflTÍ' og öðru merkis-j
fó.'ki. Þar eru kort frá Fánasiagn-
um 1913, þ. á m. mynd af Eimari
Péturssyni, verzlunarmanni, þar.
sem hann rær út höfnina í Reykja-
vík undir bláhvítum fána, ásamt
dreifimiðunum fi'á atburðuoum,
sem á eftir fylgdu. Þá eru kort með
skopmyndum af stjórnmálamönn-
um og margt fleira.
Að sögn póstkortasafnaranna
þriggja voru kort áður fyrr gefin
út fyrir íslendisnga sjálfa, en nú
eru þau gefin út til að selja þau
útlendingum. Hafa þeir mikinn
áhuga á að fieiri og betri póstkort
venði gefin hér út, þá einkurn kort,
sem sýna atburði.
,Oft geta gömu>: póstkort orðið
til þess, að farið sé að grafa upp
gamlan fróðleik. Minntust þeir fé-
lagar á eitt póstkort, sem raunar
er ekki á sýningunni. Á því er
mynd af forkunnarfögrum, útskorn
um skáp og á honum sést áletrum
in G.P.B. 1913. Kort þetta er gef-
ið út af Barnablaðimu Æskunni og
aftan á því stendur að myndsker-
inn, sem hafi gert skápinn, sé Gunn
laugur P. Blöndal. Ekki hafa þeir
félagar enn komizt að því, hver
Gunn.'augur þessi var.
Á sýningunni eru m. a. póstkort me8 myndum af samtímaskáldum. Nú dett-
ur engum í hug a3 gefa út kort með myndum af Thor Vilhjáimssyni eða
Hannesi Péturssyni.
Jólabingó F ramsóknarf élagsins á sunnudagskvöld
Verðmæti vinninga hátt á annað hundrað þús. kr.
Hið árlega jólabingó Framsóknarfélags Reykjavíkur, verður að Hótel Sögu I kvöld, sunnudagskvöld, og hefst það kl. 20,30. Margt glæsi-
legra vinninga verður í bingóinu, þar á meðal flugfar með Loftleiðum til Kaupmannahafnar og heim aftur, heimilistæki, matvæli, rúmteppi,
svefnpokar, værðarvoðir, jólaávextir, bækur og fleira. Allt verður dregið út. Aðgöngum. verða til sölu í anddyri Hótel Sögu eftir kl. 5 í dag.
STJÓRNANDI JÓLABINGÓSINS ER JÓN B. GUNNLAUGSSON.
Þeir, sem fara á jólabingó Framsóknarfélags Reykjavíkur fara ekki í jólaköttinn.
Sunnudagúr 29. nóvember 1970.
A5 fylgjast með máiefnum nútímans - bls. 18 og 19
KAUPA
SJÚKRABÍL
FYRIR
JÚLAPAKKA
Blaöburðarfólk oskast
á Skjólbraut í Kópavogi. UpplýSingar í síma 40748.
SÝNA PÚSTKÖRT FRÁ ALDA-